Morgunblaðið - 24.06.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNI1979
63
Sjötugur:
Dr. Sverrir Magnússon
apótekari, Hafnarfirði
Dr. Sverrir Magnússon, sem í
dag verður sjötugur, er fæddur á
Hofsósi við Skagafjörð 24. júní
árið 1909. Foreldrar hans voru
Magnús Jóhannsson, héraðslæknir
í Hofsóshéraði, og kona hans
Rannveig Tómasdóttir Hall-
grímssonar prests á Völlum í
Svarfaðardal. Faðir Sverris dó
ungur frá stórum barnahópi, og
féll það því í hlut móðurinnar að
koma börnunum á legg og til
mennta, og tókst henni það með
mikilli prýði.
Sverrir lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1930 og hóf þá nám í lyfjafræði í
Reykjavíkur Apóteki. Hann lauk
þar fyrrihluta prófi og hélt síðan
utan til Danmerkur til frekara
náms. Þar lauk hann cand.pharm.
prófi við lyfjafræðingaskólann í
Kaupmannahöfn með hárri eink-
unn árið 1935. Aður en hann fór
heim frá Danmörku, kynnti hann
sér rekstur apóteka þar og einnig
starfsrækslu lyfjaverksmiðja. Eft-
ir heimkomuna starfaði Sverrir í
nokkur ár sem yfirlyfjafræðingur
í Reykjavíkur Apóteki. Hann hélt
þá enn utan og nú til framhalds-
náms í Ameríku. Þar lagði hann
stund á lyfjaefnafræði við banda-
rískar vísindastofnanir og lauk
framfaramálum stéttar sinnar, og
gekk hann jafnan að þessum
margvíslegu verkefnum með
hugviti sínu, skipulagsgáfu og
frábærum dugnaði. Það má með
sanni segja, að ekkert mál apótek-
arastéttarinnar hafi verið til lykta
leitt, án þess að Sverrir hafi lagt
þar á gjörva hönd.
Eg hef unnið með Sverri að
margvíslegum málefnum, en að
mínum dómi ber þar hæst stofnun
og rekstur Pharmaco hf. Sverrir
er einn af stofnendum fyrirtækis-
ins og hefur verið í stjórn þess frá
upphafi og formaður stjórnarinn-
ar í 13 ár. Að öllum ólöstuðum er
Sverrir sá stjórnarmanna Pharm-
aco hf., sem mest hefur lagt af
mörkum við uppbyggingu og
þróun fyrirtækisins. Hin frjóa
hugsun hans, kunnátta og þekking
á rekstri lyfjaverksmiðja hefur
komið þar að góðu haldi. Hann
hefur verið vakinn og sofinn í
áhuga sínum fyrir Pharmaco hf.
og alltaf gefið sér tíma til að sinna
þeim vandamálum, sem upp hafa
komið.
Sverrir Magnússon er að eðlis-
fari fremur dulur maður, sérlega
prúður í allri framgöngu og ber
ekki hæfileika sína, menntun og
mannkosti á torg. En við nánari
kynni og í góðra vina hópi leikur
hann á als oddi og er þá hrókur
alls fagnaðar.
Eiginkona Sverris er Ingibjörg
Sigurjónsdóttir, cand.pharm.,
dóttir Sigurjóns Jónssonar, læknis
á Dalvík, og konu hans Sigríðar
Olafsdóttur, söðlasmiðs í Reykja-
vík Olafssonar. Frú Ingibjörg er
vel menntuð, vönduð og hreinlynd
kona, sem ekki má í nokkru vamm
sitt vita. Þau hjón eru afar
heimakær, enda hafa þau skapað
sér heimili, sem bæði er augna-
yndi innan húss og utan. Heimili
þeirra er í senn menningarlegt,
fágað og hlýlegt og ber hugarflugi
húsbóndans órækt vitni.
Á þessum hátíðisdegi færum við
Anna þeim hjónum beztu árnaðar-
óskir og þökkum löng og góð
kynni.
Birgir Einarson.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl- AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR
ÞU AUGLYSIR I MORGUNBLAÐINU
doktorsprófi í þeirri grein frá
háskólanum í Lafayette árið 1947.
Þegar heim kom, var Sverri
veitt leyfi fyrir Hafnarfjarðar
Apóteki, sem hann rekur enn við
góðan orðstír. Hann tók strax að
endurskipuleggja apótekið og
bæta um betur. Sverrir hefur
ævinlega verið þeirrar gerðar, að
hann unnir sér aldrei hvíldar, fyrr
en hann hefur endurbætt það, sem
betur má fara.
Sverrir var þegar í öndverðu
kvaddur til starfa í félags- og
Enn opnast
Kína
Tókýó. 22. júní. AP.
Teng Hsiao-ping Kínaleiötogi
hefur skýrt háttsettum japönsk-
um embættismanni frá því, að
Kínverjar væru reiðubúnir að
leyfa fyrirtækjum, er að öllu leyti
væru í erlendri eign, að starfa í
Kína samkvæmt nýjum uppbygg-
ingaráætlunum, að því er jap-
anska fréttastofan Kyodo hermir í
dag. Teng er sagður hafa boðið
erlendum fyrirtækjum landrými
gegn hlutdeild í afrakstri fyrir-
tækjanna.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI 6 - SlMAR: 17152-17355
■
> \
S'. _<
f ry'\
Áeiglnbíl
umEvrópu
Að ferðast um á eigin bíl stóreykur möguleikana:
— þú ert fullkomlega frjáls hvert þú vilt fara;
— þú skipuleggur ferðina sjálfur;
— þú gistir þar sem þú vilt;
— þú kynnist þjóðunum betur;
— þú getur fylgt góða veðrinu eftir;
— og þú gerir þaö sem þér dettur í hug.
Eins og síðustu sumur hefur Úrval umboð fyrir
ferðir með ferjunni Smyrli til Noregs og Skot-
lands. Ferðirnar verða sífellt vinsælli, svo þaó er
eins gott að panta í tíma.
FERÐASKR/FSTOFAN —J IEEEL
ÖRVAL^r
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900
sumaráætlun SMYRILS
iSLAND / FÆREYJAR /SKOTLAND/NOREGUR v.v.
Koma Brottf. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17
Seyöisfj. Laugard. 20:00 2/6 9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9
Þórshöfn Sunnud. 14:00 23:00 3/6 10/6 17/6 24/6 1/7 8/7 15/7 22/7 29/7 5/8 12/8 19/8 26/8 2/9 9/9 16/9
Scrabster Mánud. 13:00 16:00 4/6 11/6 18/6 25/6 2/7 9/7 16/7 23/7 30/7 6/8 13/8 20/8 27/8 3/9 10/9 17/9
Þórshöfn Þriöjud. 06:00 5/6 12/6 19/6 26/6 3/7 10/7 17/7 24/7 31/7 7/8 14/8 21/8 28/8 4/9 11/9 18/9
Þórshöfn Miðvikud. 13:00 6/6 13/6 20/6 27/6 4/7 11/7 18/7 25/7 1/8 8/8 15/8 22/8 29/8 5/9 12/9 19/9
Bergen Fimmtud. 12:00 15:00 7/6 14/6 21/6 28/6 5/7 12/7 19/7 26/7 2/8 9/8 16/8 23/8 30/8 6/9 13/9 20/9
Þórshöfn Föstud. 16:00 23:59 1/6 8/6 15/6 22/6 29/6 6/7 13/7 20/7 27/7 3/8 10/8 17/8 24/8 31/8 7/9 14/9 21-/9
Seyðisfj. Laugard. 18:00 2/6 9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9