Morgunblaðið - 15.02.1980, Qupperneq 4
4
® \
Tilallra
heimshoraa
meðSAS
SAS flýgur alla þriöjudaga frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
og þaðan áfram til 100 borga í 49
löndum.
Frekari upplýsingar eru veittar
hjá ferðaskrifstofunum eða
x/x
Söluskrifstofa
Laugavegur 3
Sími 21199/22299
Aætlun:
SK 296: brottf. Reykjavík 18.05
komut. Kaupmannahöfn 21.55.
SK 295: brottf. Kaupmannahöfn 09.50.
komut. Reykjavík 11.50.
Partners'
Ný
sending
Dömu- og
herratréklossar.
Nýjar geröir.
Póstsandum
VERZLUNtN
QEíSiP?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
ómar Ragnarsson
fréttamaður.
Omar með
Kastljós
í kvöld
Kastljós er á dagskrá
sjónvarps í kvöld, eins og
venja er til á föstudags-
kvöldum. Þátturinn hefst
klukkan 21.05, og er Ómar
Ragnarsson fréttamaður
umsjónarmaður hans.
Ekki var unnt að fá
upplýsingar um efni þátt-
arins í gær, svo væntan-
lega ætlar Ómar að bjóða
upp á eitthvað nýtt og
skemmtilegt efni að þessu
sinni.
Prúöu leikararnir í kvöld:
Látbragðsleikarar koma í heimsókn
Prúðu leikararnir eru á
dagskrá sjónvarps í kvöld, og
hefst þáttur þeirra klukkan
20.40, eða þegar að loknum
fréttum, auglýsingum og lestri
dagskrár kvöldsins.
Þýðandi þáttarins er eins og
áður Þrándur Thoroddsen, sem
svo vel hefur fært mál hinna
prúðu leikara yfir á ástkæra
ylhýra málið.
Eins og venjulega fá leikar-
arnir þekkt fólk i heimsókn, að
þessu sinni eru það látbragðs-
Íeikararnir Shields og Yarnell.
Litli barnatiminn í útvarpi í dag kemur frá Akureyri. og er hann í
umsjá Heiðdísar Norðfjörð. Myndin er frá höfuðstað Norðurlands,
Akureyri.
Útvarp í dag klukkan 16.20:
Bamatími frá Akureyri
Litli barnatíminn er á
dagskrá útvarps klukkan
16.20 í dag, og er hann í
umsjá Heiðdísar Norð-
fjörð á Akureyri. Þáttur-
inn er raunar fullunnin
þar nyrðra, en aðstaða til
þess að taka upp þætti þar
hefur nýlega verið stór-
bætt. Tæknimaður er
Björgvin Júníusson.
Heiðdís sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær,
að í þættinum yrði eink-
um fjallað um skíðaferðir.
Tveir ungir drengir koma
í heimsókn, þeir Jóhann
Valdimar og Halldór, en
þeir eru sjö og átta ára
gamlir. Verður rætt við
þá um skíði og skíðaferð-
ir, og einnig verðurdesið
úr bók eftir Jennu og
Hreiðar, þar sem segir frá
skíðaferð skólabarna þar
sem ýmsar hættur geta
verið á næsta leiti.
Þá heldur Heiðdís
áfram að lesa sögu sína af
drengnum sem vildi eign-
ast tunglið, en lestur sög-
unnar hófst í síðasta
þætti. Þátturinn að þessu
sinni nefnist A skíðum
skemmti ég mér, en nafn-
ið er sótt í texta af plötu
með Hljómsveit Ingimars
Eydal bg Helenu Eyjólfs-
dóttur sem margir munu
kannast við.
Heiðdís sagði í spjalli
við Morgunblaðið að hún
yrði með þessa þætti eitt-
hvað áfram, og hefði hún
mjög gaman af að fást við
þetta verkefni. Hún sagð-
ist hins vegar hafa mikið
að gera, því hún vinnur
fulla vinnu á Elliheimil-
inu á Akureyri, auk þess
sem fimm manns eru í
heimili.
Útvarp RevKjavíK
FÖSTUDKGUR
15. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 „Mér eru fornu minnin
kær“. Einar Kristjánsson rit-
höfundur frá Hermundar-
felli sér um þáttinn.
11.00 Morguntónleikar. Sinfón-
íuhljómsveit íslands leikur
balletttónlist úr „Nýársnótt-
inni“ eftir Árna Björnsson;
Páll P. Pálsson stj. / Artur
Rubinstein og filharmoníu-
sveitin í ísrael leika Píanó-
konsert nr. 1 í d-moll eftir
Johannes Brahms; Zubin
Metha stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Léttklassísk
tónlist og lög úr ýmsum
áttum.
14.30Miðdegissagan: „Gatan“
eftir Ivar Lo-Johansson.
Gunnar Benediktsson þýddi.
Halldór Gunnarsson les (30).
15.00 Popp. Vignir Sveinsson
kynnir.
15.30 Lesin dagskrá næstu
viku
SÍÐDEGIÐ
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Litli barnatíminn.
Heiðdís Norðfjörð stjórnar
barnatíma á Akureyri.
16.40Útvarpssaga barnanna.
„Ekki hrynur heimurin“ eft-
ir Judy Blume, Guðbjörg
Þórisdóttir les þýðingu sína
(8).
17.00 Síðdegistónleikar. Enska
kammersveitin leikur Seren-
öðu nr. 7 í D-dúr (K250)
„Haffner-serenöðuna“ eftir
Mozart; Pinchas Zukerman
leikur með á fiðlu og stjórn-
ar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
KVÖLDID
19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Til-
kynningar.
20.00 Sinfónískir tónleikar,
Arthur Grumiaux og Con-
certebouwhljómsveitin í
Amsterdam leika fiðiukon-
sert í D-dúr op. 61 eftir
Ludwig van Beethoven; Col-
in Davis stj.
20.45 Kvöldvaka
a. Einsöngur: Jóhann Kon-
ráðsson syngur íslenzk lög,
Guðrún Kristinsdóttir leikur
á píanó.
b. Brot úr sjóferðasögu
Austur-Landeyja; — annar
þáttur. Magnús Finnboga-
son á Lágafelli talar við
Magnús Jónsson frá Hólma-
hjáleigu um sjósókn frá
Landeyjasandi.
c. Kvæði eftir Einar Bene-
diktsson. Úlfar Þorsteinsson
les.
d. Papeyjarpistill. Rósa
Gisladóttir frá Krossagerði á
Berufjarðarströnd flytur
eigin frásögn.
e. Kórsöngur: Telpnakór
Hlíðaskóla syngur. Söng-
stjóri: Guðrún Þorsteinsdótt-
ir. Þóra Steingrímsdóttir
leikur á píanó.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur passíusálma. (11).
22.40 Kvöldsagan: „Úr fylgsn-
um fyrri aldar“ eftir Friðrik
Eggerz, Gils Guðmundsson
Ies (7).
23.00 Áfangar. Umsjónar-
menn: Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
15. febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og
dagskrá
20.40 Prúðu leikararnir
Gestir þáttarins eru lát-
bragðsleikararnir Shields
og Yarnell. Þýðandi Þránd-
ur Thoroddsen.
21.05 Kastljós. Þáttur um
innlend málefni. Umsjónar-
maður Omar Ragnarsson
fréttamaður.
22.05 Feigðarspá. Ný, frönsk
sjónvarpskvikmynd. Aðal-
hiutverk Jean-CIaude Carr-
iere. Frægur skurðlæknir
er á höttunum eftir hjarta
handa fárveikum vini
í sínum. Af tiiviljun fær
hann í hendur myndavéi
sem skilar myndunum fuil-
gerðum, en brátt kemst
læknirinn að því að vélin er
gædd óvenjulegum eigin-
ieikum. Þýðandi Soffía
Kjaran.
23.35 Dagskrárlok