Morgunblaðið - 24.01.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980
27
Búskapur:
Veturinn var mjög gjafafrekur
þótt snjóléttur væri. Fóöurskortur
var því orðinn, þó ekki alvarlegur
nema þá í fáum tilfellum, en mun
þó hafa skapað afurðarýrnun.
Afurðarýrnun mun því hafa orðið
hjá flestum allveruleg og fóður-
kostnaður mikill. Betur mun hafa
gengið með kýrpening, en fóður-
kostnaður öllu meiri. Margt lamb-
ið mun hafa farið um sauðburð,
meira en venjulega. Afurðarýrnun
í heild mun því hjá flestum hafa
orðið veruleg. Heyskapur varð
heldur lítill, en víðast gott hey.
Varla mun því verða að ræða um
framboð á heyjum, þegar á út-
mánuði kemur, þótt tíðin hafi
verið sérlega góð, en nú er tíminn
til að spara við sauðfé ef eitthvað
er hægt að spara. Búsafurðir
ársins hér eru ekkert afleitar, en á
þeim mikill kostnaður. Bústofni
mun hafa fækkað verulega í sveit-
inni, svo hætt er við þegar allt
kemur saman að nettótekjurnar
verði rýrar. Enginn hefir hætt
búskap fyrir það að harðnað hefir
á dalnum á árinu, „sauðþráinu er
viðbrugðið".
Byggingar:
Tvö einbýlishús eru í byggingu,
sem reikna má að kosti 20—30
milljónir hvert. Eitt 25 kúa fjós er
í byggingu með öllu tilheyrandi,
og má reikna með að það kosti um
30 milljónir, og svo smærri bygg-
ingar, bílskúrar og þess háttar.
Flest er þetta orðið fokhelt og
sumt meira en það.
Fiskeldi:
Aðeins er að glæðast áhugi fyrir
fiskeldi hér í sveitinni. Á Rauða-
sandi eru ár orðnar kvikar af
laxfiski, silungur verið settur í
smávötn og gefist vel. Magnús
Olafsson Vesturbotni er að um-
róta sjávarfjöru sinni í Vestur-
botni með það fyrir augum að fara
í sjávareldi laxfiska í stórum stíl,
en landsfeður vorir og stjórnendur
fjármagns virðast ekki ennþá vera
búnir að fá verulegan áhuga á
fiskirækt af neinni tegund, því
miður, og því erfitt með fjármagn
til þeirra hluta, en bændafólk hér
í sveit virðist ekki ætla að verða
soðningarlaust, þótt hefðbundnum
soðfiski úr sjó verði útrýmt, að því
er ætla má eftir aðgerðum.
Mannlíf:
Lionsklúbbur Patreksfjarðar
fer með gamla fólkið á Patreks-
firði í smá ferðalag árlega. Á liðnu
sumri var farið í ökuferð út í
Kollsvík og drukkið kaffi í Fagra-
hvammi í bakaleiðinni, sem klúbb-
urinn bauð til, og bauð einnig
okkur gamla fólkinu úr Rauða-
sandshreppi til kaffidrykkjunnar
sem var vel til fundið, því margt
gamla fólkið á Patreksfirði er úr
Rauðasandshreppi eða tengt hon-
um, svo þarna urðu fagnaðarfund-
ir meðal kaffigesta og mikil
ánægja. Þannig getur smá hugul-
semi ásamt réttri hugsun á rétt-
um tíma skapað fegurra mannlíf,
meira af því.
Eg leyfi mér að senda Lionsklú-
bbnum og öllum hópnum bestu
áramótaóskir og þakka fyrir
síðast.
Félagslíf:
Lítið er um skemmtanalíf hér í
sveitinni, það er aðallega sótt til
Patreksfjarðar. Stundum kemur
fólk þó saman við ýmis tækifæri,
en það er aðallega miðað við
heimafólk. Fólksfjöldi helst svip-
aður ár frá ári, um 120 manns,
fólk eldist og fellur frá, og eitt og
eitt barn fæðist, það er gangur
lífsins. Yfirleitt má segja að fólk
hafi það gott, og nóg að bíta og
brenna, en síðastliðið ár, mun þó
mörgum verða fjárhagslega erfitt,
og skipta harðindi veðráttunnar
þar mjög miklu máli, og ekki síður
hvernig tekið verður á málinu
endanlega af hendi stjórnvalda,
það getur ráðið úrslitum um að
fara eða vera.
Gleðilegt nýtt ár!
Látrum á þrettándanum 1980,
Þórður Jónsson
Nýlegt íslenzkt
leikrit æft á
Hvammstanga
UNDANFARNAR vikur hafa
staðið yfir æfingar á leikritinu
„Sunnefa og sonur ráðsmannsins"
hjá Leikflokki Hvammstanga.
Höfundur leikritsins er Rögn-
valdur Erlingsson. Var það frum-
flutt á Egilsstöðum síðast liðið
vor, og er því nýtt í safn íslenskra
leikrita.
Leikritið fjallar um svokallað
„Sunnefumál" sem upp kom aust-
ur á Fjörðum árið 1739 og tók allt
yfir til ársins 1757. Einnig má
segja að leikritið fjalli öðrum
þræði um hvernig embættismenn
þess tíma gátu ráðskast með og
ráðið örlögum fátæklinga og
lítilmagna.
í leikritinu eru 14 hlutverk sem
11 leikarar fara með. Leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson. Frumsýn-
ing er fyrirhuguð á Hvammstanga
kringum 20. febrúar. Síðan verður
farið í leikferð um nágrannahéruð.
222 fórust
er áhorfenda-
pallar hrundu
Sincelejo, Kólumbíu, 22. janúar. AP.
TALA látinna eftir slysið, sem
varð er áhorfendapallar við
nautaatshring hrundu. er nú
komin upp í 222, og enn eru 200
manns lífshættulega slasaðir á
sjúkrahúsi. Rúmlega 500
manns slösuðust þegar atvikið
átti sér stað á nautaatshátíð á
sunnudag.
Talsmaður skipuleggjenda há-
tíðarinnar sagði í dag, að pall-
arnir hefðu ekki þolað alla þá
áhorfendur, sem þar voru sam-
ankomnir, alltof mörgum hefði
verið hleypt inn á þá. Tals-
maðurinn sagði að mikil rigning
ætti einnig sinn þátt í slysinu
þar sem jörðin hefði verið gljúp
og látið undan þunganum.
Verö: Ca. 3.130. þús
Verö: Ca. 3.495. þús
Verö: Ca. 5.320. þus
Verö: Ca. 3.750. þus
Verö:Ca. 3.570. þus
Síðastliðið ár og það sem
af er þessu ári, er LADA
mest seldi bíllinn.
Það er vegna þess að hann
er á mjög hagstæðu verði, og
ekki síst, að hann er
hannaður fyrir vegi sem okkar
Nú eru allir LADA bilar með
höfuðpúðum, viðvörun-
arljósum ofl. ofl.
LADA station er hægt að fá með 1200 sm:
eða 1500 sm3 vél.
BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR
Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Söludeild sími 312 36
er mest seldi bíllinrí’
Góöir greiösluskilmálar