Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 38

Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 Erlend stóriðja — fyrir hvern? Þann 17. nóv. s.l. birti Morgun- blaðið grein eftir Ragnar S. Hall- dórsson, forstjóra „íslenska" álfé- lagsins (ISAL), þar sem hann fjallar annars vegar um fram- tíðarhorfur atvinnuuppbyggingar á íslandi og hins vegar um reynslu íslendinga af ÍSAL. Greinin er skrifuð í áróðursstíl og er því morandi í blekkingum og rang- færslum. Greinarhöfundur er ekki heldur kynntur fyrir lesendum sem forstjóri þess fyrirtækis, sem hann hælir svo mjög, enda hefði slík kynning dregið enn meir úr trúverðugleika greinarinnar. Til- gangur hennar er ekki — eins og menn e.t.v. halda — að leggja almenn orð í belg „í þágu“ fram- fara og atvinnuuppbyggingar. Til- gangurinn er að skapa „rétta“ afstöðu til fyrirtækisins, einkum vegna áhuga þess að sölsa undir sig meira af orkulindum landsins („public relations"). Verði afstaða almennings jákvæð og skiln- ingsrík í garð ÍSAL, getur fyrir- tækið vænst hagkvæmari samn- inga af hendi íslendinga (lágt orkuverð, litlir skattar). Uttekt þeirri, sem hér fylgir, er ætlað að leiðrétta ýmsar rang- færslur, sem eru settar fram gegn betri vitund, svo og að greina frá eðli þeirra blekkinga, sem for- stjóri álfélagsins setur á prent handa almenningi í landinu. Geta skal þess, að úttekt þessi er langt í frá tæmandi. Fleiri rangfærslur og blekkingar eru í greininni, en vegna plássleysis eru aðeins þær helstu teknar fyrir. Er íslenska Álfélagið íslenskt álfélag? I grein sinni víkur forstjóri ÍSAL lítillega að þeim, sem hann kallar ýmist „eigendur", „hlut- hafa“ eða „hinn útlenda aðila ALUSUISSE". Kemur þar fram að ISAL er eign þessara „aðila". Samt er fyrirtækið skráð hér „Islenska Álfélagið" og það nafn notað í grein hans og víðar. Jafnframt talar Ragnar um „er- lenda eignaraðild ISAL“, gefandi þannig í skyn að innlendir aðilar eigi hlutdeild í fyrirtækinu. I annarri áróðursgrein fullyrðir hann m.a.s.: „Fyrirtækið er íslenskt, þó að það styðjist við erlent fjármagn" (Mbl. 23.11. ’77). Sannleikurinn er hins vegar sá, að fyrirtækið er erlent, en styðst við íslenskt vinnuafl og ódýra raf- orku. Þótt fyrirtækið kunni að vera skráð hérlendis í einhverjum bókum, hefur það enga þýðingu, enda lýtur það ekki íslenskri lögsögu, frekar en það vill. Það getur vísað öllum ágreiningsmál- um milli sín og íslenska ríkisins til dómstóls Alþjóðabankans í Wash- ington, sem var stofnaður einmitt til að auðvelda starfsemi fjölþjóða fyrirtækja. Þar sem eigandi ÍSAL, fjölþjóða fyrirtækið ALUSUISSE, er með starfsemi um allan heim — báxít- námur í Ástralíu, fullvinnsluverk- smiðjur í Efnahagsbandalags- ríkjum, einkabanka á Karabíska hafinu, o.s.frv. — er ekki nema eðlilegt að helstu ákvarðanir séu teknar í höfuðstöðvum samsteyp- unnar (auðhringsins) í Zúrich, en ekki í einstökum dótturfyrirtækj- um. Heildarhagsmunir auðhrings- ins krefjast þess beinlínis að samræming innkaupa, sölu og framleiðslu fari fram. Af því leiðir að völd Ragnars S. Halldórssonar yfir ÍSAL eru takmörkuð. Hann þjónar hins vegar herrum sínum prýðilega — að því er virðist — með tíðum áróðursskrifum sínum í íslensk blöð og með þátttöku sinni í íslensku félagslífi. Tilgangur nafnsms „íslenska" álfélagið er nefnilega sá, að gefa í skyn, að fyrirtækið sé innlent, að öllu leyti eða að hluta. Til marks um þá áráttu að fela yfirráð ALUSUISSE yfir ÍSAL, skal geta þess, að fyrirtækið fyrirfinnst ekki í símaskránni undir ALU- SUISSE (eða Sviss Aluminum). Jafnvel ársskýrslur ISAL — sem eru eingöngu birtar á ensku — nefna ekki með einu orði, að ÍSAL sé dótturfyrirtæki ALUSUISSE. ÍSAL — örlátur skattgreiðandi? I grein sinni, reynir forstjóri ISAL að gefa í skyn, að fyrirtækið greiði hærri opinber gjöld en það hefði þurft að axla, hefði það greitt skv. almennum reglum. Máli sínu til stuðnings lætur hann birta töflu yfir framleiðslugjald ÍSAL (staðgengill almennra skatta) til samanburðar við gjöld íslensks fyrirtækis, er hefði greitt skv. „almennum skattalögum". Gjöld hins íslenska fyrirtækis eru talin vera: Aðstöðugjald, lóðar- Eftir Elías Davíðsson kerfisfræðing leiga, fasteignagjöld, viðbóta- launaskattur og tekjuskattur. í töflu sinni víkur forstjórinn þó ekki að þeim opinberu gjöldum, sem íslensk fyrirtæki greiða með öðrum hætti en ÍSAL er hlíft við, t.a.m. innflutningsgjöld, söluskatt af vöru og þjónustu og verðjöfnun- argjald af raforku. Af tekjum ríkissjóðs eru þessir liðir þó langt- um þungvægari en þau gjöld, sem hann nefnir í samanburði við „framleiðslugjaldið". Samanburð- ur forstjórans varðandi skattbyrði ÍSAL er því ómarktækur og þjón- ar aðeins þeim tilgangi, sem getið er í inngangi þessarar úttektar. Framlag ÍSAL til sameiginlegs reksturs þjóðfélagsins er minna — miðað við umsvif fyrirtækis — en framlag innlendra fyrirtækja. Hins vegar sjá skattgreiðslur inn- lendra fyrirtækja og einstaklinga í landinu um það, að starfsmenn ÍSAL fái ókeypis skólagöngu og heilbrigðisþjónustu. Hefði ALU- SUISSE reist verksmiðjuna í Pap- úa, Nýju Gíneu eða í Indónesíu, hefði auðhringurinn einnig þurft að sjá um undirstöðuframkvæmd- ir, þ.e. um vegalagningu og um byggingu skóla og sjúkrahúss. Auk skattfríöinda ALUSUISSE hér á landi, er fyrirtækinu í lófa lagið að ákveða hve mikinn hagn- að það telur fram. Hagnaðurinn er notaður sem grundvöllur að út- reikningi framleiðslugjaldsins, sem að ofan getur. Hagræðing millifærslna milli dótturfyrirtækja og höfuðstöðva og milli systurfyrirtækja innan auðhringsins, til þess að fela hagnaðinn, er ekki lengur feimn- ismál. Um þessi mál er rætt hispurslaust á dýrum námskeið- um, sem ætluð eru stjórnendum fjölþjóða auðhringa og bókhalds- mönnum þeirra. Aðferðir við hag- ræðingu talnanna eru jafn margar og fjöldi þeirra millifærslu-teg- unda, sem fyrirtækinu tókst að finna upp á. Hagræða má kaup- verði hráefna, söluverði fullunnins áls, verði á aðkeyptum búnaði, greiðslukjörum viðskiptaaðila, lánakjörum, o.fl. o.fl. Skilyrði fyrir þessum hagræðingum er þó, að umræddar millifærslur eigi sér stað milli skyldra aðila innan auðhringsins. Hvað varðar ISAL er langstærsti hluti allra við- skipta við erlenda aðila fólginn í „innanhús“-viðskiptum innan ÁLUSUISSE hringsins. Það væri æskilegt, að opinberir aðilar hefðu hönd í bagga við þessar fjármagnstilfærslur, m.a. til að tryggja rétta skattlagningu fyrirtækisins. Það er þó ekki að vænta mikils árangurs af slíku eftirliti, þótt það væri hert. Áhugi gjaldeyrisyfirvalda á raunveru- legu eftirliti í þeim efnum, virðist heldur slappur. Engar virkjanir án ISAL? Mikið hefur verið skrifað um orkusölumál ÍSAL. Enn reynir forstjóri fyrirtækisins að sanna, að Islendingar hafi einhvern hag af þessari orkusölu. Skv. Orku- málum, sem Orkustofnun gefur út, hefur ISAL keypt á s.l. árum um 45% af allri raforkuframleiðslu á íslandi (forgangsorku), en greitt fyrir hana um 8% af greiðslum til íslenskra raforkufyrirtækja. í öðr- um orðum myndi brottför ÍSAL úr landinu ekki hafa meiri áhrif — a.m.k. hvað varðar orkumál — en þau, að leiða til um 8% verðhækk- unar á raforku. Hins vegar myndi slíkt losa um 140 Megawött, sem eru meðalnot ÍSAL af Búrfells- virkjun. Til samanburðar skal geta þess, að aflþörf landsmanna (utan stóriðju) árið 1977 var 246 Megawött. I umfjöllun sinni neitar for- stjóri ISAL ekki ofangr. stað- reynd, heldur afgreiðir hana með eftirfarandi hætti: „Talað hefur verið um að ÍSAL greiði einungis 10% af allri raforku á landinu, en noti rúman helming. Þetta er ekki rétt“. (undirstr. höfundar). Vissu- lega er ekki rétt, að ÍSAL noti rúman helming allrar raforku, heldur aðeins tæpan helming (45%). Þá tölu nefnir forstjórinn hins vegar ekki. Á öðrum stað staðhæfir for- stjórinn að ÍSAL muni greiða á því tímabili, sem raforkusamning- urinn stendur yfir (25 ár), meira en byggingarkostnað Búrfells- virkjunar. Skv. reikningum Landsvirkjunar er þó ekki annað sjáanlegt, en að tekjur frá ÍSAL hafi ekki dugað fyrir vaxtakostn- aði af lánum til virkjunarfram- kvæmda, og er hér Sigölduvirkjun ekki meðtalin. Það er ekki nema von, að tekjur íslendinga af raforkusölu til ÍSAL dugi skammt til að standa undir byggingu Búrfellsvirkjunar, hvað þá til að standa straum af bygg- ingu nýrra virkjana, sem eru allar dýrari en Búrfellsvirkjun. Skýr- inga er m.a. að leita í meðf. töflu yfir raforkuverð í ýmsum löndum. Raforkuverð í ýmsum löndum 1. Meðaltalsverð til iðnaðar, þ.m.t. til stóriðju, árið 1970 (heimild Alþjóðabankinn) cent á KWst. Argentína ..................2,1 Ghana.......................1,7 Kolombía ...................1,2 Singapore ..................1,1 ÍSAL (ísland) ..............0,3 2. Raforkuverð til álverksmiðja, árið 1979 (heimild: Engineering and Mining Journal) cent á KWst Ástralía ....................1,6 Bandaríkin ..............1,7—2,8 Japan .......................3,4 ÍSAL (ísland) ...............0,6 Verður ísland fyrsta „Banana- lýðveldið“ í Evrópu? Forstjóri ÍSAl veltir vöngum yfir möguleikum atvinnuþróunar á íslandi og kemst — eins og af tilviljun — að þeirri niðurstöðu að aðeins fyrirtæki eins og ÍSAL (þ.e. orkufrek fyrirtæki) gætu bjargað þjóðinni frá atvinnuleysi. Nú notar forstjórinn nokkrar forsendur, sem ekki standast gagnrýni: T.d. reiknar hann með að á íslandi verði um aldamót 350.000 manns. I opinberum spám, sem gerðar voru á vegum ísl. orkufyrirtækja, er reiknað með 293.000 manns um aldamót, en jafnvel sú áætlun hefur verið talin of há af sérfróðum mönnum. Þessi frjálslega meðferð talna vekur ekki traust á heilindi þess rök- stuðnings um kosti stóriðju, sem fram kemur í greininni. Á öðrum stað gefur forstjórinn sér þá forsendu, að „margföldun- aráhrif" stóriðju (þ.e. fjár- og orkufrekur iðnaður) séu þau sömu og í sjávarútvegi og landbúnaði. Það er þó augljóst að hver sjómað- ur skapar talsverða atvinnu í skyldum atvinnugreinum: I lag- metisiðnaði, í frystihúsum, í neta- gerð, í skipasmíðum, o.fl. Sama gegnir um landbúnaðar- störf. Margföldunaráhrif erlendr- ar stóriðju eru talsvert minni, enda eru aðföng flutt inn, fram- leiðslan flutt út óunnin, tæknin er einokuð af voldugum fyrirtækum og hagnaður fer úr landi að mestu leyti. Stóriðja á íslandi er ekki mann- aflakræf, heldur fjárfrek og er því alls engin lausn á atvinnumálum landsmanna. Sannleikurinn er sá, að fiskiðnaður og landbúnaður geta enn tekið við mikilli fjölgun starfsmanna. Fiskiþing ályktaði fyrir stuttu einmitt að sú atvinnu- grein þyrfti á miklum mannafla að halda á næstu árum. Landbún- aðarframleiðsla er ekki aðeins sauðfjárrækt og mjólkurfram- leiðsla. Óþrjótandi vekefni bíða á sviði yiræktar til manneldis, skógræktar o.fl. Þessi verkefni skapa talsverða atvinnu og eru ekki eins fjárfrek. En þótt við gefum okkur þær forsendur, sem forstjóri ÍSAL gefur sér, er rétt að skoða nánar boðskap hans um stórfelld stór- iðjuáform á íslandi. Hann segir að stóriðja — þ.e. erlend stóriðja — geti skapað 11.000 atvinnutækifæri á íslandi, og vegna margföldunaráhrifa þessarar starfsemi, gætu sprottið önnur 66.000 atvinnufyrirtæki. Alls myndi því erlend stóriðja — að sögn forstjórans — skapa nær 77.000 atvinnutækifæri. Bak við þessar tölur liggja þó ákveðin viðhorf til framtíðar þess- arar þjóðar, en Ragnar S. Hall- dórsson varast að nefna þessi viðhorf eða að geta þess, hverjir myndu stjórna þessu landi, ef úr því rætist. Ljóst er, að til að skapa umrædd 11.000 atvinnutækifæri í stóriðju, þyrfti erlent fjármálavald að ná hér ítökum sem svara til um 15 stykkja af ISAL. Islenska þjóðin hefur einfaldlega ekkert bolmagn til þess að reisa stóriðjufyrirtæki af ofangr. stærðargráðu. Alþjóð- legar lánastofnanir myndu ekki heldur lána Islendingum til stór- framkvæmda af þessu tagi, nema fjölþjóða fyrirtæki væru ráðandi aðilar. Ef draumur Ragnars S. Hall- dórssonar og nokkurra vina hans yrði opinber stefna á íslandi, væri ekki langt að bíða að sjálfstæði íslendinga væri tómt orð. Helstu ákvarðanir er lúta að efnahags- málum og stjórnmálum yrðu tekn- ar í höfuðstöðvum þeirra auð- hringa, sem hér ættu í hlut. Alþingi yrði þá ekkert annað en fulltrúasamkunda mismunandi auðhringa og þingmenn yrðu opin- berlega kenndir við þetta eða hitt fyrirtækið. ísland yrði þannig fyrsta „bananalýðveldið" í Evrópu (sbr. bananalýðveldin Hondúras og Guatemala sem lutu yfirráðum United Fruit Company). í stað banana yrði hér ál í hvert mál. Börn okkar yrðu kerjamenn og bókhaldarar hjá ALCOA, ALCAN, AMAX, NORSK NYBRO eða hjá PÉCHINEY. Til tilbreytingar gætu menn fengið starf hjá málm- bræðslu „frændmanna vorra" frá Noregi á Grundartanga eða í efnaiðnaði LONZA (dótturfyrir- tæki ALUSUISSE) og hjá DOW CHEMICAL CORP., sem þegar hafa þreifað fyrir sér hérlendis. Þeir sem vildu frekar anda að sér fersku lofti, myndu gerast þjónar erlehdra auðjöfra, er þeir kæmu með einkaþotum sínum til að veiða lax. Og aðeins þeir gáfuðustu fengju vinnu hjá banda- ríska auðhringnum IBM, sem yrði þá opinber ráðgjafarstofnun lepp- stjórnarinnar Æslands í sam- bandi við upplýsinga- og fjar- skiptamál. íslendingar þéna og auðhringurinn Alusuisse tapar, eða hvað? I samræmi við þær kenningar forstjóra ÍSAL, að íslendingar þéni vel á starfsemi fyrirtækisins á íslandi, hlýtur eigandinn ALU- SUISSE að tapa. Eða eins og hann orðar það: „Eigendur fyrirtækisins, hinn erlendi aðili ALUSUISSE, hefur hins vegar ekki farið vel út úr þessum rekstri það sem af er.“ Trúi honum hver sem vill. Sam- kvæmt kenningum framboðs og eftirspurnar, hlýtur forstjóri fyrirtækis, sem skilar ekki sóma- samlegum arði, að vera rekinn. Forstjóri ÍSAL hefur þó haldið stöðu sinni og ekki er vitað til þess að staða hans sé að losna í bráð. Úr ársskýrslu ÍSAL 1978 Income Statement 1978 (Expressed in lcelandic kronur) 1978 1977 Net Sales 23.039.022.741 16.045.332.247 Cost of Sales 18.164.776.878 12.976.358.749 4.874.245.863 3.068.973.498 Administration cost 401.025.715 281.197.834 Interest expense, net 2.532.131.073 1.392.548.706 Depreciation of assets 1.398.173.290 1.057.322.024 Profit before tax 542.915.785 337.904.934 Consolidated Tax 416.363.813 295.359.587 Profit 126.551.972 42.545.347

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.