Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
Bílaleiga Á.G.
Tangarhöföa 8—12
Ártúnshöföa. Sími
85544.
Höfum Subaru,
Mözdu og Lada
Sport.
Þrýstimælar
Allar stæörir og geröir.
Lt ^
SðyoHjotuigMir
tJXtm&mmFö & (Q<&
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
AUGLYSINGA-
I TEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aö.ilstrrt'ti 6 sinn 25810
Víðsjá
Hvar hrapar Skylab?
Þátturinn Víðsjá er á dagskrá
útvarpsins kl. 11.00 og 18.00 í
dag og mun Ögmundur Jónas-
son, umsjónarmaður þáttarins,
ræða við Örnólf Thorlacius um
Skylab geimstöðina bandarísku,'
en sem kunnugt er var því spáð
að hún hrapi til jarðar einhvern
tímann á bilinu frá kl. 23.28 í
gærkveldi og til 5.28 aðfararnótt
fimmtudags. Samkvæmt þessari
spá er ljóst að lang líklegast er
að stöðin falli til jarðar í dag, en
erfitt er að spá nákvæmlega
hvar stöðin, eða öllu heldur hinir
ýmsu hlutar hennar, muni koma
niður. Geimstöðin er 77.5 lestir
að þyngd og mun brenna og
eyöast að mestu leyti í gufu-
hvolfi jarðar vegna hins mikla
viðnáms. Yfirvöld í Bandaríkj-
unum telja að brot úr geimstöð-
inni muni dreifast um stórt
svæði, en brot þessi eru, að talið
er, frá hálfu kílói til tveggja og
hálfrar lestar að þyngd. Lokaspá
um hvar brotin munu lenda
verður birt um tveimur og hálfri
klukkustund fyrir áætlað fall
stöðvarinnar og hafa miklar
varúðarráðstafanir verið gerðar
af þeim sökum. Sveitir banda-
ríska landvarnarráðuneytisins
eru viðbúnar ef þörf krefur og
þess má geta að ríkisstjórnir
ýmissa landa hafa farið þess á
leit við Bandaríkjastjórn að þeir
greiði bætur fyrir tjón það sem
hugsanlega gæti hlotist af brot-
um úr Skylab. Talið er að stöðin
brotni í allt að 500 hluta í fallinu
og að hlutarnir dreifist á svæði á
jörðinni sem verður allt að 6500
km langt og 160 km breitt. Sú
braut sem Skylab fer eftir liggur
yfir mörg þéttbýlustu svæði
heims, en þar eru á meðal öll
Bandaríkin, hluti Kanada, mikill
hluti Suður-Ameríku, Ástralía,
Afríka, Asía og Nýja-Sjáland.
Eins og sjá má er erfitt að segja
nákvæmlega til um hvar stöðin
eða hlutar hennar lendi en um
það er fyrst hægt að segja með
nokkurri nákvæmni um tveimur
og hálfri klukkustund fyrir hrap
stöðvarinnar, eins og áður sagði.
Útvarp kl. 22.10:
Geimstöðin Skylab, sem hefur verið „á niðurleið“ að undanförnu
og mun liklega falla til jarðar í dag. Líklegast er taliö að þeir
hlutar stöðvarinnar, sem komast í gegnum gufuhvolf jarðar,
dreifist yfir það svæði sem ljósast er á myndinni.
Fálkaveiðar á miðöldum
í kvöld verður í útvarpinu þátt-
ur um fálkaveiðar og er hann í
höndum Inga Karls Jóhannesson-
ar. í þessum þætti verður leitast
við að kynna hlutverk fálkans og
mikilvægi hans á miðöldum og þá
sérstaklega á 17. öld. Á þessum
tíma voru fálkar mjög eftirsóttir
og voru fálkaveiðar, þ.e. fálkar
notaðir til að drepa ýmsa fugla
eiganda hans til skemmtunar,
vinsæl íþrótt meðal kónga og
keisara og annarra slíkra fyrir-
manna víða um heim. Af öllum
fálkategundum var íslenski fálk-
inn einna vinsælastur því hann
var talinn bestur og hæfastur til
veiða auk þess sem hann var
sterkbyggður og fallegur á að líta.
Einnig lýsir þessi þáttur verzl-
unarsamböndum sem mynduðust í
kringum þennan útflutning, og var
hann oft æði mikið fyrirtæki, enda
ekki eftir svo litlu að slægjast.
Eftir að einokunarverslunin
komst á hafði Danakóngur alla
þræði í hendi sér hvað verslunina
varðaði og notaði hann sér það
óspart. Svo dæmi sé nefnt sendi
kóngur hingað upp sérstök fálka-
skip sem flytja áttu þennan dýr-
mæta farm og fylgdi því eigi all
lítill kostnaður, eins og geta má
nærri. Oft hafði kóngur þann
háttinn á að hann gaf einhverjum
þjóðhöfðingja álfunnar, sem hann
gjarnan vildi vingast við þá stund-
ina, veiðifálka, því fálkar voru
vinsælir eins og áður sagði og
mörgu stórmenninu sáluhjálpar-
atriði. I þættinum er nokkuð lýst
hvernig meðferðinni á fálkunum
var háttað en sú meðferð var æði
vandasöm, því ekkert mátti fálk-
ana skorta, og kærði kóngur sig
kollóttan þó að íslendingar hefðu
lítið annað en skósóla í matinn,
eða jafnvel ekki neitt, því fálkarn-
ir gengu fyrir.
Umsjónarmaður þáttarins, Ingi
Karl Jóhannesson, sagði að kveikj-
an að þessum þætti hefði verið hið
umtalaða fálkarán, eða öllu heldur
tilraun til ráns, sem upp komst
hér í fyrra. Munu fálkar vera
eftirsóttir meðal olíufursta,
soldána og annars slíks stórmenn-
is í Austurlöndum, en þeir hafa
margir hverjir rúm auraráð svo
sem kunnugt er, og þykir að því
stór skemmtan að horfa á fálka
sína murka lífið úr öðrum fuglunt.
Útvarp kl. 11.00 og 18.00:
Úlvarp ReykjavfK
W
A1IÐMIKUDKGUR
11. júlí
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Heiðdís Norðfjörð lýkur við
að lesa söguna nHalli og
Kalli, Palli og Magga Lena“,
eftir Magneu frá Kleifum
(16).
9.20 Tónleikar.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Víðsjá: Friðrik Páll Jóns-
son stjórnar þættinum.
11.15 Kirkjutónlist: eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Elisa-
beth Speiser, Ruthild Engert,
Peter Maus og Harald
Stamm syngja með kór og
hljómsveit útvarpsins í Ham-
borg. Ferdjnand Leitner stj.
a. Kyrie í d-moll (K341) fyrir
kór og hljómsveit.
b. „Vesperae soleness de
confessore“ (K339) fyrir
fjóra einsöngvara og hljóm-
sveit. (Hljóðritun frá Norð-
ifr-þýzka útvarpinu).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGIÐ
13.40 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Kapp-
hlaupið“ eftir Káre Holt.
Sigurður Gunnarsson les
þýðingu sína, sögulok (25).
15.00 Miðdegistónleikar: Leon
Goossens og hljómsveitin Fíl-
harmonía í Lundúnum leika
Óbókonsert eftir Vaughan
Williams; Walter Susskind
stj./ Fílharmoníusveit Vínar-
borgar leikur Sinfónfu nr. 8 f
G-dúr op. 88 eftir Antonfn
Dvorak; Herbert von
Karajan stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatfminn: Lffið
er fótbolti. Umsjónarmaður:
Steinunn Jóhannesdóttir.
Með krökkum á sparkvöll-
um.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.00 Víðsjá
(endurtekin frá morgnin-
um).
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Einleikur á gftar: Julian
Bream leikur Sónötu í A-dúr
eftir Niccolo Paganini.
20.00 Töfrandi tónar.
Jón Gröndal kynnir annan
þátt sinn um tfmabil stóru
hljómsveitanna 1936—46.
20.30 Útvarpssagan: „Trúður-
inn“ eftir Heinrich Böll.
Franz A. Gíslason les þýð-
ingu sfna (2).
21.00 „Ljóðasveigur“
(Liederkreis), lagaflokkur
op. 39 eftir Robert Schu-
mann. Barry McDaniel syng-
ur; Aribert Reiman leikur
undir á pfanó. (Frá tónlistar-
hátfðinni f Berlfn f sept. s.l.).
21.30 „Vísur Bergþóru“. Lesið
úr samnefndri ljóðabók Þor-
geirs Sveinbjarnarsonar.
Sigfús Már Pétursson leikari
|M
21.45 íþróttir
Hermann Gunnarsson segir
frá.
22.10 Fálkaveiðar á miðöldum
— fyrsti þáttur. Umsjónar-
maður: Ingi Karl Jóhannes-
son.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Svört tónlist. Umsjón:
Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FIM41TUDKGUR
12. júlí
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
Dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Afmælisdagur Lárusar Pét-
urs" eftir Virginfu Allen
Jensen. Gunnvör Braga les
fyrri hluta þýðingar sinnar.
9.20 Tónleikar.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Iðnaðarmál, Umsjón:
Sveinn Hannesson og Sigmar
Ármannsson. Rætt við Þór-
leif Jónsson framkvæmda-
stjóra Landssambands
iðnaðarmanna og Hauk
Björnsson framkvæmda-
stjóra Félags fslenzkra iðn-
rekenda.
11.15 Morguntónleikar:
Andrés Segovfa og hljóm-
sveit Enriques Jordá leika
Gítarkonsert í E-dúr eftir
Luigi Boccherini./ Hallé
hljómsveitin leikur Sinfónfu
nr. 83 í g-moll eftir Joseph
Haydn; Sir John Barbirolli
stj.
12.00 Dagskráin. Tónieikar.
Tilkynningar.
SIÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Svarta
kóngulóin“ eftir Hanns
Heinz Ewers. Árni Björnsson
les þýðingu sína; — fyrri
hluti.
15.00 Miðdegistónleikar: Janet
Baker syngur aríur úr óper-
um eftir Gluck með Ensku
kammersveitinni; Raymond
Leppard stj./ Sinfóníuhljóm-
sveit sænska útvarpsins leik-
ur Sinfóníu nr. 1 í f-moll op.
7 eftir Hugo Alfvén; Stig
Westerberg stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir.).
16.20 Tónleikar.
17.20 Lagið mitt: Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIO
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.
Árni Böðvarsson flytur þátt-
inn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.10 Leikrit: „Kona“ eftir
Agnar Þórðarson. Leikstjóri:
Gísli Alfreðsson. Persónur
og leikendur: Listamaður/
Gunnar Eyjólfsson, Hún/
Helga Jónsdóttir, Maður/
Randver Þorláksson.
21.05 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur lög úr kvik-
myndum. Stjórnandi: Páll P.
Pálsson.
21.20 „Búinn er hann Blá-
hvammur“. Smásaga eftir
Kolbein frá Strönd. Gunnar
Stefánsson les.
21.40 Píanókonsert nr. 2 op.
102 eftir Dmitri
Sjostakovitsj. Leonard Bern-
stein leikur einleik og stjórn-
ar Fflharmonfusveitinni í
New York.
22.00 Á ferð um landið.
Annar þáttur: Drangey. Um-
sjón: Tómas Einarsson. Rætt
við Sigurð Steinþórsson jarð-
fræðing. Flutt blandað efni
úr bókmenntum. Lesari auk
umsjónarmanns: Valdemar
Helgason leikari.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Áfangar.
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
A arnarfiann
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.