Morgunblaðið - 24.01.1980, Page 1
40 SÍÐUR
19. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Orðljót grein í Izvestia:
„Sakharov varð rígaþorsk
ur í neti heimsvaldasinna“
Moskvu, 23. janúar, AP.
SOVÉZKA flokksmálgagnið Izvestia bar í dag Andrei Sakharov þeim
sökúm, að hann hefði iðulega „blaðrað“ viðkvæmum opinberum upplýsing-
um í erlenda aðila og það hefði verið nauðsynlegt öryggi landsins, að hann
væri fluttur frá Moskvu. Þetta var það fyrsta sem hefur verið sagt innan
Sovétríkjanna frá handtöku Sakharovs. Hins vegar er ekki vitað um
dvalarstað vísindamannsins og Ilenu konu hans. Sagt var í fyrstu, að þau
hefðu verið flutt til Gorky, sem er 400 km fyrir austan Moskvu, en þangað
er útlendingum ekki leyft að koma. í símtali við vestræna fréttamenn sagði
lögreglustjórinn í Gorky, að sér væri ekki kunnugt um að neinir
ókunnugir hefðu komið í bæinn.
Greinin um Sakharov í Izvestia var
undirrituð af K. nokkrum Batanov
sem ekki hefur sézt þar á síðum áður.
Var hún hin orðljótasta og sagt, að
óhugsandi hefði verið að „þola
áframhaldandi skemmdarverk þessa
frávillings og liðhlaupa gegn Sov-
étríkjunum". Sakharov hefði gefið
yfirlýsingar, sem „ötuðu auri allt
sem sovéskt væri — þjóðina, ríkið,
þjóðskipulagið og stefnuna í innan-
sem utanríkismálum“. I greininni
var vikið að því, að framan 'af hefði
Sakharov þó verið merkur vísinda-
maður en síðan hefði hann smám
saman orðið „hégómagjarn
drambsamur og gengist upp við að
verða rígaþorskur í neti áróðursafla
andkommúnista“. Hefði verið aðkall-
andi að hann yrði ekki lengur
notaður sem farvegur leyniþjónustu
fjandmannanna til að sjúga út mikil-
væg leyndarmál Sovétríkjanna.
í Sovétríkjunum geta menn sér
þess til, að tvennt hafi einkum valdið
því að látið var til skarar skríða gegn
Sakharov nú: annars vegar hríð-
versnandi sambúð Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna og ýmsar aðgerðir
Bandaríkjanna vegna Afganistans og
í annan stað vegna viðtals, sem
Sakharov átti við fréttamann banda-
rísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC
fyrir örfáum dögum. Þar hvatti
Sakharov til, að Sovétmenn drægju
herlið sitt frá Afganistan, lýsti
samúð með því, að erlendir íþrótta-
menn kæmu ekki til keppni á Ól-
ympíuleikunum í Moskvu og kvaðst
styðja efnahagsþvinganir Bandaríkj-
anna gegn Sovétríkjunum.
Sakharov sagði, að hann væri mjög
áhyggjufullur vegna þess hve að
undanförnu hefði verið hert á of-
sóknum á hendur mannréttinda-
mönnum og minnihlutahópum. Hann
sagði að á sl. ári hefðu a.m.k. eitt
hundrað baráttumenn fyrir auknum
mannréttindum verið handteknir
og/eða fengið dóma.
Tveir synir Títós Júgóslavíufor-
seta, Zarko og Miso. heimsóttu
föður sinn í dag. Er þetta í
fyrsta sinn sem heimsókn er
leyfð til forsetans síðan af hon-
um var tekinn vinstri fóturinn
um helgina. Þetta var einnig
fyrsta myndin af Tító. síðan
aðgerðin var framkvæmd. Sátu
synirnir góða stund hjá föður
sinum og léku allir á als oddi.
Viðbrögð við handtöku Sakharovs:
Chaban-Delmas hélt frá
Moskvu í mótmælaskyni
23. jan. AP.
HANDTAKA Nóbelsverðlauna-
hafans og andófsmannsins
Andrei Sakharovs hefur hvar-
vetna verið harðlega fordæmd.
Chaban-Delmas, forseti franska
þjóðþingsins, hélt í dag frá
Moskvu í mótmælaskyni. Hann
kom í 10 daga opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna á mánudag. í
yfirlýsingu, sem hann gaf út í
Moskvu, sagði hann: „Sem gestur
sovéskra sjórnvalda get ég ekki
skipt mér af Sakharov-málinu án
þess að skipta mér um leið af
innanrikismálum Sovétríkjanna.
Ég get þó ekki orða bundist þvi
tel ég það skyldu mína að halda
til Frakklands.“ Honum var fylgt
út á flugvöll af sömu mönnum og
tóku á móti honum og sýnd sama
Tveir Þjóðverjar
týndir í Afganistan
— fréttalaust með öllu þaðan í gær
Bonn, Istanhul. Nýju-Delhi 23. jan. AP.
TVEGGJA Vestur-Þjóðverja er saknað í Afganistan, að því er v-þýska
utanríkisráðuneytið sagði í kvöld. Talsmaður ráðuneytisins sagði, að
mennirnir hefðu verið á tveimur stórum vöruflutningabilum og ferðast
hvor f sfnu lagi.
Annar hafði verið að flytja búslóð
frá Nýju-Delhi til Vestur-Þýzka-
lands. Fundust bílarnir tveir yfir-
gefnir á þjóðvegi í A-Afganistan og
er ekki vitað um afdrif mannanna
tveggja. Varningur sá sem á bílun-
um var var einnig horfinn. Ekki er
vitað hvort ráðist var að bílunum af
þjóðvegabófum sem krökkt er af á
þessu svæði ellegar að uppreisnar-
menn hafi verið þar að verki.
Engar fréttir hafa borizt frá
Afganistan í allan dag enda eru
fréttamenn nánast allir á brautu. í
Nýju-Delhi vék Reddy Indlandsfor-
seti ögn að Afganistanmálinu, er
hann setti indverska þingið í dag og
sagði, að afskipti utanaðkomandi
afla í þessum heimshluta væru illa
séð af Indverjum og nýjustu atburð-
ir í Afganistan hefðu hert mjög á
kalda stríðinu. Reddy lagði áherzlu á
vilja Indverja til að eiga bætt
samskipti bæði við Sovétríkin og
Bandaríkin.
Ohira, forsætisráðherra Japans,
fjallaði um innrás Sovétmanna í dag
og sagði hana stórkostlega ógnun við
friðinn í þessum heimshluta og
öllum heimi væri í reynd ógnað. Þá
fjallaði utanríkisráðherra Tyrkja,
Erkmen, um innrásina í meiri háttar
ræðu um utanríkismál á tyrkneska
þinginu í dag, en var gætinn í orðum
og talaði jafnan um „íhlutun Sovét-
manna" en notaði hvergi orðið inn-
rás. Hann kvað Tyrki krefjast þess
að „allir erlendir herflokkar" yrðu
kvaddir á burt frá Afganistan, en á
hinn bóginn sagði hann að Tyrkir
myndu ekki rasa um ráð fram í
þessu máli né gera neitt það sem
gæti æst enn til enn alvarlegri ólgu.
Áður hafði Erkman neitað að Tyrkir
myndu grípa til nokkurra viðskipta-
hafta gagnvart Sovétríkjunum
vegna Afganistans.
þegar hann kom til
virðing og
landsins.
„Handtaka Sakharovs afhjúpar
hið sanna andlit einræðisins",
sagði Aase Lionaes, fyrrum for-
maður norsku Nóbelsnefndarinn-
ar. Hún hvatti íþróttafólk til að
sjá að sér og hætta við þátttöku í
Olympíuleikunum. Henry Kissing-
er fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í Milwaukee,
að harðlínumenn virtust nú vera
að ná undirtökunum i Moskvu. Ola
Ullsten, utanríkisráðherra Svía,
Knut Frydenlund, utanríksráð-
herra Norðmanna, og Kjeld Oles-
en, utanríkisráðherra Dana, for-
dæmdu allir handtöku Sakharovs.
Hið sama gerðu kommúnista-
flokkar Frakklands, Ítalíu og
Spánar. Georges Marchais, form-
aður franska kommúnistaflokks-
ins, studdi innrásina í Afganistan
á dögunum.
I Israel var látinn í ljós ótti, um
að hert barátta sovéskra stjórn-
valda gegn andófsmönnum gæti
þýtt erfiðleika fyrir þá Gyðinga,
sem vilja yfirgefa Sovétríkin. Þá
hafa Amnesty-samtökin lýst for-
dæmingu sinni á handtöku Sakh-
arovs og áhyggjum vegna aukinn-
ar baráttu sovéskra stjórnvalda
gegn andófsmönnum.
Kjeld Olesen, utanríkisráðherra
Dana, gaf í dag í skyn, að Danir
myndu taka upp sömu stefnu og
Bandaríkjamenn og hætta við
þátttöku í Olympíuleikunum.
Sjá einnig fréttir „um við-
brögð“. „Handtaka Sakh-
arovs afhjúpar andlit ein-
ræðisins“ og „Handtka
Sakharovs sýnir hve árang-
ursrík barátta hans hefur
verið“ á bls. 18 og 19.
Gullið á
niðurleið
London, 23. jan. AP.
GULLVERÐ lækkaði víða á
gjaldeyrismörkuðum í Evrópu í
dag og um hríð var verðið á
gullúnsunni undir 600 doliur-
um, en um það er lauk hafði
verðið hækkað nokkuð á ný og
var i London 692,50 dollarar og
í Ziirich var verðið 670 doilarar
en var þar 733 dollarar í gær-
kveldi.
Sérfræðingar eru tregir að spá
um hvað verða muni, en einn lét
þó hafa eftir sér, að verðið
550—600 dollarar fyrir únsu væri
raunhæft.
Þá varð víða ókyrrð á mörkuð-
um er þær fregnir bárust út að
fyrrverandi íranskeisari hefði
verið handtekinn og Tito Júgó-
slavíuforseti væri látinn. Höfðu
fréttir þessar aðallega þau áhrif,
að dollarinn lækkaði, en síðan
breyttist staðan á ný þegar ljóst
varð, að hvorttveggja var fleip
ur.
í London hækkaði silfur nokk-
uð á ný, eða í 39 dollara únsan, en
var þó undir metverði sl. föstu-
dags, þegar það komst í 49
dollara.