Morgunblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
r
Ferðafélag Islands:
Fjölbreyttar ferð-
ir um næstu helgi
UM NÆSTU helgi verður íarið til
Þórsmerkur, Landmannalauga
og Hveravalla, en á þessa staði
verða vikulegar ferðir fram á
haust. Um þessar mundir er
Kjalvegur að opnast fyrir umferð
og verður þetta fyrsta ferð fé-
lagsins til Hveravalla á þessu
sumri. Á öllum þessum stöðum
verður gist í húsi, en sjálfsagt er
fyrir þá sem njóta þess að dvelj-
ast í tjöldum að hafa þau
meðferðis.
Á göstudagskvöld verður lagt af
stað á ferð á Tindfjallajökul, en
hann er upp af byggðinni í Fljóts-
hlíð, eins og flestum er kunnugt.
Tindfjallajökull er nærri 1500 m á
hæð og er þaðan mjög víðsýnt yfir
Suðurlandsundirlendið og austur
og norður yfir hálendið allt til
Sævík sigl-
ir með afla
Sigluvíkur
jöklanna stóru. I þetta sinn verður
ekið upp Rangárvelli, fram hjá
Keldum og tjaldað verður á svo-
nefndri Hungurfit. Þar verður
bækistöðin og þaðan verður geng-
ið á jökulinn.
Á sunnudaginn verður gengið á
Hrómundartind. Farið verður úr
bænum kl. 10.00 og ekið að Hvera-
dölum. Þaðan verður gengið aust-
ur með Skarðsmýrarfjalli, veginn
milli hrauns og hlíða og yfir á
Hrómundartind. Síðan sem leið
liggur að Nesjavöllum í Grafningi,
en þangað heldur annar hópur kl.
13.00 úr bænum og þar hittast
þeir.
Af Hrómundartindi er gott út-
sýni yfir Þingvallavatn og ná-
grenni þess en á Nesjavöllum er
mikill jarðhiti og hefur þar verið
borað eftir heitu vatni.
í sæluhúsum Ferðafélagsins eru
gæslumenn starfandi yfir sumar-
mánuðina og gefur félagið fólki
kost á að dvelja þar lengur eða
skemur á milli ferða.
(Fréttatilkynning).
Siglnfirði. 9. júU.
Sigluvíkin kom inn hingað til
Siglufjarðar eftir að hafa verið
rétt rúma viku á veiðum. Afli
hennar var milli 205 og 210 tonn,
mest grálúða, og verða 90 til 100
tonn af þessum afla flutt yfir í
Sævíkina, sem siglir með aflann
til Þýskalands.
- M.J.
INNLENT
Vegir á hálendinu
vída óf ærir enn
ENN ER ófært yfir Kjalveg
og Sprengisand svo og um
Kaldadal að því er vegaeft-
irlitsmenn tjáðu Mbl. í gær
þar sem bleyta er mikil á
þessum vegum. Er klaki
ekki enn að fullu farinn úr
jörðu og sagði vegaeftir-
litsmaður að menn hefðu
nýlega haldið upp á Kjal-
Leiðrétting
í blaðinu í gær misritaðist nafn
móður Ingimundar Einarssonar,
nýráðins bæjarstjóra á Siglufirði.
Rétta nafnið er Erla Axelsdóttir.
veg, en snúið frá við Hvera-
dali.
Fært er hins vegar orðið í
Landmannalaugar, Eldgjá
að austanverðu, í Þórsmörk
og Veiðivötn og fært er að
Dettifossi að sunnan, en ekki
norður úr í Axarfjörð. Vega-
eftirlitsmenn sögðu að
ástand vega á hálendinu
væri ekki óeðlilegt miðað við
tíðarfarið, en allt væri mun
seinna og erfiðara viður-
eignar nú en t.d. í fyrra.
Þrátt fyrir að ófært er talið
yfir Kjalveg hefur Mbl. haft
spurnir af fólki er hélt yfir
Kjalveg alveg norður yfir og
taldi ekki ýkja þungfært.
Séð niður Hafnargötuna. Fremst á myndinni mó sjó unnið við hitaveituskurð og nokkru neðar eru
mælingamenn að störfum. Ljósm. Mbl. Kristján.
V ogar á V atnsleysuströnd:
Mikið um verklegar
framkvæmdirísumar
MIKLAR framkvæmdir eiga
sér stað í Vogum á Vatnsleysu-
strönd þessa dagana. Blaðamað-
ur og ljósmyndari Mbl. voru
þar á ferð í síðustu viku og
hittu að máli bæjarverkstjór-
ann, Hörð Rafnsson, þar sem
hann var á þönum milli mæl-
ingamanna og skurðgrafara.
Hann hafði eftirfarandi að
segja um framkvæmdir
sumarsins:
„Olíumöl verður lögð í sumar á
Hafnargötuna, sem er aðalgata
staðarins og erum við að vinna
að lokaundirbúningi. Öll undir-
vinna var unnin í fyrrasumar.
Mjög vel hefur gengið við lagn-
ingu hitaveitunnar og reiknum
við með að geta hleypt vatninu á
í ágústmánuði. Stærsta verkefn-
ið hjá okkur er samt sem áður
bygging barnaskólans."
Hörður sagði að mikil eftir-
spurn væri eftir byggingarlóðum
í Vogunum en skortur á landi
hamlaði því að hægt væri að
anna eftirspurninni. „Hreppur-
inn er nú að gera samning um
kaup á 38 ha. landi og vonandi
leysir það vandann.“
Hörður sagði í lokin, að góð
samvinna sveitarfélaganna á
Reykjanesi auðveldaði margt.
Nefndi hann sérstaklega hita-
veituna, sem sveitarfélögin eiga í
sameiningu, nýbyggða sorpeyð-
ingarstöð og eins sagði hann í
undirbúningi að sameina raf-
veiturnar á svæðinu.
Haöarpunktar verða að vera á réttum stöðum og oft er þolinmæðisverk að finna hvar þeir eiga að
vera. Myndin til hægri: Hörður Rafnsson bæjarverkstjóri t.h. ræðir hér við mælingamann.
Bókabílaþjónusta Borg-
arbókasafnsins 10 ára
Um þessar mundir eru tfu ár
liðin siðan farið var að nota
bókabíla í Borgarbókasafni
Reykjavíkur. Það var þann 11.
júlí árið 1969 sem fyrri bíliinn
af tveimur lagði af stað i sína
fyrstu útlánsferð, en þar var
um að ræða notaðan strætis-
vagn. Var þessari nýbreytni í
þjónustu Borgarbókasafnsins
vel tekið, sérstaklega af börn-
um, og svo er enn. I ársbyrjun
1972 bættist annar bfll við
bókabflaþjónustuna, og eru
það því tveir bílar sem nú
gegna þessu hlutverki.
I fyrstu var bækistöð bílanna í
Tjarnargötu 12, í gömlu slökkvi-
stöðinni, en í ársbyrjun 1973 var
flutt í kjallara Bústaðakirkju í
það húsnæði, sem ennþá er
notað. I Bústaðasafni eru um
það bil 75.000 bindi bóka og er sá
bókakostur notaður bæði fytir
safnið á staðnum og bílana.
Hillurými í stærri bílnum nægir
fyrir allt að 5000 bækur, en
minni bíllinn tekur 3000 bindi. Á
síðastliðnu ári, þ.e. 1978, voru
lánaðar úr bílunum rúmlega
200.000 bækur.
í upphafi unnu 5 starfsmenn
að útgerð bókabílsins, en nú eru
starfsmenn bókabílanna um 10
talsins.
Bókabílarnir í Reykjavík
þjóna í dag stórum og mann-
mörgum hverfum, þar sem þörf
er fyrir safnahús. Má þar sem
dæmi nefna Breiðholts- og Ár-
Bflakostur
bókabflaþjónustunnar.
bæjarhverfi. í Breiðholti III
horfa þessi mál nú til bóta, þar
sem hafin er bygging félagsmið-
stöðvar við Gerðuberg, en í
þeirri byggingu er gert ráð fyrir
rúmgóðu almenningsbókasafni.
Á þessu 10 ára tímabili hefur
viðkomustöðum bílanna stöðugt
fjölgað og lögð hefur verið
áhersla á að ná til sem flestra.
Viðkomustaðir eru nú 26 talsins.
Framtíðaráætlun bókabílaþjón-
ustunnar er í því fólgin að koma
bílastarfseminni fyrir í nýju
aðalsafnshúsi, sem valinn hefur
verið staður í „Kringlubæ“. Sá
hluti hússins, sem ætlaður er
bókabílum og bókakosti þeirra
tilheyrir 1. byggingaráfanga
hússins, en í slíkum húsakynn-
um myndi vinnuaðstaða stór-
batna og möguleikar opnast til
hagkvæmari rekstrar, t.d. varð-
andi skipulagningu á vöktum
vagnstjóra.
I tilefni afmælisins munU bíl-
arnir verða í Lækjargötu og við
Hlemm föstudaginn 13. júlí frá
klukkan 9—21, og dagana 11., 12.
og 13. júlí verða dagssektir
felldar niður í safninu öllu.