Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 18

Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 Verðbólgan er afskaplega hress — við læknar mvndum aldrei mæla með að leggja hana inn — sagði einn læknanna á kosningafundi á Landspítala í gær í UPPHAFI framboðsfundar á Landspitalanum í gær voru að- eins mættir tveir frambjóðendur af fimm, sem boðað höfðu komu sína. Voru það fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins. Nokkru eftir fundar- setningu komu fulltrúar Alþýðu- flokksins og Fylkingarinnar en fulltrúi Alþýðubandalagsins mætti ekki fyrr en í lok fundar- ins. Fundurinn var haldinn að tilhlutan starfsmannaráðs Landspítalans, hann sóttu nokk- uð á annað hundrað manns. Tilhögun fundarins var sú, að dregið var um röð framsögu- manna og fengu þeir hver um sig tíu mínútur til umráða. Fyrst tók til máls Ragnhildur Helgadóttir f.h. Sjálfstæðisflokksins. Gerði hún grein fyrir stefnu Sjálfstæðis- flokksins í heilbrigðismálum og sagði í upphafi máls síns, að stefna Sjálfstæðisflokksins væri sú, að heilbrigðisþjónusta væri eitt þeirra sviða í félagsmálaþjón- ustunni, þar sem efnaleg afkoma einstaklinga ætti ekki að hafa áhrif á réttindi og nauðsynlega hjálp. Hún sagði Sjálfstæðisflokk- inn leggja áherzlu á að heilsu- verndar- og vinnuverndarmál yrðu efld og þá sérstaklega með tilliti til atvinnusjúkdóma. Hún sagði málefni aldraðra einnig mjög brýnt úrlausnarefni, einnig þyrfti að auka þátt göngudeildar- þjónustunnar, sem létta myndi á sjúkrahúsunum. Ragnhildur sagði, að áreiðan- lega mætti gera verkaskiptingu á sjúkrahúsunum gleggri og hag- kvæmari. í lok máls síns sagði hún, að til þess að skynsamlega væri hægt að standa að endurbót- um í heilbrigðiskerfinu yrði fyrst að vera fyrir hendi efnahagslegur grundvöllur. Hún fór síðan nokkr- um orðum um efnahagsástandið, sem hún sagði sigla hraðbyri til atvinnuleysis. Einnig skýrði hún nokkrum orðum stefnu Sjálfstæð- isflokksins undir kjörorðinu „Leiftursókn gegn verðbólgu". Flokkarnir hafa brugðist verkalýðnum Næstur tók til máls Árni Sverr- isson, Fylkingunni. Inntakið í ræðu hans var það helzt, að allir þeir stjórnmálaflokkar, sem menn hefðu átt á þingi, hefðu brugðist verkalýðnum. Þeir seldu eitt kosn- ingaloforðið fyrir annað og stefn- an innan verkalýðshreyfingarinn- ar í dag væri sú að styrkja stjórnmálaflokkana í stað þess að styrkja fólkið sjálft — félagana. G-listinn ekki mættur Næstur á mælendaskrá átti að vera fulltrúi Alþýðubandalagsins, en hann var ekki til staðar. Jón Baldvin Hannibalsson, fulltrúi Al- þýðuflokksins, tók því til máls. Hann sagðist ekki telja, að það þjónaði neinum tilgangi að lýsa Jón Baldvín sagði útséð um, að nokkuð yrði af samvinnu krata og framsóknar, eftir yfirlýsingar Arna um Vilmund. áætlunum Alþýðuflokksins í heil- brigðismálum, því ef ekki yrði tekið á efnahagsmálunum þá væri tómt mál að tala um eflingu heilbrigðisþjónustunnar. Hann sagði að rekja mætti 5/7 hluta verðbólgunnar til Seðla- bankans og fjármálaráðuneytis- ins, þ.e. ekki starfsmanna þessara stofnana heldur til þriggja síðustu ríkisstjórna og rakti síðan nokkr- um orðum stefnu Alþýðuflokksins í þessu málefni. Öld framsóknar Næstur á mælendaskrá var Árni Benediktsson, Framsóknar- flokki. Hann ræddi nokkuð grundvallarstefnu Framsóknar- flokksins og þann meið sem flokk- urinn byggir á. Hann sagði síðasta áratug vera réttilega nefndan „áratug framsóknar" og rakti síðan nokkuð sögu flokksins á þessari öld og vandamál hans, sem hann sagði að hluta vera vegna sjálfstæðisstefnu þjóðarinnar. Bjarni Þjóðieifaaon læknir var fundarstjóri á fundinum. Vilmundur Gylfason er ekki hátt skrifaður hjat'mér né öðrum framsóknarmönnum, sagði Árni Benediktsson. Hann verður ekki ráðherra og síst af öllu dóms- málaráðherra. Eins og sjá má var kennslustofan á Landspítaianum þéttsetin á fundinum. Ljósm. Mbl. Kristján. Skoðanakannanir fyrir síðustu kosningar: Töluverður munur á niðurstöðum og úrslitum EINNI viku fyrir þingkosningarnar í júnílok i fyrra birtu bæði síðdegisblöðin Vísir og Dagblaðið niðurstöður skoðanakannana, sem blöðin höfðu framkvæmt. Á meðfylgjandi töflu gefur að líta niðurstöðurnar og ennfremur eru birt til samanburðar úrslitin úr sjálfum kosningunum. Loks birtast niðurstöður skoðanakannana, sem blöðin tvö hafa framkvæmt fyrir þær kosningar sem í hönd fara og birtar voru um síðustu helgi. Ef litið er á niðurstöður skoðanakannananna í fyrra koma í ljós nokkur frávik í þeim báðum frá þeim úrslitum, sem urðu í kosningunum. oo SÍNE-deildin í Gautaborg: Alþýðubandalagið tryggir ekki hagsmunamál námsmanna SINE-deildin í Gautaborg hefur sent fjölmiðlum bréf, þar sem hún mótmælir þeim yfirlýsing- um, sem fram koma í kosninga- áróðri Alþýðubandalagsins, og sendur hefur verið SINE-félög- um, að Alþýðubandalaginu sé treystandi til að tryggja hags- og húsaleigustyrkur barnafólks hafi verið dreginn beint frá námsláni og að vísitala fram- færslukostnaðar við útreikninga námsláns sé óraunhæf. Þá segir í bréfinu, að Alþýðu- bandalagið hafi ekki beitt sér fyrir í síðustu ríkisstjórn, að •O 05 rt -h oo c- 05 kosn- júní4 05 •> O - . d > munamál námsmanna. í bréfinu segir m.a.: „Engar bandarískur her hverfi af landi brott og ísland segði sig úr NATO. -P c U ^ .2 c li verulegar breytingar hafa átt sér Verðbólgan og aðrar árásir á kjör !2£ ns .2, 'n c 2 S C/3 ro stað á lánskjörum námsmanna í verkamanna og annars alþýðu- Q O > .2» O.S > c3 Q SS stjórnartíð Alþýðubandalagsins, fólks hafi blómstrað í tíð þessarar Alþýðuflokkur 22,1% 25,1% 22,0% 15,0% 14,4% umframfjárþörf hefur ekki verið brúuð, þær breytingar, sem átt ríkisstjórnar ekki síður en fyrir- rennara hennar. Framsóknarflokkur 12,9% 14,9% 16,9% 20,0% 22,3% hafa sér stað, hafa falið í sér Síðan segir í bréfi SINE-deild- Sjálfstæðisflokkur 37,8% 29,9% 32,7% 44,0% 41,9% millifærslur milli hópa náms- arinnar í Gautaborg: „Reynsla Alþýðubandalag 21,0% 24,6% 22,9% 17,0% 19,0% manna, sem er algerlega andstætt síðustu stjórnar sannar, að hags- Samtökin 2,8% 1,8% 3,3% — — kröfum námsmanna." Síðan segir, munamál námsmanna verða ekki Aðrir 3,4% 3,9% 2,2% 4,0% 2,4% að dæmi sé til um að barnameðlög tryggð með því að fela þingræðis- legum stjórnmálaflokkum lausn þeirra. Sá grundvöllur, sem Al- þýðubandalagið hefur kosið að berjast á, grundvöllur hins borg- aralega lýðræðis mun aldrei leiða til jafnréttis. Þar af leiðandi er allt tal Alþýðubandalagsins um jafqrétti, hvort sem það gildir um námsmenn eða aðra hópa þjóðfé- lagsins hreint blaður. — Reynsla námsmannahreyfingar sannar, að barátta okkar fyrir réttlátum kjörum verður aldrei borin til sigurs af þingræðislegum umbóta- flokkum, aðeins barátta náms- manna sjálfra með stuðningi al- þýðu landsins mun leiða til árang- urs.“ Undir bréfið ritar Björn Rúnar Guðmundsson fyrir hönd SINE-deildarinnar í Gautaborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.