Morgunblaðið - 29.11.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
13
komizt hjá átökum. Skilyrði eru
ekki lengur fyrir vinnubrögðum
sem hafa gilt til þessa. Fólk hefur
ekki þrek eða þolinmæði til lang-
varandi átaka, því boðum við
ákveðin og hröð vinnubrögð. Fólk
er þreytt og óttaslegið vegna
þróunarinnar hér og vill kalla
fram þau vinnubrögð sem Sjálf-
stæðisflokkurinn boðar nú. Eg
held að fólk geri sér almennt grein
fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn
kemur drengilega fram. Fyrir
síðustu kosningar boðaði flokkur-
inn að taka þyrfti á ákveðinn hátt
á þjóðfélagsvandamálunum og
boðaði ekki þá fremur en nú gull
og græna skóga. Sjálfstæðismenn
lofa ekki árangri átakalaust, við
gerum okkur grein fyrir því að
takast verður á við vandamálin í
samfélaginu og við skulum gera
okkur fulla grein fyrir því að þau
átök munu koma víða við. En
árangur mun skila sér áður en
langt um líður í betri og taustari
lífskjörum."
Loðmulla vinstri
manna verst
launþegum
„Sumir óttast að láglaunafólkið
beri skarðan hlut frá borði í
þessum aðgerðum.“
„Láglaunafólkið fer betur út úr
stefnu Sjálfstæðisflokksins heldur
en þeirri loðmullu sem vinstri
menn hafa haldið uppi. I stefnu
Sjálfstæðisflokksins eru atriði um
tekjutryggingu, skattalækkun og
afnám óeðlilegra vísitölubóta.
Þessi atriði bæta tvímælalaust
hag launþega. Kaupmáttur launa
hefur minnkað og staða launa-
fólks og þeirra sem minna mega
sín hefur stórversnað undir stjórn
vinstri manna. Síðasta og tákn-
rænasta dæmið um vinnubrögð
vinstri manna er hin hlægilega
sýndarmennska Alþýðuflokksráð-
herranna þar sem þeir eru að
afsala sér launahækkun sem er
ámóta mikil\og mánaðarlaun lág-
launafólks og þetta gera þeir
vegna þess að þeir skammast sín
fyrir að láta árangur eigin gerða
koma svo berlega í ljós rétt fyrir
kosningar. Þetta eru svona álíka
ódýr loddarabrögð og bílamál
þessara ráðherra og annarra í
vinstri stjórninni voru á s.l. vetri.“
Skýrum línurnar
í íslenskum
stjórnmálum
„I kosningabaráttunni er rætt
um fátt nema stefnu Sjálfstæðis-
flokksins."
„Sjálfstæðisflokkurinn er eini
flokkurinn sem boðar raunveruleg
átök við vandamálin í okkar sam-
félagi, hinir boða óbreytt vinnu-
brögð sem hafa skilað heldur
rýrum árangri fyrir almenning.
Með þessum vinnubrögðum nú
stefnir Sjálfstæðisflokkurinn að
því að skýra línurnar í íslenzkum
stjórnmálum, gera þær ákveðnari
og skarpari en þær hafa verið um
langt árabil. Það er stefnt að því
að stöðva þá þróun í átt til
sósíalisma sem hefur verið meiri
en góðu hófi gegnir og fólk hefur
almennt ekki gert sér nægilega
ljósa grein fyrir.“
Stemmningin með
Sjálfstæðisflokknum
„Nú eru nokkrir dagar til
stefnu, telur þú að hin ákveðna
umræða um stefnu Sjálfstæðis-
flokksins skili sér í kosningun-
um?“
„Mér sýnist að stefnumörkun
Sjálfstæðisflokksins hafi að vissu
leyti slegið fólk í byrjun, en ég
held að því lengur sem líður og
meiri umræða verður um þessa
stefnu, geri fólk sér grein fyrir því
að þetta átak sem Sjálfstæðis-
flokkurinn boðar nú, sé það sem
fólk vill og óskar eftir. Mér finnst
það koma æ betur í ljós hjá fólki
að undanförnu að það gerir sér
grein fyrir því að það er óhjákv-
æmilegt annað en að framkvæma
stefnu Sjálfstæðisflokksins miðað
við þær aðstæður sem nú eru í
okkar samfélagi og ekki sízt finnst
mér þetta sjónarníið koma fram
hjá unga fólkinu.“ á.j.
Friðjón
Þórðarson:
Yölt er vinstri stjórn
Það er einkenni samstjórna á
vinstri væng íslenzkra stjórnmála
að þær geispa golunni með sama
hætti að leiðarlokum. Þar endar
allt á brún hengiflugs. Engin
samstaða um nein úrræði, sem að
gagni mega koma. Um þetta vitna
gleggst þeirra eigin orð frá ýms-
um tímum. Varðandi afdrif
síðustu vinstri stjórnar nægir að
vísa til skrifa Eiðs Guðnasonar nú
nýlega:
„Alþýðubandalagið valdi sér
það hlutverk í ríkisstjórninni að
standa vörð um verðbólguna.
Framsóknarflokkurinn dinglaði
stefnulaust milli Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags, reikull, sem
rótlaust þangið. Menn spurðu:
Hvorn flokkinn skyldi Ólafur nú
svíkja í dag?
Þegar framsóknarmenn mönn-
uðu sig upp í það að leggja fram
tillögur um efnahagsmál átti
ríkisstjórnin svo sem fimmtán
mínútur ólifað."
Við upphaf þings var ljóst, að
ekki var samstaða um eitt eða
neitt, sem máli skipti innan ríkis-
stjórnarinnar. Glundroðinn var í
algleymingi.
Af þessu má ljóst vera, að það
var mikill ábyrgðarhluti að halda
slíkri stjórn saman, þó ekki væri
nema í 13 mánuði. Nú stjórna
landinu leifar vinstri stjórnarinn-
ar. Um þá ráðamenn segir Ólafur
Friðjón þórðarson
Jóhannesson, fyrrv. forsætisráð-
herra, reynslunni ríkari:
„Það má þakka fyrir meðan þeir
gera ekki neitt."
Verðbólga hefur magnast hrika-
lega í tíð fráfarandi vinstri stjórn-
ar. 1. nóvember s.l. hækkaði fram-
færsluvísitalan, sem mælir verð-
hækkanir á þeim vörum sem við
notum til daglegra nota, um 16%.
Þétta jafngildir 80% verðbólgu
miðað við heilt ár. Byggingarvísi-
talan, sem mælir hækkun á vörum
til húsbygginga, hækkaði 1. nóv.
um 14,9% sem samsvarar 74,2%
verðbólgu á ári. Á fyrri hluta
stjórnartímabils vinstri stjórnar
var verðbólgan minni, en er líða
tók á þessa óhagstæðu 13 mánuði
hefur vinstri stjórnin misst alla
efnahagsstjórn úr böndunum.
Nú hefur óstjórn og efnahags-
upplausn fylgt vinstri stjórninni í
13 mánuði og stjórnin var, þegar
upp úr slitnaði, á góðri leið með að
stöðva áratuga sókn þjóðarinnar
til bættra lífskjara. Á þessu ári
munu þjóðartekjur eða það sem til
skiptanna var, minnka um nær
1%. Stöðvun verðbólgu og upp-
bygging atvinnulífsins, sem krefst
styrkrar efnahagsstjórnar, er for-
senda þess að hægt sé að snúa af
þessari óheillabraut.
Öll verðum við að vona, að
takast megi sem fyrst að kveða
niður hinn bráðasta efnahags-
vanda. En það gerist ekki nema
ríkið, hið opinbera, og forráða-
menn þjóðarinnar gangi á undan
með góðu fordæmi.
Jafnframt verðum við að muna
það, Sjálfstæðismenn, að við höf-
um heitið landsmönnum því í
grundvallarstefnuskrá flokks okk-
ar, að þeir fái búið við félagslegt
öryggi. Við höfum jafnan lagt ríka
áherzlu á það, að stéttir þjóðfé-
lagsins vinni saman, en ekki hver
gegn annarri. Að styðja einstakl-
inginn til sjálfsbjargar og búa svo
í haginn, að allir geti sótt fram til
aukins þroska og farsældar.
Til þess að takast megi að snúa
við blaðinu skv. framansögðu,
verða kjósendur að hafna glund-
roðaflokkunum en efla Sjálfstæð-
isflokkinn til ábyrgrar stjórnar-
forustu á kjördegi. —
i skilar fallegum snjóhvítum
t er aö setja þurrkara ofan a
? spara þannig gólfrými. Væntan-
endum bendum við á okkar ágætu
ónustu, auk þess sem við segjum
ina sér reynslu þeirra, sem eiga og
Phileo þvottavélar og þurrkara
árangri.
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655