Morgunblaðið - 20.02.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1980
Ve ulegt tap á rekstri Landsvirkjunar:
Þyrfti 15-20% gjald-
skrárhækkun 1. maí
TAP á rekstri Landsvirkj-
unar hefur verið verulegt á
s.l. íveimur árum, eða alls
1.5G7 millj. kr. Tií að hægt
verði að rétta við rekstur-
inn á þessu ari þarf Lands-
virkjun að fá 15—20%
hækkun á gjaldskrá 1. maí
til viðbótar 27% hækkun-
inni 1. febr. s.l., en þá var
sótt um 43% hækkun.
Jóhannes Nordal, formaður
stjórnar Landsvirkjunar, sagði á
fréttamannafundi í gær, að
ástæðan fyrir þessari óhagstæðu
þróun væri hversu erfiðlega
Skjálftavaktin
við Kröflu lögð
niður í bili
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja
niður skjálftavaktina í Reyni-
hlíð í Mývatnssveit fyrst um
sinn en slík vakt hefur verið
síðan í október. Hins vegar
verður vaktin tekin upp að nýju
ef þörf verður talin á.
Mjög litlar breytingar hafa orð-
ið á landi á Kröflusvæðinu síðan á
laugardaginn og virðist umbrota-
hrinan gengin yfir, samkvæmt því
sem Bryndís Brandsdóttir jarð-
fræðingur tjáði Mbl. í gær. Land
hefur hins vegar ekki byrjað að
rísa á ný eins og ætíð hefur gerst
áður í lok kvikuhlaupa en jarðvís-
indamenn vilja þó engu spá um
framhaldið. Skjálftavirkni er þó
nokkur en skjálftarnir mjög litlir.
Fylgst verður áfram með mæl-
um í Reynihlíð eins og verið hefur
þó þar verði ekki vakt jarðvísinda-
gengi að fá stjórnvöld til að
heimila í tíma nauðsynlegar
breytingar á gjaldskrá fyrirtæk-
isins. Verðhækkanir hafa því oft
dregist á langinn og ekki verið
nægilega miklar, þegar þær hafa
verið heimilaðar. Þetta hefur
valdið því að Landsvirkjun hefur
orðið að taka lán vegna greiðslu-
halla. „Hér er að sjálfsögðu um
, öfugþróun að ræða,“ sagði Jó-
hannes, „því stefnt hefur verið
að því að eigin fjármögnun
fyrirtækisins vegna stofnkostn-
aðar Hrauneyjarfossvirkjunar
verði um 27% eða ásamt stofn-
framlögum eigenda um 31%.
Stofnkostnaður Hrauneyjarfoss-
virkjunar (140 MW) áætlast
51.656 millj. kr. án vaxta á
byggingartíma.
Jóhannes tók fram, að 15—
20% hækkun 1. maí myndi
nægja fyrirtækinu
hækkana út þetta ár.
án frekari
Rafmagnsbil-
anir á óveðri á
Snæfellsnesi
MIKIÐ hvassviðri var 4 Snæíells-
nesi í gærmorgun og gærdag og
brotnuðu rafmagnsstaurar á
nokkrum stöðum. Urðu rafmagns-
biianir af þessum orsökum en
lengst varð rafmagnslaust í Grund-
arfirði eða i átta klukkustundir,
frá klukkan 8 í gærmorgun til
klukkan 16 í gærdag.
Menn fóru til að gera við bilanirn-
ar en þeim gekk erfiðlega að athafna
sig vegna hvassviðris. Áttu þeir fullt
í fangi með að halda bifreiðunum á
réttum kili og varð því lítið um
viðgerðir sums staðar.
Heilbrigðiseftirlitið
mótfallið sjálfsaf-
greiðslu á saltkjöti
í HÁDEGISÚTVARPI i gær birt-
ust tilmæli frá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkurborgar til kaup-
manna um að selja ekki saltkjöt
með sjálfsafgreiðslufyrirkomu-
lagi.
Vegna þess hafði Morgunblaðið
samband við Þórhall Halldórsson,
forstöðumann Heilbrigðiseftirlits-
ins í Reykjavík. Þórhallur sagði að
fyrir sprengidaginn í fyrra hefði
lítillega borið á auglýsingum um
Ingvar Jónasson ein-
leikari á næstu hljóm-
leikum Sinfóníunnar
NÆSTU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða á
morgun, fimmtudag, í Háskóla-
bíói og hefjast kl. 20:30. Á efn-
isskrá eru verk eftir Fjölni Stef-
ánsson. Kóplon, konsert fyrir
víólu eftir Walton og sinfónía nr.
2 eftir Tschaikovsky. Einleikari
er Ingvar Jónasson og stjórnandi
Göran W. Nilson.
Ingvar Jónasson er fæddur á
ísafirði 1927 og stundaði hann nám
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
Royal College of Music og síðar hjá
Ingvar Jónasson vióluleikari.
Ernst Morawec í Vín. Lék hann
með Sinfóníuhljómsveit íslands að
loknu námi allt til ársins 1970,
fyrst á fiðlu og síðar víólu og
starfaði sem kennari við Tónlist-
arskólann í Reykjavík til ársins
1972 er hann flutti til Svíþjóðar.
Gerðist hann þá kennari við Tón-
listarháskólann í Malmö, starfaði í
2 ár sem fyrsti víóluleikari við
Sinfóníuhljómsveitina í Malmö, en
hefur seinustu árin stundað
kennslu og tekið þátt í flutningi
kammertónlistar m.a. með Malmö
' kammarkvintett, sem leikið hefur á
Islandi. Hefur hann leikið einleik
og kammertónlist í mörgum
Evrópulöndum og Bandaríkjunum,
gert upptökur fyrir útvarp og
sjónvarp og leikið inn á hljómplöt-
ur.
Hljómsveitarstjórinn Göran W.
Nilson er fæddur í Halmstad 1941,
hóf píanónám 3 ára og fékk tíu ára
gamall inngöngu í Konunglega
tónlistarskólann í Stokkhólmi
þrátt fyrir að lágmarksaldur væri
15 ár. Stundaði hann framhalds-
nám í París, Lundúnum og New
York. Árin 1963—1969 starfaði
hann sem hljómsveitarstjóri við
Konunglegu óperuna í Stokkhólmi
og síðan 1974 hefur hann verið
aðalstjórnandi við Sinfóníu- og
kammersveitina í Örebro. Auk þess
sem hann hefur stjórnað helztu
hljómsveitum í Svíþjóð hefur hann
leikið einleik með fjölda hljóm-
sveita í Evrópu og Ameríku.
slíkt í fjölmiðlum og svo hefði það
aftur gerst nú að nokkrir kaup-
menn hefðu auglýst að viðskipta-
vinirnir gætu sjálfir valið saltkjöt-
ið. Heilbrigðiseftirlitið hefði kann-
að málið í gærmorgun og þá hefði
komið í ljós að á nokkrum stöðum
hefði sá háttur verið hafður á að
viðskiptavinirnir gátu handfjallað
kjötið og valið sjálfir úr tunnum
eða bökkum. Þetta væri auðvitað
ófært og flokkaðist nánast undir
sóðaskap sem ástæðulaust væri að
viðhafa. Því hefði tilkynningin
verið sett í útvarpið og sagði
Þórhallur að kaupmenn hefðu
brugðist vel við.
— Ég vil taka það fram, sagði
Þórhallur, að það er auðvitað til
bóta að láta viðskiptavinina velja
saltkjötið en þá er bezta fyrir-
komulagið að hafa það bak við
hlífðargler og láta afgreiðslumenn
taka til kjötið eftir ábendingum
viðskiptavinarins.
INNLENT
Fyrsti samningafundurinn í
starfsmönnum var haldinn
deilu Flugleiða og hluta af
hjá sáttasemjara ríkisins,
Guðlaugi Þorvaldssyni, í gær. Myndirnar voru teknar við
það tækifæri af fulltrúum deiluaðila. Efst er samninga-
nefnd Félags Loftleiðaflugmanna, í miðið samninganefnd
Flugleiða og neðst samninganefnd Félags íslenzkra
atvinnuflugmanna.
Stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs:
Alþýðubandalagið
er ekki tilbúið í
kosningabandalag
KOSNINGU í stjórn atvinnuleys-
istryggingasjóðs var frestað á AI-
þingi i gær að beiðni Alþýðubanda-
lagsins.
Ekki er samkomulag í þingflokki
sjálfstæðismanna um kosninguna.
Meirihlutinn vill halda við sam-
þykkt um framboð eins aðalmanns
til þess að Alþýðuflokkurinn fái
fulltrúa í stjórninni, en Gunnars-
menn vilja hins vegar að sjálfstæð-
ismenn bjóði fram tvo fulltrúa, sem
myndi þýða að falazt eftir kosn-
ingabandalagi við Framsóknarflokk
og Alþýðubandalag, ef samkomulag
verður ekki í þingflokki sjálfstæð-
ismanna. Alþýðubandalagsmenn
eru því fylgjandi að Alþýðuflokkur
fái fulltrúa í stjórninni og voru ekki
tilbúnir til kosningabandalags
stjórnarliðsins í gær. Þeir vilja hins
vegar bíða og sjá tilnefningu ASI í
stjórnina og meta út frá henni,
hvort Alþýðuflokkurinn ætti að fá
kjörinn fulltrúa á þingi eða hvort
tilnefning ASÍ tryggir Alþýðu-
flokknum hlutdeild í stjórninni,
þannig að af kosningabandalagi
stjórnarliðsins geti þá orðið.
Meirihluti þingflokks sjálfstæð-
ismanna hefur samþykkt að bjóða
fram Pétur Sigurðsson sem aðal-
mann í stjórn atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og Axel Jónsson, fyrrver-
andi alþingismann, sem varamann.
Gunnarsmenn vilja hins vegar fá
Axel inn í stjórnina sem aðalmann
líka.
Samninganefnd BSRB þingaði um stöðuna:
Hugsanleg verkf allsboðun
verði rædd í félögunum
SAMNINGANEFND BSRB hélt
fund í gær þar sem rædd var
staðan i kjaramálum opinberra
starfsmanna, jafnframt því sem
kjörin var átta manna nefnd til
viðræðna við fulltrúa ríkisvalds-
ins. Fundur þessara aðila er
fyrirhugaður á föstudag.
Samninganefndin gerði sam-
þykkt þess efnis, að því væri beint
til allra ríkis- og bæjarstarfs-
mannafélaga, að þau gengjust á
næstunni fyrir almennum fundum
félagsmanna um væntanlega
kjarasamninga, þar sem staðan í
samningamálunum og hugsanleg
verkfallsboðun yrði rædd og jafn-
framt hvatt til samstöðu um fjög-
ur atriði:
— Verndun vísitölukerfis á laun
allra opinberra starfsmanna.
— Aukinn rétt til samninga og
verði gildistími samnings umsam-
inn hverju sinni.
— Félagsleg réttindi starfs-
manna og samtakanna.
— Náð verði þeim kaupmætti,
sem um var samið í síðustu
samningum, og aukið jafnrétti í
launamálum.
Samninganefndin fól formanni
og varaformanni nefndarinnar að
ræða við ríkissáttasemjara og ósk-
aði eftir því við hann, að fundir á
vegum sáttanefndar með deiluaðil-
um hefjist sem allra fyrst eftir
næstu helgi.
í átta manna nefnd til viðræðna
við fulltrúa ríkisvaldsins voru
kjörin: Kristján Thorlacíus, Har-
aldur Steinþórsson, Þórhallur
Halldórsson, Ágúst Geirsson, Ein-
ar Ólafsson, Svanlaug Árnadóttir,
Valgeir Gestsson og Örlygur
Geirsson.