Morgunblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.07.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979 Seif Amir Rahimi yíirmaður erloöKreglunnar í íran virti að vettugi ákvörðun varnarmálaráðherra landsins og lýsti því yíir í gær að hann léti ekki aí embætti, þar sem hann nyti stuðnings Khomeinis trúarleiðtoga. Rahimi lýsti í viðtali við AP-fréttastofuna í gær að hann héldi til í skrifstofu sinni og lögreglumenn og sérstakar lífvarðasveitir er Khomeini hefði sent honum, verðu hann þar. Ekki hefur þess verið freistað að handtaka Rahimi. AP-símamynd Bann við vopnum til geislahemaðar Genf, 10. júlí. AP. BANDARÍKIN og Sovétríkin tilkynntu í dag, að þjóðirnar hefðu náð samkomulagi um bann við geislavirkum vopn- um. Bannið kemur í kjölfar tveggja ára leynilegra við- ræðna. Risaveldin heita að framleiða ekki eða komast yfir vopn til geislahernaðar. Hvor- Carter ræðir við Muzorewa Washington, 10. júlí. Reuter ABEL Muzorewa, forsæt- isráðherra Zimbabwe Ród- esíu, ræðir við Jimmy Carter Bandaríkjaforseta á morgun í Camp David en þar hefur forsetinn dvalist síðustu viku til að undir- búa orkutillögur sínar. Muzorewa er í Bandaríkjunum til að reyna að fá bandarísku stórnina til að viðurkenna stjórn blökkumanna og hvíta minnihlut- ans í Zimbabwe Ródesíu. Muzor- ewa átti að ræða við Cyrus Vance utanríkisráðherra í Washington í dag en þeim fundi var frestað. Jimmy Carter hefur gefið út yfirlýsingu um, að stjórnin í Washington muni ekki viðurkenna hina nýju stjórn í Zimbabwe Ródesíu. Litið er á þá ákvörðun forsetans að ræða við Muzorewa sem tilraun hans til að fá Muzorewa til að gera veigamiklar breytingar á stjórn sinni, sem leitt gætu til alþjóð- legrar viðurkenningar Zimbabwe Ródesíu. ug þjóðin hefur framleitt slík vopn en þau dreifa geislavirk- um efnum án þess að valda kjarnorkusprengingu. Bollaleggingar um geislavopn eiga sér langa sögu, en í Kóreu- stríðinu var mikið rætt um í Bandaríkjunum að frameliða svo- kallað „Cobaltsprengju", það er sprengju sem mundi dreifa geisla- virku efni yfir N-Kóreu. Þetta samkomulag risaveldanna nær ekki yfir kjarnorkuvopn né nevtrónusprengjuna en banda- rískar heimildir segja, að Sovét- menn hafi lagt mikla áherzlu á að fá nevtrónusprengjuna inní sam- komulagið en Bandaríkjamenn neituðu því. Kristilegir demókrat- ar aðvara Bettion Craxi hans til að mynda stjórn mjög á óvart. Frá stríðslokum hafa kristilegir demókratar ávallt átt forsætisráð- herra landsins. Flokkur Craxi er í oddastöðu á ítalska þinginu sem þriðji stærsti flokkur landsins. Tak- ist Craxi að mynda stjórn verður hann fyrsti sósíalistinn í forsætis- ráðherrastól á Ítalíu. Róm. 10. júlí. Reuter. KRISTILEGIR demókratar, stærsti stjórnmálaflokkur Ítalíu. tilkynntu í dag að þeir myndu aldrei líða bandalag kommúnista og sósíalista á Ítalíu. Sandro Pertini, forseti Ítalíu, fól í gær Bettion Craxi stjórnarmyndun en Craxi er leið- togi sósíalista og. kom útnefning Þetta gerðist Eiturímessu- víni prestsins Sardinlu. 8. júll. Reuter. KIRKJUGESTUM á'Sardiníu brá heldur en ekki í brún þegar presturinn þeirra féll á kirkju- gólfið hljóðandi af kvölum eftir að hafa hragðað a messuvíninu. Ilann var fluttur með offorsi á sjúkrahús. Sterku eitri hafði verið bætt í messuvínið að sögn lögreglunnar. Hefði klerkur drukkið meira magn hefði það sennilega riðið honum að fullu. Lögreglan kann- ar nú málið og er talið að eitrið hafi verið sett í messuvínið með vilja. Enn hefur ekkí tekist að hafa upp á þeim er setti eitrið í messuvínið. 1974 — Spinola myndar herfor- ingjastjórn í Portúgal. 1973 — 122 fórust með brazil- ískri farþegaflugvél rétt hjá Parísarflugvelli. 1960 — Moise Tshombe lýsir yfir sjálfstæði Katanga. 1936 — Samningur Austurríkis og Þýzkalands um sjálfstæði Austurríkis. 1932 — Bylting í Brazilíu. 1921 — Bretar semja vopnahlé við Sinn Fein á írlandi. 1859 — Samningurinn í Villa- franca undirritaður. 1810 — Frakkar innlima Hol- land. 1804 — Alexander Hamilton særist banvænu sári í einvígi við Aaron Burr. 1794 — Samsæri hófsamra og Dantonsinna leiðir til afnáms Parísarkommúnunnar. 1708 — Orrustunni um Ouden- arde lýkur. 1614 — Sænskur her, La Gardie, sigrar Rússa við Bronnitsy. 1573 — Spánverjar taka Haar- lem í Hollandi eftir sjö mánaða umsátur. 1572 — Enskir sjálfboðaliðar undir forystu Sir Humphrey Gilbert ganga á land í Niður- löndum til að berjast gegn Spánverjum. 1553 — Clement páfi VII bann- færir Hinrik VIII af Englandi — Bændauppreisn í Barcelona, Spáni, bæld niður. 1302 — Orrustan um Courtrai (Sigur Flæmingja á Frökkum). Afmæli. Robert Bruce Skota- konungur (1274—1329) — John Quincy Adams, bandarískur for- seti (1767-1848) - Nicoiai Gedda, sænskur tenórsöngvari (1925---) — Yul Brynner, rússneskættaður 'leikari (1920— Andlát. George Gershwin, Soldán- innog kvenna- búrið Sikiley. 9. júlí. AP. Reuter. DÓMSTÓLL á Sikiley dæmdi í dag 32 ára gamlan Sikileying í þriggja ára fangelsi — skilorðsbundið, fyrir ósiðlegt gróðabrall. Maðurinn, Gui- seppo Scaffildi, hafði sitt eigið kvennabúr og bjó með sjö konum og á Sikiley gengur hann undir nafninu Soldán- inn frá Cuccubello. Soldáninn frá Cuccubello var ákærður í desember af föður hans fyrir að láta konurnar vinna fyrir sér með vændi. Soldáninn neitaði þessum sak- argiftum og þegar ljóst var að soldáninn var frjáls ferða sinna, þá þustu fjórar af kon- um hans til hans og föðmuðu hann og kysstu. Astæða reiði föðurins var, að soldáninn og hann skiptu á sendiferðabíl og einni af kon- unum. Henni leiddist hins veg- ar dvölin hjá gamla manninum og sneri aftur til soldánsins. Þá vildi karl faðir bílinn sinn, en soldáninn neitaði að láta hann af hendi. Allar frillur soldánsins stóðu með honum utan ein — uppá- haldsfrilla hans. Hún strauk að heiman og giftist einum af stjúpsonum hans. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Apena Barcelona Berlín Brussel Chicago Frankfurt Genf Helsínkí Jerúsalem Jóhannesarb. Kaupmannah. Lissabon London Los Angeles Madríd Malaga Mallorca Moskva New York Osló Parfs Reykjavfk Rio De Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vfnarborg 13 lóttskýjaó 23 heióskírt 29 léttskýjað 29 heióskfrt 16 skýjaó 21 heióskírt 27 léttskýjaó 20 skýjaó 27 heióskírt 17 skýjaó 26 heiðskfrt 8 skýja 16 skýjað 30 heióskfrt 22 heióskfrt 30 léttskýjaó 36 skýjaó 30 léttskýjaó 30 heióskírt 30 skýjaó 23 skýjað 29 rigning 21 skýjaó 22 léttskýjaó 6 skúrir 32 skýjað 30 léttskýjaó 18 léttskýjaó 28 heióskfrt 28 skýjaó 20 skýjað 19 akýjað Sprautuðu vatni á Greenpeacemenn — og köstuðu geislavirka úrganginum í hafíð Lundúnum, 9. júlí. AP. UM 225 tonnum af geislavirku efni var kastað í Atlantshafið í dag frá brezka skipinu GEM. Meðlimir áhafnar Rainbow War- rior reyndu að koma í veg fyrir losun úrgangsefnanna í Atlants- hafið með því að staðsetja fimm gúmmfbáta þar sem kasta átti geislavirka úrgangsefninu. Stóð þðf náttúruverndarmanna og áhafnar GEM í um klukkustund þar til beint var öflugum vatns- slöngum að Greenpeacemönnum og þeir hraktir frá GEM. Síðan var úrganginum kastað í hafið. Dýpi á staðnum þar sem úrganginum var kastað eru rúmir fjórir kílómetrar. Að sögn Alan Thornton, talsmanns Greenpeace- samtakanna, hefur á síðastliðnum 20 árum verið kastað um 60 þúsund tonnum af geislavirkum úrgangi á þennan stað. Bretar, Belgar, Hollendingar og Sviss- lendingar hafa notað staðinn til að losa sig við geislavirk úrgangs- efni. tónskald, 1937 — Sir Arthur Evans, fornleifafræðingur 1941. Innlent. Landsyfirréttur stofnaður 1800 — Heklugos hefst 1300 — Alþingisfrumvarp- ið lagt fyrir Hróarskelduþing 1842 — Benedikt Gröndal tekur að sér amtmannsstörf 1809 — ísleifi Einarssyni sleppt 1809 — Austuramtið skilið frá Norður- amtinu 1890 — Gasstöð Reykja- víkur tekur til starfa 1910 — Blöndahlsslagur 1923 — d. Jón Ólafsson ritstjóri 1916 — Einar Þórðarson prentari 1888 — Thor Jensen 1947 — Viðræður við Breta í London 1972. Orð dagsins. Ef þú spyrð sjálfan þig hvort þú ert ham- ingjusamur ertu það ekki lengur — John Stuart Mill, enskur heimspekingur (1806—1873). Begin ræð- ir við Sadat Alexandría, 10. júlí. Reuter. AP. MENACHEM Begin forsætis- ráðherra ísraels kom í dag í opinbera heimsókn til Egypta- lands og var þess vænst að viðræður hans og Sadats forseta að þessu sinni yrðu til þess að slaka á spennunni sem enn er í samskiptum ísraela og Egypta. Búist er við að leiðtogarnir ræði fyrst og fremst um sjálfs- forræði Palestínumanna á Gaza og Vesturbakkanum. Hermt er að ísraelar séu reiðubúnir að flýta fyrir sjálfsforræði Palestínu- manna gegn því að hraðað verði að koma samskiptum Egypta og ísraela í eðlilegt horf. Spenna eykst á Indlandshafi Tokyo, 10. júlí — AP SOVÉSK flotadeild sigldi í dag um Japanshaf og er álitið að flota- deildin sé á leið til Indlandshafs. Þar hefur spenna risaveldanna farið vaxandi en á mánudag sendu Bandaríkjamenn fimm herskip inn á Indlandshaf. Á Indlandshafi og í Persaflóa eru nú níu bandarísk herskip en alls munu 10 sovésk herskip á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.