Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 38

Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 38
3 8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980 ■ -- " ——1 "" ' i . . . , Breiðablik fékk síieii Stefansmótið í Skálafelli STEFÁNSMÓT KR á skíðum íer fram um næstu helgi í Skálafelli. Á laugardag verður keppt i yngri flokkum og hefst keppnin kl. 11 en nafnakall verður kl. 10. Á sunnudag fer svo fram keppni í kvenna- og karlaflokki og hefst kepnnin þar á sama tima. Alls eru skráðir 198 keppendur i mótið. Mótsstjóri verður Mar- teinn Guðjónsson. Skagamenn eru að ná umtals- verðri festu í leik sinn og héldu sínu striki til enda að þessu sinni, um m.a. munaði nú um Jón — fjögur efstu liðin í hnapp í heilli umferð í síðustu viku skipuðust svo veður í lofti í 3. deildinni, að nú er aftur orðin spennandi keppni fjögurra efstu liða. Mestu munaði að Skagamenn skelltu Breiðabliksmönnum uppfrá, en á sama tíma unnu Stjörnumenn og óðinsmenn andstæðinga sína auðveldlega. Létt hjá Stjörnunni Umferðin hófst í Ásgerði í Garðabæ á miðvikudagskvöldið, en þar fór Stjarnan létt með Keflavík, sigraði 29:16 eftir 15:8 í leikhléi. Keflvíkingar voru alveg heillum horfnir, því auk marg- nefndra utanfara vantaði í liðið bæði Björn Blöndal og Grétar Magnússon fyrirliða. Stjörnu- menn skemmtu sér því vel og sérstaklega Eggert Isdal, sem nú skoraði í annað sinn í röð 10 mörk í leik, og einnig var Viðar Símon- arson léttur á sér með 7 mörk og alls konar töfrabrögð. Mörk Stjörnunnar: Birgir Bragason 1, Eggert ísdal 10, Hilm- ar Ragnarsson 4, Kristján Sigur- geirsson 1, Logi Ólason 4, Magnús Andrésson 2 og Viðar Símonarson 7. Hjaltalín Magnússon, sem hefur verið að koma til í allan vetur án þess að ná sér upp nema brot og brot úr leik þar til nú. Þá var vörnin að vanda nokkuð góð og markvarsla Sævars Magnússonar með besta móti. Breiðabliksmenn verða hins vegar að horfast í augu við það að þeir hafa nú ekki tvo mikilvæga leiki í röð sýnt þá meistarayfir- vegun, sem einkenndi leik þeirra til skamms tíma. Nú voru þeir óskiljanlega bráðir í sókn og vörnin eins og þeir væru í burt- reiðum á tréhestum. Markvarslan var svo eftir þessu og ekki bætti úr skák að Heimir Guðmundsson markvörður, sem lengst af stóð í markinu, lét skapið hlaupa með sig í gönur og truflaði vörnina fremur en að telja í hana baráttu- son 2, Björgvin Hjörleifsson 1, Einar Arngrímsson 2, Kristján Aðalsteinsson 5, Ólafur "Sigurðs- son 2 og Vignir Hallgrímsson 8. Mörk Oðins: Frosti Sæmunds- son 4, Guðmundur Baldursson 4, Gunnlaugur Jónsson 6, Gunnlaug- ur Kristfinnsson 2, Haukur Ás- mundsson 1, Jakob Þórarinsson 3 og Óskar Bjartmarz 8. Slagur á Nesinu Það varð rammislagur á Sel- tjarnarnesi á sunnudagunn þegar Gróttumenn tóku á móti Selfyss- ingum. Einu sinni enn voru dóm- aramálin í ólestri, en það virðast nú vera orðin álög á Selfyssingum að lenda í því. Liðin sömdu þó um síðir um tilkallaða dómara, sem áttu svo fullt í fangi að stjórna leiknum, sem var með þeim harð- ari þegar á leið, enda leikmönnum sýnd mikil linkind framan af. Gróttumenn leiddu lengst af en mjótt var á mununum, 16:13 í leikhléi og síðast 26:24, en þá var líka búið að reka þjálfara Selfyss- inga, Guðmund Jónsson, af staðn- um fyrir Orðaskak og útiloka markvörðinn Örn Guðmundsson fyrir það fyrst að sparka knettin- um og síðan að gera óviðeigandi athugasemd. Raunar var allt Sel- fossliðið búið að fá a.m.k. tvær áminningar á línuna, en það sem eftir var af því fékk þó að ljúka leiknum. Selfyssingar sýndu nú miklu meiri baráttu en í fyrri leikjum sínum í vetur, en gátu því miður ekki hamið gremju sína yfir vafasamri dómgæslu. Ög Gróttu- menn hirtu stigin, áttu a.m.k. annað þeirra fyllilega skilið, en óneitanlega féllu sumir dómar þeim í haginn frekar en austan- mönnum einkum á kafla í seinni hálfleiknum, hvort sem það réði úrslitum eður ei. Viðar Símonarson sem þjálfaði lið Stjörnunnar í fyrra er það lék í 2. deild, leikur nú með liðinu í 3. deild. Viðar lék áður með Haukum og svo FH, og hefur hann 103 landsleiki að baki. Mörk Keflavíkur: Björgvin Björgvinsson 5, Jón Magnússon 1, Jón Ólsen 4, Kári Gunnlaugsson 1, Magnús Garðarsson 1, Sverrir Guðlaugsson 1, Örnólfur Oddsson 3. Skagamenn brutu gamla hefð Það er áralöng hefð að láta Akranes og Breiðablik leika fyrsta leikinn í deildinni, en hingað til hefur þessi upphafsleikur farið fram á Skaganum. Þessu var af einhverjum óskýrðum ástæðum víxlað núna og því mættust þessi lið uppfrá loks í fyrsta leik seinni umferðar. En Skagamenn sáu sér líka leik á borði og brutu einnig þá hefð að afhenda Beiðabliks- mönnum bæði stigin þar. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu toppliðið og það nokkuð örugglega, svo að nú skilur aðeins eitt stig þessi tvö lið og raunar getur Stjarnan komist í sömu spor. Því er skemmst frá að segja, að af hálfu Breiðabliks var þessi leikur nákvæmt afrit af næsta leik á undan við Óðin, nema hvað niðurlagið komst nú ekki fyrir á blaðinu. Um það sá Akranesliðið. Framan af fyrri hálfleik var jafnt, upp í 7:7, en síðan tóku Skaga- menn af skarið og gerðu 6 mörk gegn 1 svo að í leikhléi stóð 13:8. Breiðabliksmenn minnkuðu mun- inn af og til í seinni hálfleik en náðu samt aldrei jafnvægi og endirinn varð 23:19. Fyrsti ósigur Breiðabliks var staðreynd. hug. Sem sagt allt á hælunum, og liðið kórónaði svo allt saman með því að misnota 6 vítaköst! Þetta eru furðuleg hamskipti. Mörk Akraness: Daði Halliórs- son 3, Guðjón Engilbertsscn 2, Haukur Sigurðsson 7, Jón Hj. Magnússon 3, Kristján Hanni- balsson 4, Sigurður Halldórsson 2 og Þórður Elíasson 2. Mörk Breiðabliks: Brynjar Björnsson 3, Hallvarður Sigurðs- son 4, Hannes Eyvindsson 1, Hörður Már Kristjánsson 4, Kristján Halldórsson 5 og Sigur- jón Rannversson 2. Dómararnir Brynjar Kvaran og Pétur Guðmundsson stóðu sig með prýði. Óðinn sigraði Dalvík Óðinsmenn héldu til Dalvíkur á laugardaginn og komu aftur sam- dægurs með bæði stigin. Dalvík- inga vantaði enn markvörðinn Sveinbjörn Hjörleifsson, eða hálft liðið eins og þeir segja þar, og Óðinsmenn gengu á lagið með því að komast fljótlega í 10 marka forystu. Síðan seig saman með liðunum, 11:17 í leikhléi og 22:28 í lokin, en sigur Óðins var alltaf öruggur. Mörk Dalvíkur: Aðalsteinn Gottskálksson 2, Bjórn Friðþjófs- Jón Hjaltalín stórskytta og fyrrum landsliðsmaður leikur nú með og þjálfar lið Akraness í 3. deildinni í handknattleik. islandsmtllð 3. delld Fer Tahamata til Man. Utd? MANCHESTER Utd. hefur reynst sterkara lið í vetur en flesta óraði fyrir og veitir nú Liverpool harða keppni á toppi 1. deildar í Englandi. En fram- kvæmdastjórinn Dave Sexton er ekki búinn að segja sitt síðasta orð á leikmannamarkaðinum. Það er staða vinstriútherja sem pirrar hann og er það mál manna, að hann sé ekki ánægður með Mick Thomas og hafi í hyggju að selja hann um leið og hann hefur fengið mann í stað- inn. Sexton bauð stóra upphæð í Dave Thomas hjá Everton, sem kaus að fara frekar til Úlfanna. Síðan var tékkneski útherjinn Marian Masny orðaður við félag- ið, þá De Olivera frá Brasilíu. Fyrir skömmu var Sexton síðan mættur i Amsterdam á leikvöll Ajax og horfði þar hugfanginn á Simon Tahamata, Mólúkkann smávaxna sem heillað hefur flesta sem séð hafa til hans. Átti Sexton siðan viðræður við for- ráðamenn Ajax, en til þessa veit enginn hvað bar á góma. Mörk Gróttu: Bragi Björgvins- son 3, Gunnar Páll Þórisson 2, Hjörtur Hjartarson 3, Jóhann Geir Benjamínsson 3, Jóhann Pét- ursson 8, Reynir Erlingsson 3, Sighvatur Bjarnason 2 og Sverrir Þór Sverrisson 2. Handknaltlelkur Mörk Selfoss: Ámundi Sig- mundsson 2, Gísli Ágústsson 2, Guðjón Einarsson 2, Jón Birgir Kristjánsson 1, Kári Jónsson 3, Pétur Einarsson 4, Þórarinn Ás- geirsson 7 og Þórður Tyrfingsson 3. Staðan í deildinni Breiðablik Akranes Óðinn Stjarnan Keflavík Grótta Dalvík Selfoss 8 611 8 521 8 43 1 7 421 313 215 106 007 217:159 176:154 192:169 170:135 145:140 179:200 145:187 124:206 13 12 11 10 7 5 2 0 Næstu leikir Ekkert verður leikið í þessari deild fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku og um aðra helgi, en í þeirri umferð leikur efri helming- ur liðanna við neðri helminginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.