Morgunblaðið - 19.08.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979
35
Tæki sem hreinsar olíu á vélum:
„Sparar allverulegar fjárhæðir,
ef það er notað í fiskiskipum,,
„ÞETTA tæki orsakar
það að ekki þarf að
skipta um olíu á vélum
lengur. Það var fundið
upp í Bandaríkjunum ár-
ið 1952 en er nýbyrjað að
nota hér í Evrópu. En nú
á tímum olíuhækkana
hefur komið mikill fjör-
kippur í útbreiðslu þess.“
Tómas Sigurðsson leit við
á ritstjórninni til að sýna
tæki sem hann hafði þá
nýfengið að utan og ætl-
ar að hefja kynningu á
hér á landi.
Tækið er byggt upp á
þeirri grundvallarhug-
mynd að sjóða aðskota-
efni burt úr olíunni. Þessi
aðskotaefni sem safnast
undir venjulegum kring-
umstæðum fyrir í olíu eru
vatn, diesel eða bensín og
ýmsar sýrur. I olíunni eru
síðan ýmis bætiefni sem
eru hugsuð til að verka á
móti þessum efnum en
þrátt fyrir verkan þeirra
kemur sú stund að olían
er ekki lengur nothæf og
það verður að skipta um
hana.
Þessi úrgangsefni eru
soðin úr olíunni með raf-
magni en í olíuhreinsar-
anum er filter, sem verður
að skipta um einu sinni á
ári.
Tómas sagði að tæki
þetta hefði verið í prófun-
um í Bandaríkjunum þau
rúmlega 25 ár sem þau
hefðu verið notuð en
hefðu fyrst komið til Ev-
rópu fyrir 2 árum og þá til
Svíþjóðar. Um síðustu
áramót voru 2000 slík
tæki í notkun í Svíþjóð en
gert er ráð fyrir því að
þau verði orðin 10 þúsund
áður en árið er liðið í
aldanna skaut.
Erlendis er farið að
nota þessi tæki víða og
sagði Tómas að tækið
borgaði sig með 1 árs
notkun í stórum bílum.
Hann sagðist ekki telja að
þetta tæki mundi borga
sig í fólksbifreiðum að svo
stöddu en aðallega væri
þörf fyrir það í fiskiskipa-
flotanum og gætu þannig
sparast allverulegar fjár-
hæðir. Það tæki sm hann
sýndi okkur var fært um
að halda hreinum 9 lítrum
af olíu en það stærsta sem
hann hefur getur annað
67 lítrum á vél.
Tómas sagðist nú ætla í
ferð um landið til að
kynna þetta tæki og
myndi hann leggja
áherslu á að kynna það
forráðamönnum útgerðar.
Tómas Sigurðsson með tækið sem hreinsar olíu og hann ætlar að
kynna hérlendis. Þetta tæki, sem hann heldur á, getur hreinsað 9
iítra af olíu á véi en það stærsta getur annað 67 lítrum af oiíu.
Færri
meiðsli
í umferð-
inni en
ífyrra
*
FÆRRI umferðarslys mcð
meiðslum hafa orðið það sem af
er árinu en á sama tíma í fyrra,
eða 526 á móti 564, að því er fram
kemur í bráðabirgðaskráningu
umferðarslysa sem Umferðarráð
hefur látið gera. Tveimur dauða-
slysum er þó fleira í ár en á sama
tíma í fyrra. eða 10 á móti 8 og
þar af 6 í júlí. Heildarfjöldi
umferðarslysa og óhappa það
sem af er árinu er 4005 á móti
3908 í fyrra, eða næstum sami
fjöldi.
Áberandi er hvað margir gang-
andi vegfarendur slösuðust í júlí,
18 af 71 slöðsuðum eða 25% og 22
börn slösuðust, þar af lét eitt barn
lífið, á móti 8 sem slöðsuðust í
fyrra. Þó hafa færri börn slasast í
ár en í fyrra. 17 ungmenni 17—20
ára (4 aldursár) slösuðust í júlí
eða jafn margir og í aldursflokkn-
um 25—64 ára (40 aldursár).
Útafakstur var í 19 tilfellum af
þessum 49 slysum með meiðslum
og dauða í júlí.
Af 59 ökumönnum sem aðild
áttu að þessum 49 slysum voru 30
á aldrinum 17—24 ára (8 aldursár)
en 21 á aldrinum 25—60 ára (35
aldursár).
GRUNDIG
22" 6212
Lcekkun kr.114.500.
Núdkr.546.600.
% Útborgun: Mánaðargr.:
20% kr. 110.000 2 X kr. 219.000
30% kr. 164.000 3 X kr. 128.000
40% kr. 219.000 4 X kr. 82.000
50% kr. 274.000 5 X kr. 55.000
60% kr. 328.000 Frjálst innan árs
100% kr. 519.300 (5% staðgr.afsl.)
VEXTIR OG KOSTNAÐUR EKKIINNIFALIÐ.
• Línumyndlampi. („Black-stripe inline“).
• Einingaverk.
• AFC og AGC (sjá 4613).
• Kait kerfi. (Aukin ending).
• Framvísandi hátalari. (Betri hljómburður).
• Tónstillir fyrir bassa og diskant.
• Valhnotukassi. Stærð 67X5047.
öll GRUNDIG tæki eru búin sömu grund-
vailareiginleikum. Yfirburðarmyndgæði,
traust bygging og mikil ending eru þeirra
einkenni. Nokkur munur er hins vegar á
aukabúnaði þeirra.
Við öll GRUNDIG tæki má tengja mynd-
segulband og hvers konar leiktæki.
Leiöandi fyrirtæki
á sviöi sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).