Morgunblaðið - 19.08.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.08.1979, Blaðsíða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979 sLagBRGOTXJR. Brunaliðið kallað út víða um land „Útkall“ nefnist hljómplata ein, sem nú ætti að vera nýkomin í plötuverzlanir hérlendis. Ef- laust gera lesendur sér það f grun hvaða hljómsveit gefi út þessa plötu, mikið rétt það er jú Brunaliðið og er „Útkall“ þriðja plata hennar. Ef að líkum lætur munu þeir verða margir, er fagna útkomu plötunnar, þvf Brunaliðið á marga aðdáendur Sem stendur er enginn fastur gítarleikari og trommuleikari í hljómsveitinni. Þeir Friðrik Karlsson og Björgvin Gíslason sjá um allan gítarleik á plötunni og leikur Friðrik í flestum lögunum, eða öllum nema einu. Þá leikur Jeff Seoparde á trommur á plöt- unni og aðrir aðstoðarmenn eru Kristinn Svavarsson, saxafónleik- ari og þremenningarnir Magnús allan söng eins vel úr garði og frekast var kostur og væri fágun rétta orðið yfir sönginn og radd- irnar. Þá mun platan vera mun kraftmeiri, en fyrri plötur Bruna- liðsins. Að lokum má geta þess að Brunaliðið hefur nú hafið reisu um landið og hófst það ferðalag um Verzlunarmannahelgina. Lék Brunaliðið þá fyrir dansi í Árnesi og eru vinsældir lagsins „Ég er á leiðinni“ skýrt dæmi um það. Nokkrar breytingar hafa orðið á Iiðskipan Brunaliðsins, frá því seinasta plata þess kom út, en hljómsveitin er skipuð eftirtöldum einstaklingum. Ragnhildur Gísla- dóttir, Eva Albertsdóttir, Erna Þórarinsdóttir og Erna Gunnars- dóttir sjá um sönginn, en þrjár þær síðasttöldu voru áður í akur- eysku hljómsveitinni Hver. Pálmi Gunnarsson leikur á bassa og Magnús Kjartansson á hljómborð. Kjartansson, Andrés Helgason og Ingvi Jón Kjartansson leika á trompet. Alls eru á „Útkall" níu lög, öll frumsamin og hafa liðsmenn Brunaliðsins, Jóhann G. Jóhanns- son og Jóhann Helgason og fleiri séð um þá hlið málanna. Platan var hljóðrituð í Hljóðrita suður í Hafnarfirði fyrr á árinu og stjórn- aði Magnús Kjartansson því verki, en Jónas R. Jónsson sá um upptök- una. Að sögn þeirra sem til þekkja var mikil rækt lögð við að gera þrjú kvöld í röð og var ætíð fullt hús og feikigóð stemmning. Á fimmtudag lék hljómsveitin í Tónabæ og daginn eftir í Stapa. í dag, laugardag, verður hljómsveit- in að Flúðum og á morgun á Selfossi. Aðrir dansleikir eru: Fimmtud. 23. ágúst Akranes Föstud. 24. ágúst Stykkishólmur Laugard. 25. ágúst Stapi Föstud. 31. ágúst Stapi Laugard. 1. sept. Hvoll Að lokum má þess geta að með í förinni verða þeir Birgir Hrafns- son gítarleikari og Jeff Seopardie. RUST NEVER SLEEPS Neil Young (Reprise, Fálkinn) 1979 Stjörnugjöf (Fimm stjörnur) Flytjendur: Neil Young: söngur, kassa- gítar, rafmagnsgítar og munn- harpa. Nicolette Larson: raddir. Joe Osborne: bassi. Carl Himmel: trommur. Crazy Horse: Frank Samp- edro: rafmagnsgítar. Billy Talbot: bassi. Ralph Molina: trommur. Ben Keith: dobro. Stjórn upptöku: Neil Young, David Briggs og Tim Mulligan. Nú er komin út ein sú besta þlata sem Neil Young hefur gert. Hún er að mestu „live“ og hefur skemmtilegt „concert sound“. Að venju eru textar plötunnar mjög athyglisverðir og laglínur mjög grípandi. Að mínu áliti hefur Neil Young aldrei sungið eins vel og á þessari plötu en því til stuðnings má benda á lagið „Thrashers". Á fyrri hliðinni er Neil Young bara með kassagítar og munnhörpu og ekki er laust við að hún minni á Crosby, Stills, Nash & Young tímabilið, annars er hann mjög líkur Loudon Wainwright III á köflum (ef einhver skyldi þekkja hann). Á hinni hliðinni er rafmögnuð tónlist ráðandi þar sem Crazy Horse aðstoða Young. Neil Young er mjög sérkennilegur rafmagnsgítarleikari og er sam- leikur hans og Frank Sampedro afar skemmtilegur. Þótt þetta sé ein besta plata sem Neil Young hefur gefið út frá því „After The Goldrush" kom út 1970 held ég að hún stækki ekki aðdáendahóp hans hér á landi því að það hefur sýnt sig að annaðhvort grípur fólk hann strax við fyrstu heyrn eða ekki og það breytist lítið með þessari plötu. Bestu lögin eru „Thrasher", „Pocahontas" og „Powder Finger“. há HLjóðrítuóu pnÉupptökur fyrir fund CBS í Lundúnum Þá er hljómsveitin Mezzoforte farin að huga að plötugerð og stendur til að sú breiðskífa komi út seint í haust, cða snemma vetrar, í það minnsta fyrir jól. í vikunni hélt hljómsveitin suður í Hljóðrita og tók þar upp þrjú lög, sem síðar er ætlunin að kvnna á fundi CBS í Lundúnum síðar í mánuðinum. Mezzoforte er að mestu skipað sömu einstaklingum og eru í Ljósunum í bænum, en þeir eru: Friðrik Karlsson, Eyþór Gunnars- son, Gunnlaugur Briem, Stefán S. Stefánsson og Jóhann Ásmunds- son. Hljómsveitin hefur verið starfandi undanfarin misseri, þó með hléum og hefur sérhæft sig í leik jazz-rokks. Svo vikið sé aftur að væntan- legri breiðskífu, þá stóð einu sinni til að Jazzvakning gæfi hana út, en nú mun vera afráðið að Steinar gefi hana út. Þrjú lög, sem tekin voru upp nú, eru „Þegar Angóinn fékk sér nýjan kjól“ og „Skrif- stofan" eftir Friðrik Karlsson og „Fyrirkomulagið" eftir Eyþór Gunnarsson. Upptökur þessara laga voru þó aðeins svokallaðar „demo-upptökur“, en það verður svo í september, sem Mezzoforte hefst handa við plötugerðina. Eins og fyrr sagði verða þessi þrjú lög síðan kynnt á fundi hjá CBS í Lundúnum 21. ágúst. Þá mun Steinar ísberg, sem sækir fundinn, einnig kynna lög með Ljósunum í bænum. Þegar hausta tekur og skólarnir hefjast mun Mezzoforte leggja leið sína þangað og leika tónlist sína í sem flestum framhaldsskólum Stór-Reykjavíkursvæðisins. Þá hefur einnig heyrzt að hljómsveit- in hyggi á ferðir til annarra staða á borð við Akureyri og ísafjörð, en tíminn mun leiða hið sanna í ljós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.