Morgunblaðið - 19.08.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1979
55
f^Andinn kom yfir mig
uppi í Munaðarnesi”
— nýtt bamaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur
talað um það við sig að tilfinn-
anlega vantaði íslenskt barna-
leikrit til að sýna á barnaári, en
hún hafi þá sagst ekki hafa tíma
til að sinna slíkum verkefnum.
Hins vegar megi segja að
andinn hafi komið yfir hana, er
hún dvaldist í sumarbústað uppi
í Munaðarnesi og hefði hún þá
samið þetta leikrit, sem hún
nefnir Ovita.
Að sögn Guðrúnar fjallar leik-
ritið um samskipti manna, þ.e.
barna og fullorðinna, og sé það
sambland af gamni og alvöru.
Mörg hlutverk eru í þessu verki,
en í því er hvorki söngur né dans
heldur er leikritið saga úr hvers-
dagslífinu og sagðist Guðrún
hlakka til að sjá hvort börn
hefðu gaman af slíku.
„Annars vona ég að jafnt börn
sem fullorðnir hafi gaman af
þessu leikriti, því það finnst mér
mælikvarði á það hvort leikritið
er gott eða slæmt," sagði Guð-
rún.
Jón Birgir skrifar skáldsögu
+ Jón Birgir Pétursson hætti í
vetur störfum sínum sem frétta-
stjóri Dagblaðsins, en ástæðuna
sagði hann vera að hann hefði
verið orðinn leiður á Dagblað-
inu og það á sér, svo þetta hefði
verið besta lausnin fyrir báða
aðila.
Jón Birgir hefur í sumar unnið
að því að skrifa bók og er nú
langt kominn með hana. Sagði
hann að bókin væri nokkurs
konar eldhúsreifari, en óvenju-
leg að því leyti, að hún fjallar
um ríkan mann sem er myrtur
pg hefst bókin á jarðarför hans.
I söguþræðinum koma svo fram
bæði góðar hliðar og slæmar á
manninum.
„Það á eftir að finna nafn á
bókina," sagði Jón Birgir er við
spurðum hvað hún ætti að heita.
„Ráðgert er að hún komi á
markað fyrir jól, en það er þó
ekki alveg frágengið ennþá."
Aðspurður um það hvað væri
framundan hjá honum sagði Jón
Birgir að hann myndi starfa sem
málaliða (free lance) blaðamað-
ur og skrifa bækur jafnframt
því.
Jón Birgir Pétursson og kona
hans, Birna Karlsdóttir, leggja
síðustu hönd á handrit að nýrri
skáldsögu, sem koma á út fyrir
jólin. Ljósm.: Kristinn
SAMKVÆMT upplýsingum
Sveins Einarssonar Þjóðleik-
hússtjóra er ráðgert að sýna í
Þjóðleikhúsinu í vetur leikritið
Óvitar eftir Guðrúnu
Helgadóttur.
Sagði Guðrun að langt væri
síðan Þjóðleikhússtjóri hefði
Sigurður Sigurbergsson
óskar Svavarsson að loknu sigi.
;í
Kvikmynda■
tökunni'
frestað
— vegna mótmœla
breska ieikarafélagsins
„Ég skrapp tii Spánar f
þrjár vikur. fór síðan til
Vestmannaeyja og norður í
Svarfaðardal til að fylgjast
með kvikmyndatöku á Landi
og sonum,“ sagði Ragnheið-
ur Stcindórsdóttir er við
inntum hana eftir því hvað
hún hefði gert í sumarfrí-
inu, en eins og flestir muna
efiaust eftir lék hún aðai-
hlutverk í njósnasögunni
„Ut í óvissuna“ eftir Des-
mond Bagley, sem kvik-
mynduð var hér á landi í
fyrrasumar á vegum BBC.
Ráðgert var að Ragnheiður
færi með aðalhlutverk í öðr-
um þremur þáttum, sem áttu
að vera einskonar framhald
af hinum fyrri, og átti kvik-
myndatakan að fara fram á
Spáni í sumar. Af því varð þó
ekki að sögn Ragnheiðar, þar
sem breska leikarafélagið
mótmælti því að erlend leik-
kona færi með hlutverk, á
þeirri forsendu að nóg væri
af atvinnulausum breskum
leikkonum, sem meiri rétt
hefðu á að fá hlutverk en
Ragnheiður. Kvikmyndatök-
unni var því frestað, en
Ragnheiður sagðist hafa litla
trú á að úr þessu rættist bg
sagðist hún eiginlea vera
búin að afskrifa hlutverk sitt
í myndinni.
í vikunni byrjaði Ragn-
heiður á æfingum hjá Iðnó,
en þar mun hún leika í ný-
legu bresku leikriti, sem taka
á til sýningar 1 vetur.
Siggi minkur á leið upp þver-
hnfpta Fiskhella.
Nýtt andtit á skerminum
ÞAÐ þykir alltaf tíðindum
sæta, er ný andlit birtast á
sjónvarpsskerminum, en í apríl
síðastliðnum auglýsti sjónvarp-
ið eftir að ráða fréttaþul til
starfa í stað Sigurjóns Fjeld-
steds, sem lét af störfum sl. vor.
Þetta starf virðist vera nokk-
uð eftirsótt, því 89 sóttu um, en
aðeins einn var ráðinn. Sá
heppni heitir Guðmundur Ingi
Kristjánsson og tekur hann til
starfa þann 1. september næst-
komandi.
Guðmundur Ingi, sem hefur
það að aðalstarfi að kenna i
Laugalækjaskóla, sagðist hafa
ákveðið að sækja um, er hann
heyrði auglýsinguna, því hann
hefði haft áhuga fyrir því að
hafa aukastarf með kennslunni.
í fyrra kenndi hann á kvöldin
hjá Námsflokkum Reykjavíkur,
en vildi nú breyta til.
Þess má geta að Guðmundur
Ingi er sonur Kristjáns Ró-
bertssonar Fríkirkjuprests, sem
í sumar hefur starfað sem
fréttaþulur útvarpsins. Sagði
Guðmundur Ingi að það hefði þó
ekki haft nein áhrif á áhuga sinn
fyrir því að gerast fréttaþulur,
því þegar hann sótti um starfið
hjá sjónvarpinu, hafði hann ekki
hugmynd um að pabbi hans yrði
þulur hjá útvarpinu.
„Þarna verð ég um næstu mánaðamót,“ sagði Guðmundur Ingi
Kristjánsson, sem tekur til starfa sem fréttaþulur sjónvarpsins um
næstu mánaðamót.
Svolítið taugaóstyrkur
— nýr veðurfrœðingur í sjónvarpinu
+ Um siðustu mánaðamót byrj-
aði sjónvarpið aftur útsending-
ar sínar eftir sumarfrí og vakti
það þá athygli margra að nýr
veðurfræðingur var tekinn til
starfa. Nýi veðurfræðingurinn
heitir Trausti Jónsson og sagð-
ist hann kunna ágætlega við sig
á sjónvarpsskerminum, að vísu
hefði hann verið svolítið tauga-
óstyrkur í fyrstu, en þetta
vendist þó furðu fljótt.
Sagði Trausti að hann hefði
fengið stöðu í spádeild Veður-
stofunnar þann 1. júní sl. og
hefði hann þá fyrst unnið í
spádeildinni í Keflavík, en verið
fluttur til Reykjavíkur þann 1.
júlí.
„Það má eiginlega segja að það
fylgi starfinu í spádeildinni að
koma fram í sjónvarpinu og lesa
þar veðurfregnir," sagði Trausti.
Að sögn Trausta liggur tölu-
verð vinna í því að undirbúa
veðurkortið fyrir útsendingur
því seinlegt er að teikna hin
ýmsu tákn inn á það, og fara allt
að þrjár klukkustundir í undir-
búningsvinnu fyrir hverja út-
sendingu veðurfregna í sjón-
varpinu.
+ Allt að þrír klukkutímar fara í að undirbúa veðurkortið fyrir
útsendingu í sjónvarpinu. Hér er Trausti Jónsson að vinna við eitt
slíkt.
1þverhníptum
hamrinum
Á þjóðhátíð Vestmannaeyja
sýndu tveir Eyjamenn
bjargsig og klif í Fiskhellum
í Herjólfsdal, en það bjarg
er um 200 m hátt, þverhnípt.
Sá sem seig að þessu sinni er
Óskar Svavarsson, sérlega
iipur og snjall bjargmaður,
og félagi hans, Sigurður
Sigurbergsson, Siggi mink-
ur, kleif hamarinn um leið.
Þeir hittust á miðri leið og
heilsuðust. Þeir félagar eru í
hópi margra snjallra bjarg-
manna í Eyjum, en þeir
tilheyra hópi Hellisey: ,
sem löngum hafa þótt
liprir í illkleifum björgu.