Morgunblaðið - 19.08.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979
53
Við efnahagslegan
samdrátt þjást fin-
ir veikustu mest
Rætt við Marten Söder félagsfr. frá Svíþjóð
„Við þjóðhagsleg vandræði og
eínahagslegan samdrátt eru það
hinir veikustu sem þjást fyrst og
mest. Þroskahetir teljast til þess
hóps sem á góðum tímum er reynt
að nota við verðmætasköpun úti f
þjóðfélaginu en þegar kreppir að f
þjóðfélaginu, þá eru það þeir, sem
eru látnir vfkja fyrir hagsmunum
heildarinnar,“ sagði Marten Söder,
félagsfræðingur frá Svfþjóð.
Verður að tryggja að
þroskaheftir fái að
þroskast meðal annarra
Hann flutti á ráðstefnunni erindi
um aðlögun þroskaheftra að samfé-
laginu. Aðlögun er það þegar þroska-
heftir eintaklingar eru settir út í
þjóðfélagið til náms eða starfa. Það
hefur verið tilhneiging til að beita
þessu á öllum Norðurlöndunum á
síðustu árum. „Þar kemur margt til.
Rannsóknir á sviði sálfræði sem
voru gerðar á árunum upp úr 1950
sýndu, að það getur haft neikvæð
áhrif á sálarheill barna að þurfa að
dveljast á stofnunum. Og allt frá
þeirri stundu hafa menn verið að
auka skilning sinn á því, að stofn-
anavist getur haft þessi neikvæðu
áhrif á þroska og framfarir barns-
ins.
Ennfremur kom þar til, að á
árunum 1950—1960 jókst mjög fjöldi
þroskaheftra sem skráðir voru vegna
betri greiningartækni. Stjórnvöld
gerðu sér grein fyrir því, að það
kostaði mikið að vista allt þetta fólk
á stofnunum og ýttu því undir þær
tillögur sem voru uppi um aðlögun.
Á árunum 1950—60 varð mikil
framleiðsluaukning í atvinnuvegum
og vinnuaflsþörfin jókst. Allt hjálp-
aðisl þetta að við að opna augu
ráðmanna fyrir því að aðlögunin
væri hagkvæmur möguleiki. En nú
þegar samdráttur hefur orðið í
mörgum atvinnugreinum og hillir
undir meiri samdrátt þá er full
ástæða til þess að hugleiða, að
þýðing aðlögunar geti verið að breyt-
ast. Og það verður að forðast að nota
aðlögunina á rangan hátt, heldur
verður hún að tryggja, að þroska-
heftir fái að þroskast á meðal
annarra."
En hver er reynsla nágrannaþjóða
okkar af aðlögun þroskaheftra? „Ég
held að allir geti verið sammála um,
að aðlögun er jákvæð og reynsla
Norðurlandanna af henni sé mjög til
að styrkja þá skoðun. En það verður
að tryggja það að aðlöguninni sé
fylgt á eftir með öðrum aðgerðum
samhliða, þannig að hún megi gagn-
Marten Söder
ast sem best. Það hefur því miður
stundum orðið raunin, þegar aðlög-
un hefur verið beitt, að þroskaheftir
hafa verið setir út í þjóðfélagið án
þess að til kæmu nokkrar aðrar
ráðstafanir til að aðstoða þá. Þetta
hefur því miður of oft orðið til þess
að þessir einstaklingar hafa ein-
angrast frá umheiminum í stað þess
að aðlagast honum eins og í upphafi
var ætlunin.
Aðlögun verður
að beita rétt
Þetta segi ég ekki til þess að gera
lítið úr aðlöguninni. Þvert á móti er
ég fylgjandi því að aðlögun sé beitt
og tel að hún hafi komið mörgu góðu
til leiðar. En það verður að beita
henni á réttan hátt. það má ekki
einfalda framkvæmdina, þannig að
fólk haldi að nóg sé að setja fólk
bara út í þjóðfélagið. Þar þarf meira
að koma til. Ég er hræddur um að
fólk skilji oft á tíðum ekki vandann
sem er samfara því að aðlaga
þroskaheftan einstakling.
Þegar stjómvöld sáu fram á, að
kostnaður þjónustu við þroskahefta
gæti orðið töluverður má segja að
augu þeirra hafi opnast fyrir því að
aðlögun þroskaheftra að samfélag:
inu gæti verið jákvæður möguleiki. í
stað þess að hafa í gildi sérlög um
þjónustu við þroskahefta getur það
verið betra að stuðla að aðlögun ef
það þýðir að þá megi minnka
þjónustu við þroskahefta á þeim
forsendum. Ég vil benda fólki á, að
þessi möguleiki geti verið fyrir
hendi. Öll einföldun á aðlögun getur
þýtt að henni verði beitt á rangan
hátt og ekki til mesta mögulega
gagns fyrir þroskahefta," sagði
Marten Söder frá Svíþjóð.
þessu felst meðal annars félagsleg
aðstoð og hjálp á vinnumarkaði.
Ef þessi aðstoð er veitt samhliða
aðhæfingunni geta þroskaheftir
náð að standa sig.
Hér á íslandi hefur hingað til
verið lögð á það aðaláhersla að
vista þá, sem eru þroskaheftir, á
sérstökum stofnunum. Á hinum
Norðurlöndunum hefur hins vegar
verið horfið frá því og þess í stað
er þroskaheftum gert kleift að lifa
með öðrum einstaklingum þjóðfé-
lagsins og taka þátt í samfélaginu.
Vist á stofnunum var áður fyrr
talin besta lausnin en reynslan
hefur sýnt okkur, að svo er ekki.
Einangrun þroskaheftra einstakl-
inga getur oft á tíðum hindrað það
að þeir fái að þroskast eins og
mögulegt væri. En á það ber hins
vegar að líta að það mun ávallt
verða þörf á stofnunum fyrir
suma einstaklinga.
Þroskaheftir einstaklingar hafa
sömu þarfir og aðrir í þjóðfélaginu
og það getur heft þroska þeirra að
hýsa þá inni á stofnunum. Það er
skylda okkar að reyna að sjá þeim
sem eru ungir fyrir betri framtíð,
með hliðsjón af þeirri reynslu sem
við höfum fengið."
Þörf á eflingu þjón-
ustu við þroskahefta
víða hérlendis
„Það hefur einnig sýnt sig, að
það er þörf á auknu samstarfi við
foreldra þroskaheftra barna, allt
frá þeirri stundu að það uppgötv-
ast að barnið er þroskaheft. Á
þessu er mikill misbrestur hér-
lendis. Oft á tíðum virðist hjúkr-
unarfólk og læknar ekki búa yfir
nauðsynlegri þekkingu og ekki
geta skilað frá sér upplýsingum til
foreldra á jákvæðan hátt. Þarna
er þörf aukinnar menntunar og
þjálfunar á þessu sviði.
Einnig hefur það reynst erfitt
að halda tengslum við foreldrana
frá þessari stundu og aðstoða þá
gegnum erfiða tíma, með því að
benda þeim á þjónustustofnanir
og veita þeim aðstoð við uppeldið.
En það er vonandi að opnari
umræða um þessi mál verði til
þess að breyta ríkjandi viðhorfum
og gera fólk meðvitað um rétt
sinn.
Það er nauðsynlegt að efla
greiningaraðstöðu hérlendis og
ennfremur að kappkosta að veita
þjónustu við þroskahefta víða um
land, því það er mjög nauðsynlegt
að foreldrar fái allt frá upphafi
aðstoð og ráðleggingar. Á þann
hátt má stuðla að því að þroski
barnsins verði meiri en ella og
koma í veg fyrir að barnið þurfi að
dveljast á stofnunum fyrir þroska-
hefta síðar á ævinni," sagði Bjarni
Kristjánsson.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
EIGUM HINA VIDURKENNDU
MICHELIN HJÓLBARÐA í EFTIRTÖLD
UM STÆRÐUM:
145x10 165x14
145x13 185x14
155x13 205x14
165x13 205x16
175x13 700x16
Allt á sama stað Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE
Tvöfalda limingin hefur valdið þáttaskilum í
framleiðslu einangrunarglers og margsannað
þrautreynda hæfni sina.
Helstu kostir tvofaldrar limingar
1 Margfalt meiri þéttieiki gagnvart raka
2 Minni kuldaleiðni, þar sem ruður og loft-
rúmslisti liggja ekki saman
3 Meira þol gagnvart vindálagi
Með fullkomnustu vélasamstæðu sem völ er á
framleiðir Glerborg hf. nú tvöfalt, þrefalt og fjór-
falt einangrunargler, þar sem gæði og ending
hafa margfaldast, en verðinu haldið niðri með
hraðvirkri framleiðslutækni.
Þú ættir að glugga í okkar gler, kynna þér yfir-
burði tvöföldu límingarinnar og njóta um leið
ráðlegginga og þjónustu sérfróðra sölumanna.