Morgunblaðið - 24.06.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐJ.Ð, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ1979
49
Drottning
Atlantshafs
Súlan, drottning Atlantshafsins, er í hópi
tígulegustu fugla landsins. Þessar myndir
af súlunni voru teknar í Vestmannaeyjum í
sumar, en par verpir súlan í 4 úteyjum.
Stærsta byggðin erí Súlnaskeri par sem
nokkur púsund pör búa. Ekki ber pó eyjan
nafn sitt af súlunni, heldur 5 bergsúlum
sem eyjan stendur á. Stærsta súlubyggð
landsins er í Eldey út af Reykjanesi, en par
búa milli 15 og 20 púsund pör og er par
jafnframt stærsta súlubyggð í heimi.
Súlan verpir á mjög misjöfnum tíma, pær
fyrstu í marz-apríl og pær síðustu í maí.
Réttur súlunnar yfir hreiðri sínu er stórt
atriði í búskapnum, pví hún ver grimmilega
landhelgi sína kring um hreiðurhraukinn.
Hún ber unga sínum mjög mikla fæðu, pví
hann er purftafrekur og er talinn éta a.m.k.
jafnpyngd sína á dag, en pegar hann er
fullvaxinn vegur hann um 2—3 kg.
Kögrar
brúnir
í aldir hefur súlan verið nytjuð á pann
hátt að unginn hefur verið tekinn um pað
bil sem hann er að verða fleygur. Síðustu
áratugi hefur pó mjög dregið úr nytjum
súlunnar og eru vart meira en nokkur
hundruð súluungar teknir hvert ár, aöallega
í Vestmannaeyjum, en slíkar nytjar heyra til
jarðréttinda. Að öðru leyti er súlan fríðuö
enda hefur hún numið land á nýjum slóöum
síðustu ár eins og t.d. í Dyrhólaey. Byggð-
irnar í Eldey og Súlnaskeri eru sérkennileg-
astar vegna fjöldans sem par býr á litlu
svæði og svo pétt byggir súlan Eldey að
stundum kögrar hún brúnir eyjunnar pegar
stél við stél stendur út fyrir bjargbrún.
Súlan er harðsækinn fugl, enda hefur
hún bæði kraft og fimi til pess að standa
vel fyrir sínu í hversdagsbaráttunni. Hún á
Það jafnvel til að ráðast á menn ef peir fara
um bæli hennar.
Mikil reisn
í fasi
Drottningarnefnið ber hún ugglaust af
mörgum ástæðum. Hún hefur tígulegan
svip og mikla reisn í fasi. Hún klæðist
virðulegum og fögrum búningi, en stór-
kostlegust er hún pegar hún stingur sér í
sjóinn eftir æti, oft úr mikillí hæð, en eins
og ör klífur hún sjóinn. í kring um Eyjar er
oft mikið súlukast og svo gráðug getur hún
stundum verið að pað er eins og skæða-
drífa dynji yffír par sem fiskur fer augljós-
lega um. Sjón súlunnar er mjög skörp,
enda getur hún stungið sér úr tuga metra
hæð eftir fiski sem hún sér á flugi sínu.
Þegar hún stingur sér dregur hún aöeins að
sér vængina og steypir sér beint niður en
pegar hún á eftir nokkur fet í sjóinn, pá
dregur hún vængina alveg að sér og svo
lipurt stingur hún sér að pað kemur vart
gusa eftir hana og fiskurinn sem hún
kemur með upp getur orðið allt að 30—40
sm stór. — á.j.