Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 32

Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979 MORö'JK/^Y ^ KAFFINl) * Mararaa? — Fæ ég stuttar bux- Nei, takk. — Þetta er ótamið og ég hef sennilega annað að ur þegar ég er orðinn eins stór hugsa um en að setjast niður. og pabbi BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Á síðari árum hafa Frakkar ekki verið á meðal efstu þjóða á Evrópumeistaramótum. En áður voru þeir á meðal stórveldanna í bridsinum og kemur því frammi- staða þeirra nú ekki sérstaklega á óvart. Sigur íslands, 16 gegn 4, móti Frökkum á yfirstandandi Evrópumóti var því mjög ánægju- legur. Á mótinu í Belgíu árið 1973 munaði litlu að illa færi í þessu spili. Austur gaf, norður suður á hættu. Norður S. ÁG4 H. ÁKDIO T. ÁK L. Á863 Vestur S. 85 H. 765 T. D108 L. KG542 Austur K106 H. G43 T. 9754 L. D107 COSPER \ \ \ \ Já, loksins er ég orðinn viðurkenndur málari, það var einu málverki stolið hér í nótt! Þingræðisást Benedikt Gröndal utanríkisráð- herra tók aftur ákvörðun sína um ferðafrelsi varnarliðsmanna er í ljós kom að utanríkismálanefnd var andvíg ákvörðun hans og sýnt þótti að ekki væri meirihluti á Alþingi fyrir henni. Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra breytti á dög- unum reglum um lokunartíma vínsöluhúsa á síðkvöldum og fleira, þrátt fyrir það að reynslan sýnir að allar tilslakanir í áfengis- málum eru til ills. Ljóst virðist að þingmeirihluti er ekki að baki ákvörðun hans. Vilmundur og nokkrir sálufélagar hans báru fram tillögu í þá veru í vetur en þingmenn sýndu þann þroska að vera henni andsnúnir svo að byr fékk hún engan. — Vitað er að nefnd sú sem Alþingi kýs til að fylgjast sem best með áfengismál- um, Áfengisvarnaráð, er andvíg lengdum opnunartíma vínsölu- staða. — Þá veit ráðherrann væntanlega að Heilbrigðisstofnun S.Þ. hvetur aðildarþjóðirnar til að auka hömlur á áfengisdreifingu en slaka hvergi á. Hvernig væri nú fyrir hæstvirt- an dómsmálaráðherra að sýna ekki minni þingræðisást en Grön- dal gerði og afnema þær breyting- ar sínar sem ganga sannanlega í þá átt að auka áfengisbölið? Hann hefði þá ekki einasta þingkjörna nefnd að baki sér eins og samráðherrann, heldur og sjálfar Sameinuðu þjóðirnar. Árni Helgason. • „Mér heyrðist ég heyra einhvern baula“ Til íslands berast margar frétt- ir af erlendum viðburðum. Sumar þessara frétta hlustum við aðeins á, en gerum okkur alls ekki grein fyrir því að slíkt hið sama gæti V. A# M HraE''. ■Æm íl s» Suður S. D9732 H. 982 T. G632 L. 9 í lokaða salnum varð íslending- urinn í norður sagnhafi í þrem gröndum. Fékk út tígul, tók tvo slagi á hjarta, spaðaásinn og yfir tók gosann með drottningunni þegar tían kom frá austri. Og þessa einu innkomu notaði hann til að svína hjartatíu. Það var ekki leiðin til sigurs — einn niður. En í opna herberginu keyrðu Frakkarnir í slemmu. Suður varð sagnhafi í sex spöðum og vestur spilaði út hjarta. Vinna mátti spilið með því að trompa laufin á hendinni áður en trompunum var spilað og Frakkinn virtist á réttri leið þegar hann trompaði lauf í þriðja slag. En þá spilaði hann spaða og svínaði gosanum en austur var með á nótunum og spilaði spaða til baka, sem sagn- hafi tók með drottningunni. Þá hugðist sagnhafi trompa laufin tvö, sem eftir voru í borðinu og gekk það vel í fyrra sinnið. En austur gat trompað með tíunni þegar síðasta laufinu var spilað frá borðinu svo að vörnin fékk tvo slagi og spilið féll. En leiknum lauk 15—5 fyrir Frakkana svo að önnur úrslit í þessu hefðu breytt miklu. “W“ • ■■ j ^ + Kftir Evelvn Anthonv Lausnargjald 1 Persiu "—ssxsz 17 Rödd hennar var lág en full af fyrírlitningu. — Þessi ógeðslega kona. Ég fer heim á morgun. Það verður óþægindaminna fyrir alla. Það er legubekkur í næsta herbergi, mér þætti vænt um ef þú svæfir þar í nótt. Hún gekk in í baðherbergið og læsti á eftir sér. 2. KAFLI Janet Armstrong var í fasta svefni þegar síminn hringdi. Það var símtal frá Teheran. Hún bjó í lítilli íbúð í Chelsea sem hún hafði tekið á leigu f eitt ár og íyrir sex mánuðum hafði Logan Field tekið að sér að greiða húsaleiguna. íbúðin var smekklega búin húsgögn- um og í ítölskum stfl sem var henni einkar hugnanlegur. fbúðin var skír og stflhrein, ekki sérstaklega notaleg, en ákaflega tær og fáguð og smekkur í öllu sjálfum sér samkvæmur, Rétt eins og end- urspeglaði hennar eigin per- sónuleika. Rúmið var krínglótt. Logan hafði fundist þetta afar sérkennilegt og harðneitað að sofa í því en síðan hafði hann orðið að viðurkenna að þetta væri eitthvert alþægilegasta rúm sem hann hafði nokkurn tíma hvflzt í. Og ólíkt var það þægilegra en hvfla sú sem þau höfðu elskazt f fyrst — í hótel- herbergi í Dailas. Það hafði eiginlega meira gerzt fyrir til- viijun. hvorugu þeirra hafði dottið í hug að lyktir yrðu þær eftir að hafa setið daglanga strembna ráðstefnu, að þau myndu enda saman í einni sæng. Það hafði byrjað sem kæruleysisleg eða óvænt snert- ing og endað í ástarbrfma. Sem hún vaknaði og teygði sig eftir tólinu leit hún á klukk- una, hún var hálf sex, og þar sem hún vissi hver tfmamis- munur var á Englandi og íran, þóttist hún einnig vita að Logan værí að hríngja f hana. Hún færði sfmann nær rúminu. Hún var ljóshærð og stutt- klippt, með silfurlitaðar stríp- ur f hárinu. Hann hafði beðið hana að láta hárið vaxa, vegna þess honum fannst gaman að strjúka það og leika sér að þvf en hún var til þess ófáanleg. Það var vafstur og vesen að vera með sítt hár. Og það klæddi hana ekki. Hún hafði ekki beitt neinum svokölluðum kvenlegum klækjum til þess að ná honum. Enginn hefði getað borið henni á brýn að hún hafði haft í frammi einkaritarastæla til að tæla hann til fylgilags við sig. Hún hafði aldrei látið sér detta f hug að standa f nánari samskiptum við hann fyrr en þau höfðu allt í einu náð svona saman í Texas. Og svo háttaði til að auk þess að þau störfuðu óvenjulega vel saman og voru frábærir vinnufélagar hafði nú bætzt við einn þátturínn enn f samskiptum þeirra — sem var hin mikla kynferðislega ánægja sem þau fengu út úr þeim samverustundum — að allt varð til þess að auka enn á samkennd þeirra. — Logan? sagði hún. Aldrei þessu vant var engin truflun á línunni og rödd hans var skýr: — Janet, það er ég — hvern- ig líður þér? — Ágætlega. Þú vaktir mig. Hvernig gengur þetta allt? Það var dæmigert fyrir hana að hún spurði fyrst eftir við- skiptahlið málsins. — Það hefur fram að þessu allt verið f skikkanlegu lagi, sagði hann. — Ég fer á fund með ráðherranum núna á eftir. Svo vonast ég til að geta hitt keisarann mjög bráðlega. Ég veit ekki hversu lengi ég þarf að bíða unz ég fæ áheyrn, en ef það líða margar vikur þangað til þá býst ég við að skreppa heim í millitfðinni. Það lítur þó allt heldur vel út. Við héldum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.