Morgunblaðið - 29.11.1979, Síða 44

Morgunblaðið - 29.11.1979, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 Nei, sveínpillur eru ekki til á lager. — Eg gæti komið í kvöld og lesið svolitla kvöldsögu? Það er timabært orðið, að þú lærir að setjast með eðlilegum hætti? Til hamingju með kosningaréttinn BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Spennan jókst stöðugt eftir þvi, sem siðustu mínútur úrslita- leiks heimsmeistarakeppninnar liðu. í örfáum spilum höfðu ítalirnir klórað 35 impa af Bandaríkjamönnunum, munur- inn orðinn 30 impar og margir áhorfenda vonuðust til, að spilin yrðu rólegri og byðu ekki upp á miklar stigasveiflur. En þá birtist þetta spil á sýningartjaldinu. Suður gaf, allir á hættu. Norður S. D H. KG107 T. G74 L. ÁG432 Vestur Austur S. Á92 S. K1085 H. 9862 H. D4 T. 82 T. D10965 L. 9876 L. KD Suður S. G7643 H. Á53 T. ÁK3 L. 105 Og ítalirnir hertu enn sóknina. Voru með spil norðurs og suðurs og sögðu þannig: Suður Norður Pittala Belladonna 1 Spaði 2 Lauf 2 Spaðar 2 Grönd 3 Grönd pass Áhorfendum á bandi ítala til ánægju spilaði austur út tígulníu gegn gröndunum þrem en Bella- donna hleypti ekki, tók á ásinn í blindum og spilaði lauftíunni. Vestur lét níuna og austur fékk á kónginn. Hann skildi makker sinn og skipti í spaðatíu. Hefði vestur þá tekið á ás og haldið áfram tígulsókninni hefði orðið erfitt fyrir norður að fá meir en 7 slagi. En vestur gaf og í næsta slag tók Belladonna á laufás, spilaði þvínæst hjartagosa. Austur lét lágt en Belladonna svínaði og þar með voru níu slagir orðnir örugg- ir. Og auðvelt var að fá tíunda slaginn á lauf, 630 til Ítalíu. Á hinu borðinu spilaði Banda- ríkjamaðurinn í norður 2 Grönd, fékk 9 slagi eftir að hann hleypti tígulútspilinu á gosann. En í allt fengu ítalirnir 480 eða 10 impa og forskot Bandaríkjanna orðið 20 impar og stuðningsmenn þeirra orðnir alvarlega hræddir. COSPER Mitt heimili er ekki eina heimil- ið sem fékk skrýtið bréf inn um dyralúguna hér á dögunum. Nýi kjósandinn fékk heillaóskaskeyti í tilefni þess að hafa öðlast kosn- ingaréttinn. Þetta var ósköp hjartnæmt. Heimurinn er alveg tvískiptur, annars vegar frelsi og lýðræði og hins vegar sósíalismi. Kjörum fólks í sósíalískum ríkjum er best lýst með sögu Búkovskís af dauða- drukkna manninum. Hann sá tvö- falt og sagði við sjálfan sig er hann horfði í spegilinn. „Annar hvor okkar er K.G.B. maður." Undir járnhæl K.G.B. verður fólkið í sósíalísku ríkjunum að lifa frá vöggu til grafar. Þar er ekkert atvinnulýðræði, aidrei hægt að kvarta, hvorki um kaup eða öryggi á vinnustað. Ferðafrelsi er ekkert nema að verkalýðsfélagið á staðn- um sé búið að samþykkja það og síðan yfirvöldin og síðast eru nágrannarnir spurðir hvort við- komanda sé treystandi til að ferðast utan Rússlands. Ef um- sækjandinn hefur verið lauslátur eða þótt sopinn góður þá gefst honum aldrei tækifæri til að fara til útlanda. Þegar ástandið í heim- inum er orðið svona þá þurrkuðust út úr danska þinginu síðustu sósíalistarnir og í Noregi hafa þeir 0,4% af öllu atkvæðamagninu. • Hver er þessi flokkur? En á íslandi í dag er flokkur sem kennir sig við elsta atvinnu- veg þjóðarinnar og þeir eru svo utanveltu við lífið í heiminum í dag að þeir ganga í þjónustu heimsvaldastefnu kommúnism- ans. Þegar öryggismálanefnd sem skipuð var af Olafi Jóhannessyni segir að við þurfum ekki að vera lengur í Nato, þá förum við og það á ekki að spyrja þjóðina. Allar lýðræðisþjóðir vilja vera í Nato, vilja meira að segja frelsa þessar þjóðir sem kveljast undir kúgun sósíalismans. Hvaða flokkur er eiginlega þessi Framsóknarflokkur? Hann lagði hatur á Reykvíkinga og tafði eins og hann best gat bæði Hitaveituna og Sogsvirkjunina. Hann fylgdi utanríkisstefnu sósíalistanna all- an tímann á dögum viðreisnar- Lausnargjald í Persíu Eftir Evelyn Anthony Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku 126 okkar skilmála. Ég sagðí ráð- herranum frá þessu og iagði á það áherzlu. Ég efaði ekki, hr. Field, að þér mynduð telja það yður til ávinnings að finna þau ráð sem dygðu og byggja olíu- hreinsunarstöðina sem þarf að reisa i Imshan. — Það er öldungis rétt, herra, sagði Logan. — Eftir viðræður mínar við japönsku stjórnina var mér kleift að ganga frá fullbúnum samningi við hana og olíuinnflytjendur og hef nú tryggingu þeirra i næstu tíu ár. — Gott, sagði keisarinn. — Þetta eru einmitt fréttirnar sem ég vonaði þér mynduð bera mér. Þegar ráðherrann var ráðinn af dögum rikti nokkur óvissa um einlægni yðar í mál- inu. Það er skiljanlegt i ljósi þeirra uppgötvana sem Ardal- an hershófðingi fékk hjá hryðjuverkamanninum, Sýr- lendingnum Homsi. Ég er sátt- ur við skýrslu yðar, hr. Field. — Þökk herra, sagði Logan. Hann hafði haldið að keisar- inn hefði nú slappað af. hann sá nú að hann var festur upp á þráð og hafði verið allan tímann. Hann talaði lýtalausa ensku, þar sem hann hafði lært málið á unga aldri, en vestur- landamál voru erfið írönum. Logan Field sá að málið var útkljáð þótt mikið hefði það kostað og hann fann einnig að keisarinn taldi að samtalinu væri senn lokið. En allt í einu datt honum i hug að drepa á mál konu sinnar. Hann vissi að keisarinn hafði elskað fyrri konu sína, Sorayu, mjög heitt og hann hafði heyrt að hann ynni börnum sinum af öllu hjarta. Enda þótt hann þekkti lrani ekki nema yfirborðslega gerði hann sér grein fyrir því að þeir voru tilfinningaríkir menn þrátt fyrir kalt yfirborð og stundum hrjúft. — Herra, sagði hann sein- lega — þér sýnduð mér þá vinsemd að votta mér samúð vegna eiginkonu minnar. Hann fann að James stirðn- aði upp. Keisarinn kinkaði kolli. — Þér vitið að þess var krafizt að til þess að hún yrði látin laus gæfum við Imshan upp á bátinn. — Ég hygg að það hafi Sýrlendingurinn játað í yfir- heyrslunum, sagði keisarinn. — Ég geri mér grein fyrir þvi, hélt Logan áfram — að mér urðu á grundvallarmistök. Þeg- ar Homsi hafði fyrst samband við mig, hefði ég átt að snúa mér rakleitt til yðar. — Það hefði verið vitur- legra, var svarið. James horfði á hann og reyndi í örvæntingu að geta sér til um hvaða hugsanir bærðust i brjósti mannsins með lituðu gleraugun. Hann gat ekki áttað sig á þvi. — En þrátt fyrir það, hélt keisarinn áfram blæbrigða- lausri röddu sinni — fæ ég ekki séð við hefðum getað hjálpað yður hr. Field. Eiginkonu yðar var ekki rænt í Iran. Á hinn bóginn gæti verið að þá væri ráðherra minn, Khorvan, enn lifs. — Ég geri mér grein fyrir því, sagði Logan og undirgefn- in í rödd hans virtist ósvikin. — Ég harma það mjög. En mér var sagt það, að eiginkona mín yrði drepin nema því aðeins að ég steinþegði yfir þessu. Mér fannst ég ekki eiga margra kosta völ. — Ég skil það. Þetta hefur verið örðug ákvörðun. — Herra. Logan hallaði sér í áttina að manninum i hæginda- stólnum — það er mögulegt að bjarga iifi konu minnar, meira að segja nú, eí þér hjálpið mér. Keisarinn tók sigarettu- kassa, opnaði hann og bauð þeim. Hann kveikti sér einnig í sjálfur. — Ég myndi gera það með gleði, VÆRI það geriegt, sagði hann rólega. — Það er mögulegt, sagði Logan. — Ég mun kynna sam-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.