Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 14

Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 14
Mikill áhugi er nú á víkingum víöa um lönd, en um þessar mundir er mikil sýning í British Museum í Lundúnum þar sem leitast er viö aö varpa Ijósi á líf þessara manna, sem í lok áttundu aldar hófu að sigla um heimsins höf, nema lönd og kanna ókunnar slóöir. Þótt víkingarnir hafi víða gert mikinn usla þá var menning þeirra merkileg og hefur án efa átt ríkari þátt í mótun sögunnar en vígaferli þessara forfeðra okkar. texti: ASLAUG RAGNARS V ikingar voru skartmenn miklir og bæöi karlar og konur bárust á í klæöaburöi eftir því sem efni leyfðu. Djásn kvenna voru til marks um auölegö þeirra, en meö því aö telja hringa þeirra og brjóstnálar mátti áætla nokk- uö nákvæmlega efnahag fjöl- skyldunnar. Þessir skartgripir voru margir úr gulli og silfri, þ.e. segja þeir sem voru í eigu efnafólks. Skartgriþir þeirra, sem minna áttu af jarðneskum verö- mætum, voru yfirleitt úr bronzi, en bronzgriþir voru þó yfirleitt gylltir eða tinhúöaðir. Helztu heimildir um búnaö manna á víkingaöld eru úr gröfum þeirra á Noröurlöndum, því aö þar sem þeir settust aö í öörum löndum tóku þeir fljótlega uþþ búnaö heimamanna, til aö skera sig síöur úr og vekja andúö. Sundur- geröarmenn í klæöaburöi hafa víkingarnir ekki veriö, og þaöan Iaf síöur konur þeirra. Föt þeirra eru mjög einföld í sniöum og hafa verið mjög þjál og þægileg. Hnapþar og krókar þekktust ekki, en flíkurnar voru teknar saman meö böndum eöa nælum. Konur víkinga klæddust venju- lega dragsíöum undirkjólum úr þunnu efni og höföu yfir nokkurs konar svuntu eöa skokk, sem náöi þeim í hnésþætur. Skokkur- inn var úr ullarefni, opinn í hliöunum, en nældur í kjólinn aö framan. Nælurnar voru skraut- legar mjög, ýmist sporöskjulag- | aöar, kringlóttar eöa af annarri | lögun, stórar mjög, oft 10—15 | sentimetrar í þvermál. Milli þess- ara brjóstnála var algengt aö | konur bæru festar, sem oft voru | settar saman af glerperlum, | kristöllum, silfurkúlum eöa ambri. í brjóstnálarnar hengdu I konur oft ýmsa persónulega muni, sem þær þurftu oft aö grípa til, svo sem kamba, nálar- hús, lykla, hnífa og skæri. Yfirhafnir kvenna voru sjöl, sem næld voru saman á brjóst- inu, og til þess var höfö þriöja nálin, sem yfirlett var löng og mjó. Armhringi, fingurgull og háls- bönd úr dýrum málmum báru karlar jafnt sem konur, og gátu þessi djásn orðið nokkuö stórk- ostleg. Mikilfenglegasta hálsband, sem vitaö er um, fannst í Tisso í Danmörku fyrir aöeins þremur árum, en þaö er úr skíra gulli og vegur um tvö kílógrömm. Sýni- lega hefur þessi gripur veriö í eigu karlmanns, og sá hefur veriö svíramikill, ef marka má þvermál hringsins, sem er 35 sentimetrar. Auk slíkra djásna var algengt aö karlar heföu spöng um höfuðið, þ.e. þegar allt var meö felldu, en í hernaöi báru þeir aö sjálfsögöu hjálma. Einhver algengasta rang- færslan um víkingana er aö hjálmar þeirra hafi veriö hyrndir — um slíkt eru engar heimildir, þótt myndir og brot úr hjálmum af ýmsum gerðum séu til. Vopn voru eins sjálfsagöur liöur í búningi víkinga og kyrtlar þeirra eða brækur, því aö án þeirra hreyfðu þeir sig ekki fótmál. Helztu vopn þeirra voru sverð, öxi og sþjót en algengast var spjótiö, sem þeir notuöu jöfnum höndum viö veiöar og í hernaöi. Hringabrynjur og skildi notuöu víkingarnir sér til hlífðar í hernaöi, en líklega hafa ekki aörir en efnamenn getaö eignazt brynjur. KlæðL Klæönaður á víkinga- öld. Kaupmaöurinn efst til vinstri er stásslegur í framandlegum klæðum, sem hann hefur greini- lega fengiö í Austur- löndum. Giftar konur báru venjulega höfuöföt. Sjá nœstuA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.