Morgunblaðið - 24.06.1979, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ1979
Jörðin Sunndalur
í Strandasýslu
er til sölu. Jöröin er 200 hektarar. Ræktaö land 10
ha. Hlunnindi fylgja. Tilvalið fyrir orlofsheimili. Skipti
á íbúö í Rvk. möguleg. Sunndalur er ca. 25 km. frá
Hólmavík. Uppl. í símum 51491 og 74730 e.kl. 6.
Halló, Halló
Akurnesingar, feröafólk. Athugiö, höfum
opnaö Grill aö Akursbraut 3 Akranesi. Heitir
grillréttir allan daginn. Gjöriö svo vel aö líta
inn. Akurnesingar viö sendum ykkur matinn
heim.
Munið að síminn er 1230.
Skóladagheimili —
Starfsfólk
Félagsmálastofnun óskar aö ráöa starfsfólk
aö skóladagheimilinu í Dalbrekku frá 15.
ágúst n.k. Umsækjendur meö uppeldislega
menntun ganga fyrir.
Umsóknarfrestur er til 4. júlí n.k.
Nánari uppl. veitir dagvistarfulltrúi í síma
41570 kl. 11 — 12, og þar liggja einnig frammi
sérstök umsóknareyöublöö.
Félagsmálastofnun Kópavogs,
Álfhólsveg 32.
Húseignin
Stýrimannastígur 3
er til sölu í heilu lagi eöa hver hæö fyrir sig.
í kjallara eru 3 herb. (áöur íbúö), auk þess
geymsla og þvottahús.
A 1. hæö er 3ja herb. íbúö.
Á 2. hæö er 3—4 herb. íbúö.
í rishæö eru 4 herb., snyrtiherb. og geymsla
(áöur íbúö).
Rúmgott geymslurými á háalofti. (1. hæö gæti
hentaö fyrir skrifstofur og kjallarinn fyrir
vörulager o.fl.). All stór eignarlóö og bílskúrs-
réttur. Á eigninni hvíla engin veöbönd.
TILBOÐ ÓSKAST
Upplýsingar gefur Siguröur Arnalds, Klepps-
vegi 4, í síma 86732 milli kl. 5 og 8 í dag og
næstu daga.
óskar eftir
blaðburðarfólki
VESTURBÆR:
□ Holtsgata
AUSTURBÆR:
□ Skólavöröustígur
KÓPAVOGUR:
□ víöihvammur.
Uppl. í síma
35408
Nýjungar í starfsemi
Stúdentakjallarans
BRYDDAÐ verður upp á ýmsum
nýjungum í starfsemi Stúdenta-
kjailarans við Hringbraut í sum-
ar. Húsnæði Stúdentakjailarans
hefur verið endurbætt og er nú
orðið miklu vistlcgra en áður
var.
A boðstólum eru margs konar
veitingar bæði í föstu og fljótandi
formi. Pizzur verða nú á boðstól-
um í fyrsta sinn, en einnig verður
hægt að nærast á síldarréttum og
smurðu brauði, auk allra venju-
legra kaffiveitinga. Stúdentakjall-
Afhenti erkihertoga
trúnaðarbréf
HINN 19. júní afhenti Henrik Sv.
Björnsson sendiherra Jean erki-
hertoga í Lukembourgtrúnaöar
bréf sitt sem sendiherra íslands í
Luxembourg.
(Frétt frá utanríkisráðuneytinu).
arinn hefur leyfi til að veita létt
vín. Opið verður'í sumar alla daga
frá klukkan 11.30 til 23.30, nema
milli 6 og 8 en þá verður matar-
sala í mötuneyti stúdenta á efri
hæðinni. Matsalan er öllum opin
og þar fá stúdentar seld sérstök
afsláttarkort.
En Stúdentakjallarinn hefur í
hyggju að sinna einnig annars
konar list en matarlyst, og nú
þegar eru ráðgerðar ýmsar list-
sýningar.
Sýning á kúbanskri grafík hefst
5. júlí og undir verður leikin
kúbönsk músík af plötum. Að
þeirri sýningu lokinni tekur við
sýning á verkum, sem eru í eigu
Félagsstofnunar stúdenta og má
þar meðal annars nefna verk eftir
Scheving, Kjarval, Ásgrím og
Blöndal.
Til að gleðja þá sem vilja góð-
gæti fyrir eyrun skal þess getið að
Stúdentakjallarinn mun eftir sem
áður bjóða upp á jass-músík á
Vantar Þig húsnæði
Karatefélag Reykjavíkur getur leijgt að-
stööu sína sem er: Æfingasalur, bunings-
herbergi, sturtur sauna, W.C., setustofa
og skrifstofa fra kl. 08.00—18.00 alla
daga nema laugardaga. Þeir sem hafa
ghuga, hringi í síma 35025 eða komi í
Armúla 28 a mánud., miöv.d. eða föstu-
dag, kl. 20.00.
Karatefélag Reykjavíkur
S:--
símanúmer
SKRIFST0FUR:
10100
ti IUmh
1 ■**' r-"- 1jj| ■
l
22480
83033
IS
§#
sunnudagskvöldum, þar sem Guð-
mundur Ingólfsson mun troða upp
með ýmsum félögum sínum og
fremja með þeim jass-músík. Auk
þess mun Funda- og menningar-
málanefnd Stúdentaráðs standa
fyrir menningar uppákomum á
föstudögum einu sinni í hverjum
mánuði.
Nú um þessar mundir opnar
Hótel Garður og hefur húsnæði
hótelsins í Gamla Garði verið
endurbætt, en auk þess ræður
hótelið yfir húsnæði á Nýja Garði.
Fjórðungsmót
norðlenskra hesta-
mannaá Vind-
heimamelum
um næstu helgi
FJÓRÐUNGSMÓT norðlenskra
hestamanna verður haldið á
Vindheimamelum í Skagafirði
um næstu helgi og hefst mótið
fimmtudaginn 28. júní með dóm-
um gæðinga og kynbótahrossa og
lýkur að kvöldi 1. júlí. Öll hcsta-
mannaíélögin á Norðurlandi, 15
að tölu, standa að mótinu og er
allur undirbúningur þess á loks-
stigi en vetrarríki og óvenjukald-
ur maímánuður hafa dragið
nokkuð úr þjálfun hrossa nyrðra
allt þar til síðustu vikur.
Keppt verður í A- og B-flokkum
gæðinga og dæmt eftir því kerfi,
sem samþykkt var á síðasta árs-
þingi Landssambands hesta-
mannafélaga en 37 hestar eru
skráðir til keppni í hvorum flokki.
150 hross eru skráð til keppni í
hinum ýsmu greinum kappreiða
og eru þar á meðal flest þekktustu
kappreiðahross landsins. Má
nefna að í 250 metra skeiðinu
keppa m.a. Fannar og Skjóni, í
unghrossahlaupi Kóngur og Ljúf-
ur, í 350 metra stökki Glóa, Maja
og Óli og í 800 metra stökki
Þróttur, Gustur og Blákaldur. í
kappreiðunum er keppt um pen-
ingaverðlaun og eru fyrstu verð-
laun í skeiði t.d. 200 þúsund
krónur.
Milli 60 og 70 kynbótahross
verða dæmd á mótinu og eru það
bæði hryssur og stóðhestar, en
yngri hross en 4 vetra verða ekki
sýnd. Sérstök unglingakeppni
verður á mótinu og hafa öll
aðildarfélög mótsins tilkynnt
þátttöku, þannig að alls taka þátt
í keppninni 25 unglingar.
Sem fyrr sagði hefst mótið á
fimmtudag með dómum gæðxnga
og kynbótahrossa, á föstudeginum
verður dómum framhaldið og
fram fara undanrásir kappreiða'
og á laugardeginum fer fram
unglingakeppni, gæðingadómum
verður lýst, kynbótahross sýnd,
milliriðlar kappreiða, gæðinga-
skeið og um kvöldið verður kvöld-
vaka. Á sunnudeginum verður
hópreið hestamanna, dómum kyn-
bótahrossa lýst, 8 efstu gæðing-
arnir í hvorum flokki sýndir og 5
efstu hestarnir í unglingakeppn-
inni koma fram. Að kvöldi sunnu-
dagsins verður dregið í happa-
drætti mótsins en aðalvinningur
þess er altygjaður gæðingur.
Sýnt þykir að færra fólk komi
ríðandi yfir hálendið til mótsins
vegna þess hversu seint voraði en
gert hafði verið ráð fyrir en fólk
mun koma ríðandi að úr nærsveit-
unum. Framkvæmdastjóri móts-
ins er Egill Bjarnason, ráðunautur
á Sauðarkróli.
Aflýsa
verkfalli
STJÓRN og trúnaðarmannaráö
Grafíska sveinafélagsins ákváðu
á fundi að aflýsa boðuðu verkfalli
félagsins, sem koma átti til fram-
kvæmda kl. 24. hinn 24. júní.
Verkfall þetta hefði náð til allra
félagsmanna Grafíska * sveina-
félagsins að undanteknum þeim
félögum, sem vinna við Ríkis-
prentsmiðjuna Gutenberg.
Vegna þessa stöðvast ekki dag-
blaða útgáfa um helgina.