Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 5

Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 5 Bjrtrií Jónsdóttir. sem leikur eitt aðalhlutverkið í VandarhöKíd, sem nú er verið að kvikmynda á Akureyri. Kvikmynda Vandar- högg á Akureyri NÚ stendur yfir upptaka á kvik- myndinni VANDARHÖGG eftir Jökul heitinn Jakobsson. Myndin er tekin upp á Akureyri og í nágrenni Akureyrar. Með aðalhlutverkin fara Björg Jónsdóttir, Benedikt Árnason, Bryndís Pétursdóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Sem fyrr segir stendur kvik- myndunin nú yfir og lýkur henni væntanlega þann 10. desember næstkomandi. Leikstjóri er Hrafn Gunn- laugsson. Nýjar Helgafellsbækur: Þorpið — ný útgáfa Sonur reiðinnar - eftir Kirk Morgunblaðinu hafa borizt þrjár nýjar Ilelgafellsbækur og ber þar fyrst að nefna nýja útgáfu á Þorpinu eftir Jón úr Vör, en sú bók vakti hvað mesta athygli á skáldinu og hefur þótt mikill viðburður í íslenzkri ljóðlist okk- ar daga. Jón úr Vör er nú í fylkingarbrjósti formbylt- ingarskáldanna og óþarfi að kynna Þorpið frekar, svo þekkt sem ljóðabókin er. Þá hefur blaðinu borizt skáld- saga Hans Kirk, Sonur reiðinnar, í þýðingu Magnúsar Kjartanssonar, en hér er um að ræða eitt fremsta skáldverk þessa danska höfundar. Ný saga eftir Guðberg MORGUNBLAÐINU hefur borizt ný skáldsaga eftir Guðberg Bergsson og nefnist hún Saga af manni sem fékk flugu í höfuðið. Guðbergur hefur komizt svo að orði um þessa nýju bók sína í samtali, að hún fjalli um mann „sem er skáld og er tómur í höfðinu. Hann situr við glugga og er að reyna að festa eitthvað á blað, en dettur ekkert í hug. Þá flýgur fluga fyrir gluggann og hann festir hana á blað... “ Enn fremur, að flugan sé tákn fyrir hugmyndina. „Síðan koma rithöf- undar að skoða fluguna og verða afbrýðisamir. Þeim finnst hún ómerkileg, því þeir geta ekki skilgreint hana, finnst hún vera hálfgerð padda, og hann hefði heldur átt að fá íslenzka flugu... “ Höfundur segir, að sagan sé „á Jón úr Vör Ein saga hans hefur verið færð í sjónvarpsgerð og m.a. sýnd hér í framhaldsþáttum. Sonur reiðinn- ar er söguleg skáldsaga og gerist í Gyðingalandi á dögum Krists. Loks er að geta bókarinnar Inní skóginn eftir Króa, en hann til- einkar hana Sólinni sinni. Bók þessi, eða bæklingur eins og höf- undur kýs að nefna hana , er 48 bls. Guðbergur Bergsson vissan hátt ferð í gegnum íslenzkt þjóðfélag og í gegnum aðferðina við að gera listaverk. Þetta er einföld saga, eiginlega skemmti- saga, en hún er líka um listafólk yfir höfuð.“ Helgafell gefur út þessa nýju skáldsögu Guðbergs Bergssonar. Magnús Óskarsson: Nú sleppur Ólafur ekki Ég ber heldur hlýjan hug til Ölafs Jóhannessonar frá þeim tíma að hann var kennari minn við Háskóla íslands og ætla ekki að rökstyðja það sérstaklega. Ég er einnig þakklátur fyrir þá „innrætingu" sem ég hlaut hjá honum, Ármanni Snævarr og starfsbræðrum þeirra í lagadeitdinni „vestur á Melum" á sínum tíma. Það var því undarleg reynsla að þurfa, dag eftir dag, að ræða við menn sem um tíma virtust trúa því í alvöru, að Ólafur Jóhannesson héldi sem dómsmálaráðherra hlífiskildi yfir glæpamönnum. Ég geri ekki mikið úr viðleitni minni við að lemja þetta kjaftæði niður, en ég gerði það sem ég gat og sem betur fer er það með öllu útrætt mál og úr sögunni. Sama gildir um tímabundna (?) bilun þess manns sem valdi sér Hæstarétt og forseta hans, Ármann Snævarr, til óskiljanlegra árása í götustrákastíl. (Það er tímanna tákn, sumir myndu kalla það hnignunareinkenni, að höfundur rógsins skuli nú vera dómsmálaráðherra og ráfa veglaus Magnús Óskarsson um ráðuneytið í árangurslausri leit að hneykslismálum). Að loknum þessum formála kem ég að tilefni þessa greinarkorns. ólafur Jóhannesson er nú loks endanlega fluttur úr Fljótunum í framboð í Reykjavík, Hann hefur lýst því yfir að hann vilji verðjöfnun á hitaveitugjöldum, sem talin eru 40% kostnaðarauki fyrir þá sem greiða hitaveitum upphitunarkostn- að. Þetta segir Ólafur að geti verið hættulegt fyrir sig sem frambjóð- anda i Reykjavik og bætir þvi við að það kunni að reyta af honum atkvæði í Reykjavik, svo vitnað sé í hans eigin orð. Auðvitað er þetta rétt athugað hjá Ólafi, og verðskulduð afleiðing svo harkalegrarr árásar á lífskjör almennings í Reykjavík. Þess vegna er það vita vonlaust undanhald af hans hálfu að hrökkva í kút, þegar menn taka mark á orðum hans, og reyna þegar svo er komið að halda því fram að jöfnun- arskattur á hitaveitur snerti Hita- veitu Reykjavíkur, stærstu hitaveitu landsins, ekkert sérstaklega. Fyrir þetta hefur Ólafur Jóhannesson til þess unnið að tapa atkvæðum Reykvíkinga um næstu helgi og það á hann skilið. t þetta skiptið sleppur hann ekki. nmi y y MmSr M W & ÆT M Tvö dr liöin A þessum tíma eru nákvæmlega tvö ár liðin síðan Stevie Wonder gaf út plötu og alltaf bíða menn jafn óþreyjufullir eftir næsta skrefi hans. Líkt og Stevie Wonder hefur líst yfir speglar þessi nýja plata tímabót á hans ferli. Þetta tveggja plötu albúm er heilsteypt verk uppfullt af nýjum hugmyndum, fjölbreytni og fallegri tónlist. (VvjRjvlfttÍt lii > j :<«^i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.