Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 1

Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 1
36 SÍÐUR 156.. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. m Hvalveiðiyernd: Konur í Nicaragua bíða fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Managua í þeirri von að fá vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna. Hundruð innfæddra yfirgefa Nicaragua daglega vegna ástandsins 1 landinu. Símamynd — AP. Kyrrð og ró í Nicaragua ManaKuu. San Jose. 10. júlí. AP. Reuter. HERMENN Somoza forseta skutu í dag niður svartmálaða Cessnu er var í vopnaflutningum fyrir ska'ruliða Sandinista og er ákaft leitað tveggja Kúbumanna. sem voru um borð í vélinni. cn komust af. Flugmaður vélarinnar var frá Costa Rica. Vélin var skotin niður í grennd við bæinn Rivas sem er 35 km frá landamærum Costa Rica. bjóðvarðliðið skýrði frá því að áður hefðu vélar er fluttu vopn fyrir skæruliða vcrið skotnar niður. í vélinni sem skotin var niður í dag voru ki'nversk-smíðaðar handsprengjur og mikið af skotfærum. Dtvarp skæruliða skýrði frá því í gærkvöldi að í dag yrði hafin lokaat- lagan gegn Somoza forseta, og endir bundinn á völd fjölskyldu hans, en fréttamenn í Managua sögðu í kvöld að þess væru engin merki að sóknin, sem hefjast átti aðfaranótt þriðju- dagsins, væri hafin. Fréttamennirnir sögðu að her- menn Somoza væru margir í austur- hluta höfuðborgarinnar og að spenna væri í borginni, en friðsæld Skylal) íhafið? WashinKton, 10. júlí. AP. Reuter. TALSMENN NASA skýrðu frá því í kvöld að Skylab hrapaði að öllum líkindum í Suður-At- lantshafið eða Indlands- haf klukkan 16.02 að ís- lenzkum tíma á morgun (í dag), en síðustu 10 klukkustundirnar sem geimvísindastöðin er talin verða á lofti verður hún að mestu yfir sjó og því sama og engin hætta talin á að hlutar úr henni falli á byggð ból. Spáð var seint í gærkveldi að Skylab hrapaði til jarðar á tímabilinu frá klukkan 11.02 að íslenzkum tíma til 21.02, og hrapi stöðin á miðju þessu timabili, dreifast hlutir þess í suðausturátt frá punkti nærri miðbaug undan Fílabeins- ströndinni. Þyngstu hlutar Skylabs dreifast allt inn á Indlandshaf. Víða hafa fjölmiðlar gert lítið úr hættunni sem stafar af hrapi Skylabs og bent á að meiri líkur væru á að íbúar viðkomandi svæða yrðu fyrir loftsteinum og ýmsu geimrusli er félli í tonnum til jarðar í hverri viku. ríkti þó. Skæruliðar héldu austur- hluta borgarinnar lengi, en hopuðu fyrir tveimur vikum þar sem margir óbreyttir féllu í átökum í borgar- hlutanum. Orðrómur er enn á kreiki þess efnis að Somoza sé í þann veginn að segja af sér vegna utanaðkomandi þrýstings. Búist var við að til tíðinda drægi í landinu í dag, en þegar síðast fréttist var allt með kyrrum kjörum. Bandarískir diplómatar sögðu í dag að staða þjóðvarðliðsins í Nicaragua væri vonlaus þar sem skæruliðar hefðu helztu þjóðvegi á valdi sinu og að flytja þyrfti birgðir flugleiðis til herstöðva út um land. Stjórnvöld í Costa Rica fyrirskip- uðu Bandaríkjamönnum í dag að hverfa á brott með tvær þyrlur bandaríska flughersins er staðsettar hafa verið nálægt landamærum Nicaragua. Bandaríkjamenn segjast hafa sent þyrlurnar til Costa Rica í því skyni að flytja bandaríska þegna á brott frá Nicaragua ef ástandið í landinu gæfi ástæðu tii. Heimildir frá Nicaragua hermdu hins vegar í dag að þyrlunum væri ætlað að kanna hvort stjórnvöld í Costa Rica væru að undirbúa valdatöku í Nicaragua meö skæruliðum. Grípa Bandaríkin til eigin aðgerða? London. 10. júlí. AP — Reutcr BANDARÍSKIR þingmenn í sendinefnd Bandaríkjanna á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins vöruðu í dag við því að Bandaríkin kynnu að grípa til einhliða aðgerða til að vernda hvali ef ekki yrði á fundinum samþykkt bann við hvalveiðum á heimshöfunum. Þingmennirnir sögðu að Bandaríkjaþing kynni m.a. að leggja bann við innflutningi á fiskafurðum frá hvalveiðiþjóðum ef bannið yrði ekki samþykkt. Tækninefnd fundar hvalveiði- ráðsins samþykkti í dag að mæla með því við aðalnefnd fundarins, sem tekur endanlega afstöðu ráðs- ins, að Indlandshaf verði griðar- staður hvala næstu 10 ár. Litið er á afgreiðslu tækninefndarinnar sem meiri háttar sigur fyrir þau öfl er barist hafa fyrir hvala- vernd. Tillagan verður að hljóta samþykki 2/3 fulltrúa í aðalnefnd- inni til að ná fram að ganga. Þórður ÁsgeirSson formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins sagði í viðtali við Mbl. í gærkvöldi að búast mætti við því að aðalnefnd- in greiddi í dag, miðvikudag, atkvæði um allsherjarbann við hvalveiðum á heimshöfunum. Nefndin hefði ekki komið saman til fundar í gær, en ýmis mál verið afgreidd frá undirnefndum. Þórð- ur sagði að vísindanefnd ráðsins væri ekki á einu máli í afstöðunni til allsherjarbanns við hvalveið- um. „Þetta er nýmæli, því hingað til hefur nefndin verið sammála gegn slíkum hugmyndum, og fremur kosið að fjalla um hvern stofn í stað þess að banna veiðar á öllum hvalastofnum í einu vet- fangi," sagði Þórður. Ekki eru greidd atkvæði í vís- indanefndinni, og því óljóst hver áhrif hennar eru, að sögn Reuters, en fréttastofan sagði í kvöld að vísindanefndin væri klofin í af- stöðunni til flestra þátta þeirra mála er hún hefði til umfjöllunar. Sagði fréttastofan að Japanir, Suður-Kóreumenn og aðrar hval- veiðiþjóðir legðust af mikilli hörku gegn allsherjar banni. Búist var við því í kvöld að allsherjar- • bannið næði ekki fram að ganga á fundi ráðsins að þessu sinni en sumir telja það aðeins tíma- spursmál hvenær bannið verður samþykkt. Njósnaði við nuddið Bonn. 10. júlí. AP. KONA, sem rak nuddstofu í Bonn, hefur viðurkennt að hafa stundað njósnir í þágu sovézku leyniþjónustunnar KGB, að því er fram kom í opinberri skýrslu sem lögð var fram í gær. Síð- ustu 18 mánuðina hafa 30 kon- ur í Vestur-Þýzkalandi verið afhjúpaðar sem njósnarar kommúnista. Það var árið 1969 að kona gekk á mála hjá Rússut 1, en hún var þá í leyfi í Sovétríkjun,um. Upp frá því fór konan margsinn- is á fund fulltrúa KGB í Moskvu eða Vestur-Berlín og gaf skýrsl- ur um „athyglisverða viðskipta- vini“ sína. Nuddstofueigandinn sagðist hafa hætt njósnunum 1972, en upplýsingar sem fundust í híbýl- um hennar benda til þess að svo hafi ekki verið. Við leit í nudd- stofu konunnar fundust hlustun- ar- og hljóðupptökutæki og enn- fremur var þar aðstaða til kvik- myndunar. Sprungur finnast í fleiri flugvélum WaHhington. lO.júlí, Reuter. AP. SPRUNGUR fundust í dag og gær í tveimur DC—10 þotum, og er óttast að það kunni að fresta því cnn um sinn að flugvélum af þessari gerð verði leyft að fljúga í Bandaríkjunum. Talsmenn flugmálaráðsins vore þó vongóðir um að flugvélunum yrði í vikunni leyft að fljúga á ný. mánaðar var frá American. í skýrslunni voru McDonnell Douglas verksmiðjurnar gagn- rýndar fyrir ýmis atriði í hönnun DC-10 vélarinnar, einkum í frá- gangi hreyflafestinganna, sem sagðar eru óaðgengilegar og bjóða hættum heim. Voru verksmiðjurn- ar hvattar til að endurskoða og breyta hreyflafestingunum. Dómari nokkur dæmdi í dag ómerka þá ákvörðun bandaríska flugmálaráðsins að banna flug DC-10 véla frá og með 6. júní sl., en ráðið tilkynnti að það myndi áfrýja úrskurðinum. Óljóst er hvaða áhrif úrskurður dómarans hefur þar sem flugmálaráðið get- ur enn um sinn heftað flug DC-10 með því að banna flug vélanna yfir Bandaríkjunum. Nýju sprungurnar fundust í flugvélum Trans International flugfélagsins og United Airlines. Þær eru ekki sagðar alvarlegar þar sem þær voru í hlífum utan um hreyflafestingar. Flugmálaráð Bandaríkjanna birti í dag skýrslu um viðhald á DC—10 flugvélum í Bandaríkjun- um, en í skýrslunni voru sum flugfélög í landinu gagnrýnd harð- lega fyrir að fara ekki að fyrir- mælum framleiðanda um viðhald. Einkum var veitzt að flugfélögun- um American og Continental fyrir að nota gaffallyftara við viðhald á hreyflum DC—10, en flugvélin sem fórst við Chicago í lok maí- Muzorewa íorsætisráðherra Zimbabwe Rhódesíu á fundi með bandarískum öldungadeildarþingmönnum í Washington í gær. í dag hittir Muzorewa Carter forseta í Camp David. Sjá frétt á bls. 16. Símamynd — AP. 13 fórust Napóll. lO.júlí. Rcuter. AP. AÐ MINNSTA kosti 13 manns fórust og 60 slösuðust alvarlega j>egar tvær farþegalestir rákust á í hlíðum eldfjallsins Vesúvíusar í dag. Slysið varð við bæinn Santa Caterina sem er skammt frá Napólí. Lestirnar voru á sömu braut og óku framan á hvora aðra. Áreksturinn varð mjög harður og þykir mildi að fleiri skyldu ekki hafa farist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.