Morgunblaðið - 22.02.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1980
5
Norræna húsið á morgun;
Ingvar Jónasson frumflytur
verk eftir Atla Heimi Sveinsson
INGVAR JÓNASSON víóluleik-
ari og Janaake Larsson píanó-
leikari halda á morgun, laugar-
dag kl. 16, tónleika í Norræna
húsinu. A efnisskrá eru verk
eftir Boccherini, Glinka, Max
Reger, Arnold Bax, Louis de
Caix d’Hervelois og Atla Heimi
Sveinsson.
Verk Atla Heimis Sveinsson-
ar er hér frumflutt. en það
heitir Cathexis fyrir víólu og
píanó. Um það segir tónskáldið
m.a.:
„Cathexis merkir samþjöppun
sálarorku um eitthvað sérstakt,
t.d. hugmynd, endurminningu,
hlut eða atferli. Það tók mig
langan tíma að semja þetta verk.
Víólan hefur löngum verið uppá-
haldshljóðfæri mitt, einkanlega
í höndum Ingvars Jónassonar,
en á sínum tíma kenndi hann
mér ýmislegt um möguleika
þess.“ Verkið er tileinkað hjón-
unum Guðrúnu Vilmundardótt-
ur og Gylfa Þ. Gíslasyni.
Eftir tónlistarnám hérlendis
og erlendis og kennslu og tónlist-
arstörf í Reykjavík hélt Ingvar
Jónasson til Svíþjóðar árið 1972.
Er hann nú búsettur í Malmö og
hefur stundað kennslu og tón-
listarstörf þar og í Gautaborg,
auk þess sem hann hefur farið
fjölda tónleikaferða bæði sem
einleikari og með kammersveit-
um víða í Evrópu og í Bandaríkj-
unum. Hann kom fram í Nor-
ræna húsinu árið 1976 ásamt
sænska gítarleikaranum Per—
Olof Johnson og kammertríói
hans.
Janaake Larsson og Ingvar
Jónasson eru báðir félagar í
Ingvar Jónasson
víóluleikari
Malmö kammarkvintett, sem
kom hingað til lands sl. vor og_.
hélt tónleika víðs vegar um
landið.
Biskup messar
fyrir Islendinga
í Kaupmannahöfn
BISKUP íslands hr. Sigurbjörn
Einarsson messar á sunnudag í
Kaupmannahöfn, en hann hefur
verið þar á ferð í tilefni ferðar
norrænna biskupa til vigslu
fyrsta Grænlenska biskupsins.
Guðsþjónustan verður í St. Páls
kirkjunni kl. 14 á sunnudag. Pre-
dikar biskup og sr. Jóhann Hlíðar
þjónar fyrir altari. Að lokinni
messunni tekur biskup á móti
Islendingum í húsi Jóns Sigurðs-
sonar ásamt hinum nýja sendi-
herra, Einari Ágústssyni. Þetta er
í þriðja sinn sem biskup messar
fyrir Islendinga í Kaupmannahöfn
á starfsferli sínum.
AUCLYSINGASIMINN BR
©
Jtlarpunblabib
Þorri blótað-
ur í Valhöll
HALDIÐ verður þorrablót i húsi
Sjálfstæðisflokksins, Valhöll við
Háalcitisbraut, á morgun og hefst
það kiukkan tólf á hádcgi. Hér er
um að ræða fjölskylduþorrablót,
sem efnt er til í fjáröflunarskyni
fyrir félagsheimili sem innrétta á í
kjallara hússins.
Þau félög sem standa að þeim
framkvæmdum eru hverfafélög þau
og landssambönd sjálfstæðisfólks
sem aðsetur hafa í Valhöll, og hefur
verið skipuð þriggja manna fram:
kvæmdastjórn fjáröflunarnefndar. í
henni eiga sæti þau Þórunn Gests-
dóttir, Haukur Hjaltason og Pétur
Rafnsson.
Þórunn sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að vonast væri til
þess að sem flestir velunnarar Sjálf-
stæðisflokksins litu við og styddu
gott málefni um leið og þorri væri
kvaddur. Rennur ágóðinn
óskiptur til félagsheimilisins. Þór-
unn sagði að börn þyrftu ekki að
greiða aðgang, en ef þau vildu ekki
þorramatinn, þá væri einnig boðið
upp á „þjóðarréttinn", pylsur og kók.
Á þorrablótinu mun Matthías Á.
Mathiesen flytja stutt ávarp en
veislustjóri verður Árni Johnsen
blaðamaður og mun hann einnig
fara með einhver gamanmál.
Hrói höttur
hefur opið
hús fyrir
unglinga
HRÓI höttur nefnist félagsskap-
ur ungs fólks í Reykjavík. Verk-
efni þessa félagsskapar er að
fara út meðal unglinga á „Hall-
ærisplaninu“ og í Breiðholti um
helgar. Unglingunum er gefið
kakó og heit súpa og spjalla
félagsmenn við þá um málefni
unglinga og hvað helst eigi að
gera fyrir þá. Hrói höttur hefur
útdeilt súpu og kakói tvisvar í ár,
1. og 15 febrúar sl.
í kvöld, föstudag, verður hins
vegar opið hús fyrir unglinga í
Seljabraut 54 í Breiðholti. Þar
mun m.a. skemmta Magnús Kjart-
ansson ásamt félögum sínum og
einnig verður diskótek. Aðgangur
er ókeypis.
NU ERU
ENGIN VERÐ
á fötunum okkar á Skemmtimarkaðnum
í Sýningarhöllinni Bíldshöfða.
Herraföt, stakir jakkar. skyrtur, bolir, peysur, stakar buxur barna, kápur,
dragtir, kjólar, stakir dömujakkar, blússur í ótrúlega miklu úrvali, herra
úlpur gæöavara, barnaúlpur, dömuúlpur, dömu- og barnavesti ofl. ofl.
Nú er hægt aö gera sér glaðan
dag og góö — eöa öllu heldur
æöisgengin kaup á markaönum, sem er
opinn í dag kl. 1—10.
Nú á allt að seljast
Prútta - Prútta
Þiö reynið eins
og þiö getiö viö
afgreiöslufólkiö,
aö ná sem hag-
stæöasta verði,
því nú á
ALLT
sem eftir er aö
seljast.
\ ífSZm. tIzkuverzlun unga folksins
Wkarnabær
\
Ausiufstræii 22 Sími frá skiptiborði 85055
Iwgivtgi 20. Sími frá skiptiborði 28155.