Morgunblaðið - 03.04.1980, Side 26
74
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
Þær eru ekki margar
stórborgirnar í heimin-
um sem bjóða upp á jafn
iðandi mannlíf og and-
stæður og Hong Kong.
Strax í aðfluginu að
borginni fær maður til-
finningu fyrir því hversu
margbreytilegur og
spennandi staðurinn er. í
aðfluginu er stefnt beint
inn í hjarta borgarinnar
og flugvélin smýgur yf-
ir þökum 15 til 20 hæða
skýjakljúfa og skyndilega
rennir vélin sér niður á
Kai Tak-flugvöllinn sem
liggur beint út í sjóinn.
Fjöll umlykja borgina á
alla vegu og borgarstæð-
ið er hið fegursta.
Hong Kong er mikil miðstöd verslunar og iðnaðar. Á þessari götumynd frá borginni má
sjá að ekkert er til sparað i auglýsingaskiltum við verzlanir og fyrirtæki.
mælist það gamla og nýja á svo
ótal mörgum sviðum. Aldagöm-
ul hefð blasir við tækniþekk-
ingu nútímans og oft er ekki
gott að sjá hvort hefur betur.
Hvarvetna í borginni er
verið að höndla. Og það er
hreint stórkostleg upplifun að
rölta um endalausa markaðina
og prútta og sjá hinn marg-
breytilega varning sem er á
boðstólum. Sér í lagi er skemmti-
legt að fara á kvöldmarkaðina
sem settir eru upp um leið og
kvölda tekur í hverfum inn-
fæddra. Ekki er undirritaður í
nokkrum vafa um eftir að hafa
gert verðsamanburð í versl-
unum og á mörkuðunum að
margt af því sem þar var til sölu
var ekki vel fengið. Enda
ábyggilega margur sem hafði
aðstöðu og hag í því að ná
hinum ótrúlegustu hlutum út úr
hinum stóru verksmiðjum sem
framleiða allt frá saumnálum
upp í bíla. Þarna var ekkert sem
Eftir að hafa komið hafur-
taskinu í leigubíl fyrir utan
flugstöðina hófst leit að hóteli. Ég
komst fljótt að raun um að
bílstjórinn skildi enga ensku
og mér gekk ekki alltof vel að
gera mig skiljanlegan. Umferðin
og fólksmergðin var gífurleg.
Það tók langan tíma að finna
hótel, sem ekki var yfirfullt, en
það tókst þó að lokum. Og ekki
stóð á litla Kínverjanum, sem
leigubílnum ók, að ætla sér
að taka of mikið fyrir akstur-
inn. En mér tókst að sjá við
honum og hann hrökk í kút
þegar við höfðum karpað
góða stund um gjaldið og ég
minntist á lögreglu. Ég komst að
því seinna að öll löggæsla er til
mikillar fyrirmyndar og lítið
er um glæpi miðað við hinn
gífurlega fólksfjölda sem þarna
býr.
Hong Kong er konungleg
brezk nýlenda sem mun lúta
stjórn Breta fram til 1997, en þá
er ekki vitað hvort framlengdur
verður samningur Breta og
Kínverja um stjórn þessarar
eiginlegu fríhafnar.
Hong Kong samanstendur í
raun af 237 eyjum, en flestar
þeirra eru óbyggðar og hrjóstrug-
ar. Þrjú stærstu svæðin sem eru
í byggð eru Hong Kong-eyja,
þar sem búa 1,5 milljónir
manna á 30 fermílum lands; Kow-
loon þar sem er 1 milljón
íbúa á 3 fermílum, og New
Territories, sem hefur 2,5 millj-
ónir íbúa á 365 fermílum. Alls eru
íbúarnir því um 5 milljónir. Og
það er ekki laust við að
maður verði vel var við hina
gífurlegu fólksmergð sem er á
ferðinni í borginni og í rauninni
á afar litlu svæði.
Kínverjar eru ákaflega
ljúft og elskulegt fólk og áber-
andi hvað þeir eru kurteisir.
Hong Kong er mikil mið-
stöð verzlunar og iðnaðar og
þaðan berst um allan heim varn-
ingur og viðskipti. Borgin
breytist ákaflega ört enda er
hún í örum vexti og sífellt verið
að byggja stórhýsi og verksmiðj-
ur.
Yfirleitt býr fólk þarna
mjög vel miðað við Asíu, en
andstæðurnar eru miklar. Háhýsi
og skýjakljúfar og svo hins
vegar hrófatildur og blokkir,
sem sumum þætti ekki híbýli
fyrir fólk. En það er sama hvert
litið er, allt er iðandi af
mannlífi. Allir eru að koma
eða fara. Þúsundir skipa og
báta sigla þvers og kruss um
hafnarsvæðið, allt frá kínversk-
um junkum upp í stór og
glæsileg skip. I Hong Kong
Grein og myndir
Þórarinn
Ragnarsson
Borg
andstæöna
og iðandi
mannlífs
Kínverskur útimatsölustaður í hverfi innfæddra. Þrátt fyrir að
staðirnir séu margir hverjir ekki vistlegir er maturinn hreinasta
lostæti.
Ekki óalgcng sjón I íbúðarhverfum innfæddra í Hong Kong.
Eldunaraðstaðan er ekki margslungin, en engu að siður er maturinn
sem búinn er til góður.
Faðirinn fylgdist vel með handbragði unga mannsins, aflinn hafði
greinilega verið góður kvöldið áður og nú var lífinu tekið með ró.