Morgunblaðið - 19.08.1979, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979
39
JJÁ Kúbu nú á dögum er minna frelsi en í ^
Evrópu á miðöldum eða á Spáni á tímum
rannsóknarréttarins J J
(Sjá Andófsmenn)
Geimvísindil
Gægst
fyrir horn
Rússneskir stjarn-
eðlisfræðingar hafa
nú skýrt frá áætlun-
um sínum um smíði stór-
kostlegasta sjónauka sem
um getur, og er hugmynd-
in sú, að hann saman
standi af tveimur risastór-
um skermum, sem komiö
verður fyrir í geimnum í
900 mílna fjarlægð hvor frá
öðrum.
Tæknin, sem smíði þessa
sjónauka byggist á, er al-
kunn og hefur mikið verið
notuð á jörðu niðri. Merki
frá tveimur skermum, sem
eru í mikilli fjarlægö hvor
frá öðrum, eru sameinuö og
á þann hátt má greina
fjarlægar stjörnur og himin-
hnetti miklu skýrar en ef
aðeins væri notast við ann-
an skerminn. Tveir skermar
af þessari gerö geta til
dæmis staðsett hlut á
tunglinu svo aö ekki skeiki
nema 20 sentimetrum.
Við rannsóknir á mjög
Rússneskir geimvísinda-
menn segja, að brátt megi
líta háa himinhnetti öðrum
augum en verið hefur,
p.e.a.s. bá hliðina sem frá
jörðu snýr.
fjarlægum fyrirbrigðum í
geimnum er þó ekki nóg aö
notast viö sjónauka á jöröu
niðri og því er aðeins um
eitt að velja — að koma
sjónaukanum eða skerm-
unum fyrir í geimnum.
Rússnesku stjarneðlis-
fræðingarnir gera ráö fyrir,
að skermarnir veröi settir
saman á braut umhverfis
jörðu úr 200 sjálfstæðum
einingum. Viö samsetning-
una yröu notuö vélmenni
eöa áhöfn geimskips,
10—15 menn, og fullgerður
yröi hver skermur háif míia
á þverveginn og sex mílna
langur.
í frétt, sem sovéska
fréttastofan Novosti hefur
látið frá sér fara, segir, aö
auk þess sem huldir heimar
muni Ijúkast upp fyrir
mönnum með tilkomu þess-
ara skerma verði e.t.v.
mögulegt aö sjá alheiminn í
þrívídd. Meö jarðbundnum
sjónaukum birtist himin-
geimurinn okkur í tvívídd en
með geimsjánni á að vera
unnt aö skoöa þá hliö
himinhvelfingarinnar, sem
frá okkur snýr.
Loksins gera vísinda-
menn sér vonir um, aö með
hjálp geimsjárinnar verði
unnt aö greina merki frá
fjarlægum stjörnum þar
sem lífið hefur tekiö sér
bólfestu en til þessa hafa
mönnum engar slíkar gleði-
fréttir borist til eyrna í
einsemd sinni.
Nigel Hawkes
Bfll án bensíns er einungis til óþurftar. f>að fengu ausfur-evrópskir ferðalangar, sem urðu strandaglópar í
Rúmeníu. að reyna, þegar Rúmenar gerðu þeim þann óskunda að krefjast þess að bensínið yrði greitt í
dollurum og pundum.
ákaflega varfærnisleg. Þeir
hafa boðist til að hafa milli-
göngu milli Rúmena og ann-
arra Austur-Evrópuþjóða,
sem eru rasandi yfir þeim
tíma, sem Rúmenar völdu til
þessara aðgerða, og saka þá
um að setja vitandi vits
austur-evrópskum ferðamönn-
um stólinn fyrir dyrnar til að
rýma til fyrir túristum að
vestan.
Rúmenar geta raunar leyft
sér að vera dálítið kokhraust-
ir, því að sannleikurinn er sá,
að í þessu spili hafa þeir öll
trompin á sinni hendi. Á síð-
asta ári vörðu tvær milljónir
Austur-Evrópubúa sumarleyfi
sínu í Rúmeníu og miklu fleiri
fóru þar um á leið sinni á
sumardvalarstaði í Búlgaríu.
Segja má, að um aðrar leiðir
sé ekki að velja og baðstrend-
urnar við Svartahafið eru að
sjálfsögðu hvergi nema við
Svartahafið.
Pólska ríkisferðaskrifstof-
an, sú austur-þýska, ung-
verska og tékkneska voru að
þessu sinni fljótar að sjá
löndum sínum fyrir dollurum
til bensínkaupa enda vilja
ríkisstjórnir þessara landa
síst af öllu kalla yfir sig reiði
daglaunamanna, sem hafa
verið sviknir um sumarleyfi
sitt.
Þessi ákvörðun Rúmena er
að sínu leyti nokkuð söguleg.
Á undanförnum árum hafa
þeir verið að sníða efnahags-
lífið æ meira eftir vestrænum
fyrirmyndum og nú virðast
þeir stefna að því, á sama hátt
og Júgóslavar, að þeirra eigin
gjaldmiðill verði talinn full-
gildur á alþjóðlegum gjald-
eyrismarkaði í stað þess að
vera verðlaus annars staðar en
innanlands eins og er um
gjaldmiðla annarra Aust-
ur-Evrópuríkja.
Sue Mastermann og Anton
Koene
Mávísa'
yður á dyr
Með vönduðum
inni- og útihurðum.
Fulljárnaðar
hurðir
frá
kr
41.900.-
afhentar
af lager
Spónlagðir,
fulllakkaðir
hurðaflekar
—* Koto eikarfineline,
brúnbæsaö—
m/furu- eöa
spónlögöum körmum
Ennfremur stórt úrval af gullfallegum
spjalda- og fullningahuröum.
Vönduö vara viö vægu verði.
Bústofn
Aðalstræti 9
(Miöbæjarmarkaðnum)
Sími 29977 — 29979.