Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 24
104 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 Um fugla- líf á Vest- fjörðum Uppi á landi eru öll vörpin á þannig stöðum að tófan kemst ekki að þeim. Yfirleitt eru þau við mannabústaði og oftast vel varin af mönnum. • Afkoma fálkans byggist á rjúpunni Á hverju sumri síðan 1973 hefur Ólafur Nielsen haldið vestur til að fylgjast með fálkavarpinu, og því tími til kominn að spyrja hann um þann eðla fugl. Fálkinn er strjáll varpfugl um allt ísland. Verpir m.a. á Vestfjörðum. Hann lifir fyrst og fremst á rjúpu og lunda. Og aðallundasvæðin á Vestfjörð- um eru Isafjarðardjúp, Stranda- sýsla, og út af Barðaströndinni. Á þessar slóðir hefur Ólafur farið til að leita að hreiðrum, safna fæðu- leifum við hreiðrin og merkja unga. Þótt hann geri það fyrst og fremst af áhuga, þá er hann um það í samvinnu við Náttúrufræði- stofnun. Fálkinn kemur mjög snemma á varpstöðvarnar á vorin. Rjúpu- karrarnir eru þá komnir á óðul sín. Rjúpukarrarnir eru mjög áberandi á þessum árstíma. Þar sem þeir eru hvítir á nær auðri jörð, auk þess sem þeir þurfa að auglýsa sig til að verja óðul sín fyrir öðrum körrum. Og fálkar, jafnt við sjávarsíðuna sem inn til landsins, lifa þá að mestu á rjúpu. En þegar rjúpan er orpin og byrjuð að liggja á í júní, rennur mesti móðurinn af körrunum. Þeir fara að fella fjaðrir, verða samlit- ari umhverfinu og hætta að verja óðul sín. Á tímabilinu frá því um miðjan júní fram í ágúst á fálkinn erfitt með að finna rjúpur. Hann verður þá að snúa sér að öðrum tegundum og á Vestfjörðum fer hann að veiða lunda, jafnvel fálkar, sem verpa þó nokkuð langt frá sjó. Þar sem lunda er ekki að fá, veiðir hann ýmsa aðra sjófugla eða mófugla. Rjúpnaveiðar fál- kans hefjast aftur í ágúst, er rjúpnaungarnir eru orðnir fleygir. Fálkar verpa yfirleitt í þverhnípt- um hömrum eða snarbröttum gljúfrum og giljum. Stofnstærð fálkans ræðst af stofnstærð rjúp- unnar. Þegar mikið er um rjúpu, vegnar honum vel. En í rjúpna- leysisárum verpir hann ekki eða kemur ekki upp ungum. • Fann hafarnarhreiður Fleiri höfðingsfuglar eru á Vestfjörðum. Islenzki hafarna- stofninn þraukaði þar og við Breiðafjörð, þegar honum hafði nærri verið útrýmt snemma á þessari öld. En stofninn hefur sem betur fer verið í. aukningu síðustu tvo áratugina, segir Ólafur, og breiðst út frá þessum stöðum. — Jú, ég hefi séð þá. Fann meira að segja hreiður, sem ekki var vitað um. Það var að vísu gamall varpstaður, sem ekki hafði í manna minnum verið orpið í. Hreiðrið var í ókleifum hömrum við fjarðarbotn. Þetta er ákaflega Einkennisfuglar í Önundar- firði reyndust vera stelkur, æð- arfugl og stokkönd. Ilér er stokk- önd með unga sina. tígullegur fugl. Fullorðnir ernir eru veiðifuglar, taka fugl og fisk. En ungfuglarnir lifa mikið á hræjum. Þeir hafa ekki strax yfir þeirri tækni að ráða, sem þarf til veiðanna. Varla er hér rúm til að gera sjófuglunum skil, sem mikið er af í björgunum stóru, Látravíkur- bjargi, Hælavíkurbjargi, Horn- bjargi. Þar eru fýll, rita og svartfuglarnir, langvían, stutt- nefjan og álkan. Lundinn telst líka til svartfugla, segir Ólafur. Hann verpir í eyjum á ísafjarðardjúpi, Breiðafirði og í Strandasýslu, en er ekki mikið í fuglabjörgunum. Fimmti svartfuglinn er teistan. Hún verpir í annesjum allt í kring um Vestfjarðakjálkann. Af öðrum sjófuglum er hvítmáfurinn og svartbakurinn mest áberandi, verpir á annesjum líkt og teistan. Það er ákaflega gaman að horfa á sjófuglana, þótt oft geti verið erfitt að komast að þeim á þessum slóðum segir Ólafur. Vegakerfið á Vestfjörðum byggist á því að aka úr fjarðarbotni yfir fjall og í næsta fjarðarbotn, en út með fjörðunum liggja vegir tiltölulega skammt. Sjófuglarnir eru því ekki í alfaraleið. • Nýjar fuglateg- undir nema land — Vestfirðir eru svo afskekktir, segir Ólafur, að margar gamal- grónar varptegundir á íslandi og tegundir, sem hér byrjuðu að verpa snemma á þessari öld, eru nú fyrst að ná til Vestfjarða. Dæmi um það er jaðrakaninn, sem frá JAPAN 79 500 frábær hljómgæöi fyrir alla m Feröakassettuutvarp með 3 bylgjum BORGARTUNI 18 REYKJAVÍK SlMI 27099 SJONVARPSBUÐIN 4» m/s Esja fer frá Reykjavík fimmtudaginn 10. þ.m. austur um land til Seyðisfjarðar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Vest- mannaeyjar, Hornafjörð, Djúpa- vog, Breiðdalsvík, Stöövarfjörð, Fáskrúðsfjörö, Reyöarfjörð, Eskifjörð, Neskaupstað og Seyöisfjörö. Vörumóttaka alla virka daga til 9. þ.m. ± J5KIPAUTGCRP RIKISINS m/s Hekla fer frá Reykjavík föstudaginn 11. þ.m. vestur um land í hringferð og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreksfjörö, (Tálknafjörð og Bíldudal um Patreksfjörð), Þingeyri, ísafjörö, (Flateyri, Súgandafjörö og Bol- ungarvík um ísafjörö), Noröur- fjörð, Siglufjörö, Ólafsfjörð, Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörö, Vopna- fjörð og Borgarfjörö eystri. Vörumóttaka alla virka daga til 10. þ.m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.