Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 35

Morgunblaðið - 11.07.1979, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JULI1979 35 Knattspyrnumaður Evrópu, Kcvin Keexan. Margir eru á þeirri skoðun að hann sé sá besti í veröidinni í dag. Nú gefst knattspyrnu- unnendum kostur á að sjá hann í leik á Lauxardalsvellinum á móti Val. Evrópukeppni meistaraliða Nottinxham Forest, Evrópumeistaramir í knattspyrnu, fá að glíma við Teit Þórðarson og félaga hans í sænska liðinu öster frá Vexjö í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða. Það var einmitt sænskt lið sem Forest vann í úrslitum í fyrra. Malmö FF. Leikur Forest heimaieik sinn fyrst. Forest er í keppni þessari að þessu sinni sem bikarhafinn, en núverandi ensku meistararnir, Liverpool, fengu mótherja sem kann að reynast crfiður viðfangs, ekki síst vegna mikilla ferðalaga. Liverpool ieikur gegn sovéska liðinu Dynamó Tiblisi og ieikur útiieikinn fyrst. Af öðrum stórleikjum má geta ieiks Porto og AC Mflanó og Partizan Tirana gegn Celtic. en aðrir leikir eru þessir: Dundalk - Linfield Liverpool - Dynamó Tiblisi Arges Tiblisi - AEK Aþenu Levski Spatkat - Real Madrid Valur - Hamburger SV Servette - Beveren Vejle - Austria Vien Nott. Forest - öster FC Porto - AC Mflanó Red Boys Differdange - Omonia Nicosia Had juk Split - Trabsonspor Racing Strassburg - IK Start Partizan Tirana - Ceitic Helsinki JK - Ajax Ujpesti Doza - Dukla Prag Dynamó Berlín - Ruch Chorsow f ......... A Evrópukeppni bikarhafa Fátt er um stórleiki f 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa. Arsenal, enski bikarmeistarinn, fékk mótherja sem ætti ekki að valda miklum vandræðum. Fenerbache frá Tyrklandi. Fyrst íer fram undankeppni fjögurra liða, Rangers leikur gegn Lilleström og B 1903 frá Danmörku lcikur gegn Apoel Nicosfu frá Kýpur. Er það ekki skoskri knattspyrnu til upphefðar að vera sett á bekk mcð slfkum knattspyrnudvergum. Sfðan leika eftirtalin 115 saman. Rangers/ Lilleström - Fortuna Dusseldorf Dyn. Moskva - Wllasnia Shkodey. FC Juventus - Vasas Budapest. Tvente - Panionois Aþenu. Akranes - Barcelona. Arka Gdynia - Beroe Stara Zagira. Cliftoville - FC Nantes. Wrexham - Magdeburg. Young Boys - Steua Búkarest. Aris Bonncvoie - Relphas Lahti. Wacker Innsbruck - Loko Kosice. Beerschot - FC Rijeka. BK1903/ Apoel Nicosía - Valencia. Boavista Porto - Sliema Wanderers. Arsenal - Fcnerbache. •. Gautaborg - Waterford FC. \___ s i Valur og ÍA duttu í lukkupottinn lentu á móti Hamburger SV og F.C. Barcelona í GÆRDAG var dregið í aðalstöðv- um FIFA í Zurich, í knattspyrnu- keppnum Evrópu. íslandsmeistar- ar Vals, og bikarmeistarar ÍA duttu svo sannarlega í lukkupott- inn. Voru nöfn liðanna dregin á móti tveimur af alsterkustu knattspyrnuliðum Evrópu, Valur á móti Hamburger SV, og ÍA á móti FC Barcelona. Lánið lék hins vegar ekki við ÍBK. en þeir lentu á móti Kalmar FF frá Svíþjóð. íslenskir knattspyrnuunnendur eiga því í vændum að sjá marga af fremstu knattspyrnumönnum heims á Laugardalsvellinum f haust. Sjálf- ur knattspyrnumaður Evrópu Kev- in Keegan er í broddi fylkingar hjá Hamburger SV, en þar leika líka snillingar eins og Manfred Kaltz, Memmering, Maggath, Kargus, o.fl. Þess má geta að Kaltz lék f heimsliðinu á móti Argentfnu á dögunum og þótti besti maður liðsins. í liði FC Barcelona leika ekki óþekktari leikmenn. Nöfn eins og Hans Krankl markamaskfnan mikla, einn markhæsti leikmaður sfðustu heimsmeistarakeppni í knattspyrnu, og fyrrverandi knattspyrnumaður Evrópu Alan Simonssen. Framherjinn Rexach þykir líka með leiknustu knatt- spyrnumönnum Evrópu. - þr. Markamaskínan Hans Krankl. einn þekktasti lcikmaður FC Barcelona. hpfta QF ClAFlfAC f|pnt“ MrClld Cl dluvKUo negi — ÞETTA er stórkostlegt, sagði Gunnar Sigurðsson vara- formaður knattspyrnuráðs Akraness. — Þegar útkjálkalið eins og Akranes lenda á móti slfku stórveldi eins og FC Barcelona er. Ég er ekki viss um að okkur takist að fá heimaleikinn, landsmeistararnir ganga fyrir. En ég vona að samningar takist um það atriði. Þetta verður með því viðburðaríkasta í knatt- spyrnunni hér í sumar. Það er ekki á hverjum degi að leikmenn eins og Krankl, og Simonssen leika á Laugardalsvellinum, að ógleymdum Rexach. — þr. . pi / ■■■ brnm i cini inHn himni“ ppCvUUl 1 oJUI jíiud vvivnni — VIÐ erum í sjöunda himni sagði Pétur Sveinbjarnarson formaður knattspyrnudeildar Vals er Mbl. hafði samband við hann í gær. — Það er ánægju- legt að detta svona í lukku- pottinn. Miðað er við stöðu Hamburger SV í dag í knatt- spyrnuheiminum, þá verður leikur Vals og Hamburger SV stærsti íþróttaviðburður hér á landi síðan Benfica lék hér. Það hlýtur að vera öllum knattspyrnuáhugamönnum kappsmál að sjá snillinginn Kevin Keegan, knattspyrnu- mann Evrópu, leika á Laugar- dalsvellinum ásamt öllum þeim stóru nöfnum sem leika við hlið hans. Við munum leika hér heima 19. september. Og rétt er að benda á þann sérstaka feril sem Valsmenn hafa í Evrópukeppn- inni. Þeir hafa aðeins einu sinni tapað heimaleik, og hæst ber glæsilegan árangur þeirra á móti Benfica en þar náðu þeir jafntefli. Við munum gera okk- ar besta í leiknum eins og alltaf þegar við leikum sagði Pétur að lokum. - þr. „Keegan er sá besti“ — ÉG ER mjög ánægður, vildi fá sterkt lið. Fjögur bestu lið í Evrópu í dag eru Hamburger SV, Barcelona, Liverpool, og Nottingham Forest, sagði Nemes Þjálfari Vals í gær í spjalli við Mbl. — Kevin Keegan er án alls vafa besti knattspyrnumaður heimsins í dag bætti Nemes við. Það eru fáir leikmenn sem eru jafn alhliða og geta leikið alls staðar á vellinum. Hann minnir á Cryuff. Ég tel að við eigum möguleika hér heima í septem- ber. Þá eru þýsku liðin rétt að fara af stað í keppninni og því skyldi Val ekki takast vel upp í Evrópukeppninni núna eins og undanfarin ár, sagði Nemes. - þr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.