Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 63 „Ég er ljós heimsins, hver, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur, hafa ljós lífsins.“ Júhanncs 8.12. Hallgrímskirkja — Saurbæ: „Ég er ljós heimsins“ mSaurbæjarkirkju á Hvalfj arðarströnd Vj er að finna fresk- ómynd, hina einu í /Vv| C íslenzkri kirkju, en I JiHf hún er eftir finnska lista- manninn Lennart Segerstrále. Með honum að gerð myndarinnar og undir- búningi vann Þórir Berg- steinsson múrarameistari, en hann hefur unnið að skreyt- ingum í ýmsum byggingum. Loftur Bjarnason forstjóri Hvals hf. kostaði gerð mynd- arinnar og lagði hann reyndar ýmislegt annað til kirkjubygg- ingarinnar. Sr. Jón Einarsson sóknarprestur upplýsti blaðamann Mbl. um að sr. Sigurjón Guðjónsson, er var prestur í Saurbæ á undan honum, hefði haft veg og vanda af því að fá þennan finnska listamann til að vinna að myndinni. Hafði hann verið í Finnlandi og kynnst list hans og fyrir milligöngu Maj Lis Holmberg, er var finnskur sendikennari við Háskóla íslands, fékkst Lennart Seg- erstrále til að taka að sér þetta verk. Kom hann hingað árið 1963 til að líta á kirkjuna og kanna allar aðstæður og ræddi mikið við sr. Sigurjón í þeirri ferð svo og Þóri Berg- steinsson um hvernig haga mætti verkinu. Undirbjó Þórir það um veturinn og kom Seg- erstrále síðan hingað vorið eftir og unnu þeir við myndina nokkrar vikur í maí og júní vorið 1964. Sr. Jón Einarsson tjáði okk- ur að yfirskrift verksins væri tekin úr Jóhannesarguðspjalli, 8, 12, þar sem Jesús segir: Ég er ljós heimsins, hver, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu heldur hafa lós lífsins. Kristur í nútímanum Sr. Jón sagði að listamaður- inn hefði ekki viljað teikna Krist með skegg, eins og oftast væri, hann vildi reyna að færa hann sem næst nútímanum, að hann væri sem Kristur á meðal okkar. Hjá honum krjúpa tveir menn með dökku yfirbragði og tekur Jesús við synd þeirra og síðan eru þeir teiknaðir uppréttir og er þá orðið bjart yfir þeim og horfa vonaraugum til framtíðarinn- ar eftir að syndinni hefur verið létt af þeim. Á hliðar- veggnum er síðan mynd af sr. Hallgrími Péturssyni þar sem hann situr við skriftir og ber hönd upp að eyra og leggur við hlustir. Kemur ljós að ofan niður yfir Hallgrím og bendir síðan áfram í átt að prédikun- arstólnum í kirkjunni. Lítur listamaðurinn þannig á sr. Hallgrím sem boðbera ljóssins og hlutverk hans var að bera það áfram, sem hann hevrði Altaristaflan i Hallgritnskirkju i Saurbæ. Þórir Bergsteinsson til vinstri og listamaðurinn Lennart Segerstr&ie til hægri. Ljósm. Ól.K.M. að honum var lagt í munn. Fyrir ofan myndina af Hall- grími eru síðan þrír hringir og einn hálfur hringur og tákna þeir þær þrjár og hálfu öld, sem var liðin frá fæðingu hans til 1964 er myndin var gerð. Á veggnum gegnt eru síðan nokkrar myndir er minna á atvinnulíf þjóðarinnar o.fl. Sr. Jón Einarsson sagði menn yfirleitt hrífast af þessari mynd Segerstrále og margir erlendir ferðamenn er kæmu í kirkjuna könnuðust við hand- bragð hans, enda er það þekkt um Norðurlönd og víðar. Nákvæmnis- og þolinmæðisvinna — Segerstrále lagði mikla Myndin af sr. Hall- grimi Péturssyni á hlið- arveggnum þar sem hann hlustar og skrifar eftir guðlegum innblæstri. Ljósm. Kristján. áherslu á að undirbúa verkið vel og var lögð í það mikil vinna, sagði Þórir er Mbl. ræddi við hann á dögunum. — Við vorum í sambandi um veturinn og sr. Sigurjón einnig og það var greinilegt að list- amaðurinn hafði verið frædd- ur um ýmislegt í sögu staðar- ins, þátt sr. Hallgríms Pét- urssonar o.fl., en hann var trúaður maður og mikill per- sónuleiki og fannst mér mjög gott að vinna með honum. Tókst með okkur vinátta og höfðum við jafnan samband eftir þetta, þótt við hefðum ekki sést síðan, en hann dó árið 1975. — Þetta er freskómynd og er hún í stórum dráttum þannig unnin að litirnir eru settir út í kalkið þegar síðasta umferðin er sett á vegginn, en áður hefur farið fram margs konar undirbúningsvinna og þurfti t.d. að verja vegginn vel og ganga þannig frá honum að ekki væri nein hætta á skemmdum. Þetta var mikil nákvæmnis- og þolinmæðis- vinna og tókum við í einu '/2—1 fermetra á dag og stundum urðum við að taka dagsverkið upp aftur og aftur, en mestur vandinn var við öll samskeyti og gæta varð þess vel að hafa kalkið hæfilega blautt. — En það var mjög gaman að starfa með honum þarna og held ég að menn hafi verið nokkuð ánægðir með hvernig til tókst og þá hefur þessi mynd náð tilgangi sínum. FINNSK VORUKYNNING ’80 HÓTEL LOFTLEIDUM, Krisíalsal DAGANA 9 -10 apríl.kl. 1700 -2000 TISKUSYNTNG! VERID VELKOMIN ! SUOMEN ULKOMAANKAUPPALIITTO FINLANDS UTRIKESHANŒLSFORBUND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.