Morgunblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.07.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979 17 iJöNfíARi'í? Trtrfútf&krtfc, ííf»«;af<3l' ^ry^'rrv I.amíiahhav: .KÍiJAtiiítijKKH ÍKKAHÍiíL KUVKJAVI KA.yNAUy.iOkf^ M •: rfe itrl> t Inn á kortið eru merktar leiðir A og B sem athugaðar voru sem hugsanleg línustæði Hrauneyjarfosslínu frá virkjunarstað að spennistöð við Brennimel í Hvalfirði. Ákveðið var að leggja línuna um leið A, sem er norðar, en sú leið er styttri og ekki í byggð. í sumar vcrður lagður vegarslóð þessa 80 km leið og næsta sumar hefjast væntanlega framkvæmdir við undirstöður mastranna. LAND5VIRKJUN THC NiTICNAU POWCB COMPANV. CSUANO T. OKT. 1378 M. 1 ;E50 OOO H.AO.Y 5. NrF-ai-M-65 Fyrsti áfangi Hrauneyj- arfosslínu unninn í sumar LANDSVIRKJUN hefur að undanförnu samið við ýmsa verktaka um framkvæmdir vegna Hrauneyjarfossvirkjunar og fleiri verk- efna og nýlega hefur einnig verið auglýst eftir tilboði í lagningu vegaslóða meðfram væntanlegri Hrauneyjarfosslínu. Halldór Jónatansson aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar sagði í samtali við Mbl. að Hrauneyjarfosslína þyrfti að vera tilbúin árið 1982 þegar vélar virkjunarinnar hefja framleiðslu. Gert er ráð fyrir að bygging hennar kosti allt að 6 milljörðum króna á núverandi verðlagi. I Fyrsti áfangi í lagningu henn- ar væri vegagerð meðfram línu- stæðinu frá Sandafelli við Þjórsá vestur að Kaldadalsvegi norðan vegamóta við Uxahrygg um 80 km leið, en lagningu vegaslóðans á að vera lokið í september n.k. Var þessi kið valin fremur en að leggja línuna í byggð vestur um sveitir frá Búrfelli að Laugarvatnsvöllum og þaðan norður yfir og niður að spennistöð á Brennimel sem einnig var könnuð. Var talið heppilegra að línan lægi ekki í byggð auk þess sem nyrðri leiðin er um 15 km styttri. Hafa undanfarin 2 ár farið fram mælingar á ísingu á línustæðinu og kvað Halldór þær ekki benda til erfiðleika af hennar völdum. Var flogið á þyrlu mánaðarlega á 4 könnunarstaði á þessari leið tvo sl. vetur til að lesa af mælum. Næsta skref í lagningu línunnar er að steypa undirstöð- ur og síðan reisa virkin, en í sumar verður einungis lagður vegaslóðinn. Þegar Hrauneyjarfossvirkjun tekur til starfa á árinu 1982 verður lokið hringtengingu á svæði Landsvirkjunar á Suðvest- urlandi og kvað Halldór það tryggja rekstraröryggi á svæð- inu auk þess sem virkjunin mætir þörfum um aukna raf- orkusölu á næstu árum. Halldór kvað þó ekki mögulegt á þessu stigi að selja orku til Járnblendi- verksmiðjunnar umfram það sem hún þyrfti til að reka 2 ofna og þegar hefur verið samið um, það yrði fyrst mögulegt ef ákveð ið yrði að stækka Hrauneyjar- fossvirkjun umfram þær tvær vélar, sem ákveðnar væru nú þegar og teknar yrðu í notkun 1982. Þeir verksamningar, sem Landsvirkjun hefur gert að und- anförnu eru þessir: Hrauneyjarfossvegur frá Sprengisandsleið við tengingu vegaslóðar að Haldi í Tungnaá að væntanlegri brú yfir hana neðan við Hrauneyjarfoss, 14 km leið, en vegarstæði þetta liggur um meira sléttlendi og snjólétt- ara svæði en núverandi vega- samband við virkjunarsvæðið um Sigöldu. Sex tilboð bárust í undirbyggingu vegarins og mal- arburð. Áætlun Vegagerðarinn- ar, sem hannaði veginn, var 154,5 m.kr. og tilboðsupphæð lægstbjóðenda, Sveinbjörns Runólfssonar sf. og Fossvéla hf., sem buðu saman var 75 milljónir og 995 þúsund og var því tilboði tekið. Áðrir sem buðu í verkið voru: Suðurverk sf. 80,2 m.kr., Aðalbraut hf. 121 milljón og 452 þúsund, Hraunvirki hf. 199 milljónir og 479 þúsund, Vörðu- fell hf. 99 milljónir og 775 þúsund og Fossvirki 162,1 m.kr. I Steypuefnisframleiðslu við Hrauneyjarfossvirkjun bárust 3 tilboð en verkhlutar eru tveir. Áætlun ráðunauta Landsvirkj- unar vegna þessa verkþáttar var rúmar 210 milljónir, þ.e. annar hlutinn, sem er grjótmulningur og var tekið tilboði Fossvirkis sem var lægst eða 182 milljónir. Aðrir sem buðu í verkið voru Steypustöðin hf. 288,5 m.kr. og Hraunvirki hf. 197,1 m.kr. Þá var óskað tilboða í starfs- mannahús og mötuneyti við Hrauneyjarfossvirkjun. Er hér um að ræða steinsteypt húsnæði fyrir starfsfólk við rekstur Hrauneyjarfossvirkjunar, en ætlunin er að nota húsnæðið á byggingartímanum í þágu eftir- lits Landsvirkjunar. Eru þetta svefnskáli með 7 einstaklings- herbergjum og þrjár litlar íbúð- ir. Fimm tilboð bárust og er miðað við afhendingu í desember p.k. tilbúnu undir tréverk. Kostnaðaráætlun Landsvirkjun- ar var rúmar 137 milljónir, en lægsta tilboðið nam 101,7 m.kr. sem var tekið, en það var frá fyrirtækjunum Smiður hf. og Ás hf. sameiginlega. Aðrir sem buðu voru Byggingarfélagið Röst hf. 133,4 m.kr., Pétur og Baldur Jónssynir 102,9 m.kr., Sigurður Bjarnason hf. 116 m.kr. og Foss- virki 119,5 m.kr. Að síðustu var óskað tilboða í hús fyrir starfsfólk Landsvirkj- unar við Búrfellsstöð, en ákveðið hefur verið að reisa varanleg steinsteypt hús fyrir starfsfólk, sem hingað til hefur búið í bráðabirgðahúsum er verða nú flutt að Hrauneyjarfossi. Sex tilboð bárust og var áætlun Landsvirkjunar rúmar 156 m.kr., en lægsta tilboðið 158 m.kr. frá Sigurði Kr. Árnasyni hf. og var því tekið. Aðrir bjóðendur voru Pétur og Baldur Jónssynir 197 m.kr., Byggingarfélagið Röst hf. 164,5 m.kr., Sigurður Bjarnason hf. 197,6 m.kr., Sigfús Kristins- son 162,8 m.kr. og Smiður hf. og Vörðufell hf., sem buðu sameig- inlega 184,9 m.kr. Fé rekið um hálfum mánuði seinna á Fja.ll „ALMENNT eru bændur ekki íarnir að reka íé í afrétt þó til séu einstaka undantekningar. Bæði er að vegir inn á hálendið eru enn í fæstum tilvikum orðn- ir færir og gróður á afréttunum er mjög lítill vegna þess að frost er víða ekki farið úr jörðu þar enn,“ sagði Ólafur Dýrmunds- son, landnýtingarráðunautur Búnaðarfélags lslands f gær. Fram kom hjá Ólafi að gróður í afréttarlöndum væri þremur til fjórum vikum á eftir miðað við meðalár og bændur rækju vart fé svo einhverju næmi í afrétt fyrr en um eða eftir miðjan júlí, sem væri um xh mánuði seinna en vant væri. Ólafur sagði að þetta ástand kæmi sér mjög illa fyrir bændur, því að víða væri fé enn á túnum, sem að öllu eðlilegu ætti að vera friðuð á þessum tíma og farið styttast í að þau yrðu slegin. Ástandið væri þó misjafnt hjá bændum, því að sumir hefðu aðgang að góðum úthaga. Rún- ingur hefur einnig dregist vegna rigninga en Ólafur sagði að þótt útlitið væri ekki gott þessa stund- ina, gæti þó margt breyst á stuttum tíma í þessu. Þannig hefði gróður í afréttum og úthaga verið sáralítill í lok júní í fyrra en í júlímánuði hefði ræst úr og sumarið í fyrra hefði verið meðalsumar hvað gróður afréttanna snerti. Dagskrárgeró út- varps boóin út? LÖGÐ hefur verið Iram í útvarpsráði tiilaga frá Markúsi Erni Antonssyni um að leitað vcrði tilboða í ýmis konar dagskrárefni og komi þá efnið á spólum tilbúið til flutnings. — Mér fannst tímabært að taka til athugunar atriði sem þetta, sagði Markús Örn og því var þessi tillaga lögð fram nú um síðustu mánaðamót. Hún gengur út á að við undirbúning vetrardagskrárinnar verði ýmis konar Rigning skemmir æðardún Stykkishólmi 9. júlf. ÞAÐ bólar heldur lítið enn á blessuðu sumrinu hér hjá okkur og mun vera sama sagan víðar. Gróðir fer ekki mikið fram í tíð aðalgróandans og bjartasti mánuður ársins, júnímánuður, gat ekki fært okkur færri sólar- daga, enda ekki lengi verið að telja þá. Varpið var mikið seinna og vegna rigninga skemmdist mikið af dún og hjá sumum eyðilagðist hann að miklum mun. Var þó ekki á bætandi því bæði minkurinn og vargurinn hafa séð um að ekki komist of mikið upp af æðarfuglinum svo ekki sé meira sagt. Fréttaritari. dagskrárgerð boðin út og reynt að fá t.d. framhaldsleikrit, tónlistarkynn- ingar og umræðuþætti og yrði efni þetta fullunnið utan útvarpsins og síðan keypt á einhverju föstu verði sem um semdist. Mætti í fr'amhaldi af því athuga hvort þessi leið væri að einhverju leyti hagkvæmari en sú leið að allt efni sé unnið innanhúss eins og nú er. Gert er ráð fyrir í tillögunni að undirnefnd útvarpsráðs vinni nánar að mótun þessara hugmynda í sam- vinnu við daglega yfirstjórn útvarps- ins. Markús Örn Antonsson kvaðst viss um að víða réðu menn yfir þeirri tækni, sem þyrfti til að geta annast upptökur fyrir útvarp, en sennilega yrði samt sem áöur að vera ákveðið gæðaeftirlit með efni sem þannig bærist. — Ég tel fyllilega tímabært að leggja út í þessa tilraun, hún ýtir áreiðanlega undir marga hæfileika- menn á sviði dagskrárgerðar og stækkar þann hóp fólks sem sinnir dagskrárgerð. f '-J-i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.