Morgunblaðið - 11.07.1979, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ1979
«««%. ‘ mmmm jpl ___
• Haukar sækja art marki Lróttar í eitt af fáum skiptum í fyrri hálflcik. en hættunni var afstýrt.
Ljósm. RAX
Haukarnir voru afspyrnulélegir til
að byrja með og reyndar allan fyrri
hálfleik og án þess að sýna neina
meistaratakta, hófu Þróttarar fljót-
lega að hrúfta niður mörkum. Það
fyrsta kom strax á 14. mínútu, að
Þorgeir Þorgeirsson fékk knöttinn
við vítateigslínuna, sneri sér við og
skaut. Skotið var laust bogaskot og
Gunnlaugur markvörður horfði á
meðan knötturinn stakk sér undir
slána hjá honum og í netið, 1—0.
Nokkru áður voru Haukarnir nærri
því að skora, Úlfar varð fyrir skoti
Lárusar á markteig, en Haukar
ógnuðu varla á þann hátt fyrr en líða
tók á síðari hálfleik.
A 18. mínútu bætti Þróttur öðru
marki við. Ágúst Hauksson tók
hornspyrnu frá hægri og eftir herfi-
lega misheppnað úthlaup Gunnlaugs
markvarðar, barst knötturinn til
Jóhanns Hreiðarssonar, miðvarðar
Þróttar, sem afgreiddi knöttinn í
netið með þrumuskoti, 2—0.
Áfram voru Þróttarar skárri aðil-
inn, enda fundu Haukamenn sig
engan veginn í fyrri hálfleiknum, og
á 28. mínútu kom það sem virtist
Þróttur
Haukar
3:2
Gunnlaugur var heldur framarlega
þegar boltinn kom að markinu og
tókst því ekki að afstýra marki. Daði
Harðarson og Ágúst Hauksson fengu
einnig tækifæri til þess að bæta
mörkum við, en þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir, tókst það ekki. Lárus
Jónsson átti eina færi Hauka í fyrri
hálfleik, en skaut himinhátt yfir rétt
utan markteigs.
Fyrstu 35 mínútur leiksins gerðist
svo lítið, að helst hefði mátt ætla, að
enginn knöttur hefði verið inni á
vellinum. Halldór Arason átti þó eitt
dauðafæri fyrir Þrótt, en skaut beint
í lappirnar á Gunnlaugi markverði.
Á 37. mínútu gerðist það síðan, að
Haukarnir komust á blað. Lárus
Jónsson braust þá upp að vítateig
Þróttar og skaut föstu jarðarskoti
UEFA keppnin
AÐ venju er mikið af tvfsýnum leikjum á dagskrá í UEFA
keppninni. en margir eru á því að erfiðara sé að vinna þá keppni
heldur en hinar tvær. ekki einungis vcgna þess að leiknir eru fleiri
leikir, heldur einnig vegna þess hve mörg sterk lið taka jafnan þátt
f keppni þessari.
Feyenoord. með Pétur Pétursson í broddi fylkingar, fær mjög
erfiðan mótherja, sem er enska liðið Everton. Mótherji Standard
Liege er mun auðveldari, Glenavon frá írlandi. Hin ensku liðin þrjú,
ættu að eiga greiða leið í 2. umferð, einkum þó Leeds og Ipswich,
sem mæta La Valetta frá Möltu og Skeid frá Noregi. WBA gæti
lent í basli með Carl Zeiss Jena frá Austur Þýskalandi ,en er þó
sigurstranglegra liðið. Leikir 1. umferðar eru þessir:
Progress Niederkorn — Grasshoppers
Sporting Gijon — PSV Eindhoven
Sporting Lissabon — Bohemians Dublin
Zbrojovka Brno — Esbjerg
Bohemians Prag — Bayern Munchen
Rauða Stjarnan — Galatasary
Rapid Wienna — Dyosgyor Miskolo
San Sebastian — Inter Mílanó
Dynamó Dresden — Atletico Madrid
FC Valetta — Leeds
Perugia — Dinamo Zagrep
Benfica — Aris Saloniki
Keiserslautern — FC Zurich
Widzew Lodz — St Etienne
Skeid — Ipswich
Keflavík — Kalmar FF
Mönchengladbach — Viking Stavanger
Dundee — Anderiecht
Aarhus — Stahl Miiec
Carl Zeiss Jena — WBA
Pallusera Koupio — Malmö FF
Aberdeen — Eintr. Frankfurt
Everton — Feyenoord
Glenovan — Standard Liege
Loko Soffia — Ferencvaros
sem Olafur markvörður hálfvarðí.
Hrökk knötturinn til Hermanns
Þórissonar, sem fylgt hafði vel eftir
og skoraði hann örugglega af u.þ.b.
10 sentimetra færi.
Brá nú svo við, að Þróttararnir
réðu ekkert við Haukana og Björn
Svavarsson hafði fengið tvö ágæt
færi áður en hann skoraði annað
mark Hauka á 88. mínútu. Hann
fékk þá knöttinn einn og óvaldaður
rétt innan vítateigs og skoraði glæsi-
lega með þrumuskoti viðstöðulaust.
Rétt áður hafði Ólafur markvörður
varið snilldarlega þrumufleyg
Björns. En tíminn var of knappur og
Þróttarar voru fegnir þegar flautað
var til leiksloka.
í heildina séð var þetta með lakari
leikjum mótsins sem undirritaður
hefur séð, enda kannski ekki að
furða, þar sem botnlið deildarinnar
voru hér á ferðinni. Þróttarar náðu
annað slagið þokkalegum sprettum
úti á vellinum, en sjaldnast varð
nokkuð úr þegar á reyndi. Jóhann
Hreiðarsson var góður eins og búast
mátti við, Ágúst Hauksson þokka-
legur, en flestir stóðu varla upp úr
meðalmennskunni, nema hvað Olaf-
ur Ólafs markvörður varði vel í
síðari hálfleik.
Haukarnir voru hvorki fugl né
fiskur lengst af í leiknum, en fóru að
sýna klærnar þegar líða tók að
leikslokum. Daníel og Guðmundur
Sigmarsson voru bestu menn liðsins
og Björn Svavarsson atkvæðamikill
undir lokin. Þá átti einnig varamað-
urinn Kristján Kristjánsson góða
spretti.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild: Þróttur—
Haukar á Laugardalsvelli 3—2 (3—
0)
Mörk Þróttar: Þorgeir Þorgeirsson
(14. mín.) og Jóhann Hreiðarsson
(18. og 28. mín.).
Mörk Hauka: Hermann Þórisson (82.
mín.) og Björn Svavarsson (88. mín.)
Spjöld: Vignir Þorláksson, Björn
Svavarsson Haukum og Úlfar
Hróarsson Þrótti fengu gul spjöld.
Dómari: Vilhjálmur Þór Vilhjálms-
son. — gg
Reynigengur
illa að skora
Fjörbrot Hauka
komu of seint...
AÐLINS ærslaíull fjörbrot Hauka. rétt fyrir Icikslok, björguðu leik þeirra við Þrótt í 1. deildar keppninni frá því
að verða sá leiðinlegasti scm undirritaður hefur séð það scm af er sumri. Staðan var 3—0. cr Ilaukarnir skoruðu
skyndilega. Fóru þeir þá að leika þannig. að með áframhaldi á slíku gæti liðið farið að hala inn stig. En vakningin
hófst of seint og þrjú mörk. þar af a.m.k. tvö sem vcrða að skrifast á markvörðinn Gunnlaug Gunnlaugsson í fyrri
hálfleik, tryggðu það að Reykjavíkurfélagið hélt hcim með ba'ði stigin í vasanum. Lokatöiur leiksins urðu því 3 — 2
fyrir Þrótt.
vera rothöggið, en þá skoraði Jóhann
miðvörður annað mark sitt eftir
góða sendingu Sverris Einarssonar,
góður samleikur miðvarða Þróttar.
REYNIR og Selfoss skildu jöfn í
Sandgerði í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu í gærkvöldi,
skoraði hvort lið eitt mark. en
staðan í hálfleik var 1—0 fyrir
Selfoss. Miðað við gang leiksins
hefðu heimamenn átt að vinna
með 2—3 mörkum, en liðinu
hefur gengið hroðalega að skora
í leikjum sinum til þessa í sumar
og mark þeirra gegn Selfossi í
gær var það sjötta sem þeir
skora en það er f jarri því að vera
nógu gott.
Reynismenn sóttu heldur meira
framan af og þegar á 9. mínútu
björguðu Selfyssingar af mark-
línu. Leikurinn jafnaðist síðan og
Selfyssingar áttu hættulegri fær-
in allt til leikhlés. Og þeir náðu
verðskuldað forystunni á 31. mín-
útu, er Ámundi Sigmundsson
skoraði með skalla.
Reynismenn sóttu undan gol-
unni í síðari hálfleik og áttu hvert
dauðafærið af öðru. Þau fóru öll
nema eitt forgörðum og hvílir
þetta máttleysi við markið eins og
mara á Reynismönnum.
Eina mark liðsins og jöfnun-
armarkið skoraði Hjörtur Jóh-
annsson með góðum skalla.
JJ—/gg.
Reynir:
Selfoss
1:1
Golfkeppni
handknatt-
leiksmanna
í DAG fer fram hin árlega golf-
keppni handknattleiksmanna og
verður hún á Nesvellinum.
Keppnin er öllum opin, bæði
núverandi og fyrrverandi hand-
knattleiksmönnum svo og dómur-
um og öðrum starfsmönnum við
íþróttina.
Keppnin hefst kl. 17.00 í dag og
verður keppt í tveimur flokkum,
nýliðaflokki og flokki þeirra sem
eru lengra komnir í íþróttinni.
Glæsileg verðlaun eru í boði, og til
mikils að vinna.
„Ekki alltafhægt
að fá það besta"
„VISSULEGA hcfðum við getað verið heppnari með drátt, en það er
ekki alltaf hægt að fá bestu Iiðin“ sagði Hafsteinn Guðmundsson
formaður knattspyrnudeildar ÍBK f spjalli í gær, eftir að Ijóst var að
ÍBK skyldi leika gegn sænska liðinu Kalmar FF.
„Við höfum verið heppnir á undanförnum árum, leikið gegn liðum eins
og Everton, Tottenham, Real Madrid, Hadjuk Split og meira að segja
Hamburger SV, mótherjum Valsmanna. Það var árið 1975 í Evrópukeppni
bikarhafa og við náðum jafntefli gegn þeim á Laugardalsvellinum, 1—1,
en töpuðum úti 0—3. Var það alls ekki svo slakur árangur," bætti
Hafsteinn við.
„Eg held, að menn séu hér sæmilega ánægðir þrátt fyrir allt, þar sem
ferðalagið verður styttra og ódýrara heldur en ella. Þá er alltaf nokkur
sigurmöguleiki ef vel tekst til og ætla ég að við einir höfum möguleika á
því íslensku liðanna að þessu sinni. Við þekkjum að vísu lítið eða ekkert til
þessa sænska liðs, en ætli þau séu ekki nokkuð áþekk þessi lið sem þarna
eru við toppinn".
„Það er ekkert farið að ræða hvar leikið verður, því að ljóst er að
einhverjar breytingar verða gerðar á leikdögum þar sem öll íslensku liðin
eiga heimaleiki sína á undan. Við höfum þó áður leikið Evrópuleik í
Keflavík, gegn Dundee Utd, og tókst það í allla staði vel, nema hvað
úrslitin voru óhagsstæð, 0—3 fyrir Skotana" sagði Hafsteinn að lokum.
___________________________________— gg-
Tvöfalt gegn
Færeyingum?
LÁRUS Loftsson. unglingalands-
liðsþjálfari, hefur valið eftirtalda
leikmenn til að leika unglinga-
landsleik fyrir 16—18 ára gegn
ÞRÓTTUR: Ólafur Ólafa 2, Úlfar Hróarsson 2, Ottó Hreinsson 2, Sverrir
Einarsson 2, Jóhann Hreiöarsson 3, Daöi Haröarson 1, Ágúst
Hauksson 2, Halldór Arason 2, Ársæll Kristjánsson 2, Sverrir
Brynjólfsson 1, Þorgeir Þorgeirsson 2, Arnar Friöriksson (Vm) 1, Páll
Olafsson (Vm) 1.
HAUKAR: Gunnlaugur Gunnlaugsson 1, Úlfar Brynjarsson 2, Vignir
Þorláksson 1, Daníel Gunnarsson 3, Guömundur Sigmarsson 3, Ólafur
Torfason 1, Lárus Jónsson 1, Björn Svavarsson 2, Gunnar Andrésson
2, Siguröur Aðalsteinsson 1, Hermann Þórisson 2, Kristján Kristjáns-
son (Vm) 2, Halldór Benediktsson (Vm) 1.
DÓMARI: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 3.
Færeyingum á Laugardalsvelli, í
kvöld 11. júlí kl. 20.00:
Stefán Jóhannsson, KR
Kristinn Arnarson, Víkingi, Ól.
Benedikt Guðmundsson, UBK
Ástvaldur Jóhannsson, ÍA
Jósteinn Einarsson, KR
Sigurjón Kristjánsson, ÍA
Helgi Betsson, ÍA
Sigurður Grétarsson, UBK
Einar Ólafsson, ÍBÍ
Hafþór Sveinjónsson, Fram
Guðmundur Torfason, Fram
Lárus Guðmundsson, Víkingi
Óskar Þorsteinsson, Víkingi
Valur Valsson, FH
Ómar Rafnsson, UBK
Birgir Guðjónsson, Val
Dómari verður Óli P. Olsen.
Línuverðir: Hreiðar Jónsson og
Arnþór Óskarsson.