Morgunblaðið - 29.11.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.11.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 37 Minmng: Elísabet V. Kristjáns- dóttirfrá Vopnafirði Elísabet V. Kristjánsdóttir frá Vopnafirði verður jarðsett í dag frá Dómkirkjunni. Hún var fædd 23. desember 1892 að Svínabökkum í Vopnafirði. Foreldrar hennar voru Guðný Guðnadóttir og Kristján Grímsson, var hún 3ja í röðinni af 7 börnum sem upp komust. Eftir lifir nú aðeins Rósa, yngsta barn þeirra hjóna. Árið 1910 giftist Elísabet Jóni Sigurjónssyni á Hólmum í Vopnafirði og bjuggu þau þar fyrstu árin, en fluttust síðan til Norðfjarðar og voru þar til ársins 1931 er þau fluttust til Reykjavíkur með elsta og yngsta barn sitt, en alls áttu þau 4 börn; Óskar, Sigurjón, Guðna og Guð- nýju. Jón lést árið 1936 og varð Elísabet því ekkja aðeins 44 ára. Eftir það héidu þær mæðgur heimili saman um nokkur ár. Hún stundaði ýmis störf, aðallega framleiðslustörf á veitingahúsum og venjuleg heimilisstörf hjá dótt- ur sinni. Elísabet var að allri gerð mann- eskja höfðingslundar og mynd- arskapar. Enda kom það glöggt fram í verkum hennar, sem og mikilli vinnusemi. Hún var stór í sér, en hafði einnig sérstaka tilfinningu fyrir hlutunum bæði lifandi og dauðum og henni var lagið að sjá hvað hentaði hverju sinni. Oft kom hún á óvart með hyggjuviti sínu, í umsögnum og athugasemdum um ýmislegt sem annars hefði mátt ætla að væri henni að mestu hulið. Hún var einstaklega ættrækin, hugurinn snerist alla tíð um fólkið hennar og lífsgöngu þess. Fyrir rúmum tuttugu árum kynntist ég Elísa- betu og síðan hefur verið töluverð- ur samgangur milli okkar, þar sem Elísabet kona mín er sonar- dóttir hennar, en milli þeirra voru náin samskipti. Alltaf ríkti eftir- vænting hjá okkur börnunum þeg- ar amman kom í heimsókn, þá vai ætíð von á einhverju góðu seni ekki sást daglega, fyrir utan þetta sérstæða sem fylgdi henni eitt- hvað fínt og óvenjulegt, hafið yfir hversdagsleikann. Þrátt fyrir margskonar veikindi sem hrjáðu hana lengst af, hélt hún dugnaði sínum og hug fram- undir það síðasta og mikil var eljusemin við að rífa sig upp úr veikindum og spítalalegum. Næmi hennar hélst nær óskert fram á síðasta dag og blessunaróskum, fyrirbænum og kveðjum til allra sinna gleymdi hún ekki þótt fár- sjúk væri. Hún lést að Hrafnistu 21. nóv. síðastliðinn, þar var hún búin að vera stuttan tíma. En til heimilis hafði hún verið um árabil hjá Guðnýju dóttur sinni og tengda- syni Kristjáni Elíassyni og var það henni mikill styrkur síðustu árin. Friður sé með henni. Björn Indriðason. r' »1 r' 5,-| v^NGe. I •Q ®> <s> 7 5MJOIJ, SPESÍUR 400 g smjör 500 g hveiti 150 g flórsykur Grófur sykur. HnoðiÖ deigið. mótið úr þvi sivaln- inga og veltið þeim upp úr grófum sykri. Kælið deigið til næsta dags Skerið deigið i þunnar jafnar sneið- ar, raðið þeim á bökunarplötu (óþarfi að smyrja undir) og bakið við 200 C þar til kökurnar eru Ijós- brúnar á jöðrunum. SMJÖRIÐ GERIR GÆÐAMUNINN CAfa~rt/ átrt/ciMtfa/i ® © 'v > SMJOR SMJÖRHRINGIR 250 g hveiti 250 g smjör 1 Vi dl rjómi eggjahvita steyttur molasykur. Hafið allt kalt, sem fer i deigið. Vinnið verkið á köldum stað. Myljið smjörið saman við hveittö, vætið með rjómanum og hnoðið deigið varlega. Látið deigið biða á köldum stað i nokkrar klukkustundir eða til næsta dags. Fletjið deigið út 16 cm þykkt, mótið hringi ca. 6 cm i þvermál með litlu gati ( miðju. Penslið hringina með eggjahvitu og dýfið þeim i steyttan molasykur. Bakið kökurnar gulbrún- ar við 225° C i 5—8 minútur. SMJÖRIÐ GERIR GÆÐAM UNINN OWa-cr/ á/n/clba/nn V r' °n °b •Q _<s> <a> SMJORL FINNSKT KAFFIBRAUÐ 375 g hveiti 250 g smjör 100 g sykur Vi egg eggjahvita afhýddar, smátt skornar möndlur steyttur molasykur Hafið allt kalt, sem fer i deigið. Vinnið verkið á köldum stað. Myljið smjörið saman við hveitið, blandið sykrinum saman við og vætið með egginu. Hnoðið deigið varlega. og látið það biða á köldum stað i eina klst. Út- búið fingurþykka sivalninga. Skerið þá i 5 cm langa búta Berið eggja- hvituna ofan á þá og dýfið þeim i mondlur og sykur. Bakið kökurnar gulbrúnar, efst i ofni við 200- C i . ca. 10 min. SMJÖRIÐ GERIR GÆÐAMUNINN Otfa-c// A/n/cíMtfa/i v LtankjiiiMtaðakosriing Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788, 39789. Sjálfstæðisfólk, vinsamlegast látiö skrif- stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru heima á kjördegi. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá. Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjar- skólanum alla daga 10—12, 14—18 og 20—22 nema sunnudaga 14—18. Kassettur beztu kaup landsins Heildsölubirgðir 1 spóla 5 spólur 60 mínútur kr.800,- kr. 3.800.- 90 mínútur kr. 1.000.- kr. 4.800.- BUÐIN Indriði G. Þorsteinsson UNGLINGSVETUR Skáldsögum Indriöa G. Þorsteinssonar hef- ur ávallt veriö tekið með miklum áhuga og þær hafa komið út í mörgum útgáfum. Tvær þeirra, Sjötíu og níu á stööinni og Land og synir, hafa verið kvikmyndaöar og Þjófur í paradís hefur veriö aö velkjast í dómskerfinu ' undanfarin ár. Almenna bókaf élagið Austurstræti 18 sfmi 19707 Skemmuvegi 36 Indridi G. Þorsteinsson UNGLINGSVETUR Skáldsagan Unglingsvetur er raunsönn og kímin nútímasaga. Veruleiki hennar er oft mildur og viöfelldinn, en stundum blindur og ósvífinn. Hér er teflt fram ungu fólki, sem nýtur gleöi sinnar og ástar, og rosknu fólki, sem lifað hefur sína gleöi- daga og reynslan hefur meitlað í drætti sína. Allt er þetta fólk bráðlifandi, sama hvort þaö eru aðalpersónur eða hefur á hendi aukahlutverk — hvort heldur þeir heita Loftur Keldhverfingur eða Sigurður á Fosshóli. Unglingarnir dansa áhyggjulausir á skemmtistöðunum og bráðum hefst svo lífsdansinn með alvöru sína og ábyrgö. Sumir stíga fyrstu spor hans þennan vetur. En á því dansgólfi getur móttakan orðið önnur en vænst hafði verið, — jafnvel svo ruddaleg að lesandinn stendur á öndinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.