Morgunblaðið - 02.09.1979, Side 31

Morgunblaðið - 02.09.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1979 Sorpeyðingarstöð Suð- urnesja tekin í notkun SORPEYÐINGARSTÖÐ Suður- nesja var 8.1. tekin formlega í notkun að viðstöddum fjölda gesta, m.a. sendiherra íslands í Frakklandi, Einari Benedikts- syni, og yfirmanni varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, kaptein Keen. Jóhann Einvarðsson bæjar- stjóri f Keflavfk gangsetti stöðina sem stendur við Hafnarveg innan svæðis varnarliðsins. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja er sjálfstætt fyrirtæki í eigu Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesj- um og mun hún þjóna öllum sveitarfélögunum auk varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. Stöðin eyðir um þrjátíu tonnum af sorpi á dag en afkastageta hennar ef allar vélar eru keyrðar á fullu er um 80—90 tonn á dag. Kostnaðurinn við byggingu stöðvarinnar er um 800 milljónir króna og greiðir varnarliðið 60% kostnaðarins en er ekki eignaraðili. „Það er ekkert spursmál að þessi sorpeyðingarstöð skiptir miklu máli fyrir Suðurnesin“ sagði Har- aldur Gíslason framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á SuÓur- nesjum. „Hér er engin mold til að grafa sorpið í svo allt slíkt veldur mikilli mengunarhættu hér. Þetta er því lífsspursmál fyrir okkur því sorpið eyðist ekki hér í hrauninu." Haraldur kvað uppi áætlanir um að nýta þá orku sem myndaðist í stöðinni við brennsluna. Sagði hann orkuna jafngilda einu tonni af olíu á klukkustund, eða 137.000 krónum, en helst kæmi til greina að nýta hana í sambandi við fiskmjölsverksmiðju. Kvað hann ekkert vera ákveðið í þessu efni en fylgst væri náið með tilraunum á þessu sviði í Frakklandi. Mengunin frá stöðinni er lítil sem engin. Allur reykur er hreins- aður áÓur en út í andrúmsloftið Sorpi ekið inn í stöðina kemur og gjall sem kemur úr brennsluofninum er aðeins 2% af því sem inn fer. Er gjallinu ekið í uppfyllingu víðs vegar í hrauninu kring um verksmiðjuna. Að lokinni athöfninni við sjálfa stöðina var haldið til síðdegis- drykkju þar sem Albert K. Sanders formaður stjórnar Sorpeyðingar- stöðvarinnar, kaptein Keen og Haraldur Gíslason fluttu ávörp. Ákvörðun um byggingu sorpeyð- ingarstöðvar á SuÓurnesjum var tekin 23. maí 1977. Verkið var síðan boðið út og var tilboði frá franska fyrirtækinu Laurent Bouillet Industrie tekið og var forstjóri þess fyrirtækis viðstadd- ur athöfnina í gær. Bygging sjálfr- ar stöðvarinnar hófst 25. ágúst 1978. I stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sitja Ellert Eiríksson, Albert K. Sanders, Eiríkur Alex- andersson, Gylfi Gunnlaugsson Þórður Gíslason, Gunnar Jónsson og Jósef Borgarsson. Auk þess sem Sorphreinsunar- stöðin hefur keypt sorphreinsunar- bifreið fyrir móttöku á sorpi frá öllum sveitarfélögunum á Suður- nesjum verða staðsettir stórir sorpkassar við stöðina á kvöldin og um helgar. Tveir starfsmenn hafa verið ráðnir til stöðvarinnar, þeir Helgi Guðleifsson og Sigurður Ög- mundsson. Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri í Keflavík gangsetur Sorpeyð- ingarstöðina. Myndir Heimir Stígsson. Glæsilegt skrifstofu-, iönaöar- og lagerhúsnæði er til leigu aö Vatna- göröum 14, Reykjavík. Lysthafendur geta leitað upplýsinga á staönum milli kl. 5—7 alla daga eöa í símum: 35631 — 19130 og 42889. Saumið sjálf Skermanámskeiöin eru aö hefjast. SAUMAKLÚBBAR — KVENFÉLAGASAMTÖK Sendum kennara á staöinn. Leitiö upplýsinga. Höfum allt sem til þarf Luxemborg 3 stærölr Langamma 10 stærölr StBÉ&ííi Augna grlnd 12 stærölr UPPSETNINGABUÐIN „ Hverfisgötu 74 Sími 25270 Reykjavík. Bullworkerþjálfun! Skjót og örugg aðferð til aö byggja upp vöövastæltan líkama Markviss þjálfun aöeins 5. mínútur á dag. JA Æfingaspjald og 24 síöna skýring- arbæklíngur fylgja hverju tœki. Islenzkar Þýöingar má klippa út og líma á spjaldiö aöeins 5. mínútur á dag til aö byggja upp vöövastæltan líkama. Innbyggður AFLMÆLIR •ýnir bár fré degi til dags að pðr vex próttur LíkamsÞjálfunartaekiö BULLWORKER hefur náö vinsældum almennlngs í öllum aldursflokkum. Þaö telst tll aöalkosta tækislns aö þaö hentar fólki sem hefur lítinn tíma til íþrótta- og leikflmlsiökana, vegna annrtkis og það hefur jafnframt vakiö veröskuldaöa hrifningu þeirra, sem höföu gefist uþp á öllu ööru en aö láta reka á relöanum og héldu slg alls óhæfa til aö ná nokkrum árangrl i líkamsrækt. Æfingarnar eru ekkl einungis ótímafrekar — tækió vekur líka furöu manna vegna þess hve lítillar áreynslu æfingaíökanir meö því krefjast og hve árangur af þeim er samt skjótur og óvófengjanlegur. Rannsóknir hafa sýnt aö meö 60% orkubeitingu næst 4% vöövastæling á viku hverri þar til hámarklö hefur náöst. Þaö sem Bullworker-æfingar hafa komlö til leiöar hjá öörum geth þær líka áorkaö hjá þér. í hverrri æfingu njóta slaklr vöövar góðs af auknu blóöstreymi, sem flytur með sér súrefni og sópar Durt eiturefnum. Allur líkaminn hlýtur ábata af að aukakflóin fara aö brenna upp og líðan þín stórbatnar. Þér er boöiö að kauþa Bullworker gegn skilatryggingu. Vlljiröu elnhverra hluta vegna ekki halda tækinu, er þér trjálst aö skila því ásamt veggspjaldinu og krefjast endurgreiöslu innan 14 daga frá móttöku þess. SENDUM ÓKEYPIS 24 SÍÐNA LITMYNDA- BÆKLING. Pöntunarsími 44440, kl. 10—4 í dag og alla virka daga. 14 daga skilatrygging Við skorum á Þig að reyna Bullworker i tvœr vikur, halda pví, ef Þú sannfærist um kosti Þess innan 14 daga, en skila Því ella meö æfingaspjaldinu og krefjast endurgreiðslu. Viljirðu eingöngu fá upplýsingar um tœkiö til Þess aö geta áttaö pig betur áöur en pú ákveöur Þig, munum viö senda Þér bæklinginn. Geröu okkur grein fyrir hvaö pú vilt á afklippingunum hér ffyrir neöan, — og svar okkar berst pér fljótlega. Póstverzlunin Hdmaval pósthólf 39, 202 Kópavogi. • Sendu afklippinginn sem beiðni um nánari upplýsingar ón skuldbindingar EÐA sem pöntun gegn póstkröfu með 14 daga skilarétti frá móttöku tækisins. • Sendíð mór: □ Upplýsingar □ ...stk. Bultworker NAFN I I II I 1 Buliworker gerir þér kleift að verða hreykinn af líkamshreysti þinni. HEIMILISFANG 1 m [

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.