Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 2

Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980 Ekki fleiri íslend- ingar til hjálpar- starfa í Thailandi? LITLAR fréttir hafa borizt af íslenzka hjúkrunarfólkinu, sem nú dvelur við hjálparstarf á vegum Rauóa krossins í Thai- landi. Eggert Asgeirsson sagði í gær, að hann Jiefði þó fregnað, að þeir sem komið hefðu í búðirnar, þar sem þjónusta er veitt 700 þúsund manns, létu mjög vel af starfi hópanna frá Norðurlönd- um. Innan búðanna væri skipu- iag yfirleitt mjög gott, en við ýmsa erfiðleika að glima utan þeirra og skipulag stjórnvalda lítið. Hann sagði að fyrirhugað hefði verið að senda annan hóp í byrjun janúar og þriðja hópinn jafnvel síðar. Frestað hefði verið að senda hóp númer 2 og e.t.v. yrðu ekki fleiri íslendingar sendir til hjálp- arstarfa í Thailandi. Ef fleiri Islendingar verða sendir verður það varla fyrr en í byrjun marz, en þá lýkur þeim tíma, sem fyrsti hópurinn skuldbatt sig til að vera í Thailandi. Andófsmenn í ís- lenzkum lopapeysmn Á MYNDUM, sem birst hafa af andófsmanninum Andrei Sakh- arov, hefur hann greinilega verið í íslenzkri lopapeysu. Moskvufarar hafa líka veitt því athygli að fleiri andófsmenn ganga í íslenzkum lopapeysum. Hafa jafnvel sagt í hálfkæringi, að vissara sé að vera ekki í slíkum flíkum á götum Moskvu- borgar, svo maður verði ekki tckinn fyrir andófsmann. Peysa Sakharovs er raunar prjónuð á íslandi, af Soffíu tengdamóður Árna Bergmanns, ritstjóra Þjóðviljans, en þessi sovézka kona býr hér hjá dóttur sinni og tengdasyni. Og hún situr gjarnan og prjónar lopa- peysur, sem hún hefur sent vinum sínum, þar á meðal fólki sem er andófsmenn í Moskvu. Vonandi hafa þeir af því nokkra hlýju í kaldri veröld. Meðfylgjandi mynd sýnir Sakharov í íslenzku lopapeys- unni sinni. Iris Murdoch til Islands BRESKI rithöfundurinn Iris Mur- doch mun dveljast hér á landi 8. til 12. apríl na'.stkomandi og mun hún ásamt eiginmanni sínum John Bayl- ey prófessor flytja erindi í Háskóla íslands á vegum heimspekideildar. Iris Murdoch er um þessar mundir í hópi viðurkenndustu skáldsagna- höfunda Breta og hlaut síðasta stórverk hennar The Sea the Sea mikið lof gagnrýnenda. Hingað til lands kemur hún fyrir milligöngu Kenneth East sendiherra Bretlands. Auk ritstarfa hefur Iris Murdoch kennt heimspeki við háskólann í Oxford og mun flytja fyrirlestur um það efni hér á landi. John Bayley er prófessor í bókmenntum við Ox- ford-háskóla og mun hann fjalla um nútíma skáldsagnagerð í fyrirlestri sínum hér og þess er að vænta, að Iris Murdoch taki þátt í umræðum um það efni að fyrirlestrinum lokn- um. Mínkaskínn í háu verði AÐALSALAN á minkaskinnum frá íslandi verður að venju í London í lok frebrúarmánaðar og verða í vetur seld um 21 þúsund skinn en það er sama magn og selt var í febrúar á síðasta ári. Þá fengust um 260 þúsund sterlingspund fyrir skinnin, en nú má reikna með allt að 15% hækkun i pundum, haldi sú þróun áfram á mark- aðnum sem verið hefur í vetur, en verð á skinnum hefur farið hækkandi. Samkvæmt þessum tölum má því reikna með að hátt í 300 milljónir króna fáist fyrir minkaskinnin. íslenzku skinnin eru boðin upp hjá Hudson Bay í London og sagði Skúli Skúlason, umboðs- maður fyrirtækisins, í gær að fyllsta ástæða væri til bjartsýni með uppboðið í lok febrúar. Skinnin héðan eru seld með skinnum frá Norðurlöndunum, einkum Finnlandi, Bretlandseyj- um, Hollandi og Rússlandi. Upp- boðið stendur í um viku og skipta milljónir loðdýraskinna um eigendur þann tíma. Svart- minkur er um 70% íslenzku minkaskinnanna, pastelminkur um 20% og 10% af öðrum tegundum. Viðræðuaðilar um það leyti, sem viðræðufundur ASI og VSÍ hófst í gær í húsakynnum hins síðarnefnda. Davíð Scheving Thorsteinsson og Bencdikt Davíðsson ræðast við, en í bakgrunni má sjá þá Karl Steinar Guðnason, Oskar Vigfússon og Magnús Geirsson. ASÍ og VSÍ Ræddu sameiginleg hags- mimamál í félagsmálakröfum ANNAR viðræðufundur Alþýðu- sambands íslands og Vinnuveit- endasambands íslands var hald- inn í gær og stóð í um það bil eina klukkustund. í fundarlok var ákveðið að aðilar hittust að nýju til viðræðna næstkomandi miðvikudag klukkan 15. Fundur- inn í gær var haldinn í húsa- kynnum VSI, en hinn næsti verður haldinn í húsakynnum ASÍ. Samkvæmt upplýsingum Hauks Más Haraldssonar, blaða- fulltrúa ASÍ var á fundinum í gær rætt um ákveðin atriði í félagsmálakröfum ASÍ, einkum þau er fela í sér sameiginlega hagsmuni beggja aðila. Þá var rætt um það, hvort skipa ætti í hópa eða undirnefndir til þess að fjalla um ákveðna málaflokka og mun ætlunin að taka afstöðu til þess á næsta fundi. Ósamið um verð á loðnuhrognunum UM 3500 lestir af loðnuhrognum voru seldar til Japans á siðasta ári fyrir um 2.7 milljarða íslenzkra króna. Þá fóru um 8850 lestir af frystri loðnu til Japans í fyrra og var söluverðið tæplega 2.7 milljarðar. Nú eru ýmsar blikur á lofti í þessum málum og hefur SH samið um sölu á 1500 lestum af loðnu- hrognum, en verð hefur enn ekki verið ákveðið. Hugmyndir Japana um verð eru undir því, sem fékkst fyrir þessar afurðir í fyrravetur og lægri en SH hefur getað fellt sig við. Þá hefur verið samið um 6 þúsund lestir af frystri loðnu og fæst fyrir hana sama verð og í fyrra. Möguleikar munu vera á að selja meira af frystri loðnu, ení samningum var reynt að miða við afkastagetu frystihúsa SH. Að sögn Hjalta Einarssonar framkvæmdastjóra SH eru nú miklar birgðir af loðnuhrognum í Japan, en ársneyzlan er talin vera um 3000 tonn. Eins og áður sagði seldu Islendingar einir um 3500 lestir af loðnuhrognum til Japans í fyrra, en Norðmenn, Rússar og Kanadamenn eru einnig inni á þessum markaði. —Það er greinilegt að loðnu- hrognin vega miklu minna á vertíðinni í vetur en í fyrra, sagði Hjalti. — Markaðurinn í Japan getur hins vegar tekið meira af frystri loðnu en samið hefur verið um, 6000 tonn eru í raun aðeins tala, sem getur hækkað eða lækk- að eftir því hvernig vertíðin þróast. Vopnuðust þegar þeir sáu varðskipið Fyrir um það bil tveimur árum gcrðist það, að íslenskt varðskip, sem siglt hafði út að 200 mílunum út af Reykjanesi, rakst á sovéskt skip 20 mílur undan landi út af Þorlákshöfn, þegar varðskipið var aftur á leið til lands. Varðskipsmenn gáfu sovéska skipinu, sem hafði engan fána uppi og ekkert, er gaf til kynna heiti þess eða skráningarnúmer, merki um, að þeir vildu vita um ferðir þess og athafnir. Brugðust skipverjar á sovéska skipinu þá fyrst þannig við, að þeir drógu upp verslunarfána Sovétríkj- anna. Þegar þeir sáu, að varð- skipið nálgaðist enn, var sá fáni þó tekinn niður og í stað hans var gunnfáni sovéska flotans dreginn að hún og á skipið var fest plata með nafni þess og númeri. Er varðskipsmenn sáu þetta könnuðu þeir, hvernig skipið var skráð og kom þá í ljós að það tilheyrði sovéska flotan- um. Við svo búið var ljóst, að ekki væri unnt að grípa til frekari aðgerða gegn skipinu, þar sem það var utan eiginlegrar landhelgi íslands og herskip njóta úrlendisréttar eins og er- lend sendiráð. Ofangreind frásögn er byggð á ræðu, sem Jón Magnússon, lög- fræðingur Landhelgisgæslunn- ar, flutti á fundi, sem Varðberg, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, hélt s.l. laugardag. í máli Jóns, sem var um borð í varðskipinu, þegar þessi atburður gerðist, kom einnig fram, að varðskipsmenn- irnir sáu vopnaða menn á þilfari sovéska skipsins, sem voru greinilega til þess búnir að verja mönnum uppgöngu, hefði hún verið reynd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.