Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANUAR 1980
3
Fokkervélun-
um seinkar
FOKKER flugvélunum, sem
Flugleiðir hafa fest kaup á í Kóreu
og koma áttu til landsins í gær
seinkar nokkuð og eru þær vænt-
anlegar á morgun, föstudag. Lentu
þær í slæmu veðri í Dubai og urðu
að bíða þar um tíma og sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
að búist væri við þeim á föstudag
og kæmi önnur til landsins gegn-
um Finnland, en hin færi í síðasta
áfanga frá Luxemborg með einni
viðkomu á leiðinni.
Lyfjum stolið
úr Steinanesi
BROTIST var inn í Steinanes frá
Bildudal þar sem skipið liggur í
slipp í Reykjavík og stolið þaðan
lyfjakassa og unnin talsverð
spjöll á innréttingum í brúnni.
Að sögn skipstjórans, Guð-
mundar Einarssonar, virðist sem
hurð í íbúð skipstjóra og eru tvær
hurðir ásamt dyraumbúnaði mikið
skemmdar ef ekki ónýtar eftir
verknaðinn. Steinanes hefur verið
í slipp frá því skömmu fyrir jól og
unnið að vélaskiptum og sagði
skipstjórinn að ekki hefði verið
unnið í því síðustu einn tvo daga,
brotist hafi verið inn í þeim en þegar hann kom í skipið um
Benedikt Gröndal:
Tek undir fordæmingu á
slíkum kúgunaraðgerðum
Halldór Laxness:
„Merki um ákaf-
lega bágt ásig-
komulag“
„ÉG HEF engar sérskoðanir á
þessu máli, en ég hef margsýnt
minn hug í svona málum. En
svona tilfelli er merki um eitt-
hvað ákaflega bágt ásigkomu-
lag i þjóðfélaginu þar sem það
gerist,“ sagði Halldór Laxness
rithöfundur og Nóbelsverð-
launahafi, er Morgunblaðið
hafði samband við hann i gær.
„ÉG TEK undir þá fordæm-
ingu, sem við höfum heyrt í dag
frá öllum frjálsum löndum."
sagði Benedikt Gröndal, forsæt-
is- og utanríkisráðherra, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, er
spurt var, hvað hann vildi segja
um handtöku sovézka vísinda-
mannsins, Andrei Sakharovs.
„Ég er undrandi á, að Sovétrík-
in skuli grípa til þessara kúg-
unaraðgerða ofan á allt annað."
Morgunblaðið spurði Bene-
dikt, hvort íslenzk stjórnvöld
myndu mótmæla við sovézk
þessari aðgerð Sovétforystunn-
ar. Benedikt sagði: „Það hefur
ekki gefizt tóm til þess að ræða
slík mótmæli í dag, þar sem ég
hefi verið upptekinn við stjórn-
armyndunarviðræður. Ég mun
ráðgast um það, en a.m.k. er
þessi afstaða sem ég hef lýst,
afstaða ríkisstjórnarinnar."
Benedikt kvað það eflaust ekki
skipta miklu máli, hvað íslenzk
stjórnvöld hefðu um málið að
segja. „Þeir hafa ekki haft svo
mikið sem fyrir því að svara
bréfi okkar um Kortsnoi-
fjölskylduna," sagði Benedikt.
tilgangi að ná lyfjum, morfíni og
slíkum lyfjum, sem jafnan eru í
sjúkrakössum. Það ein'a sem hvarf
var lyfjakassi skipsins, sem
geymdur er í íbúð skipstjóra. Hafa
þjófarnir brotið sér leið inn í
brúna, gegnum læstan kortaklef-
ann og komust þar um ólæsta
hádegið í gær hafði verknaðurinn
verið framinn og sagði hann
aðkomuna ljóta, allt brotið og
bramlað kringum dyrnar og rótað
til í hirslum í brúnni og íbúð
skipstjóra. Lögreglan kom á stað-
inn og er málið nú í höndum
rannsóknarlögreglunnar.
Andófsnefnd stofnuð
Fá skip á
loðnumiðum
NÍTJÁN skip höfðu í gærkvöldi
tilkynnt Loðnunefnd um afla er
þau höfðu veitt aðfaranótt mið-
vikudags og fram eftir degi. Spáð
var versnandi veðri á miðunum
sl. nótt og því héldu mörg skip-
anna til hafnar með aflann, en
þessi 19 höfðu veitt alls 6.030
tonn.
Skipin eru: Þórshamar 550, Ósk-
ar Halldórsson 370, Skírnir 360,
Keflvíkingur 340, Pétur Jónsson
330, Gullberg 400, Sæbjörg 300,
Gísli Árni 220, Örn 350, Albert
300, Náttfari 330, Kap II. 200,
Ljósfari 250, Hafrún 180, Guð-
mundur 300, Jón Kjartansson 400,
Harpa 250, Grindvíkingur 350 og
Sigurður 250.
í gær var stofnuð í
Reykjavík andófsnefnd til
þess að aðstoða andófs-
menn í sósíalistaríkjunum
austan járntjalds í frelsis-
baráttu þeirra. Hlutverk
hennar verður að safna og
miðla upplýsingum um
Íiessa frelsisbaráttu til
slendinga og vinna mál-
stað _ andófsmannanna
fylgi á íslandi. Formaður
nefndarinnar er Inga Jóna
Þórðardóttir, fjölbrauta-
skólakennari á Akranesi
og viðskiptafræðingur, en
aðrir í henni eru Guð-
mundur Heiðar Frímanns-
son B.A., menntaskóla-
kennari á Akureyri, Óskar
Flmm félagar Félags ísl. náttúrufræðinga voru heiðraðir fyrir störf sín að náttúrufræðum, frá vinstri:
Ingólfur Davíðsson, Guðmundur Gígja, sem veitti skjalinu viðtöku fyrir hönd föður síns, Geirs Gígju,
Oskar Ingimarsson er tók við skjali fyrir Ingimar Óskarsson, föður sinn, Teresía Guðmundsson,
V r A1 n /1 A M W 4* /-VI •» ,1 /VMAA/VM /V /V T — • I I ..11 -...... t „ - - - X / í 1 * £ _
Steindór Steindórsson og Ingvar Hallgrímsson formaður félagsins.
Ljósm. Ól.K.M.
Fimm kjörnir heiðursfélagar
Félag ísl. náttúrufræðinga
FÉLAG íslenskra náttúrufræð-
inga hefur heiðrað nokkra fé-
lagsmenn sína fyrir löng og
farsæl störf þeirra að náttúru-
fræðum á íslandi og við athöfn i
gær voru fyrstu fimm heiðurs-
félögum félagsins afhent heið-
ursskjöl sin.
Heiðursfélagarnir eru: Geir
Gígja skordýrafræðingur, dr.
Ingimar Óskarsson grasafræð-
ingur, Ingólfur Davíðsson grasa-
fræðingur, Steindór Stein-
dórsson grasafræðingur og
Teresía Guðmundsson fyrrum
veðurstofustjóri. Ingvar Hall-
grímsson fiskifræðingur, for-
maður félagsins, afhenti þeim
heiðursskjölin að viðstöddum
gestum, m.a. forstjórum þeirra
stofnana er' heiðursfélagarnir
hafa unnið hjá, svo og stjórn
félagsins. Sagði Ingvar í samtali
við Mbl. að ákveðið hefði verið
að heiðra þessi fimm fyrir löng
og merkileg störf þeirra að
náttúrurannsóknum á íslandi og
langa þjónustu við náttúrufræð-
ina. Sagði hann þau öll vera
fædd kringum aldamótin og vera
nú komin á eftirlaunaaldur og
hefðu þau átt langan starfsdag
og skilað miklu starfi um ævina.
í tilefni
handtöku
Sakharovs
Einarsson læknanemi og
formaður Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúd-
enta, Friðrik Friðriksson
viðskiptafræðinemi og
formaður Félags frjáls-
hyggjumanna og Gunnar
Þorsteinsson menntaskóla-
nemi. Pósthólf nefndarinn-
ar er 1334,121 Reykjavík.
„Það er augljóst, hvers vegna
við stofnum þessa nefnd," sagði
formaður andófsnefndarinnar,
Inga Jóna Þórðardóttir, í viðtali
við Morgunblaðið. „Með handtöku
helzta leiðtoga andófsmanna í
Ráðstjórnarríkjunum, Andrei
Sakharovs, eru stjórnvöldin enn
að sýna, að þau virða þau almennu
mannréttindi, sem við Vestur-
landabúar teljum sjálfsögð, að
vettugi. Þau eru að brjóta þann
samning, sem þau gerðu á sínum
tíma við vestrænu lýðræðisríkin,
Helsinkisáttmálann.
Þessi síðasti atburður færir
okkur heim sanninn um það, að
enn er alræðisstjórn í Ráðstjórn-
arríkjunum. Hann sýnir okkur, að
við getum ekki treyst valdhöfun-
um í Kremlkastala í einu eða
neinu. Ofbeldið er enn grímulaust.
Við Vesturlandamenn getum ekki
samvizku okkar vegna daufheyrzt
við ákalli þeirra manna, sem
berjast fyrir frelsi og mannrétt-
indum í landi sínu. Búkovský
sagði, þegar hann kom til íslands,
að bezta hjálpin, sem andófs-
mennirnir gætu fengið, væri
sífelld gagnrýni, sífelld upplýs-
ingamiðlun um það, sem gerist í
Ráðstjórnarríkjunum."
Inga Jóna Þórðardóttir sagði að
lokum: „Okkar versti óvinur er
sofandahátturinn. Við verðum að
gera okkur fulla grein fyrir því, að
draumur sósíalismans hefur
breytzt í martröð í Ráðstjórn-
arríkjunum. Þau eru ríki, sem
loka stjórnarandstæðinga inni á
vitfirringahælum eða í vinnubúð-
um. Við skorum á alla þá íslend-
inga, sem kjósa frelsið og hafa
samúð með frelsisbaráttunni í
austri, að aðstoða okkur. Við
bjóðum alla velkomna í þá bar-
áttu. Næstu vikurnar og mánuðina
munum við einkum sinna upplýs-
ingamiðlun um þessi mál, kynna
andófsmennina og vinna að því
með ýmsum ráðum með fólki um
allan heim, að Andrei Sakharov
verði látinn laus. Um allan heim
er risin mótmælabylgja gegn al-
ræðisherrunum, sem fylgja land-
vinningastefnu og kúga þegna
sína. Við íslendingar getum ekki
látið okkar eftir liggja."
Inga Jóna Þórðardóttir.
Sigtún verður
ekki leikhús
ÞESSI hugmynd hefur áður kom-
ið fram og við höfum þegar
svarað því að húsið fæst ekki til
afnota fyrir leiklistarstarfsemi,
sagði Jón Skúlason póst- og
simamálastjóri er Mbl. innti
hann eftir því hvort sú hugmynd,
sem upp hefur komið meðal
leikara, að fá megi gamla Sigtún
við Austurvöll til afnota fyrir
leiksýningar, væri framkvæman-
leg.
Jón Skúlason sagði að gera yrði
það miklar breytingar á húsinu ef
nota ætti það fyrir leiksýningar,
þar væri t.d. engin aðstaða fyrir
leikendur og væri húsið nú notað
sem mötuneyti. Væri það í notkun
frá kl. 8 á morgnana til 3 síðdegis
og hefðu starfsmannafélög síðan
afnotarétt fyrir fundi sína og væri
húsið einnig mikið notað sem slíkt
og myndu félögin ekki samþykkja
breytingar á notkun hússins.
—Við höfum fyrir löngu afneitað
þessari notkun og það er ljóst að
þetta tvennt fer ekki saman, sagði
Jón Skúlason að lokum.