Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
53
kuldann og gróðurleysið
„Menn eru mis jaf nlega
vel stædir med hey”
— segir Hjalti Guðmundsson á Vesturhópshólum
„Þessir stjórnmálamenn eru
nú allir eins og ekkert treyst-
andi á þá. Það sem þarí nú er
sterk stjórn sem lætur ekki
þrýstihópana segja sér fyrir
verkum“, sagði Hjalti
Guðmundsson, bóndi á Vestur-
hópshóium, í samtali við
Morgunblaðið og taldi stjórnar-
farið einna alvarlegustu
harðindin.
„Annars er allt gott af mér að
frétta. Ég hef nóg hey ennþá og
tíðin virðist eitthvað vera að
breytast, þeir spá hlýnandi veðri
og maður verður að vera bjart-
sýnn“, sagði Hjalti.
Hann sagði ástandið ekki líkt
því eins slæmt og á
Norð-Austurlandi. „Á
venjulegum árum“, sagði Hjalti
hins vegar; „er byrjað er að bera
áburð á túnin um þetta leyti árs,
en það getur ekki hafist hér
strax. Varðandi heybirgðir er
ástandið mjög misjafnt hérna í
kring, en hætt er við að þeir geti
farið illa út úr þessu sem þurft
hafa að sléppa kindunum út, því
gras er ekkert farið að spretta",
sagði Hjalti ennfremur.
Hann er með 240 kinda bú og
auk þess 20 kýr í fjósi.
Varðandi vanda bænda að
öðru leyti sagðist Hjalti vera
þeirrar skoðunar að þorga ætti
bændum fullt verð upp að 500
ærgildum og setja á fóðurbætis-
„Hætt við að mörgum reynist
þetta ár þungt í skauti”
- segir Ólafur B. Óskarsson í Víðidalstungu
viðbót við allt annað", sagði
Ólafur.
Hann sagði að afgreiðsla
Alþingis á heimildinni fyrir
ríkisstjórnina að ábyrgjast 3,5
milljarða lán til Framleiðsluráðs
landbúnaðarins hafi verið ansi
mikill skellur fyrir bændur. „Það
er viðurkennt að 12—1300
þúsund vanti á hvert meðalbú til
þess að létta tekjuskerðinguna
vegna offramleiðslunnar“, sagði
Ólafur. „Þegar svo við bætist
erfitt árferði er ástandið heldur
slæmt".
Hann sagði að tilraun núver-
andi ríkisstjórnar til þess að
standa við kosningaloforðin hafi
orðið til þess að hluti af tekjum
yfirstandandi árs hafi verið
færðar yfir á 1978, vegna þess að
gerð verðlagsgrundvallar dróst
fyrir árið 1977. Þá var haldið
eftir því sem næst 70 krónum af
hverju kjötkílói sem síðan voru
endurgreiddar í fyrra. Þetta hafi
leitt til þess að árið 1978 hafi
bændur verið óvenju tekjuháir.
Hins vegar leiði það aðeins til
hækkandi tekjuskatts á þessu
ári og þegar það leggst á eitt
með slæmu árferði og litlum
tekjum sé hætt við að mörgum
reynist þetta ár þungt í skauti.
„Mönnum finnst slæmt að
þetta skuli látið skella á þeim
allt á einu bretti", sagði Ólafur
B. Óskarsson.
„Hér um slóðir hefur það
íyrst og fremst verið kuldinn
og frosthörkurnar sem sett
hafa sinn svip á vorkomuna,
það hefur samt ekki verið svo
mikill snjór, en maí hefur verið
óvenju frostharður. Til dæmis
var G—8 stiga frost hér 15—20.
Ólafur B. óskarsson í Víðidals-
tungu markar sér unglamb.
maí, en þá var maður að byrja
að vera á ferðinni á nóttunni
vegna sauðburðarins. Eldri
menn muna ekki svona jafnan
og mikinn kulda eins og hefur
verið hérna í vetur“. Þannig
lýsti Ólafur B. óskarsson bóndi
í Víðidalstungu vorharðindun-
um í sfnu héraði. Ilann sagði að
klakinn væri mikill f jörðu
samt ekki eins mikill og búast
mætti við eftir frostunum.
„Varðandi heybirgðir eru
menn mjög misjafnlega stæðir
og hætt við að lítið fari að verða
eftir ef gefa þarf eitthvað fram í
júní“, sagði Ólafur. „Það hefur
einhverju verið miðlað milli
bæja eftir því sem hægt er, en
hætt er við að erfitt verði hjá
þeim bændum sem eru með
blandað bú, ef þeir þurfa að gefa
kúnum út júní“.
Ólafur sagðist telja að ef
góður hlýindakafli kæmi gæti
margt breyst á skömmum tíma.
Ef kalskemmdir væru í túnum
kæmu þær ekki í ljós fyrr en
gróður færi að lifna.
„Annars er venjulega farið að
bera á tún um þetta leyti árs en
áburður er ekki allur kominn
ennþá. Ég er til dæmis ekki
búinn að fá allan minn áburð.
Það yrði afar slæmt ef áburður
kæmist ekki á skaplegum tíma í
skatt og venja þannig menn af
óhóflegri notkun fóðurbætis.
„Þeir sem eru með þessi stóru bú
verða þá bara að sjá um þau
sjálfir. Það er vel hægt að
komast af með bú eins og ég er
með og þjónar engum tilgangi að
vera með þessi stóru bú þegar
vörurnar seljast ekki“, sagði
Hjalti Guðmundsson að lokum.
Hjalti Guðmundsson, Vesturhópshólum, ásamt syni sínum Úifari
í f lestar
gerðir bifreiða
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
ÁL-GRÓÐURHÚS
fyrir heimagaröa,
FYRIRLIGGJANDI
1
8x10 fet kr. 200.880 m/gleri
8x12 fet kr. 223.500 m/gleri
10x12 fet kr. 315.960 m/gleri
autoheat
RDR ACCURATE GREENHOUSE HEATING
Ál-sólreitir/blómakassar Sjálfvirkir hitablásarar
Stærö 122x70 cm. kr. 2500 wött kr. 44.136. 1000
23.280. wött kr. 50.436.
Hillur 122 cm. kr. 6.360. Hillur 183 cm. kr. 8.640.
Borð 244 cm. kr 31.800
Vinsamlegast hafið samband við okkur strax, en
undanfarin ár hafa húsin selst upp jafnóðum og
sendingar hafa borist.
Kynnisbækur sendar ókeypis.
KLIF
Vesturgötu 2, Reykjavík.
H F Sími 23300