Morgunblaðið - 13.04.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1980
55
Viðar
Ottesen
hættir á
Naustinu
VIÐAR Ottesen barþjónn í
Naustinu lét af því starfi 1.
apríl sl. Viðar hefur starfað í
Naustinu frá því 15. nóvem-
ber 1956 og á barnum síðan
1963.
„Ástæðan fyrir því að ég er
að hætta er sú að launin eru
að verða minni en ekki neitt,“
sagði Viðar í samtali við Mbl.
„Kemur það m.a. til vegna
lokunar hádegisbarsins. Eg
vil éinfaldlega ekki eyða tíma
mínum í að vinna á kvöldin og
um helgar og fá fyrir það
minna kaup en ef ég ynni á
daginn. Og af hverju ekki að
breyta til og reyna eitthvað
nýtt.“
Viðar sagðist ekkert hafa
ákveðið hvað hann tæki sér
Viðar Ottesen við vinnu sina á
barnum á Naustinu.
Fylgjast vel með nýjustu tækninni
Mynd þossi or tokin um borð í togaranum
Tálknfirðingi og birtist i tímaritinu Fishing
Now Intornational i fohrúar sl. Myndin sýnir
nýjasta loran (' tæki Doooa-fyrirtækisins.
Tálknfirðingur or í oigu útgorðarfyrirtækis-
ins Glettingur hf. on skipstjóri or Dórður
Páimason. l>að komur oinnig fram í fróttinni
som fylgir myndinni að ta ki þotta or nýkomið
á markaðinn og má því sogja að Islondingar
fylgist vol moð nýjustu fiskveiðitækni.
isnrng News international — Februarv 1980 11
DECCA S iatest Loran C receíver, the
microprocessor-based 1024 is seen
here aboard the iceiandic fishing ves-
sel Talknfirdingur. The vessel is
owned by Glettingur Ltd. and skip-
pered by Pordur Palmason. Over 600
orders have already been received
from vessel owners around the world
for this recentfy introduced posrtion-
fixing aid.
Halldóra er að
slá aldursmetið
+ Halldóra Bjarnadóttir, elsti
núlifandi íslendingur, fyllir á
morgun hálft 107. árið, og þá
vantar aðeins dag upp á að hún
setji aldursmet á íslandi. Það
met jafnar hún á þriðjudag og
slær metið á miðvikudag ef guð
lofar. Sá íslendingur, sem náð
hefur hæstum aldri, svo vitað
sé, var Helga Brynjólfsdóttir í
Hafnarfirði, sem fædd var 1/6
1847 og dó 2/12 1953 og lifði
því 106 ár, 6 mánuði og einn
dag. Halldóra Bjarnadóttir er
fædd 14/10 1873 og er að slá
það met, sem fyrr er sagt. En
lengst lífshlaup á eftir þessum
tveimur átti svo María Andrés-
dóttir í Stykkishólmi, sem lifði
106 ár 2 mánuði og 12 dagá, en
hún lézt 3/9 1965.
sambandi karlinum, þótt konur
fari langt fram úr körlum hvað
langlífi snertir. Elsti karlmaður
á landinu er skv. skrám frá 1.
des. í vetur Sigurður Magnús-
son, Laufásvegi 5 í Stykkis-
hólmi, fæddur 20/4 1880. Hann
er hinn brattasti, að verða 100
ára um næstu helgi. Sigurður er
tengdasonur Maríu Andrésdótt-
ur. Elski karlmaður mun hafa
orðið 104 ára á íslandi.
Ævilengd íslendinga hefur á
undanförnum árum verið meðai
þess alhæsta í heiminum og nú
eru íslenzkar konur og karlar í
efsta sæti hvað meðalævi snert-
ir. Ólifuð meðalævi þeirra ný-
fæddu barna, sem nú eru að
fæðast, er 79,2 hjá konum og 73
hjá körlum.
fyrir hendur. Hann væri að
hugleiða það sem sér stæði til
boða en það væri ekkert á
sínu sviði.
Góðar minningar sagðist
Viðar hafa frá starfinu við
barinn í Naustinu.
„Þetta er skemmtilegt og
lifandi starf og maður kynn-
ist mörgu fólki. I raun og veru
eru barþjónar ambassadorar
lands síns. Margir útlend-
ingar sem hingað koma tala
ekki við aðra Islendinga en
barþjóna. Þeir verða því að
vera vel að sér í flestum
málum,“ sagði Viðar að lok-
um.
Halldóra dvelur sem kunnugt
er á Héraðshæli Austur-Hún-
vetninga á Blönduósi, þar sem
vel fer um hana. Farið er að
draga af henni, sem eðlilegt er
eftir svo langt lífshlaup, þótt
hús sé við ágæta heilsu miðað
við aldur. Henni er hjálpað fram
úr og í stól tvisvar sinnum á dag
og hún borðar sjálf, en mókir að
öðru leyti mikið í rúmi sínu, að
sögn Sigursteins Guðmundsson-
ar, yfirlæknis, sem lætur sér
mjög annt um Halldóru, svo sem
annað starfsfólk sjúkrahússins.
Á þessum tíma jafnréttis er
ekki rétt að sleppa í þessu
Hverjir eru bestir??
Það er víst enginn vafi á því að svar flestra þessara heiðursmanna
hefur verið „ Valur
Myndina tók ljósm. Mbl. Emilía í boði sem körfuknattleiksdeild
Vals hélt í Hollywood þegar bikararnir þrír voru komnir í hendur
Valsmanna. Lengst til vinstri á myndinni er Tim Dwyer þjálfari
Valsmanna, þá Stefán Ingólfsson formaður Körfuknattleikssam-
bands íslands, Jón Steingrímsson leikmaður í körfuknattleiksliði
Vals, Gunnar Gunnarsson stuðningsmaður Vals og loks Kristján
Agústsson sem einnig leikur í Valsliðinu í körfuknattleik.
fólk í
fréttum
Doktors-
skilríki
móttekin
+ Svo sem kunnugt er af fréttum
var Iiannes Jónsson. sendiherra
íslands í Moskvu, einn af þeim 25
kandidotum, sem hlutu doktors-
gráðu frá Vínarháskóla 25. mars
sl.
Blaðinu hafa borist myndir frá
athöfninni i hátíðarsal Vinarhá-
skóia, þegar doktorsskilrikin voru
afhent.
Á efri myndinni vinnur dr. Hann-
es vísindaheit Vínarháskóla, en á
neðri myndinni hefur hann tekið við
prófskilríkjunum og rektor Vínar-
háskóla, dr. Winfried Platzgummer,
prófessor, óskar dr. Hannesi Jóns-
syni til hamingju með góðan árang-
ur á prófum og með doktorsvörnina.
Doktorsritgerð sína, „Sjávarút-
vegur og utanríkisstefna íslands —
áhrif þeirra á hafrétt", varði dr.
Hannes 12. mars sl., en að því loknu
lauk hann munnlegum prófum í
stjórnmálafræðum, alþjóðalögum
og heimspeki.
Hannes er nú að flytjast frá
Moskvu, þar sem hann hefur verið
sendiherra íslands lengi. Hann
kemur heim í maí, en fer síðan til
Genfar, þar sem hann verður sendi-
herra landsins.