Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
73
UPPELDISMÁL
Foreldrar
láta fleng-
ingarlögin
land og leið
Lögin sem banna
sænskum foreldrum að
berja börnin sín virðast
ekki hafa haft tilætluð
áhrif, segir í nýútkom-
inni skýrslu Stokk-
hólmslögreglunnar.
t
Fram kemur í skýrsl-
unni, að í fyrra, á því ári
sem lögin tóku gildi, hafi
foreldrar 70% allra barna á
aldrinum 1—3 ára hýtt þau
einhvern tíma og að for-
eldrar a.m.k. 58% barna á
þessum aldri hafi hýtt þau
einu sinni í viku eða oftar.
Gallinn við hýðinga-
bannið er nefnilega sá, að
það er ekki hægt að fram-
fylgja því. Bo Carlsson,
umboðsmaður eða ármaður
barnanna (sá eini um víða
veröld), bendir líka á, að
lögin séu eins konar til-
mæli til foreldra og teljist
ekki til refsilaganna. „Við
erum ekki dæmd til fang-
elsisvistar þó að við berjum
börnin okkar — nema við
göngum of langt, að sjálf-
sögðu, en ýmsum félagsleg-
um aðgerðum má þó beita
til að koma í veg fyrir að
börnin séu barin. Þar er
nokkurs konar meðferð eða
lækning efst á blaði en
þegar allt um þrýtur verður
að taka börnin frá foreldr-
unum.“
Carlsson, sem er mál-
svari 1,7 milljón sænskra
barna, er 34 ára gamall og
tveggja barna faðir. Hann
er mjög ánægður með öll
nýju lögin sem hafa verið
sett til að gæta hagsmuna
barna og í því sambandi má
nefna, að fyrir sænska
þinginu liggur tillaga um
að börn hafi rétt til að
yfirgefa foreldra sína við
sérstakar kringumstæður
— þ.e. skilja við foreldrana.
Fagnaöarfundir
New York. AP.
FLÓTTAMENN og inn-
flytjendur frá pólsku
borginni Kielce, sem
setzt hafa að í Bandaríkj-
unum, koma saman ár-
lega í New York til að
rifja upp gamlar minn-
ingar og spjalla saman.
Nýlega var þessi árshátíð
haldin í 75. sinn. og þar
rif jaði Pinkus Rosenwald
ekki eingöngu upp gaml-
eftir 41 ár
ar minningar, heldur
fann hann týnda fjöl-
skyldu sína.
Rosenwald hélt sig hafa
misst fjölskylduna þegar
hún var flutt í fangabúðir
nasista fyrir 41 ári. Sjálf-
ur hafði Pinkus flúið úr
fangabúðunum og farið
gangandi alla leið til Sov-
étríkjanna, eða um 800
kílómetra vegalengd, þar
sem hann gekk í Rauða
herinn og barðist gegn
hersveitum Hitlers. Hann
fluttist svo til Bandaríkj-
anna fyrir fjórum mánuð-
um, og ákvað að leita
gamalla vina á árshátíð
Kielce-félagsins. Þar gaf
hann sig á tal við tvær
konur, og þær komust
fljótt að því að Pinkus var
bróðir vinkonu þeirra, sem
búsett er í Kanada. Hafði
henni og öðrum bróður
hennar tekizt að komast
til Kanada að styrjöldinni
lokinni, og búa þar enn.
Þau héldu bæði að Pinkus
væri löngu látinn, svo þar
urðu miklir fagnaðarfund-
ir.
Ef þú velur hlut á heimiliö vilt þú
vera viss um aö þú sért aö velja
þaö besta. Hvort um er aö ræöa
uppþvottavél, kæliskáp, frystikistu,
eldavél eöa þvottavél, þá gerir þú
samanburö á veröi, útliti, tækni-
legum eiginleikum og þjónustu.
En síöan .. .snýrö þú þér beint aö
Philips.
Nýja línan frá Philips er sérstaklega
hönnuö fyrir nútíma eldhús. Þar
fara saman fallegt útlit, gæöi, góö
þjónusta og síöast en ekki síst
verö, sem þú ræöur viö.
Þess vegna segjum við, að þú
kaupir fyrir framtíðina þegar þú
kaupir Philips.
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
- CHRIS MORGENSSON