Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
Sjálfsmorða-
faraldur meðal
skólaæskunnar
1 auðstéttarhverfi einu
skammt frá Los Angeles vildi
það til fyrir skömmu, að 15 ára
gamall piltur settist inn í bíl og
ók honum beint á hraðbraut-
arstöpul. Hann lét lífið sam-
stundis. Síðar fundu foreldrar
hans bréf frá honum, þar sem
hann kvaðst mundu fyrirfara
sér.
Við útskriftarhátíð fram-
haldsskóla sté 17 ára gamall
drengur í pontu, hrópaði: —
Þetta er bandaríski hátturinn: og
skaut sig að foreldrum sínum
ásjáandi
— Það þykir engum vænt um
mig, hrópaði 8 ára gömul telpa.
Síðan skar hún sig á úlnlið,
gleypti pillurnar úr meðalaskáp
fjölskyldunnar og reyndi loks að
hengja sig.
— Þetta er eins og faraldur, —
segir starfsmaður stofnunar sem
sér um fyrirbyggjandi aðgerðir
gegn sjálfsvígum í Los Angeles.
— Skólafólk í Bandaríkjunum,
börn, unglingar og framhalds-
skólanemar stytta sér aldur í
sífellt auknum mæli. Tilvikin eru
allt að 5 þúsund á ári hverju, en
flest eru þau og alvarlegust í
Kaliforníu.
Fyrir skömmu voru birtar í
Kaliforníu tölur, sem gefa til
kynna, að hneigð manna til
sjálfsmorða fer stöðugt vaxandi.
Sérfræðingar í geðsjúkdómum
standa ráðþrota gagnvart þess-
ari þróun. Á síðasta ári styttu
109 ungmenni sér aldur í Los
Angeles og þéttbýlinu þar í
grennd, en það eru 15 fleiri en
árið þar á undan. Þjóðfélags-
fræðingar segja, að þessar tölur
segi líklega ekki alla söguna, af
því að foreldrar láti oft líta svo
út sem slys hafi borið að hönd-
um.
Sjálfsmorð eru önnur algeng-
asta dánarorsök bandarískra
unglinga. Aðeins slys eru algeng-
ari orsök. Á síðasta áratug hafa
sjálfsmorðstilvikin tvöfaldast. Á
síðustu 5 árum hefur orðið 30%
aukning á sjálfsmorðum barna á
aldrinum 10—13 ára. Sjaldan er
kveðið svo að orði, að börn innan
10 ára aldurs hafi svipt sig lífi,
heldur eru þau sögð hafa látizt af
slysförum. Ástæðan er sú, að
börn eru ekki talin gera sér fulla
grein fyrir Jm, hvað dauðinn
felur í sér. Á hinn bóginn hafa
hundruð bandarískra barna, sem
gert hafa tilraun til að svipta sig
lífi, verði flutt á sjúkrahús. Þessi
börn eru allt niður í fimm ára
gömul. Hvað veldur því, að svo
mörg börn, sem búa við velsæld
og allsnægtir, eru gripin þvílíkri
örvæntingu? Sálfræðingar skella
umfram allt skuldinni á sífjölg-
andi hjónaskilnaði og „upplausn
kjarnafjölskyldunnar". Dr. Don-
Allt að 5,000 á ári
ald Summers, sérfræðingur við
Kaliforníuháskóla segir: — Flest
þeirra barna, sem við höfum
fengið til meðhöndlunar, eftir að
þau hafa gert tilraunir til
sjálfsmorða, eru börn fráskilinna
foreldra. Fyrir börn á öllum aldri
er skilnaður foreldra þungbærari
en dauði þeirrat — segir hann.
Sumir sérfræðingar leita ann-
arra skýringa. Fram hefur m.a.
komið sú hugmynd, að stóraukin
fæðingatíðni eftir síðari heims-
styrjöld hafi leitt til eins konar
offjölgun á þessari kynslóð. Af-
leiðingarnar séu sjúkleg sam-
keppni, minnimáttarkennd og
firring, þegar börnin komist inn í
skólakerfið, sem sífellt verður
viðameira og flóknara.
30.000 Bandaríkjamenn sviptu
sig lífi á síðasta ári eða 12 af
hverjum 100.000. Hlutfallið var
50% hærra í Los Angeles og San
Francisco. Ruth Doughton, sem
starfar við stofnunina í Los
Angeles, er sér um fyrirbyggj-
andi aðgerðir gegn sjálfsvígum,
telur að skýringuna á því sé m.a.
að finna í landlægu rótleysi í
Kaliforníu. Hún segir: — Flestir,
sem hingað koma eru annars
staðar frá. Ef allt um þrýtur, fer
fólk til Kaliforníu. í Suður-Kali-
forníu eru fleiri rótlaus ung-
menni, fleiri einstæð foreldri,
meiri þrengsli í skólum, meiri
fíkniefnavandamál og mesta
áfengisvandamál á meðal ungl-
inga, er þekkist í Bandaríkjun-
um.
Það fer nokkuð eftir félagsleg-
um og efnahagslegum aðstæðum
manna, svo og kynþætti þeirra,
hvar þessi skelfilegi faraldur
nær fótfestu. Barátta þeldökkra
Kaliforníubúa fyrir efnahagsleg-
um og félagslegum umbótum
virðist hafa leitt til þess að
sjálfsmorðum þeldökkrá. ungl-
inga fjölgar óðfluga. Ómenutað
fólk virðist síður falla fyrir eigin
hendi en menntað fólk.
Viðbrögð við þessari háskalegu
þróun eru m.a. þau, að komið
hefur verið á fót hundruðum
stofnana til þess að vinna gegn
sjálfsvígum. Stofnunin í Los
Angeles starfar allan sólarhring-
inn og þangað er hringt a.m.k. 50
sinnum á degi hverjum vegna
tilvika er snerta á einhvern hátt
sjálfsmorð eða tilraunir til
þeirra.
Sumar éldavélar frá ELECTROLUX
eru auðvitað með blásturscíni, tölvustÝiingu,
tesrmospJötu, sjálívirlcum steilcarmoeli
og hitaskáp.,______________. Aðuarekki.
Kyrrningarbæklingur ókeypis.
Það er óráðlegt, að kaup eldavél
án þess að kynna sér vandlega
hvaða möguleikar standa til
boða.
Vörumarkaðurinn sendir þér í
pósti ókeypis, litprentaðan
mynda- og upplýsingabækling.
Sendu okkur nafn þitt og
heimilisfang, eða hringdu í
Electrolux deildina, sími: 86117
og við sendum þér bækling um
hæl.
ARMULA 1a
reiknaóu með
IACIT
'iQ 3L8 FTÖTJin)
Facit reiknivélarnar fullnægja ströng-
ustu gæðakröfum, bæði hvað varðar
tæknilega getu og hraðvirkni. Fjöl-
breytt úrval tryggir þér nákvæmlega
þá vél sem hentar best.
HEZHEa
Frábær fjárfesting
Við kynnum sérstaklega Facit 2251
Eldhröð pappírsfærsla og prentun,
þægilegt valborð, stór Ijósagluggi
og siðast en ekki sist - bráðfalleg.
Ekki sú vinsælasta að ástæðulausu.
GÍSLI J. JOHNSEN HF. IfoM
Smiðjiivegi 8 - Slmi 73111
Electrolux eldavélarnar eru
meðal þeirra þekktustu í heimi.
Fyrst og fremst vegna gæða- og
svo auðvitað vegna tækni-
nýjunga. Electrolux hefur oftast
verið á undan samtíðinni í eld-
hústækni.
Þegar þú velur Electrolux eldavél
geturðu valið eldavélagerð, sem
hentar plássi og pyngju. Úrvalið
og möguleikarnir eru margvís-
legir.
Electrolux
- WILLIAM SCOBIE.