Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 22
102 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 m Fálkinn cr fuRla tígulcKastur. var hann scm dró viðmælanda okkar fyrst til Vestfjarða, 1973. Vorboðarnir ljúíu eru að koma og komnir sumir hverjir. Lóan farin að kveða burtu snjóinn. Og hópar af tjaldi og sendlingi að gæða sér á góðmetinu í Kópavogi á fjörunni. Arstími þeirra. sem gefa fuglum himinsins gaum og njóta þeirra, er genginn í garð. Með meiri fróðleik má kannski hafa af þeim aukinn unað. Og fróðleiksmolana sækjum við hér til Ólafs Nielsen líffræðings, sem er mikill fuglaskoðari. Ilann hefur m.a. allt frá 1973 sótt árlega til Vestfjarða, þess kjálka sem lengst teygir sig mót hafísnum og virðist e.t.v. ekki hlýlegastur móttökustaður fugla, með sín háu fjöll og mjóa undirlendi. En fuglar eru aðlagaðir öllum aðstæðum, eins og hann segir. Og flestar tegundir, sem verpa hér sunnan- lands, er þar að finna. þar sem hann hefur fylgst með fálkahreiðrum síðan • Fljúga 2000 km í einum spretti Annars verpa á Vestfjörðum a.m.k. 9 tegundir vaðfugla, þeir eru tjaldur, sandlóa, heiðlóa, hrossagaukur, spói, jaðrakan, stelkur, sendlingur, lóuþræll og óðinshani. Þrjár tegundir vað- fugla, sem ekki verpa á íslandi, þ.e. rauðbrystingur, tildra og sanderla, eru þar árlegir umferð- arfarfuglar á leið sinni til og frá varpstöðvum sínum í hánorræn- um löndum. Þessar tegundir verpa á austur- og norðurströnd Græn- lands og kanadísku eyjunum, aðal- lega á Ellesmereyju og Alex Hei- bergeyju. Auk þess fara um Island vor og haust sandlóur, sendlingar og lóuþrælar áf hánorrænum upp- runa. — Stærsti hluti þessara vað- fuglastofna dvelur í Vestur- Evrópu og við norður- og vestur- strönd Afríku yfir veturinn. Þeir halda sig þar sem næga fæðu er að fá og eru yfirleitt á frjósömum leirum. — Það á þó ekki við um heiðlóuna og hrossagaukinn, sem halda sig meira inn til landsins á þessum árstíma og óðinshanann, sem er úthafsfugl. — Þegar fer að vora, verður breyting á líkams- starfssemi þeirra, og þeir taka að safna miklum fituforða. Þegar þeir eru tilbúnir, yfirgefa þeir vetrarstöðvar sínar og fljúga í einum sprett norður til íslands, oft allt að 2000 km vegalengd. Þegar þeir svo koma hingað til lands, hafa þeir gengið mjög á fituforða sinn. Þeir vaðfuglar, sem verpa hér, endurnýja ekki fitu- forðann. Þeir halda fyrst til við sjávarsíðuna, en þegar líður á maí dreifast þeir inn um landið á varpstöðvarnar. Öðru máli gegnir um hánorrænu vaðfuglana, sumir þeirra eiga enn ólokið rúmlega helmingi leiðar sinnar til varp- stöðvanna. Þessir vaðfuglar koma yfirleitt heldur seinna en íslensku vaðfuglarnir. Þeir byrja ekki að koma í miklu magni fyrr en síðast í apríl og ná hámarki um miðjan maí, þó eru þeir fyrr á ferðinni á SV-landi en á Vestfjörðum. Þessir fuglar eru yfirleitt í mjög stórum hópum, oft þúsundir fugla saman, og halda til á afmörkuðum stöðum. Hér á landi dvelja þeir 1 3 til 6 vikur, og á þessum tíma endurnýja þeir fituforða sinn og nægir hann til að knýja þá síðasta spölinn. Síðustu dagana í maí og fyrstu dagana í júní fara þessir fuglar mjög skyndilega. I Danmarkshavn á austurströnd Grænlands byrja þessir fuglar að koma í lok maí. Þegar á varpstöðvarnar er komið, eiga þeir einatt eftir nægan forða til að hefja undirbúning á varpi. En undirbúning fyrir varp hefja þeir um leið og þeir koma á varpstöðvarnar. Nú þurfa þeir að verpa, koma upp ungum og síðan Elín Pálmadóttir Upphaflegt erindi Ólafs vestur var að huga að fálkahreiðrum, safna fæðuleifum í þeim og merkja unga. Hann fór gangandi um Vestfjarðakjálkann, allt norð- ur til Hornbjargs. Og fuglaskoðari sleppir því auðvitað ekki að horfa eftir hverskyns fuglum. A síðast- liðnu sumri var hann ráðinn hjá Líffræðistofnun Háskólans til að vinna að verkefni fyrir Vegagerð- ina og dvaldi við athuganir á fuglum í Önundarfirði og annars staðar á Vestfjörðum í þrjá mán- uði. — í innsta hluta Önundarfjarð- ar eru miklar leirur, og eru áform um að leggja veg yfir fjarðarbotn- in með tilheyrandi uppfyllingum og brú, útskýrir Ólafur. Mitt verkefni var að telja fugla. Athug- anatíminn var um vorið, í apríl og maí, og aftur síðsumars, í júlí og ágúst. Athugað var hvaða tegund- ir fugla, og í hve miklu magni, nýta innsta hluta Önundarfjarðar. Einnig var talið á sama tímabili mjög víða á Vestfjörðum, til að gera sér grein fyrir þýðingu Ön- undarfjarðar. Einkennisfuglar í :nnsta hluta Önundarfjarðar voru ,idur, aðallega æðarfugl og stokk- önd, vaðfuglar, aðallega stelkur, og máfar, aðallega svartbakur, hvítmáfur og hettumáfur. rœöir viö Ólaf Nielsen líffrœöing PK Æðarkollurnar ráða hvar orpið er. Þær leita á æskustöðvarnar . Æðarkóngurinn, sem er m.a. varpfugl Grænlandi. kemur hér alltaf í einhverju magni á haustin og fer á vorin, nema þeir blikar, sem parast hafa íslenzkum æðarkollum. eins og þessi á miðri mynd. Þeir fylgja sinni kollu. að endurnýja fituforða sinn, en þarna eru hagstæð skilyrði þegar líður á sumarið. Það er ástæðan fyrir því að þeir sækja svo langt. Þeir hafa næga fæðu. Síðan er lagt upp aftur. Fartíminn hjá þeim byrjar strax í júlí. Fullorðnir fuglar fara fyrst. Kvenfuglarnir gjarnan fyrst. Um miðjan júlí eru t.d. fyrstu rauð- brystingarnir komnir til íslands aftur. En haustfartíminn nær yfir lengra tímabil en vorfartíminn. Fuglarnir fara hraðar um ísland og hóparnir eru smærri. Og til Bretlands byrja þeir að koma í lok júlí. Þegar líður á haustið eru ungfuglar í meirihluta í hópunum, sem eftir eru hér. En það er þekkt hjá mörgum tegundum að full- orðnu fuglarnir fari á undan og ungarnir síðar. Eins og ég sagði áðan, segir Ólafur, hafa þessir fuglar gengið mjög á orkuforða sinn er þeir koma hér á vorin. Dvöl þeirra hér er þeim lífsnauðsynleg, ef þeir eiga að ná til varpstöðva sinna í sæmilegu líkamsástandi. Á vorin eru tiltölulega fáir staðir hér á landi, sem geta staðið undir þess- um fuglaskara, því einstaklings- fjöldinn skiptir hundruðum þús-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.