Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979 59
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Sumarspilamennska
í Hreyfilsh'isinu.
Sl. fimmtudag hófst sumar-
spilamennska í Hreyfilshúsinu á
vegum Bridgefélags Reykja-
víkur, Bridgefélags kvenna og
Bridgedeildar Breiðfirðinga-
félagsins. 20 pör mættu til leiks
og var spilað í tveimur 10 para
riðlum.
Úrslit í A-riðli:
Óli Már Guðmundsson —
Þórarinn Sigþórsson 132
Georg Sverrisson —
Kristján Blöndal 127
Egill Guðjohnsen —
Stefán Guðjohnsen 123
Úrslit í B-riðli:
Guðríður Guðmundsdóttir —
Sveinn Helgason 128
Hermann Hermannsson —
Lárus Hermannsson 125
Magnús Halldórsson —
Magnús Oddsson 120
Maðalárangur 108
Góð kvöldverðlaun verða veitt
í keppninni svo og heildar-
verðlaun fyrir sumar-
spilamennskuna. Gefur fyrsta
sæti 3 stig annað sætið 2 stig og
þriðja sæti 1 stig.
Næst verður spilað á
fimmtudaginn og búist við miklu
fjölmenni.
Aðalfundur
Aðalfundur Bridgefélags
Reykjavíkur verður haldinn í
Domus Medica miðvikudaginn
13. júní n.k. kl. 20.30. Á dagskrá
fundarins eru venjuleg aðal-
fundarstörf og önnur mál. Á
fundinum verða veitt verðlaun
fyrir keppnir vetrarins og eru
verðlaunahafar sérstaklega
hvattir til að koma en skrá yfir
þá fylgir hér á eftir.
Stjórn félagsins væntir þess,
að sem flestir aðrir félagsmenn
komi einnig á fundinn og í því
sambandi vill hún minna á, að
aðalfundur er hinn rétti
vettvangur fyrir umræður um
starfsemi félagsins og einnig til
að koma á framfæri hugmynd-
um um nýjungar í starfsháttum
þess.
Félagið býður fundarmönnum
upp á kaffiveitingar eins og
venja hefur verið.
83033
er nýtt
símanúmer
á afgreiöslu
Morgunblaösins
Bridgefélags
Reykjavíkur
.. STORTÆK
VOKVAPRIFIN
VERKFÆRI FRA STANLEY
Stöðluð fyrir hvers konar vinnuvélar
Hvers vegna vökvakerfi?
Þú þarft aðeins að ráða yfir vinnuvél, t.d.
venjulegri dráttarvél eða vörubifreið, sem
búin er vökvakerfi og þá getur þú auðveldlega
tengt við það eitthvað af eftirfarandi
verkfærum: BROTFLEYG, SÖG, SKRÚFUVEL,
HÖGGBOR, VATNSDÆLU, KEÐJUSÖG,
STEINBOR, SKOTHOLUBOR.
Traktorsgrafa Ámokstursíæki'
Allt verkfæri sem henta vel við iðnað og
verklegar framkvæmdir hvers konar og eru
lika fáanleg til notkunar neðansjávar.
Yfirburðir vökvadrifinna kerfa eru ótviræðir.
• Minni hávaði.
• Tengist á fljótan og auðveldan hátt
þeirri vinnuvél sem næst er hverju
sinni.
• Vökvakerfi er tvöfalt aflmeira en
loftkerfi.
• Þú ert laus viö að drattast með dýrar
og þunglamalegar loftpressur.
• Óhreinindi komast ekki inn i kerfið og
allir hlutir þess eru i stöðugu oliubaði.
Þ.a.l. minni viðhaldskostnaður.
• Skilar sama afli i vetrarkulda sem
sumarhita. Engin hætta af frosti.
• Vökvakerfið er léttara og kraftmeira og
leiöir því fil betri árangurs ástyttri tíma.
Einnig eru fáanlegar færanlegar
aflstöðvar sem tengjast þessum verkfærum.
Aflþörf aöeins 11 hestöfl.
STANLEY
-stendur fyrirsínu!
Þú átt aflgjafann,við verkfærin!
ífniiii Versluri - Ráðgjöf- Viðgerðarþjónusta
TÆKNIMIÐSTÖÐIN HF
Smiðjuvegi 66, 200 Kópavogi. Sími: (91)-76600.
RÝMINGARSALA
Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag 5.
6. og 7. júní kl. 9—5 alla dagana.
Seldar veróa peysur á börn og
fullorðna, einnig prjonabútar og garn
Prjónastofan Iðunn h.f. Seltjarnarnesi