Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
Ríkisstjórn Íslands:
Skorar á stjórn Sovét-
ríkjanna að hleypa f jöl-
skyldu Kortsnojs úr landi
RÍKISSTJÓRNIN hefur orðið við bón Viktors Kortsnojs um liðsinni í
baráttunni fyrir þvi að kona hans og sonur fái að fara frá
Sovétríkjunum og var sendiherra Sovétrikjanna afhent i utanríkis-
ráðuneytinu i gær eftirfarandi orðsending:
„Síðustu þrjú ár hafa kona og skákmanna í huga, vill ríkisstjórn
sonur hr. Viktors Kortsnojs,
stórmeistara í skák, leitað eftir
leyfi til að fara frá Sovétríkjunum
til að flytjast til hr. Kortsnojs.
Hefur hr. Kortsnoj heitið á ríkis-
stjórn íslands að leggja lið við-
leitni fjölskyldunnar til að sam-
einast.
Með tilliti til þess að íslending-
ur er nú í forsæti Alþjóða skák-
sambandsins og með langvarandi
vinfengi sovéskra og íslenskra
Islands undirstrika að hún telur
máli skipta að beiðni Kortjnoj-
fjölskyldunnar fái hagstæða
lausn. Af þessum ástæðum, og
jafnframt með áherslu á jákvæða
afstöðu til sameiningar fjöl-
skyldna sem tekin var í Lokaskjali
ráðstefnunnar í Helsinki, skorar
ríkisstjórn íslands eindregið á
ríkisstjórn Sovétríkjanna að taka
þessa beiðni til rækilegrar yfir-
vegunar."
Sjö sölur ytra
síðustu dagana
MIKIÐ er um landanir íslenzkra
fiskiskipa erlendis þessa dagana
og seldu fimm skip erlendis i
gær, en tvö á mánudag.
Hjúkrunarfólk-
ið til Thailands
á fimmtudaginn
HJÚKRUNARFÓLKIÐ,
sem fer á vegum Rauða
kross íslands til hjálpar
flóttafólki frá Kambó-
díu, fer áleiðis til Bang-
kok á fimmtudaginn til
starfa í flóttamannabúð-
um í Thailandi. Fólkið
verður þarna um þriggja
mánaða skeið.
Fararstjóri verður Jó-
hannes Reykdal, en
hjúkrunarfólkið er Sig-
urður Sigurðsson læknir
og hjúkrunarkonurnar
Björg Viggósdóttir,
Hildur Nielsen, Jóhanna
Erna Guðlaugsdóttir og
Kristín Ingólfsdóttir.
Á mánudag seldi Sigluvík í
Grimsby 114 tonn fyrir 51 milljón
króna, meðalverð 445 krónur. Þá
seldi Brimnes 85.5 tonn í Hull,
fyrir 41 milljón, meðalverð 475
krónur.
í gær seldi Andvari 50 lestir í
Cuxhaven fyrir 17 milljónir, með-
alverð 343 krónur. Engey seldi í
Bremerhaven 154 lestir fyrir 65
milljónir, meðalverð 419 krónur.
Ymir seldi 81 tonn í Grimsby fyrir
38 milljónir, meðalverð 469 krón-
ur. Karlsefni seldi 186 tonn í
Cuxhaven fyrir 77 milljónir, með-
alverð 410 krónur. Loks seldi
Sigurbergur 80 lestir í Hull í gær
fyrir 35 milljónir, meðalverð 436
krónur.
3.405 hafa kosið
utankjörstaðar
í Reykjavík
Á utankjðrstaðaskrifstofunni í Reykjavík höfðu í gær kosið 3.405
manns, en að sögn Jónasar Gústafssonar borgarfógeta höfðu um
5000 manns kosið utankjörstaðakosningu i Reykjavík miðviku-
daginn fyrir síðustu kosningar.
Jónas sagði að af þessum 3.405 manns væru 1006 Reykvík-
ingar, eða innan við 30%, en venjulega hefur hlutur Reykvíkinga
í utankjörstaðaatkvæðagreiðslum verið um 2/3. Jónas sagði ungt
fólk áberandi í hóp þeirra utanbæjarmanna, sem kosið hefðu á
skrifstofunni, skólafólk og fleiri.
Kosningabaráttan í Reykjavík:
Útifundur á Lækj-
artorgi á morgun
ÚTIFUNDUR með þátt-
töku fulltrúa allra stjórn-
málaflokkanna verður
haldinn á Lækjartorgi í
Reykjavík á morgun,
föstudag. Hefst fundurinn
Færð að spillast
nema á láglendi
- Mokað báða kosningadagana
INNLENT
ALLIR fjallvegir á Vestfjörðum
lokuðust í gær vegna illviðris og
var ekki vitað í gær hvenær hægt
yrði að hefjast handa um mokst-
ur. Færð var einnig að spillast á
fjallvegum á Snæfellsnesi og
Holtavörðuheiði og var jafnvel
búist við að vegir þar myndu
lokast sl. nótt ef veður lagaðist
ekki.
Þá upplýsti vegaeftirlitið að
fjallvegir á Austurlandi væru
ófærir nema hvað Oddsskarð og
Fagridalur hefðu verið ruddir.
Víðast hvar með ströndum og á
láglendi var sæmilega greiðfært.
Kosningadagana verða vegir
ruddir eftir því sem þörf krefur og
er fyrirhugað að halda þjóðvegum
og sýsluvegum opnum. Mun
mokstur fara fram á sunnudag og
byrja á laugardag ef veðurútlit er
gott, og síðan mokað báða kosn-
ingadagana eftir þörfum.
Birgir ísleifur Gunnarsson:
Fráleitt að leggja
skatt á hitaveitur
„VIÐ sjálfstæðismenn höfum
ávallt barist hart gegn því,
að skattur sé lagður á hita-
veitur til þess að jafna hita-
veituverð,“ sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson, 3.
maður á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins, er Morgun-
blaðið spurði hann í gær um
hver viðbrögð hans væru við
hugmyndum Ólafs Jóhann-
esson um sérstakan skatt á
hitaveitur til verðjöfnunar.
Birgir ísleifur sagði sem
dæmi, að á síðastliðnum vetri
hefðu þær fréttir borizt frá
vinstri stjórninni að eínn
hinna nýju skatta, sem ríkis-
stjórnin hefði þá haft á prjón-
unum hefði verið verðjöfnun á
hitaveitur, þ.á m. á Hitaveitu
Reykjavíkur, sem myndi þá
greiða mestan skatt. Sjálf-
stæðismenn fluttu þá strax
tillögu í borgarráði um að
borgarstjórn mótmælti slíkum
skatti. „Ökkur tókst þá,“ sagði
Birgir ísleifur, „að fá aðra
borgarfulltrúa með okkur í
þessi mótmæli, sem send voru
ríkisstjórninni. Ég tel fráleitt
að leggja -slíkan skatt á hita-
veitur í landinu."
klukkan 16.30, eða um það
bil sem skrifstofutíma er
að ljúka. Fundarboðandi
er Ásgeir Hannes Eiríks-
son eigandi Pylsuvagnsins
á Lækjartorgi og fleiri
aðilar sem stunda atvinnu-
rekstur í miðbænum.
Að sögn Ásgeirs Hannesar í gær
höfðu stjórmálaflokkarnir þegar
tilkynnt hverjir fulltrúar þeirra
verða. Frá Alþýðuflokki koma þeir
Jón Baldvin Hannibalsson og
Vilmundur Gylfason. Frá Fram-
sóknarflokki koma Guðmundur G.
Þórarinsson og annar fulltrúi sem
ekki hefur verið ákveðinn enn. Frá
Alþýðubandalagi kemur Guð-
mundur J. Guðmundsson, og frá
Sjálfstæðisflokki koma þeir Ellert
B. Schram og Pétur Sigurðsson.
Ásgeir Hannes sagðist vonast
til þess að Reykvíkingar fjöl-
menntu á fundinn, sem verður eini
sameiginlegi • framboðsfundur
stjórnmálaflokkanna í Reykjavík
fyrir þessar kosningar, og jafn-
framt síðasti framboðsfundurinn í
kosningabaráttunni. Tímanum
verður skipt jafnt milli flokkanna,
og fólki verður gefinn kostur á að
bera fram fyrirspurnir.
Fundarstjórar verða umsjón-
armenn Morgunpóstsins í Útvarp-
inu, þau Sigmar B. Hauksson, Páll
Heiðar Jónssong og Sigrún Val-
bergsdóttir.
Skildagar
rjýljóðabók
— eftir Heiðrek
Guðmundsson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
ný ljóðabók eftir Heiðrek Guð-
mundsson og nefnist hún Skil-
dagar. Þetta er sjötta Ijóðabók
skáldsins, en hin fyrsta, Arfur
öreigans, kom út 1947. Þessari
nýju ljóðabók, sem er 118 bls. að
stærð, er skipt í þrjá kafla.
Fyrsta Ijóð í bókinni heitir Sætt-
ir, en hið síðasta Orðs er mér
vant.
Á bókarkápu er sagt, að Heið-
rekur Guðmundsson sé „meðal
beztu skálda vorra í dag, sjálf-
stætt skáld í sterkum tengslum
við arfgengar hefðir".
Helgafell gefur bókina út.
Gunnar Guðbjartsson
verður framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs
SVEINN Tryggvason sem verið '
hefur framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins mörg
undanfarin ár hyggst láta af því
starfi um næstu áramót og við
því tekur Gunnar Guðbjartsson
formaður Stéttarsambands
bænda.
Gunnar Guðbjartsson sagði að
Sveinn hefði óskað eftir að láta af
störfum um áramótin og á fundi
Framleiðsluráðsins hefði verið
leitað eftir því við hann að taka að
sér starfið. Sagði Gunnar að hann
hefði þó ekki tekið að sér starfið
til frambúðar. Hann verður áfram
formaður Stéttarsambands bænda
en lætur af starfi sem formaður
Framleiðsluráðs og hefur ekki enn
verið ákveðið hver verður eftir-
maður hans í því starfi, en það
verður útkljáð á næsta fundi
ráðsins sem verður í desember.