Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 27

Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 27
17 fórust Teheran, 28. nóvember. A.P. SAUTJÁN manns hafa beðið bana í nokkrum jarðskjálftum í Norð- austur-íran í þessari viku að sögn Rauða kross landsins. Manntjón varð lítið því að nokkrir kippir urðu til þess að fólk var vart um sig. Tólf fórust í Quaen, fjórir í Khaf og einn í Gonobad. Svæðið er 800 km austur af Teheran í suðurhluta Khora- san-fylkis. Héraðsfundur Dala- manna og Snæfellinga: Rafmagnsverð til kirkna verði endurskoðað HÉRAÐSFUNDUR Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmis var nýlega haldinn í Stykkishólmi. Fundinn sóttu 33 prestar og safnaðar- fulltrúar og sóknarnefndarmenn auk gesta. Að lokinni guðsþjón- ustu í Stykkishólmskirkju, þar sem sr. Einar Jónsson í Söðuls- holti prédikaði en þeir sr. Rögn- valdur Finnbogason, Staðastað og sr. Árni Bergur Sigurbjörns- son, ólafsvik þjónuðu fyrir altari með honum, flutti prófasturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson yfir- litsræðu um störf safnaða i próf- astsdæmi hans frá siðasta héraðs- fundi. Kom m.a. fram í máli hans að gagngerar endurbætur hafa verið gerðar á mörgum kirkjum i prófastsdæminu á liðnu ári og árum. Gestir fundarins voru þeir sr. Bernharður Guðmundsson frétta- fulltrúi, Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri Hjálparstofn- unar kirkjunnar og og Aðalsteinn Steindórsson umsjónarmaður kirkjugarða. Fluttu þeir allir framsöguerindi sem síðar voru rædd af fundargestum. Á héraðfundinum var kjörin nefnd til að fjalla um frumvörp um skipan prófastsdæma og prestakalla sem liggja fyrir Kirkjuþingi. Ennfremur voru mál- efni kirkjukóra prófastsdæmisins rædd, en frú María Eðvarðsdóttir formaður Kirkjukórasambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu skýrði frá fyrirhuguðum nám- skeiðum á vegum þess. Eftirfarandi samþykkt var gerð um hátt raforkuverð til kirkna: „Héraðsfundur Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmis haldinn í Stykkishólmi 9. september 1979 vill vekja athygli á því, að raf- magnsverð til kirkna frá Raf- magnsveitum ríkisins er svo hátt að furðu vekur, og lýsir undrun sinni yfir því, að slíkt skuli enn ekki hafa verið leiðrétt, þrátt fyrir áform orkumálaráðherra á sínum tíma í þá átt. Beinir fundurinn þeim eindregnu tilmælum til við- komandi stjórnvalda, að raf- magnsverð til kirkna verði end- urskoðað með það fyrir augum að réttlátt geti kallast." Prófasturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson, sleit síðan héraðs- fundinum í Stykkishólmskirkju að lokinni bænagjörð sem sr. Gísli Kolbeins, sóknarprestur í Stykk- ishólmi, annaðist. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 27 Þetta gerðist 1963 — Kanadísk farþegaflugvél fórst með 118 manns nálægt Montreal. 1962 — Samkomulag Frakka og Breta um smíði hljóðfrárrar þotu, „Concorde". 1947 — SÞ kunngera áætlun um skiptingu Palestínu með Jerúsal- em undir stjórn SÞ. 1945 — Júgóslavía verður al- þýðulýðveldi; konungdæmið lagt niður og Pétur II sviptur öllum réttindum. 1929 — Richard E. Byrd til- kynnir að hann hafi fyrstur manna flogið flugvel yfir Suður- skautið. 1922 — Fornleifafræðingar til- kynna að þeir hafi fundið stór- kostlega fjársjóði í grafhýsi Tut- ankhamens í Egyptalandi. 1918 — Nikita konungi í Monte- negro steypt og landið sameinað Serbíu. 1916 — Hussein verður konung- ur Araba. 1880 — Fyrsta japanska þingið kemur saman. 1798 — Ferdinand IV af Napoli segir Frökkum stríð á hendur og sækir inn í Róm. 1580 — Francis Drake kemur úr- heimssiglingu sinni. Afmæli— Giovanni Bellini, •ítalskur listmálari (1426-1516)= Louise May Alcott, bandarískur rithöfundur (1832-1888). Andlát — Karl keisari IV 1378=Wolsey kardináli, stjórn- málaleiðtogi 1530=Rupert prins, hermaður,1682=María Theresía keisaradrottning af Austurríki 1780=Horace Greeley, ritstjóri, 1872=Giacomo Puccini tón- skáld,1924. Innlent — Síðasti dómur Hæsta- réttar Danmerkur í íslensku máli kveðinn upp 1921= Kommúnistaflokkur Islands stofnaður 1930=d. Páll bp Jóns- son 1211*b Jón Vigfússon sýslu- 29. nóvember maður 1681= f. Pétur Guðjónsson 1812= d. Árni Thorsteinsson landfógeti 1907= Kristján I. dubbar Torfa Arason til riddara og veitir honum skjaldarmerki 1450= „Til fánans" eftir Einar Benediktsson og Sigfús Einars- son fyrst sungið á fundi Stúdentafélags Rvk 1906. Orð dagsins — Ég lét aldrei í ljós skoðun fyrr en ég varð sextugur. ...og þá var það skoðun sem hafði verið í ættinni í eina öld— Benjamin Disraeli, enskur stjórnmálaleiðtogi (1804-1881). Fólk verslar og skoðar og spjallar Halli og Laddi og Jörundur í stuöi, Baldur Brjónsson sker upp. I máli og myndum Tóti trúöur er eftirlæti barnanna • Jóla-Magasín er stærsta yfirbyggða verslunargata á íslandi. • Jóla-Magasín er stórverslun 28 kaupmanna. • Jóla-Magasín er staður þar sem þú getur tekiö lífinu meö ró, skemmt þér og spjallaö viö kunningja. Sýningahöllinni Bíldshöfða 20 — S.81410 — 81199 Sýningahöllin — Ártúnshöföa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.