Morgunblaðið - 24.06.1979, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ1979
Umsjón: Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
Séra Kurl Siyurbjiirnsson
Siyurdur Pálsson
áSdrottinsdegi
Hvað er
Kristilegt félag
heilbrigðisstétta
Úr fræðum Lúthers:
Skímin
ÍFYRSTA LAGI.
Hvað er skírnin?
Svar: Skírnin er ekki algengt vatn eingöngu, heldur er hún
vatnið, umvafið Guðs boði og samtengt orði Guðs.
Hvert er þá slíkt Guðs orð?
Svar: Það er Kristur, Drottinn vor, segir hjá Matteusi í
síðasta kapítuia:
Farið og gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum með því
að skíra þá til nafns Föðurins, Sonarins og hins lieilaga
Anda. (Matt. 28,19).
ÍÖÐRULAGI.
Hvað geíur eða gagnar
skírnin?
Svar: Hún veldur fyrirgefningu syndanna, frelsar frá
dauðanum og djöflinum og gefur eilífa sáluhjálp öllum
þeim sem því trúa, — svo sem orð Guðs og fyrirheit hljóða.
Hver eru þá slík orð og
fyrirheit?
Svar: Þau er Kristur, Drottinn vor, segir hjá Markúsi í
síðasta kapítula: Sa, sem trúir og verður skírður mun
hópinn verða, cn sá sem ekki trúir mun fyrirdæmdur
verða." (Mk. 16,16).
KIÍISTILEGT fclag hoilbrigðis-
stctta hefur um þessar mundir
hcimsókn frá alþjóðahreyfing-
unni. International Ilospital
Christian Fellowship. Er það
framkvæmdastjóri Evrópudeild-
arinnar sem hingað er kominn,
Leonora van Tonder, hjúkrunar-
fræðingur og ljósmóðir. Leonora
er fædd og uppalin í Suð-
ur-Afríku. en hefur nú dvalið og
starfað í Hollandi á vegum hreyf-
ingarinnar síðastliðin 9 ár.
Við tökum Leonoru tali og
spyrjum hana nokkurra spurn-
inga varðandi hreyfinguna og
starf hennar í henni.
Hvernig stendur á komu þinni
hingað til íslands?
Síðast liðið sumar hitti ég Sig-
ríði Magnusdóttur Og Mar-
grétiHróbjartsdóttur hjúkrunar-
fræðinga á ráðstefnu alþjóðahreyf-
ingarinnar, sem haldin var í Wales
á Englandi. Slíkar ráðstefnur eru
haldnar þriðja hvert ár og á
þessari ráðstefnu voru nærri 900
þátttakendur frá 88 löndum. Sig-
ríður og Margrét buðu mér þá að
koma til íslands á vegum Kristi-
legs félags heilbrigðisstétta.
Hver er tilgangur komu þinnar
hingað?
Að styrkja sambandið við
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
og vekja áhuga hjá fleira fólki
innan heilbrigðisstéttanna á and-
legum og trúarlegum málefnum.
Hvað er Kristilegt félag heil-
brigðisstétta?
Það eru samtök þeirra sem
vinna á meðal sjúkra. Tilgangur-
inn er að vera við því búinn að
mæta jafnt andlegum sem líkam-
legum og sálrænum þörfum sjúk-
linganna. En til þess þarf starfs-
fólkið sjálft að þekkja þann Guð,
sem hefur skapað alla menn til
samfélags við sig. Þess vegna
leggjum við áherslu á vitnisburð-
inn um kærleika Guðs í Jesú
Kristi, bæði meðai starfsfólks
sjúkrahúsanna og sjúklinganna.
Hvernig vinnið þið þetta starf?
Við reynum að vekja áhuga og
skilning hinna trúuðu á nauðsyn
þessa. Við hvetjum þá til að biðja
saman fyrir sjúklingum sínum,
lesa Guðs orð saman og styrkjast
þannig og eflast í trúnni á Drottin
Jesúm. Við höidum ráðstefnur,
höfum námskeið, útbreiðslufundi,
gefum út bækur og tímarit, seljum
kristilegar bækur og rit á sjúkra-
húsunum og gefum kristilegt les-
efni á bókasöfn sjúkrahúsanna og
m. fl,
Er þetta í fyrsta sinn sem þú
kemur til Islands?
Já, þetta er í fyrsta skipti, sem
ég kem til íslands. En stofnandi og
ieiðtogi I.H.C.F., Francis Grim,
hefur þrívegis komið til íslands.
Hvernig byrjaði þetta starf?
Francis Grim og bróðir hans sáu
Francic Lcnura van
Grim Tronder
þörfina fyrir starf sem þetta þegar
þeir heimsóttu deyjandi föður sinn
á sjúkrahús í S.-Afríku árið 1936.
Þeir sáu hinar óuppfylltu and-
legu og trúarlegu þarfir jafnt hjá
starfsfólki sjúkrahúsanna sem
sjúklingum þess. Þetta varð til
þess að þeir byrjuðu með fundi sem
þeir héldu með hjúkrunarfræðing-
um, en seinna fneð öllu starfsfólki
sjúkrahúsanna, og markmiðið var
að efla og glæða trúarlíf þeirra og
biðja saman.
Arið 1951 heimsóttu þeir mörg
lönd Evrópu í þeim tilgangi að
læra nýjar starfsaðferðir, en þeir
komust brátt að því að lítið sem
ekkert var gert í þessa átt á
sjúkrahúsum í Evrópu. Guð fól
þeim það verkefni á hendur að
setja á stofn mörg kristileg félög
(eða samfélög) heilbrigðisstétta
víðsvegar um Evrópu. Fyrsta fé;
lagið var stofnað í Svíþjóð 1952. I
rúmiega 40 ár hefur Francis Grim
ferðast um allan heiminn og verið
hvatamaður að stofnum slíkra
félaga eða hópa í mörgum löndum.
Nú er stór hópur manna í fullu
starfi fyrir samtökin víðsvegar um
heim en samt sem áður vantar
mjög víða fólk, sem getur helgað
sig alveg þessu starfi.
Hverju vonast þú til að koma til
leiðar meðan þú dvelur á Islandi?
I fyrsta lagi vonast ég til þess að
geta hvatt og uppörvað þá sem
vinna á sjúkrahúsum og einnig
aðra sem koma á fundi og sam-
komur með okkur. Það felst þá
fyrst og fremst í því að gefa þeim
leiðsögn og hjálp til að eignast
persónulegt samfélag við Jesúm
Krist og uppbyggjast í trúnni. í
öðru lagi að leiðbeina um hvernig
vænlegast sé að ná árangri í starfi
sem þessu.
Hvernig starfar Kristilegt féiag
heilbrigðisstétta á Islandi?
Félagið er aðeins hálfs annars
árs enn sem komið er, í þeirri
mynd sem það er nu, en áður var
hér starfandi Kristilegt félag
hjúkrunarkvenna. Nú er öllum
starfshópum heilbrigðisstofnana
boðið að vera með.
Fundir eru mánaðarlega í safn-
aðarheimili Grensássóknar. Efni
þeirra er oftast fræðsluerindi og
umræður, sem snerta kristna trú
og ýmsa þætti heilbrigðisþjónust-
unnar.
Bænastundir eru vikulega á
sama stað, þar sem beðið er fyrir
sjúkum, fyrir heilbrigðisstofnun-
Biblíulestur
Vikuna 24.-30. júní
Sunnudagur 24. júní Lúk. 14:16 - 24
Mínudagur 25. júnf Lúk. 14: 25 - 35
Þrifljudaaur 26. júní 1. Þchh. 1: -10
Miðvikudagur 27. júní 1. Þesa. 2:1 -13
FimmtudaKur 28. júni
I. Þesa.2: 14-3.13
FöatudaKur 29. júni I. Þess. 4:1 -18
Laugardaicur 30. júní
II. Þessi 5:12-28
um og starfsfólki þeirra, fyrir
heilbrigðisyfirvöldum og mörgu
öðru. Við leggjum mikla áherslu á
bænina og fyrirbænina.
Dreifing á kristilegu lesefnier
einnig hluti af starfinu, og nú er
hægt að fá það keypt í sölubúðum
stærstu sjúkrahúsanna í Reykja-
vík. Féiagið hefur einnig gefið
nokkrar kristilegar bækur til
sjúklingabókasafna í Reykjavík og
á nokkrum stöðum úti á landi.
Félagið hefur einnig gefið út bækl-
ing, sem leggja á í náttborð hvers
einasta sjúklings. Þar er að finna
huggunarorð úr Heilagri ritningu
og uppörvunarorð á reynslutímum.
Hluti af starfinu er einnig heim-
sóknir, eins og þessi heimsókn mín
núna. Henni er ætlað að kynna
betur starfið útávið, t.d. með heim-
sóknum á sjúkrahúsin og opnum
fundum í kirkjum og annars stað-
ar. Við höfum alls staðar gott
samstarf við kirkjuna og þá eink-
um sjúkrahúsaprestana. Um síðast
liðna helgi stofnaði félagið til
ráðstefnu í Skálholti þar sem
fjallað var um bænina og bænalíf-
iö, starfsaðferðir o.fl.
Getur þú nefnt dæmi um, hvern-
ig þetta starf kemur sjúklingum á
sjúkrahúsum til góða?
Hjúkrunarfræðingur einn í Nor-
egi stóð við rúm deyjandi sjúkl-
ings. Hann spurði hana. „Hvenær
mun ég deyja?" Svar hennar var.
„Ég veit það ekki. Ég er frísk en þú
ert veikur, en samt sem áður gæti
ég alveg eins dáið á undan þér. Það
er ekki svo mikilvægt hvcnær við
deyjum heldur hvað um okkur
verður þegar við deyjum." Síðan
opnaði hún Biblíuna og bað hann
að lesa 53. kaflann í spádómsbók
Jesaja og þar sem stæði „vorar“
skyldi hann lesa i staðinn sitt eigið
nafn t.d. þar sem stæði „hann var
særður vegna vorra synda“, skyldi
hann lesa í staðinn „hann var
særður vegna synda Jóns“ og
þannig kaflann á enda. Hún bauð
honum síðan góða nótt og yfirgaf
hann. Morguninn eftir kom hún til
hans Andlit hans ljómaði af gleði.
Hann hafði eignast fullvissu um að
Jesús Kristur hafði dáið á krossi
einnig vegna synda hans. Han átti
núna frið í hjarta og gat mætt
dauðanum með djörfung trúarinn-
ar.
— Leonora van Tonder talar á
samkomu í húsi KFUM og K við
Amtmannsstíg í kvöld kl. 8.30.
Höfuðstöðvarnár
Komið, því að allt er þegar tilbúið
Jesús sagöi margar dæmisögur og iíkingar meðan hann
gekk um á meðal þjóðar sinnar. Allar þessar sögur sagði hann
með það í huga að koma ákveðnum boðskap til skila. Hann var
sendur með Orð Guðs til okkar mannanna og því miðlaði hann
á marga vegu. Hann prédikaði, sagði dæmisögur, líknaði,
gerði kraftaverk, kenndi og gekk svo inn í kvalarfullan dauða
til að sigra dauðann og vald hans. Allt hans starf og líf miðaði
að því að opna himin Guös fyrir okkur syndugum- mönnum,
sætta Guð og menn og það starf er fullkomnað.
Dæmisagan um hina miklu kvöldmáltíð er mynd af himni
Guðs. Allt er þegar tilbúið frá hendi hans. En það fer ekki hjá
því að við mannanna börn sýnum oft af okkur mikið fálæti
þegar hinn hæsti konungur er annars vegar.
„Komið, fylgið mér!“, þannig ávarpaði Jesús samferðafólk
sitt og það gerði hann í nafni Guðs hins hæsta, það gerði hann
sem sonur Guðs og hafði því óskorað vald til þess að tala eins
og hann gerði.
Þetta kall um eftirfylgd og um að ganga inn í veislusal Guðs
er ekki eitthvað sem heyrir fortíðinni til, nei, því er beint til
allra manna. Ekki síst til þeirra sem sjálfir telja sig alls
óverðuga, því Jesús kom til þess að leita að hinu týnda og
frelsa það. Jesús gerði sér far um að ná til þeirra sem jafnvel
voru dýpst sokknir. Hann kom með líf og frið inn í hjörtu
þjáðra manna og gaf okkur fyrirmynd að kristilegu
líknarstarfi.
Aðgangurinn að veislusal Guðs er opinn líka í dag, hlýðum
kallinu sem hljómar þaðan og verum jafnframt fús til að
ganga erinda Drottins svo að fleiri sjái ástæðu til að fylgja
Jesú Kristi í raun og sannleika.