Morgunblaðið - 11.07.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JULI1979
35
Knattspyrnumaður Evrópu, Kcvin Keexan. Margir eru á þeirri
skoðun að hann sé sá besti í veröidinni í dag. Nú gefst knattspyrnu-
unnendum kostur á að sjá hann í leik á Lauxardalsvellinum á móti
Val.
Evrópukeppni
meistaraliða
Nottinxham Forest, Evrópumeistaramir í knattspyrnu, fá að glíma
við Teit Þórðarson og félaga hans í sænska liðinu öster frá Vexjö í 1.
umferð Evrópukeppni meistaraliða. Það var einmitt sænskt lið sem
Forest vann í úrslitum í fyrra. Malmö FF. Leikur Forest heimaieik
sinn fyrst. Forest er í keppni þessari að þessu sinni sem bikarhafinn,
en núverandi ensku meistararnir, Liverpool, fengu mótherja sem
kann að reynast crfiður viðfangs, ekki síst vegna mikilla ferðalaga.
Liverpool ieikur gegn sovéska liðinu Dynamó Tiblisi og ieikur
útiieikinn fyrst.
Af öðrum stórleikjum má geta ieiks Porto og AC Mflanó og
Partizan Tirana gegn Celtic. en aðrir leikir eru þessir:
Dundalk - Linfield
Liverpool - Dynamó Tiblisi
Arges Tiblisi - AEK Aþenu
Levski Spatkat - Real Madrid
Valur - Hamburger SV
Servette - Beveren
Vejle - Austria Vien
Nott. Forest - öster
FC Porto - AC Mflanó
Red Boys Differdange - Omonia Nicosia
Had juk Split - Trabsonspor
Racing Strassburg - IK Start
Partizan Tirana - Ceitic
Helsinki JK - Ajax
Ujpesti Doza - Dukla Prag
Dynamó Berlín - Ruch Chorsow
f ......... A
Evrópukeppni
bikarhafa
Fátt er um stórleiki f 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa. Arsenal,
enski bikarmeistarinn, fékk mótherja sem ætti ekki að valda miklum
vandræðum. Fenerbache frá Tyrklandi. Fyrst íer fram undankeppni
fjögurra liða, Rangers leikur gegn Lilleström og B 1903 frá
Danmörku lcikur gegn Apoel Nicosfu frá Kýpur. Er það ekki skoskri
knattspyrnu til upphefðar að vera sett á bekk mcð slfkum
knattspyrnudvergum. Sfðan leika eftirtalin 115 saman.
Rangers/ Lilleström - Fortuna Dusseldorf
Dyn. Moskva - Wllasnia Shkodey.
FC Juventus - Vasas Budapest.
Tvente - Panionois Aþenu.
Akranes - Barcelona.
Arka Gdynia - Beroe Stara Zagira.
Cliftoville - FC Nantes.
Wrexham - Magdeburg.
Young Boys - Steua Búkarest.
Aris Bonncvoie - Relphas Lahti.
Wacker Innsbruck - Loko Kosice.
Beerschot - FC Rijeka.
BK1903/ Apoel Nicosía - Valencia.
Boavista Porto - Sliema Wanderers.
Arsenal - Fcnerbache. •.
Gautaborg - Waterford FC.
\___ s
i
Valur og ÍA duttu í
lukkupottinn lentu á
móti Hamburger SV
og F.C. Barcelona
í GÆRDAG var dregið í aðalstöðv-
um FIFA í Zurich, í knattspyrnu-
keppnum Evrópu. íslandsmeistar-
ar Vals, og bikarmeistarar ÍA
duttu svo sannarlega í lukkupott-
inn. Voru nöfn liðanna dregin á
móti tveimur af alsterkustu
knattspyrnuliðum Evrópu, Valur á
móti Hamburger SV, og ÍA á móti
FC Barcelona. Lánið lék hins vegar
ekki við ÍBK. en þeir lentu á móti
Kalmar FF frá Svíþjóð. íslenskir
knattspyrnuunnendur eiga því í
vændum að sjá marga af fremstu
knattspyrnumönnum heims á
Laugardalsvellinum f haust. Sjálf-
ur knattspyrnumaður Evrópu Kev-
in Keegan er í broddi fylkingar hjá
Hamburger SV, en þar leika líka
snillingar eins og Manfred Kaltz,
Memmering, Maggath, Kargus,
o.fl. Þess má geta að Kaltz lék f
heimsliðinu á móti Argentfnu á
dögunum og þótti besti maður
liðsins.
í liði FC Barcelona leika ekki
óþekktari leikmenn. Nöfn eins og
Hans Krankl markamaskfnan
mikla, einn markhæsti leikmaður
sfðustu heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu, og fyrrverandi
knattspyrnumaður Evrópu Alan
Simonssen. Framherjinn Rexach
þykir líka með leiknustu knatt-
spyrnumönnum Evrópu.
- þr.
Markamaskínan Hans Krankl. einn þekktasti lcikmaður FC
Barcelona.
hpfta QF ClAFlfAC f|pnt“
MrClld Cl dluvKUo negi
— ÞETTA er stórkostlegt,
sagði Gunnar Sigurðsson vara-
formaður knattspyrnuráðs
Akraness. — Þegar útkjálkalið
eins og Akranes lenda á móti
slfku stórveldi eins og FC
Barcelona er.
Ég er ekki viss um að okkur
takist að fá heimaleikinn,
landsmeistararnir ganga fyrir.
En ég vona að samningar takist
um það atriði. Þetta verður með
því viðburðaríkasta í knatt-
spyrnunni hér í sumar. Það er
ekki á hverjum degi að leikmenn
eins og Krankl, og Simonssen
leika á Laugardalsvellinum, að
ógleymdum Rexach. — þr.
. pi / ■■■ brnm i cini inHn himni“
ppCvUUl 1 oJUI jíiud vvivnni
— VIÐ erum í sjöunda himni
sagði Pétur Sveinbjarnarson
formaður knattspyrnudeildar
Vals er Mbl. hafði samband við
hann í gær. — Það er ánægju-
legt að detta svona í lukku-
pottinn. Miðað er við stöðu
Hamburger SV í dag í knatt-
spyrnuheiminum, þá verður
leikur Vals og Hamburger SV
stærsti íþróttaviðburður hér á
landi síðan Benfica lék hér.
Það hlýtur að vera öllum
knattspyrnuáhugamönnum
kappsmál að sjá snillinginn
Kevin Keegan, knattspyrnu-
mann Evrópu, leika á Laugar-
dalsvellinum ásamt öllum
þeim stóru nöfnum sem leika
við hlið hans.
Við munum leika hér heima
19. september. Og rétt er að
benda á þann sérstaka feril sem
Valsmenn hafa í Evrópukeppn-
inni. Þeir hafa aðeins einu sinni
tapað heimaleik, og hæst ber
glæsilegan árangur þeirra á
móti Benfica en þar náðu þeir
jafntefli. Við munum gera okk-
ar besta í leiknum eins og alltaf
þegar við leikum sagði Pétur að
lokum.
- þr.
„Keegan er sá besti“
— ÉG ER mjög ánægður, vildi
fá sterkt lið. Fjögur bestu lið í
Evrópu í dag eru Hamburger
SV, Barcelona, Liverpool, og
Nottingham Forest, sagði
Nemes Þjálfari Vals í gær í
spjalli við Mbl.
— Kevin Keegan er án alls
vafa besti knattspyrnumaður
heimsins í dag bætti Nemes við.
Það eru fáir leikmenn sem eru
jafn alhliða og geta leikið alls
staðar á vellinum. Hann minnir
á Cryuff. Ég tel að við eigum
möguleika hér heima í septem-
ber. Þá eru þýsku liðin rétt að
fara af stað í keppninni og því
skyldi Val ekki takast vel upp í
Evrópukeppninni núna eins og
undanfarin ár, sagði Nemes.
- þr.