Morgunblaðið - 19.08.1979, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979
ROSALYNN
„Jimmy er við góða heilsu og hamingjusamur. Hann er bjartsýnn á framtíð þess
lands, og það er ég einnig. Forsetinn telur þjóðina standa á tímamótum. Við erum
viljasterk og við getum leyst okkar vandamál ef við stöndum saman. Við værum
reiðubúin að neita okkur um ýmislegt ef við þyrftum þess með. Við höfum fengið
gott tækifæri til þess að efla þrótt þjóðarinnar, og ættum að taka því vel. „Þannig
mælti forsetafrú Bandaríkjanna, Rosalynn Carter, nýverið á yfirreið um
Bandaríkin. í upphafi var ætlun hennar með þessari ferð að sinna eigin
áhugamálum, er voru nokkuð fjarri amstri forsetaembættisins. Raunin varð hins
vegar sú að frú Carter einbeitti sér að því að telja landsmönnum trú um ágæti
forsetans og stefnu hans í veigamiklum málum. Hún reyndi að vinna forsetanum
traust og er það mál manna að henni hafi tekist víðast hvar vel upp. Ýmsum þótti
sjálfstraust hennar, örugg framkoma og sannfæringarkraftur af slíku tagi að
spurt var hvers vegna Rosalynn færi ekki fram í stað Jimmys.
Rosalynn Carter hefur haft mikil áhrif á Carter forseta og er þáttur hennar í
stjórnarstarfinu sagður vera meiri en forvera hennar, jafnvel enn meiri en hlutur
Eleanor Roosevelt á sínum tíma. Að vísu hafði Edith Wilson, kona Woodrow
Wilson, mikil völd í Hvíta húsinu eftir veikindi eiginmanns hennar, en hún hafði
lítil afskipti af forsetaembættinu meðan Wilson var heill heilsu. Hefur hlutur
Rosalynn einna helzt verið borið saman við hlutverk Harry Hopkins aðalráðgjafa
Roosevelts forseta.
Áhríf hennar á forsetaembætt-
ið meiri en nokkurrar annarr-
ar bandarískrar forsetafrúr
Frú Carter talar máli forsetans á útifundi f Arkansas fyrir skömmu.
Það var fyst í apríl að Rosa-
lynn fór að láta verulega að sér
kveða í Hvíta húsinu. Á undan.
forsetanum sjálfum gerði hún
sér það ljóst að vinsældir hans
og traust höfðu dvínað verulega
með þjóðinni. „Henni var vand-
inn ljós á undan okkur öllum
hinum," sagði Jody Powell
blaðafulltrúi forsetans eitt sinn.
Og að tilstuðlan forsetafrúar-
innar sökktu forsetahjónin sér
niður í lestur sálfræði og þjóð-
félagsfræði, auk þess sem ýmsir
valinkunnir fræðimenn voru til-
kvaddir til að fræða þau um
þankagang þjóðarinnar. Rosa-
lynn hafði orðið þe3s askynja að
bölsýni hafði graíið um sig
meðal þjóðarinnar og margir
væru haldnir vanlíðan af þeim
sökum. Ásetningur hennar var
ljós. Tími væri komin til fyrir
forsetann að endurvekja þrótt
þjóðarinnar, og vegna eigin
stöðu hefði hann engu að tapa,
heldur allt að vinna.
Áhrif Rosalynn verða æ meiri.
I Hún fer yfir flest skjöl er
| viðkoma forsetaembættinu. Hún
Í færir ræður forsetans í stílinn
MeAal kjósenda í Loe Angeles
Málin athuguð um borð í flug- Einurð og sannfæring einkenna mál Rosalynn. Hér talar hún á fundi í
vél á milli ræðustaða. Los Angeles í Kalifornfu, vígi eins af andstæðingum Carters í
væntanlegri kosningabaráttu.
og veitir ræðuritaranum óspart
aðhald. Hún fundar með ráðgjöf-
um forsetans, situr ríkisstjórn-
arfundi, kemur fram í nafni
forsetaembættisins og leggur á
ráðin í veigamiklum málum.
Hún heldur sérstakan hádegis-
verðarfund með forsetanum á
þriðjudögum og þar eru helzt
rædd mál eins og SALT II,
ás'tandið í Miðausturlöndum,
orkumál Bandaríkjanna, verð-
bólga o.þ.h. Kemur forsetafrúin
venjulega vel undirbúin á þessa
fundi, með fulla tösku af skjöl-
um og gögnum. Hlutirnir eru
ræddir í alvöru og skipst er á
skoðunum. Fjölskyldumálunum
er ýtt tii hliðar við þessi tæki-
færi.
Á ríkisstjórnarfundum fylgist
Rosalynn vel með, ritar hjá sér
ýmis efnisatriði, skýtur inn at-
hugasemdum og bætir úr ef
forsetanum missegist eða ef
minnisleysi hrjáir hann. Eitt
sinn er Walter Mondale vara-
forseti var fjarstaddur ríkis-
stjórnarfund sá forsetinn ekkert
athugavert við það er Rosalynn
settist í stól varaforsetans. Á
smærri fundum, þ.e. fundum
forsetans með ráðgjöfum sínum
o.fl. lætur Rosalynn enn meira
til sín taka. Er hún oftast sögð
bera mál sitt fram af kænsku og
festu og gildir þá einu hvort hún
er sammála forsetanum eður ei.
Meðal þeirra sem hrósað hafa
rökfestu og röggsemi frúarinnar
e[ Edward Kennedy öldunga-
deildarmaður, sem margir álíta
hættulegasta andstæðing Cart-
ers í stjórnmálum.
Rosalynn hafði meiri áhrif á
þróun bandarískra stjórnmála
síðustu vikur en margir gera sér
grein fyrir. Þegar forsetinn hélt
til Camp David í byrjun júlí til
að finna leiðir og marka stefnu
til þess að koma þjóðinni út úr
ýmsum aðsteðjandi erfiðleikum,
svo sem orkumálunum, hafði
enginn þeirra 130 er hann ráð-
færði sig við meiri áhrif en
Rosalynn. Það var að hennar
ráði að hann frestaði boðuðu