Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980
23
Einar Sigurðsson
vélstjóri - Minning
Fæddur 24. mars 1918.
Dáinn 8. febrúar 1980.
Einar Sigurðsson fæddist að
Þinghól í Hvolshreppi Rangár-
vallasýslu 24. mars 1918, sonur
Sigurðar Sveinssonar bónda þar
og konu hans, Jóhönnu Jónsdótt-
ur. Unglingsár sín allt til tvítugs
dvelst Einar á æskuheimili sínu
við landbúnaðarstörf, en flyst þá
með móður sinni til Vestmanna-
eyja, sem þá var orðin ekkja fyrir
tveimur árum.
í Vestmannaeyjum byrjar Ein-
ar að starfa við skipasmíðar, enda
stóð hugur hans til þess að læra
þá iðn, og hefði þar notið sín svo
hagur sem hann var til allrar
smíði.
En það fór svo að Einar réðst í
skipsrúm hjá mági sínum Binna í
Gröf, og má segja að með honum
hafi Einar verið vélstjóri mestan
hluta starfsævinnar eða alls 27 ár
af 30 árum sem hann var til sjós.
Rómuð var samvinna Einars og
Binna og gagnkvæmt var með
þeim, að hvorum um sig þótti hinn
ómissandi í skipshöfninni, og full-
yrða má að Einar var einn traust-
asti hlekkurinn í áhöfn þjóðsagna-
hetjunnar Binna í Gröf og átti
sinn stóra hlut í að gera garðinn
frægan.
Einar kvæntist þann 9. des. 1945
Rannveigu Konráðsdóttur veit-
ingamanns á ísafirði. Þau hafa
eignast fjóra syni og eina dóttur,
Þorbjörgu, sem gift er Jóni Ólafs-
syni endurskoðana og eiga þau
þrjú börn. Arnar kvæntist Þor-
björgu Einarsdóttur og á eina
dóttur. Sigurjón kvæntist Önnu
Sverrisdóttir og á tvö börn. Konr-
áð kvæntist Unni Þórarinsdóttur
og eiga þau eina dóttur. Jóhann er
yngstur, 18 ára, enn í heimahúsum
og er að læra útvarpsvirkjun.
Einar hefir lengst af átt heima í
Vestmannaeyjum, en dvaldi nokk-
ur ár um 1950 í Reykjavík, og var
þá meðal annars vélstjóri á Jóni
Valgeir með Magnúsi Grímssyni,
er rómaði hver afburða vélstjóri
Einar var og úrræðagóður ef
einhvað á bjátaði. Um 1954 flyst
Einar aftur til Eyja og er eftir það
með Binna á Gullborginni og
dvaldi í Eyjum allt til þess að
gosið varð 1973, en þá misstu þau
hús sitt undir hraun og fluttu til
Reykjavíkur.
Einar keypti íbúð að Hverfis-
götu 106, þar sem þau hafa átt
heima síðan. Hér í Reykjavík hefir
Einar starfað hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar og var þar allt
til dauðadags.
Einar Sigurðsson var sérstak-
lega dagfarsprúður maður og átti
hvers manns hug sem honum
kynntist, hann var ekki mann-
blendinn en glaðsinna og hrókur
alls fagnaðar í góðra vina hópi.
Heimilisfaðir var hann alveg ein-
stakur og lét sér annt um börn og
skyldmenni og sár mun söknuður
barnabarnanna, sem nú hafa
misst langt um aldur fram afann
sem alltaf átti tíma fyrir þau og
tilhlökkun var að heimsækja
hvenær sem tækifæri gafst.
Sviplegt fráfall Einars Sigurðs-
sonar kemur okkur vinum og
vandamönnum sem reiðarslag, en
enginn má sköpum renna. Eftir
lifir minningin um góðan dreng,
sem ekki mátti vamm sitt vita í
neinum hlut.
Ég sendi þér, Veiga, og börnun-
um innilegustu samúðarkveðjur.
M. Konráðsson
í Reykjavík. Fyrsta barn þeirra,
stúlku, misstu þau nýfædda,
Kristinn drukknaði aðeins 27 ára
frá konu og tveimur börnum,
Ólafur Einar, veðurfræðingur, lést
16. sept. 1974 frá konu og þremur
börnum. Varð það mikið áfall
fyrir Ólaf, því þar hafði hann átt
sitt heimili í mörg ár en Þórey
tengdadóttir hans hefur reynst
honum sem besta dóttir fram á
síðustu stund og á hún miklar
þakkir skilið fyrir. Þrjú stjúpbörn
átti Ólafur einnig, Hannibal, Sól-
veigu og Guðmund, og lifir Hanni-
bal einn eftir af þeim.
Óafur ólst upp í líflegu heimili í
Háholti þar sem hljómlistin var
höfð í hávegum, heimilisfaðirinn
stjórnaði karlakór á Nesinu, Ólaf-
ur spilaði á böllunum þar og hin
systkinin, 3 systur og 2 bræður,
spiluðu öll á hljóðfæri og voru
söngelsk mjög. Ég minnist fyrst
Óla frænda, móðurbróður míns,
vestur í Háholti þar sem hann var
að reyna að kenna mér, smástelpu,
að spila á orgel og sló hann á
puttana á mér með blýanti þegar
ég sló feilnótu. Það má með sanni
segja að Óli lifði og hrærðist í
músíkinni, aldrei kom hann svo á
heimili foreldra minna að hann
settist ekki við píanóið og spilaði.
Minnisstæðast er mér, þegar hann
spilaði Adagio-kaflann ú Pathet-
ique-sónötu Beethovens, sem var
eitt af hans uppáhaldsverkum og
spilaði hann það fram á síðustu ár
eða þar til fingur hans krepptust
svo af gigt að hann gat ekki lengur
spilað. Óli hafði mikla ánægju af
að ferðast og hitta fólk enda fékk
hann gott tækifæri til þess, þai;
sem dóttir hans Hulda og fjöl-
skylda hennar voru búsett erlend-
is, fyrst í Þýskalandi síðan í
Bandaríkjunum og hafði hún
mikla ánægju af að ferðast með
pabba sínum og kanna nýjar
slóðir.
Nú er þessa heims ferðalagi Óla
frænda lokið og hann hefur ýtt
bátnum sínu úr vör og sett stefnu
á nýtt framtíðarland. Fari hann í
friði. Með orðum skáldsins kveð ég
hann að sinni:
Skuggar sundrast, sólir rísa,
sortna og hverfa í geiminn auða.
Skammt er milli skers og báru,
skammt er milli lífs og dauða.
Hver er sinnar sólar smiður,
sannleiks fegurð kynninganna,
verður ávallt efni í grunninn
undir hallir minninganna.
Börnum, tengdabörnum og
barnabörnum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Hjördís Einarsdóttir.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoðum viö val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
PARKER HANNIFIN
Char-Lynrf
Öryggislokar
Stjórnlokar
Vökvatjakkar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
RADIAL
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-ÞJÓNUSTA
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
[TURDLLA
Tannhjóladælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
V ANTAR ÞIGVINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
l'l AUGLÝSIR l M ALLT
LAND ÞEGAR ÞÚ ALG-
LYSIR 1 MORGLNIÍLADINl
LOFTLEIÐUM
Sannkallaður
ævintýramálsverður.
Notið tækifæriö og
njótið síldarveislu
í skemmtilegu
umhverfi.
Nú er aftur síldarævintýri í Blómasalnum hjá okkur.
Síldarævintýrið í fyrra var rómað fyrir góðan
mat og nú gerum við enn betur:
Víkingaskipið er hlaðið
fjölbreytilegasta úrvali síldarrétta úr marineraöri síld
og kryddsíld. Salöt og ídýfur, heitir og kaldir
fiskiréttir gæla við bragðlauka og gleðja
huga hinna vandlátustu.
Verið velkomin í síld.
15.—24. FEBRÚAR.
Borðpantanir í síma 22322
ÍSLENSK
MATVÆLI H/F
HAFNARFIRÐI
ICEFOOD
kynnir
framleiðslu sína
í samvinnu við
Hótel
Loftleiðir.