Morgunblaðið - 22.02.1980, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1980
Þorlákur í vandræðum. Eirikur Hjálmarsson, Sólrún Yngvadótt-
ir, Magnús Óiafsson og Alda Norðfjörð í hlutverkum sinum.
Þorlákur þreytti
í Kópavogi
LEIKFÉLAG Kópavogs frum-
sýnir í Kópavogsbiói í kvöld,
föstudaginn 22. febrúar, gam-
anleikinn „Þoriák þreytta“ eft-
ir Neal og Farmer í þýðingu og
staðfæringu Emils Thorodd-
sens. Leikstjóri er Guðrún Þ.
Stephensen.
Með aðalhlutverk fer Magnús
Ólafsson og aðrir leikendur eru:
Sólrún Yngvadóttir, Jóhanna Jó-
hannsdóttir, Bergljót Stefáns-
dóttir, Gunnar Magnússon,
Finnur Magnússon, Ögmundur
Jóhannesson, Eygló Ingvadóttir,
Guðbrandur Valdimarsson, Alda
Norðfjörð, Eiríkur Hjálmarsson,
Sigrún Valdimarsdóttir og Gest-
ur Gíslason. Leiktjöld og bún-
ingar eru í umsjón félaga í
leikfélaginu. Sigrún Gestsdóttir
sér um hárgreiðslu og förðun.
Önnur sýning er á laugardags-
kvöld kl. 23.30 og verður reynt að
hafa reglulegar miðnætursýn-
ingar á leiknum. Þriðja sýning á
leiknum verður mánudaginn 25.
febrúar kl. 20.30.
Ný bók — Börn
alkóhólista
FYRIR skömmu kom út hjá Út-
gáfufélaginu Úr bókin BÖRN
ALKÓHÖLISTA - hin gieymdu
börn. Fjallar hún um hagi 115
harna í Toronto í Kanada. Þó
bókin sé skýrsla byggð á rann-
sókn er málið á henni blátt áfram
og að nokkru er hún lifandi lýsing
á orðum harnanna sjálfra á til-
finningum sinum.
Höfundurinn, Margaret Cork, er
félagsráðgjafi með 15 ára reynslu í
meðferð hins drykkjusjúka og fjöl-
skyldu hans. Byggir hún könnun
sína á viðtölum við börnin og
dregur fram aðaleinkenni fjöl-
skyldulífs alkóhólistans. Markmið
bókarinnar er að auka skilning á
högum barnanna og bendir Cork á
að verulegur hluti alkóhólista og
maka þeirra eru börn alkóhólista.
Aftast í bókinni er lýsing á gerð
og framvindu könnunarinnar.
Börn alkóhólista er 128 bls.
Þýðandi er Ásgerður Einarsdóttir.
Umbrot og filmuvinnu annaðist
Prentþjónustan h/f, Guðjón Ó h/f
setningu og prentun en bókband
Félagsbókbandið h/f.
Fjórtán keppendur á
Reykjavíkurskákmótinu
REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ
verður sett á morgun, laugardag
og verður þá jafnframt tefld
fyrsta umferðin. Hefst mótið kl.
14 í Krystalssal Hótels Loftleiða
og önnur umferð verður síðan
tefld á sunnudag, en gcrt er ráð
fyrir að -því ljúki sunnudagskvöld
9. marz eða mánudag 10. marz. í
kvöld klukkan 20:30 verður dreg-
ið um töfluröð.
Á fundi með fréttamönnum í
vikunni kynnti Einar S. Einarsson
formaður skákstjórnar mótsfyrir-
komulag og keppendur, sem eru 14,
þar af 9 erlendir og eru flestir
þeirra komnir til landsins. Einar
Einarsson sagði að á Reykja-
víkurskákmótinu hefðu keppt alls
74 skákmenn frá upphafi 47 er-
lendir og 27 íslenzkir og hefði
hlutfall hinna erlendu verið
síhækkandi. Tímamörk eru þannig
að leika ber 30 leiki á fyrstu 90
mínútunum, næstu 20 leiki á 60
mínútum eða alls 50 leiki á 2 1/2
klst. og í biðskákum skal leika 20
leiki á 60 mínútum. Meðalstiga-
fjöldi keppenda er 2485 og er
styrkleikaflokkur mótsins 10. Aðal-
skákdómari verður Guðmundur
Arnlaugsson.
Dregið um töflu-
röð í kvöld
Sem fyrr segir eru keppendur 14
stórmeistarar eða alþjóðlegir
meistarar og stig þeirra sem hér
segir: Byrne 2530, Browne 2540,
Miles 2545, Guðmundur Sigur-
jónsson 2475, Sosonko 2545, Torre
2520, Vasjukow 2545, Haukur Ang-
antýsson 2425, Helgi Ólafsson 2445,
Helmers 2405, Jón L. Árnason 2435,
Kupreichik 2535, Margeir Péturs-
son 2425 og Schussler 2420. Fyrstu
verðlaun nema 2.500 dölum, 2.
verðlaun 1.800 dölum, 3. 1.200
dölum og 4. 800. Síðan verða
greiddir 50 dalir fyrir unna skák,
15 fyrir tap og 10 fyrir jafntefli. Þá
verða veitt sérstök fegurðarverð-
laun, 200 dalir.
Sjónvarpað verður daglega frá
mótinu, en hver umferð hefst kl 17
og verður einnig hægt að fylgjast
með framvindu skákanna á Hótel
Loftleiðum gegnum sjónvarpskerfi,
sem komið verður upp. Aðgöngu-
miðinn kostar kr. 2.000 fyrir full-
orðna, en kr. 15.000 sé keyptur miði
á allar umferðirnar.
Þá var á fréttamannafundinum
kynnt bókin v\ uppnámi", sem
Skáksamband Islands og Taflfélag
Reykjavíkur hafa nú látið ljós-
prenta. Skákrit þetta kom út á
árunum 1901 til 1902, 8 tölublöð
alls. I kynningarorðum um bókina
segir m.a.: Segja má efni ritsins
sígilt og meðal bezt rituðu skák-
bókmennta íslendinga fyrr og
síðar. Prófessor Willard Fiske,
mikill áhugamaður um íslenzk
málefni og velgjörðarmaður
íslendinga lét prenta þetta rit í
Leipzig og gaf Taflfélagi Reykja-
víkur, sem þá var nýstofnað. Ritið
kemur út í tveimur gerðum. Fyrst
ber að nefna 250 eintaka viðhafn-
arútgáfu, sem tileinkuð verður 80
ára afmæli Taflfélags Reykjavíkur
í ár. Viðhafnarútgáfan verður
prentuð á fornritapappír, öll ein-
tökin árituð, tölusett, bundin í
alskinn og kosta þannig frá útgef-
endum 49 þúsund kr. Þá kemur
bókin út í venjulegu bandi í
takmörkuðu upplagi og kostar
þannig 12.500. Rit þetta átti mikinn
þátt í að leggja grundvöll að
íslenzkri skáklist og var útkoma
þess menningarsögulegur viðburð-
ur.
Nokkrir keppenda á Reykjavikurskákmótinu, sem hefst á morgun að Hótel Loftleiðum. Ljósm. Rax
Er minni verðbólga i Garði?
Garði, 21. íebrúar.
ÞAÐ ER ósjaldan, sem hér er allt
marautt á meðan fréttir berast að
því úr höfuðborginni, að fólk vaði
ökkladjúpt krapið og sjái ekki út
úr augum fyrir snjókomu. Hér er
nú rjómahlíða og þíða.
Næstkomandi laugardag heldur
Knattspyrnufélagið Víðir árshátíð
sína í samkomuhúsinu, en það er
árlegur viðburður, sem oftast er
beðið með eftirvæntingu. Hefst
skemmtunin með borðhaldi klukkan
19.30 og hafa allir aðgöngumiðar nú
þegar verið seldir, en þorri miðanna
seldist upp á örskömmum tíma.
Kom það engum á óvart því miða-
verð er aðeins 10 þúsund kronur, en
heyrzt hefur, að í höfuðborginni sé
miðaverð að jafnaði 13 — 15 þúsund
krónur á árshátíðar. Annaðhvort er,
að Víðismenn eru útsjónarsamari
við undirbúninginn eða miðaverð í
Reykjavík er óeðlilega hátt — nú
eða að verðbólgan sé svona miklu
erfiðari viðfangs í höfuðborginni.
—Arnór.
Bl&mahátíð
Strandgötu 1 — Hafnarfiröi
í samvinnu við blómabúðina Burkna efnum við til blómahátíðar
Opiö til kl. 3.00
Húsið opnað
kl. 21.30.
Blóm og
blómaskreytingar
ffrá Burkna.
Hafnfirðing-
urinn
Örn Arason
einn af okkar
albestu
klassísku
gítarleikurum
leikur kl. 10.00.
Tískusýning kl. 10.30.
Hafnfirskar stúlkur snyrtar af Kol-
brúnu Sigurðardóttur og greiddar hjá
Hárgreiðslustofu Guörúnar sýna tísku-
fatnaö frá versluninni Dalakofanum.
Þeim gestum sem koma fyrir kl.
11.00 bjóðum viö að smakka á síldar-
pinnum frá íslensk matvæli og sælgæti
frá Mónu.
Snekkjan — Blómabúóin Burkni — islensk matvæli — Sælgætisgeröin Móna — Tískuverslunin Dalakofinn
Spariklæðnaöur
Blómabúöin Burkni skreytir salinn blómum og blómaskreyting-
um í tilefni konudagsins á sunnudaginn en þá bjóöa allir góöir
eiginmenn fjölskyldunni í konudagskaffi kl. 3.00 meö tískusýningu og
Ijúfri gítartónlist.
p