Morgunblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
11
Gunnar Tómasson:
Á rökstólum - John Stuart
Mill og Milton Friedman
I grein Hannesar H. Gissurar-
sonar í Mbl. 7. júlí 1979 er vikið
að því hvort hagfræðingurinn
Milton Friedman megi með réttu
teljast skoðanabróðir nítjándu
aldar vitmannsins John Stuart
Mill.
Um það er ekki deilt, að báðir
eru yfirlýstir stuðningsmenn
einstaklingsfrelsis á grundvelli
lýðræðis. Þess utan er vandfund-
ið hið minnsta samræmi í fræði-
legum viðhorfum Mills og Fried-
mans, eing og eftirtalin dæmi
sýna.
1. John Stuart Mill fullkomn-
aði um miðja nítjándu öld verð-
mætiskenningu þá („value
theory“), sem David Ricardo
hafði lagt grundvöll að í upphafi
aldarinnar, og sem var kjarni
safns þeirra fræðisetninga sem
nefndist „klassísk“ hagfræði.
I víðfrægri ritgerð hefur Mil-
ton Friedman farið þeim orðum
um mat John Stuart Mills á
ágæti verðmætiskenningarinn-
ar, að það væri nútíma hagfræð-
ingum verðugt aðhlátursefni
(„justly ridiculed").
2. John Stuart Mill vann að
fræðilegri hagfræði innan
ramma stærðfræðilegrar rök-
hyggju, en á tuttugustu öldinni
hefur Bertrand Russell nefnt
það óvísindalegar vangaveltur,
sem unnið er að fræðilegum
efnum utan þess ramma.
Á hinn bóginn hefur Milton
Friedman haldið því fram í
áðurnefndri ritgerð, að við mat á
gildi kennisetninga á sviði nú-
tíma hagfræði sé það algjört
aukastriði („of strictly second-
ary importance") hvort þær
standist kröfur stærðfræðileg-
rar rökhyggju.
3. Ásamt með Thomas
Malthus í upphafi nítjándu aldar
og John Maynard Keynes á
okkar öld leit John Stuart Mill
svo á, að niðurstöður fræðilegrar
hagfræði væru með öllu gildis-
lausar, er meta skyldi valkosti
þjóðfélagsins á sviði efnahags-
mála.
Meðal annars fullyrti John
Stuart Mill, og hlaut í því efni
stuðning Alfred Marshalls hálfri
öld síðar, að reynslan ein gæti
skorið úr um það, hvort efna-
hagsleg velferð yrði bezt tryggð
með einkarekstri atvinnulífs eða
með rekstri á félagslegum
grundvelli.
Þannig var það sameiginleg
skoðun Adam Smiths, Thomas
Malthus, John Stuart Mills, Al-
fred Marshalls og John Maynard
Keynes að skipulagsform at-
vinnurekstrar væri fræðilegt
aukaatriði er meta skyldi mögu-
leika einstaklingsins til andlegs
frelsis og efnahagslegrar vel-
ferðar.
Þótt Milton Friedman og
Friedrich von Hayek séu á önd-
verðri skoðun og telji að skipu-
lagsform atvinnurekstrar sé
grundvallaratriði í þessu tilliti,
þá er þar um að ræða persónu-
legt mat þeirra en ekki fræðileg-
ar niðurstöður á sviði hagfræði.
Þess má geta að gefnu tilefni,
að meirihluti akademiskra hag-
fræðinga ásamt með úthlutunar-
nefnd Nóbelsverðlauna er ósam-
mála persónulegum skoðunum
John Kenneth Galbraiths á
möguleikum einstkalingsins til
andlegs frelsis og efnahagslegs
réttlætis á grundvelli ríkjandi
markaðshagkerfa á Vesturlönd-
um.
Er óvarlegt að álykta á þeim
forsendum, að skoðanir Gal-
braiths séu nauðsynlega rangar.
Um þrjátíu ára skeið voru hag-
fræðilegar skoðanir John Mayn-
ard Keynes í litlum metum
meðal akademískra hagfræð-
inga, þó Keynes sé nú talinn
fremsti hagfræðingur tuttug-
ustu aldarinnar.
Reykjavík, 8. júlí 1979
Skipulagsstofnun höfuðborgarsvæðisins stofnuð:
Fyrri áætlanir um
fjölgun íbúa og
íbúðaþörf óraunhæf ar
SAMTÖK sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, skammstafað
S.S.H., voru stofnuð fyrir rúmum
þremur árum. Á fundi stjórnar
samtakanna hinn 15. maf s.l. var
endanlega gengið frá stofnun
skipulagsstofnunar höfuðborgar-
svacðisins og kosið í fram-
kvæmdastjórn. Aðalverkefni
skipulagsstofnunarinnar verða
samræming skipulagsmála og
þróun byggðar á höfuðborgar-
svæðinu í heild.
í samtökunum eru eftirtalin
sveitarfélög: Reykjavík, Kópa-
vogur, Garðabær, Hafnarfjörður,
Bessastaðahreppur, Seltjarnar-
nes, Mosfellssveit, Kjalarnes-
hreppur og Kjósarhreppur,
Seltjarnarnes, Mosfellssveit,
Kjalarneshreppur og Kjósar-
hreppur. Aðalviðfangsefni sam-
takanna hafa frá upphafi verið
skipulagsmál og þróun byggðar á
höfuðborgarsvæðinu í heild. Mörg
viðfangsefni eru ennþá óleyst og
koma margar supurningar upp í
þeim efnum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá samtökunum. Einnig
segir í tilkynningunni:
Aðeins með samstilltu átaki og
góðri samvinnu sveitarfélaganna
má búast við lausn á hinum
fiölmörgu vandamálum, sem udd
koma með aukinni byggð á svæð-
inu. Þetta hefir mönnum verið
ljóst alllengi og má raunar segja,
að Reykjavíkurborg hafi átt frum-
kvæðið að samvinnu um þessi mál
með því að beita sér fyrir stofnun
samvinnunefndar um skipulags-
mál höfuðborgarsvæðisins, er
vinna hófst við gerð aðalskipulags
Reykjavíkur 1962—1983. Á vegum
samvinnunefndarinnar hefir verið
unnið að ýmsum athugunum og
kannanir gerðar varðandi skipu-
lagsmál og þróun byggðar á
höfuðborgarsvæðinu og ýmsar
athyglisverðar niðurstöður
fengizt. Til dæmis má benda á, að
svo virðist sem fyrri áætlanir um
fjölgun íbúa og íbúðaþörf á höfuð-
borgarsvæðinu hafi reynst óraun-
hæfar, og að þenslan verði minni á
næstu árum en gert hefir verið ráð
fyrir til þessa.
Á fundi stjórnar samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu hinn 15. maí ð.l. var endanlega
gengið frá stofnun skipulagsstofn-
unar höfuðborgarsvæðisins og
eftirtaldir menn kosnir í fram-
kvæmdastjórn: Júlíus Sólnes
formaður, Hilmar Ólafsson vara-
formaður, Sigurður Björnsson rit-
ari, Einar Þ. Mathiesen og
Þorbjörn Broddason. Stjórnin
hefir hafið störf og liggur fyrst
fyrir að ráða forstöðumann stofn-
unarinnar. Segir í fréttatilkynn-
ingunni, að forstöðumaður þurfi
að hafa áhuga á skipulagsmálum
og menntun sem kemur að notum í
starfinu. Staðan er laus til
umsóknar.
Framkvæmdastjórnin væntir
þess, að stofnunin geti fljótlega
hafizt handa við hin fjölmörgu
verkefni, sem bíða úrlausnar
varðandi samgöngu- og skipulags-
mál höfuðborgarsvæðisins.
Hver Islendingur
drakk 3,1 lítra af
100% áfengi árið 1977
ÁFENGISVARNARÁÐ hefur birt
skýrslu um áfengisneyslu á hvern
íbúa í 29 löndum árið 1977. Efst á
listanum er Frakkland, þar drakk
hver maður 16,4 lítra af 100%
áfengi, 14,4 í Lúxemborg, 14,0 í
Portúgal, 13,1 á Spáni og 13.4 í
Vestur-Þýskalandi. Island var í
27. sæti en hver íslendingur drakk
að meðaltali 3,1 lítra af hreinu
áfengi. .
I 28. sæti var ísrael (1,9
lítrar) en neðst var Tyrkland (0,8
litrar).
„Ræktaðu
garðinn þinn”
NÝKOMIÐ er í bókaverslanir frá
bókaútgáfunni Iðunni rit, er ber
heitið „Ræktaðu garðinn þinn“, og
er höfundur þessa rits Hákon
Bjarnason fyrrverandi skógrækt-
arstjóri.
Þetta er fræðslu- og leiðbein-
ingarit um ræktun trjáa og runna
í 25 stuttum köflum auk formála,
og í bókarlok eru skýringar á
trjánöfnum og bókaskrá. Þá er í
bókinni fjöldi mynda til skýring-
ar, er Atli Már hefur teiknað.
Þetta er ekki fyrsta rit af þessu
tagi, sem Hákon Bjarnason lætur
frá sér fara. Fyrir 10 árum gaf
hann út fræðslu- og leiðbeininga-
rit um ræktun trjáa. Var það
fjölritað og upphaflega ætlað til
kennslu í Garðyrkjuskóla ríkisins,
og upplag mjög takmarkað.
I formála að riti því sem nú
birtist er bent á, að eldri bækur
um þetta efni séu löngu úreltar. Á
allmörgum undanförnum árum
hefur verið flutt inn töluvert af
trjá- og runnategundum, sem
smámsaman er að koma reynsla á,
og í þessari nýju bók er skilmerki-
lega skýrt frá þeirri reynslu, og
líkum fyrir þrifum hinna ýmsu
tegunda. Þá er lögð áhersla á
mikilvægi þess að leitað sé trjá og
runnaplantna úr heimkynnum er
svipar til íslands, að því er varðar
hitastig og veðurfar, og bent á að
með áframhaldandi slíkri leit
megi að líkindum enn auka fjöl-
breytni veðurþolinna trjá- og
runnategunda.
Bókin „Ræktaðu garðinn þinn“
er rituð á lipru og auðskildu máli,
og ætti að vera kærkomin hand-
bók öllum sem fást við ræktun
trjáa og runna, ekki síst byrjend-
um. Bókin er í hentugu broti,
prentuð í Odda, lesmál 124 blað-
síður.
Guðmundur Marteinsson
Einnar kaloríu
kóladrykkur
Nú er kominn nær kaloríulaus kóladrykkur -
sykursnautt Spur - drykkur sem gleður alla
sem eru í kapphlaupi við kílóin.
Sykursnautt Spur inniheldur innan við eina
kaloríu í hverri flösku - það er 80 sinnum
min'na en í venjulegum kóladrykk.
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON