Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
101
manna sé fremur aö finna á
skjölum og opinberum gögnum en
nöfn almúgamanna.
Þá veitist mönnum mjög erfitt
að komast niður 18. öldina, vegna
skorts á heimildum, þannig að
menn komast jafnvel ekki niður
að manntalinu frá 1703, jafnvel
ekki færir ættfræðingar.
Allar ættir á Islandi segir
Ólafur vera geysilega blandaðar,
og sé það að vonum þegar haft er í
huga að landsmenn hafi oft verið
um og undir fjörutíu þúsund
talsins. Mikil blöndun hlaut því að
eiga sér stað. Hins vegar eru
ættliðirnar frá landnámsöld ekki
svo ýkja margir, og má til dæmis
nefna, að þeir menn sem nú eru
uppi eru tólfti til fimmtándi
ættliður frá Jóni Arasyni, eigi þeir
ættir til hans að rekja, en hann
var líflátinn árið 1550 sem kunn-
ugt er, og er unnt að rekja ættir
núlifandi íslendinga til allra
barna hans, nema Þórunnar, sem
ekki átti barn sem lifði.
Sem dæmi um það, hve íslend-
ingar eru skyldir, og hve oft ættir
koma saman, nefndi Ólafur, að oft
væri sagt að allir geðbilaðir
Islendingar ættu ættir að rekja til
séra Einars sálmaskálds Sigurðs-
ingar um ætterni manna og börn,
um uppruna og aldur, hjónabönd
og margt fleira. Ættfræðin er þó
ekki aðalástæðan fyrir því að
slíkar bækur eru gefnar út, þó
forvitni og fróðleikslöngun- um
þetta fólk sé vissulega með í
ráðum.
En rit af þessu tagi getur einnig
verið mjög nytsamlegt fyrir skóla-
stjóra, skólanefndir og fleiri aðila.
Þá er hér í rauninni á ferð almenn
mannfræðibók, í merkingu Þor-
láks sögu biskups, þar sem unnt er
að sjá hvaðan menn eru, hverjir
eru foreldrar þeirra, hvaða
menntun hafa menn og hvað
störfuðu foreldrar þeirra, hvaða
störfum gegnir þetta fólk og svo
mætti lengi telja.
— Er útgáfa af þessu tagi
séríslenskt fyrirbrigði?
„Nei, því fer fjarri. Bækur eins og
Kennaratal eru gefnar út víða um
lönd. Eg er hér til að mynda með
færeyskt kennaratal. Og inni í
Landsbókasafni er geysimikið rit,
æviskrár allra breskra rithöfunda
með ritaskrá, svo að eitthvað sé
nefnt. Yfirleitt taka þessi rit til
einhverrar ákveðinnar stéttar,
eins og vel er þekkt hér á landi.
Þetta er nokkuð á annan veg um
verksvið Kennaratalsins er að
sjálfsögðu mun þrengra en þess-
ara rita, en þó að sumu leyti
rýmra.
En ástæða þess að nú er verið að
undirbúa nýtt Kennaratal er sú,
að fyrra Kennaratalið, sem kom út
á árunum 1958 til 1965, og sem er
það eina sem til er, er úrelt orðið
af ýmsum ástæðum. Mjög margir
kennarar hafa til dæmis bæst í
hópinn síðan, börn eldri kennara
eru orðin uppkomin, menn látnir
og farnir í önnur störf og svo
framvegis. Ástæða þótti því til að
bæta nýjum upplýsingum inn í um
leið og nöfnum er bætt við.“
Ólafur kveður það hins vegar
valda erfiðleikum við þetta starf
hve seint margir sendi umbeðnar
upplýsingar, þeir ætli að gera það
þegar þeir hafi lítið að gera, en sá
tími komi stundum seint. Hins
vegar minntist hann þakksamlega
þeirra manna sem svarað hafa
bæði fljótt og vel. Fjöldi þeirra
sem svarað hafa er einhvers stað-
ar á þriðja þúsundinu. En engu sé
hægt að lofa um útgáfudag ritsins.
Það muni taka til mörg þúsund
manna, en 4200 kennarar voru í
gamla Kennaratalinu. Það flýtir
auðvitað fyrir verkinu, segir Ólaf-
iíslendinga
vaxandi“
sonar í Eydölum. — En rétt væri
einnig að bæta því við, að allir
heilbrigðir Islendingar ættu einn-
ig ættir að rekja til hans, þar sem
frá honum eru nánast allir lands-
menn komnir.
Þúsundir kennara
í eina bók
— Nú ert þú að vinna að útgáfu
Kennaratals, er það á einhvern
hátt tengt ættfræðinni?
„Útgáfa bóka eins og Kennara-
tals eða Lögfræðingatals og marg-
víslegra annarra starfs- eða
menntastétta tengist ættfræðinni
náttúrlega á þann hátt að í slíkum
ritum má finna miklar upplýs-
Kennaratalið, þótt það sé bundið
við kennara. Það nær til miklu
fleiri manna en nokkurn mundi
gruna að óreyndu. Það á að taka
til allra þeirra sem hafa aflað sér
kennararéttinda eftir gildandi
lögum á hverjum tíma, þótt þeir
hafi aldrei kennt, og einnig til
annarra sem hafa kennt meira en
1—2 vetur og þeir eru margir og
sumir kunnari fyrir önnur störf en
kennslu. Kennaratalið geymir auk
fræðslu um kennslustörf manna
margvíslegar upplýsingar um fjöl-
breytt félagsstörf þeirra, þátttöku
í atvinnurekstri og opinberum
málum og þar fram eftir götunum.
Kennaratalið er ævisagnabók á
borð við Hver er maðurinn? og
íslenskrar æviskrár eða hið fræga,
enska rit Who is who?, svo að
vikið sé til annarra landa. En
ur ef þeir kennarar sem ekkert
hefur heyrst frá bregða nú al-
mennt hart við og senda upplýs-
ingar fyrir hvítasunnuna. Þetta
nær auðvitað einnig til kennara
sem hættir eru störfum og ekkert
síður þótt þeirra sé getið í gamla
kennaratalinu. Geri þeir þetta
verður hægt að koma prent-
smiðjuhandriti að ritinu nokkuð
langt áleiðis í sumar.
Þar með var tími til kominn að.
fara að slá botninn í viðtalið við
Ólaf Þ. Kristjánsson, en greinilegt
er að ættfræðiáhugi söguþjóðar-
innar dafnar enn, þótt ekki þurfi
lengur að skrá ættir til að sanna
að þjóðin sé komin af norrænum
mönnum en ekki keltneskum
þrælum eins og í upphafi íslands-
byggðar.
- AH
SKrautrituð ættartölublöð má fá i Bókaverslun Snæbjarnar í Reykjavik, þar sem menn geta fært inn
ættir sinar allt aftur til langa langa langafa og ömmu hafi þeir áhuga á og viti nægilega mikið um
ættir sinar.
Frá Norræna félaginu
Fundur til að kynna sérferðir félagsins verður í
Norræna húsinu fimmtudaginn 10. apríl kl. 20.30.
Eftirtaldar feröir veröa kynntar:
1. Færeyjaferðir
2. Ferðir til Þrándheims og Tromsö.
3. Ferð til Lulea.
4. Ferö til Hjaltlands og Orkneyja.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Norræna félagiö.
HREIN MINKA0LÍA DYRMÆT
GJÖF
{&) FRA
nrzomne NÁTTÚRUNNI
Auk þess sem Minkaolía er notuð sem grunnefni í
margskonar snyrtivörur s.s. varalit, dag- og nætur-
krem o.fl. er hrein Minkaolía eitt þaö besta sem hægt
er að nota í eftirfarandi atriðum:
★ sem húö- og sólolía
★ sem nuddolía
★ sem barnaolía
★ sem nagla- og naglabandaolía
★ sem hármeöal gegn flösu, klofnum hárendum,
þurru og líflausu hári og til aö auka gljáa og lit
hársins.
★ sem hand- og fótaáburöur
★ sem næring á augnabrúnir og augnahár
★ sem baöolía
★ við hrukkum kringum augu og á hálsi
★ við rakstur í’staö rakkrems eöa sápu
SÖLUSTAÐIR í REYKJAVÍK: Borgar Apótek — Óculus —
Laugavegs Apótek — Snyrtivörubúóin Laugavegi 76 —
Vesturbæjar Apótek — Bylgjan Kóp. — Hafnarborg Hafnar-
firöi
Sölustaði vantar um allt land.
HAGALL sf.
Sími 17840 (einnig á kvöldin).
Traustir
tjaldvagnar
Sérstaklega sterkur og góður undirvagn. Stál-
grind, þverfjöður, demparar, stór dekk. Vagninn
er nærrí rykþéttur.
Svefnpláss fyrir 7—8 manns.
Eldhúskrókur með eldavél og fleiru.
Innifalið í verði: Fortjald, innritjöld, gardínur,
gaskútur, þrýstijafnari og yfirbreiösla.
Camptorist er til afgreiðslu strax.
Gísli Jónsson & Co. h.f.
Sundaborg. Sími 86644.